Alþýðublaðið - 16.01.1976, Qupperneq 4
Reykingar eru ekki lengur einkamál þeirra
sem reykja — framh. af 5. síðu
Þaö verBur að vera fullkom-
lega ljóst, að við berjumst gegn
tóbaki og tóbaksreyk, en ekki
reykingafólkinu. Það á þvert á
móti samúð okkar. Við viljum
tryggja þvi heilbrigði, velliðan
og gott lif, með þvi að útrýma
tóbaksreyknum úr lifi þess.
Tóbak er alltof smánarlegt til
að vera samboðið mönnum. Ég
held að aldrei hafi verið til kvik-
indi, sem hefur fengist til að
reykja* að þvi leyti eru þau
mönnum fremri.
Tóbakspipan á ekki lengur að
vera annað en safngripur frá
liðnum timum.
Vindillinn, sem á timabili var
skoðaður sem einkenni mann-
borleika karlmannsins, er á
góðri leið með að verða aðals-
tákn kvenna. Þeim finnst þær
upphefja sig með þvi að skapa
karlmannsþef i kringum sig og
vera einfærar um það. Og
sigarettan, þessi örlitli en ótrú-
lega voldugi böðull, sem lækna-
visindin hafa löngu fordæmt,
verður með öllum tiltækum ráð-
um að mótast þannig inn i með-
vitund fólks, að engin vitiborin
eða vel gerð manneskja vilji eða
geti framar lagt hana sér til
munns, án þess að finna til
ógeðs og niðurlægingar.
Við verðum að viðurkenna, þó
óskemmtilegt sé að hingað til
hefur misheppnast að valda
slikum hughvörfum að nokkru
verulegu leyti, þrátt fyrir hinn
dýra og umfangsmikla áróður
sem viða er rekinn. Og þrátt
fyrir það, að i mörgum löndum
hefur allur fjöldi lækna lagt
niður reykingar og ætla mætti
að væri fordæmi sem ætti að
duga, þvi það segir sina sögu
svo ótvirætt, að maður skyldi
halda, að hver sem þekkir hana
mundi staldra við og hugsa sig
um, áður en hann byrjaði reyk-
ingar eða héldi þeim áfram.
Læknareru ekkert frábrugðn-
ir öðru fólki. Þeir hafa smekk
fyrir gæöum og lystisemdum
lifsins rétt eins og aðrir, i mis-
munandi mæli, upp og ofan, eins
og gerist og gengur meðal ann-
arra stétta. Og það hefur meira
að segja viljað brenna við, að
þeim hafi orðið óþarflega
tiðgripið til sigarettunnar i öllu
arginu, áhuggjunum og ábyrgð-
inni, sem á þeim hvilir. Þess
vegna lýsir venjubreyting
þeirra —afneitun sigarettunnar
— kannski skýrar og eftirminni-
legar en nokkuð annað hversu
geigvænlegar hætturnar eru,
sem sigarettureykingar hafa i
för með sér. Mér er sagt, að á
læknaráðstefnum i Bandarikj-
unum, sérstakiega um krabba-
mein og krabbameinsvarnir,
séu reykingar á mjög hröðu
undanhaldi og á sumum fundum
þeirra sjáist varla reykt nú orð-
ið. Fólk fari þar hjá sér ef þvi
verður gripið til sigarettu og
flestir, sem ekki geta staðist
freistinguna, hverfi úr fundar-
salnum til að reykja i felum.
Þetta er óneitanlega spor i rétta
átt.
Sameinuðu þjóðirnar ákváðu
að árið 1975 skyldi helgað kon-
um — vera kvennaár —. Lögð er
áhersla á, að i öllum löndum
skuli leitast við að gera sér
grein fyrir stöðu konunnar i
þjóðfél., hvert og hversu við
tækt starfssvið hennar sé i
hverju landi og að tryggja beri
rétt konunnar til jafns við karl-
menn, en á kvennaárinu skal
ennfremur stuðla að jafnvægi
og friði i heiminum.
Með þessu er konunni lagðar
miklar skyldur á herðar. Hún
þarf að sýna hvað i henni býr og
hvers hún er megnug.
Islenskar konur eru jafnan að
koma einhverju góðu til leiðar. 1
þeim efnum standa þær karl-
mönnum að mörgu leyti fram-
ar, með þvi að eiga frumkvæði
aðog hrinda af stað aðgerðum i
þágu liknar, mannúðar- og
menningarmála. Framtak
kvenfélaganria i þeim efnum er
viða ómetanlegt. Ég nefni sem
eitt dæmi af ótal mörgum, að
stofnun krabbameinsfélaga um
allt land hefði orðið erfið og
sennilega látið standa á sér
lengur en raun varð á, hefði að-
stoðar kvenfélaganna ekki notið
við.
Nú stendur islenskum konum
opið tækifæri til að vinna stór-
virki með samtakamætti sinum.
Þær eiga að taka varnir gegn
reykingum i sinar hendur og
láta það ekki dragast. Baráttan
hefst með þvi að þær leggja
sjálfar niður allar reykingar.
Þannig eru þær orðnar hlut-
gengar i starfinu og börnum sin-
um og öllum karlmönnum
ómetanleg fyrirmynd. Með
þessu einu ynnu þær stórvirki,
sem bjargaði mörgum þeirra
frá veikindum og dauða langt
um aldur fram, auk þess sköp-
uðu þær sér aðdáun og frægð,
sem yrði i minnum höfð um ár
og aldir. Siðan þurfa þær að
bindast allsherjar samtökum og
sameinast i markvissri baráttu
gegn reykingum.
Hingað til hefur vorið mest á
karlmönnum i baráttu gegn
reykingum hér á landi. Við
verðum að viðurkenna, að okk-
ur hefur mistekist meira en
góðu hófi gegnir, þó dettur okk-
ur ekki i hug að leggja árar i
bát. Tvimælalaust væri ástand-
iö ennþá verra en það er, ef ekk-
ert hefði verið gert, en árangur-
inn er ekki viðunandi. En ef
konurnar leggðust á eitt mundi
sannast að þær næðu glæsileg-
um árangri.
En hvers vegna ætti þeim að
takast betur en okkur? Til þess
liggja ýmsar ástæður, en sú
veigamesta er sú, að allur þorri
karlmanna lætur stjórnast af
konum og hlýðir þeim, en þær
láta karlmennina ekki stjórna
sér nema rétt eins og þeim sýn-
ist og þykir gott.
Svo mikil er kænska þeirra
margra og stjórnviska, aö þær
leika sér að þvi, að láta karl-
mennina halda, að það séu þeir,
sem öllu stjórni og hafi þræðina
i hendi sér, þó þeir séu ekkert
annað en leikbrúður i höndum
kvenna sinna og jafnvel ann-
arra, sem láta þá sprella að
vild, eftir þvihvernig þær taka i
þræðina hverju sinni.
Eitt stórbrotnasta dæmið um
kænsku, snilld og sefjunarmátt
konu, er þegar Jeanne d’Arc
dáleiddi konunginn, stjórnina
og herinn, snéri öllum lýðnum
um fingur sér lét krýna Karl 7.
og bjargaði Frakklandi úr klóm
englendinga. Hún var alein
kona, sem kom þessu öllu til
leiðar.
Viö þurfum enga islenska
Jeanne d’Arc til að dáleiða okk-
ar karlmenn frá reykingum.
Hundrað og sex þúsund konum
ætti ekki að verða skotaskuld úr
þvi. Þannig yrði kvennaárið
þeim til ævarandi lofs og
dýrðar.
En timinn liður, þvi er eins
gott að bregða skjótt og drengi-
lega við.
SKEMMTANIR — SKEMMTANIR
HÓTEL LOFTLEIÐIR
Cafeteria, veitingasalur með sjálfsafgreiöslu opin alla
daga.
HÓTEL LOFTLEIÐIR
Blómasalur, opinn aila daga vikunnar.
HÓTEL BORG
við Austurvöll. Resturation, bar og dans i Gyllta
salnum.
Simi 11440.
HÓTEL SAGA
Grillið opið alla daga. Mímisbar og Astrabar, opiö alla
daga nema miðvikudaga. Simi 20890.
INGÓLFS CAFÉ
við Hverfisgötu. —Gömlu og nýju dansarnir. Simi 12826.
ÞÓRSCAFÉ
Opið á hverju kvöldi. Simi 23333.
SKEMMTANIR - - SKEMMTANIR
Rennismiðir
Óskum eftir að ráða 2-3 rennismiði nú þeg-
ar.
Vélaverkstæði Sig. Sveinbjörnssonar,
Arnarvogi, Garðabæ. Simi 5-28-50.
Volkswageneigendur
Höfum fyrirliggjandi: Bretti — Huröir — Vélarlok —
Geymslulok á Wolkswagen I allflestum litum. Skiptum á
einum degi með dagsfyrirvara fyrir ákveðið verð.
Reynið viöskiptin.
Bilasprautun Garðars Sigmundssonar.'
Skipholti 25 Simaí 19099 og 20988.
I ngólfs-Café
Gömludansarnir í kvöld kl. 9
Hljómsveit Garðars Jóhannessonar.
Söngvari Björn Þorgeirsson.
Aðgöngumiðasala frá kl. 8. — Simi 12826.
Alþýðublaöið
Föstudagur 16. janúar 1976.