Alþýðublaðið - 21.10.1975, Side 4
'Flokksþing sænskra jafnaðarmanna:
ÞRlR AFANGAR A LEJÐ
JAFNAÐARSTEFNUNNAR
frá
RADI@NETTE
Sterkur stereo-magnari 2x20
wött (2x35 wött musik).
Útvarpstæki með lang-
bylgju, 2 miðbylgjum og FM
bylgju.
Cassettu upptöku og afspil-
unartæki með sjálfvirku
stoppi.
Fyrir bæði Chrome casettur
og venjulegar STD teljari.
Stórglæsilegt stereo-tæki með innbyggðu
útvarpi og cassettu segulbandstæki.
Hver vill ekki njóta eilifra unaðsstunda
með Svörtu Mariu fyrir aðeins
\
Góðir
greiðsluskilmálar.
EINAR FARESTVEIT & CO. HF.
Bergstaðastræti 10A
Simi 1-69-95 Reykjavik
kr. 124.205.-
Alþýðublaðið
26. flokksþing sænskra
jafnaðarmanna fór fram
i Stokkhólmi dagana 27.
september til 9. október,
og var þar samþykkt ný
stefnuskrá fyrir flokk-
inn, sem leggur meginá-
herslu á lýðræði i efna-
hagslífi og áhrif vinn-
andi manna á vinnustaði
sina og þau fyrirtæki eða
stofnanir, sem þeir
starfa fyrir. Af öðrum
málum bar hvað hæst á-
ætlun um stórfellda
aukningu dagvistunar-
heimila i Sviþjóð, en það
er nú talið til mannrétt-
inda — sem snertir ekki
sizt konur — að öll hjón
eigi þess kost að starfa
utan heimilis, ef þau
geta og vilja. Þetta
frelsi er ekki fyrir hendi,
ef skortur á dagvist-
unarheimilum neyðir
þúsundir foreldra (oft-
ast konurnar) til að sitja
heima.
Alls áttu 350 fulltrúar sæti á
flokksþinginu, en af þeim tóku 249
nú þátt i sliku þingi i fyrsta sinn,
og sýnir það mikla endurnýjún og
yngingu frá fyrri þingum. Meðal-
aldur fulltrúa var 44 ár, það er 45
ár fyrir karlmenn en 42 ár fyrir
konur.
Þá var hlutur kvenna á þinginu
mun meiri en nokkru sinni fyrr og
þátttaka þeirra i umræðum mikil.
Arið 1972 sátu 54 konur (15%) sið-
asta þing sænskra jafnaðar-
manna, en nú áttu sæti á þinginu
110 konur (31%) eða tvöföld fyrri
talan.
Sænskir jafnaðarmenn leggja
rika áherzlu á að halda lifandi
lýðræði i flokknum með þvi að
láta fram fara i flokksfélögum og
samböndum um allt landið um-
ræður um helztu málefni þingsins
fyrirfram. Gera félögin og sam-
böndin ályktanir og tillögur, sem
sendar eru til flokksstjórnar. Þar
er unnið úr þeim og flokksstjórnin
gerir tillögur til þingsins um sam-
þykkt eða synjun þeirra. Þingið
starfar litið i nefndum, en greiðir
atkvæði um málin — og veltur þá
á ýmsu hvort fylgt er meðmælum
flokksstjórnar eða ekki.
Að þessu sinni voru lagðar fyrir
flokksþingið átta skýrslur um
málaflokka, og bárust samtals
um 1200 tillögur varðandi þá frá
flokksfélögunum. Þar af voru yfir
500 tillögur varðandi hina nýju
stefnuskrá.
Sænskir jafnaðarmenn hafa
endurnýjað stefnuskrá flokks sins
á rúmlega 15 ára fresti um langt
skeið til þess að aðhæfa grund-
vallar hugsjónir sinar breyttum
timum, áframhaldandi þróun
þjóðfélagsins og nýjum verkefn-
um. Flokksþingið 1972 kaus nefnd
til þess að hefja eina slika endur-
skoðun. Skilaði nefndin fyrstu
drögum, sem prentuð voru og
dreift til allra flokksfélaga og
sambanda. Var gefinn frestur til
siðustu áramóta til að fjalla um
málið og senda breytingatillögur.
Samtals fékk stefnuskrárnefndin
álitsgerðir frá 175 félögum og 579
félög sendu breytingatillögur.
Tók nefndin þá aftur til starfa,
kannaði allt þetta efni, gerði all-
miklar breytingar á fyrstu drög-
um sinum og gaf út endurskoðaða
útgáfu, sem lögð var fyrir flokks-
þingið. Þar var málíð rætt itar-
lega og afgreitt.
Olof Palme forsætisráöherra og
formaður flokksins, sem mjög
hefur styrkt stöðu sina i sænskum
stjórnmálum I seinni tið, fylgdi
málinu úr hlaði á flokksþmginu.
Hann sagði meðal annars, að hinn
gamli foringi sænskra jafnaðar-
manna, Per Albin Hansen, hefði
skilgreint baráttu þeirra svo, að
fyrsta takmarkið hafi verið póli-
tiskt lýðræði (jafn kosningaréttur
og margvisleg önnur mannrétt-
indi), en annað takmarkið hefði
verið félagslegt lýðræði (velferð-
arrikið, þ.e. tryggingar, sjúkra-
samlög o.s.frv.). Nú sagði Palme,
að komið væri að þriðja takmark-
inu, en það væri efnahagslegt lýð-
ræði, sem ætti að veita vinnandi
fólki hlutdeild i stjórn þeirra
fyrirtækja, er það starfar hjá, til
þess að tryggja mannsæmandi
vinnustaði og heilbrigða starfs-
hætti og einnig að fólkið hljóti
hlutdeild i arði fyrirtækjanna.
Þannig hefði sjálfsvirðing, lifs-
kjör og öryggi launþega verið
byggt upp i Sviþjóð undir forustu
jafnaðarmanna — þrep fyrir
þrep.
Ýms mál komu fram á þinginu,
og i tillögum flokksfélaganna,
sem ekki er fullt samkomulag um
i sænska jafnaðarmannaflokkn-
um. Var á þinginu gerð ályktun
um stóraukið áhrifavald rikisins
á lyfjaframleiðslu, en meirihluti
reyndist ekki vera fyrir hug-
myndum um þjóðnýtingu alls
bankakerfisins eða frekari þjóð-
nýtingu. Hins vegar er bent á, að
hinir voldugu og sameinuðu lif-
eyrissjóðir, sem sænska verka-
lýðshreyfingin ræður yfir, séu
orðin ein mesta fjármagnsupp-
spretta i landinu, og lána þeir
stórupphæðir til ibúðabygginga,
til atvinnufyrirtækja og fleiri að-
ila.
Mikið var fjallað um heilbrigð-
is- og tryggingamál á flokksþing-
inu, en flokkurinn leggur áherzlu
á áframhaldandi þróun á þeim
sviðum. Þá var fjallað um að-
stöðu fatlaðra og lamaðra, svo og
annarra öryrkja, og þess krafizt,
að mun meira yrði fyrir slikt fólk
gert i sambandi við opinberar
byggingar og til þess að jafna að-
stöðu þess á vinnumarkaði. Loks
var rætt um dagvistunarheimilin,
sem nú eru tengd við jafnréttis-
baráttu kvenna, og var ákveðið
að reisa á 5 árum stofnanir fyrir
að minnsta kosti 150.000 börn á
dagsgrundvelli, sem dygðu mun
fleirum, þar sem börnin dveljast
oft ekki nema nokkrar klukku-
stundir á dag á þessum stöðum.
Er lögð rik áherzla á góðan út-
búnað dagvistunarstofnana og
góða þjálfun starfsliðs þeirra, en
meginatriði er, að með þessu
kerfi er alls ekki ráðizt gegn fjöl-
skyldunni, heldur er reynt að að-
laga hana nútima aðstæðum og
fullu frelsi foreldra til starfa utan
heimilis eftir menntun, þjálfun
eða tekjuþörf.
Utanrikismál komu mjög við
sögu á flokksþinginu, ekki i sam-
bandi við staðfestingu á utan-
rikisstefnu Svia, heldur vegna
hins djúpa áhuga þingfulltrúa á
atburðum með öðrum þjóðum og
örlögum þeirra. Aftökurnar á
Spáni fóru fram setningardag
þingsins, og siðar var gert þing-
hlé svo að þingfulltrúar allir, þar
á meðal forysta og ráðherrar,
færu út á götur Stokkhólms til að
safna fé til andstöðuhreyfingar
fasistastjórnarinnar á Spáni.
Haldin var samkoma til að
styrkja alþjóðlega samstöðu i
óperunni i Stokkhólmi, en þar töl-
uðu m.a. fulltrúar jafnaðar-
mannaflokka I Chile, Portúgal og
á Spáni, og fulltrúi andstöðu-
hreyfingar i Angola.
Flokksþing þetta bar vott um
mikinn styrk sænskra jafnaðar-
manna, enda hefur þeim tekizt að
halda við sameiningu allra krafta
verkalýðshreyfingar, samvinnu-
hreyfingar og hins pólitiska
flokks, en saman eiga þessar al-
þýðuhreyfingar mikil fræðslu-
fyrirtæki og útgáfufyrirtæki. Er
jafnvel svo komið, að andstæð-
ingum þessarar hreyfingar finnst
nóg um, og saka þeir alþýðusam-
tökin um að vera lýðræðinu
hættuleg i Sviþjóð. Jafnaðarmenn
eru þó á annarri skoðun og telja,
að einmitt þessi viðtæka eining
geri mögulega þá stöðugu þróun i
átt til lýðræðislegs sósialisma,
sem hefur áttsér stað i Sviþjóð og
gert Svia að fyrirmyndarríki með
einum beztu lifskjörum heims.
III Ú t b o ð
Tilboð óskast I framkvæmdir við lagningu 3. áfanga nýrr-
ar aðalæðar Vatnsveitu Reykjavikur frá vatnsbólum i
Heiðmörk til Reykjavikur.
Útboðsgögn eru afhent á skrifstofu vorri, Fríkirkjuvegi 3,
gegn 10.000.— kr. skilatryggingu.
Tilboðin verða opnuð á sama stað, miðvikudaginn 12. nóv-
ember 1975, kl. 11.00 f.h.
INNKAUPASTOFNUN REYKJAVÍKURBORGAR
Frílcirkjuvegi 3 — Sími 25800
Þriðjudagur 21. október 1975