Alþýðublaðið - 22.10.1975, Side 12

Alþýðublaðið - 22.10.1975, Side 12
alþýðu Vedrió Samkvæmt upplýs- ingum frá Veöurstofunni er spáin i dag, suö-austan kaldi eöa stinnings kaldi. Þá má einnig gera ráö fyrir skúrum hér á höfuö- borgarsvæöinu. Hitastig veröur i kring um 7 til 9 stig.Um Suöur og Vestur- land veröur yfirleitt suölæg átt, en svalt og þokuloft fyrir Norður- landi. SJJ)6V£:DuP> Útgefandi: Blaö hf. Framkvæmda- stjóri: Ingólfur P. Steinsson. Rit- stjóri: Sighvatur Björgvinsson. Rits tjórnarf ulltrúi: Bjarni Sigtryggsson. Auglýsingar og af- greiösla: Hverfisgötu 10 — simar 14900 og 14906. Prentun: Biaöa- prent hf. Áskriftarverö kr. 800.- á mánuöi. Verö I lausasölu kr. 40.-. KÓPAYOGS APÓTEK lOpiö öll kvöld til kl. 7 ilaugardaga til kl. 12 sendibilasiödin Hf KOPftX -ftH t/l Lfí&fí V£,r fí R 5 0/Z& LfíP 11 1 £LVS HfyT/ VERKfí 'onD FR'fí . Söúrf LOSfí 1 Ffídl OTfí 'ft UT/Nh hylM URGR /eo/vfí SKST YF/R GR/P Fofím TflLfí \ > MEGUM VIÐ KYNNA Erling Aspelund hótelstjóri fæddist á Isafiröi 28. febrúar árið 1937. Foreldrar hans eru Þórey bórðardóttir og Erling heitinn Aspelund. A Isafirði ólst Erling til7 áraaldurs, er hann fluttist á suövesturhorn landsins, nánar tiltekið i Mosfellssveitina. Lauk stúdentsprófi frá Menntaskóla á Laugarvatni árið 1956, og hóf störf hjá Loftleiðum um haustið sama ár. Fyrst starfaði Erling i flugumsjón hjá Loftleiðum, en ár- iö 1958 fluttist hann til Bandarikj- anna og hóf storf á Kennedyflug- velli sem afgreiðslumaður hjá Loftleiðum. Siöar gerðist hann stöðvarstjóri á Kennedyflugvelli en siðasti starfsvettvangur hans i USA áöur en hann hélt heim til fslands var á Manhattan, þar sem hann var aðstoðarframkvæmda- stjóri á skrifstofuFlugleiða.Til ís- lands kom Erling árið 1969 og gerðist þá hótelstjóri Hótels Loftleiða og á siöasta ári tók hann auk þess við stjórn á Hótel Esju, og i dag er hann æðstráðandi beggja þessara hótela. Erling er kvæntur Kolbrúnu Þórhallsdóttur og eiga þau hjónin fjögur börn, Erling, Karl, Thor og Guðrúnu. Um áhugamál utan daglegrar vinnu, segir Erling: „Ég hef eitt áhugamál sem ekki fer saman við vinnu mina og það er teikning og málun. Ég er i kvöldskóla hjá Myndlistar- og handiðaskólanum og stunda það nám mitt af kappi, eftir þvi sem timinn leyfir. Ég hef mjög gaman af þvi aö mála. Þetta er hljóölátt og gott áhuga- mál og ágætis hvild.” Varðandi hótelmál á Islandi hefur Erling þetta að segja: „Þetta er ung atvinnugrein, og < enn hefur engin hefð myndast. Þó er óhætt að segja að við séum á svipuöum „standard” hvað varð- ar gæöi og aðbúnað hótela, og viögengst á hinum Noröurlöndun- um. Nú hefur oröiö nokkur stöön- un i „túrisma” til tslands, sem kemur fram á nýtni hótela hér- lendis sem hefur haldist óbreytt undanfarin tvö ár,” sagði Erling Aspelund hótelstjóri að lokum. 0KKAR Á 'MILLI SAGT Þaö hefur vakiö bæöi undrun manna og hneyksiun hvernig hin svo- nefnda Kröflunefnd hegöar sér. Hún hefur sent sjálfa sig ásamt fjöi- inennum sérfræöingaher út og suöur i feröalög — og nú um þessar mundirer Jón Sólnes ásamt hluta fjölskyldu sinnar á feröalagi f Japan á kostnaö nefndarinnar, en auk Jóns sjálfs munu tveir synir hans vera að meira eöa minna leyti á launaskrá nefndarinnar. Þá er vitað, að miklu fé hefur verið eytt i ýmsan kostnaö annan og mun t.d. skrifstofa sú, sem formaður nefndarinnar, Jón Sólnes, hefur látiö innrétta fyrir sig.vera meö glæsilegustu skrifstofum á landinu. Eru sagöar sögur af ónemjulegum kostnaöi aöeins viö flutning skrif- stofuhúsgagnanna á staöinn. A hinn bóginn viröist næstum ógerningur bæöi fyrir almenning og rikisvaldiö sjálft aö fá upplýsingar um, hversu miklu fé nefndin eyöir meö þessu móti. Til dæmis er frá þvl skýrt i nýútkominni skýrslu fjár- málaráöherra um stjórnir, nefndir og ráö rlkisins, aö Kröflunefnd hafi ekki svaraö tilmælum um aö gera grein fyrir kostnaöi viö starfa sinn. Svona framferöi nær auövitaö ekki nokkurri átt og er furöulegt að þaö skuli látiö liöast átölulaust. Það þarf engum getum aö þvi að leiða, aö þeir Kröflunefndarmenn eru stórir karlar I eigin augum, en þeir eru samt sem áöur ekki þau stórmenni, aö þeim eigi aö haldast uppi aö eyöa stórfé úr sameiginlegum sjóöi landsmanna eins og nú árar, eftir- lits- og gagnrýnislaust. Kröflunefndin heyrir sem slík undir Gunnar Thoroddsen, iðnaöar- ráðherra. Þaö á þvi aö koma I hans hlut aö halda I spottann. Þvi verki hefur ráöherrann ekki sinnt og er leitt til þess að vita, þvi Gunnar ætti aö hafa þá reynsiu sem fyrrverandi fjármálaráöherra aö svona nokkuð getur alls ekki gengiö. Eyöslulag Kröflunefndar er enn eitt dæmiö um hiö algera stjórnleysi i fjármálum á islandi. Frekjan og ágengnin ein viröast nægja mönnum til halds og trausts hvaö sem öllu ööru Iföur. Slikt háttarlag er bæöi frá- leitt og forkastanlegt — hversu stórt sem menn kunna að llta á sjálfa sig. Hér veröur aö Spyrna viö fótum og skiptir þá engu máli hvort ein- hverjir smákóngar firrtast viö eöa ekki. ÖRVAR HEFUR ORÐIÐ^J Á baksiöu Morgun- blaösins I gær var skýrt frá skýrslu Hafrann- sóknarstofnunarinnar um ástand helztu fiskistofna á Islandsmiðum og tillög- um hennar um hámark þess afla, sem óhætt er að taka. Fyrirsögn fréttar- i n n a r v a r : „HRYGNINGARSTOFN 1/7 HLUTI ÞESS SEM VAR 1970 — ef ekkert er að gert”. Og hvað er það, sem gera á? „Það er mjög þýöingarmikið að útlendingar hætti fiskveiðum á islenzka landgrunninu”, segir Hafrannsóknarstofnunin sjálf. Meö öðrum orðum: Það er mjög þýðingar- mikið, aö ekki verði sam- ið um áframhaldandi veiðar erlendra fiskiskipa i islenzkri fiskveiðilög- sögu. Það má einnig orða þetta svo: bað er mjög þýðingarmikið, að rikis- stjórft Islands manni sig nú upp i það að lýsa fylgi við þá stefnu varðandi framkvæmd landhelgis- útfærslunnar, sem meg- inþorri þjóöarinnar styö- ur og fiskifræðingar vorir hafa nú fært óhrekjandi rök fyrir. En hver hafa viðbrögð rikisstjórnarinnar orðið? Hvernig hefur hún tekið hinum uggvænlegu tið- indum Hafrannsóknar- stofnunarinnar um á- standið á tslandsmiðum? Þau hafa ekki orðið til þess, að rikisstjórnin hafi mannað sig upp og gert þjóöinni afdráttarlausa grein fyrir þvi, hvaða stefnu hún hyggst fylgja I viðræðunum við Breta, sem eiga þó að hefjast eftir örfáa daga. Einu viðbrögðin hafa orðið þau, að tilkynnt hefur verið, að rikisstjórnin hyggist boða til ráðstefnu áhugamanna og sérfræð- inga um sjávarútvegsmál til þess að ræða niður- stöður Hafrannsóknar- stofnunarinnar. Með öðr- um orðum þá virðist rik- isstjórnin ætla aö opna þá leið, aö viösemjendur okkar geti gert út legáta á ráðstefnu til þess að semja um hvort niður- stöður Hafrannsóknar- stofnunarinnar séu rétt- ar! Það á sem sé að opna þá leið aö láta erlenda menn fara að „semja” um mikilvægustu rök- semdir okkar líka! Er þetta nú ekki heldur langt gengið i samkomu- lagsviljanum? FIMM á förnum vegi Teflir þú skák? Aöalsteinn Sigurösson, starfar hjá Rafmagnsveitu Rvfkur: „Nei, þaö geri ég ekki, og er þaö vegna tímaleysis. Ég kann þó mannganginn, en fylgist ósköp litið meö þvi hvað skeður al- mennt I skákheiminum.” Aöalheiöur Jónatansdóttir, iönverkakona: „Ég kann mannganginn, hann læröi ég þegar ég var 7 ára gömul. En ég held ég megi segja aö ég hafi aldrei mátað nokkurn mann, og er þvl greinilega ekki liðtæk i skáklistinni. Ég hef engan áhuga fyrir fréttum af skákmótum.” Sigurlaug Smart, starfar á far- skrá Flugleiöa: „Nei, það geri ég ekki, þótt ég hafi einu sinni kunnað mann- ganginn. Astæðan fyrir þvf aö ég tefli ekki er sú aö litill skák- áhugi er á heimili minu, til aö mynda teflir maöurinn minn alls ekki. Niels Jónsson, vélskólanemi: „Já, þaö geri ég og vonandi get ég taliö mig sæmilegan skák- mann. Ég tefdli siöast á þriöju daginn og vann þá tvær skákir af þremur, þótt það segi kannski ekki allt um raunverulegan styrkleika minn. Hér á landi er Friðrik sá langsterkasti.” Valgaröur Briem, nemt: „Nei alls ekki og hef aldrei gert, og er það einvöröungu vegna áhugaleysis. Þaö kemur þó fyrir að ég fylgist með frammistööu islenzkra skákmanna.”

x

Alþýðublaðið

Direkte link

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Alþýðublaðið
https://timarit.is/publication/2

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.