Alþýðublaðið - 22.01.1976, Blaðsíða 4
TRESMIÐJA
BJÖRNS ÓLAFSSONAR
REYKJAVÍKURVEGI 68 - SÍMI 51975
HAFNARFIRÐI
HÚSBYGGJENDUR!
Munið hinar vinsælu TI-
TU og Slottlistaþétting-
ar á öllum okkar hurð-
um og gluggum.
*
Ekki er ráð nema i
tíma sé tekið.
Pantið timanlega.
Aukin hagræðing
skapar lægra verð.
Leitið tilboða.
BÉl
Alþýfioflokksfélögin i Reykjavlk boða til ráðstefnu um stefnuskrá flokksins á grundvelli þeirra
samþykkta, sem geröar voru á flokksþinginu I haust.
Ráðstcfnan verður haldin sunnudaginn 25. janúar n.k. á Hótel Loftleiöum og hefur dagskráin
veriö ákveöin sem hér segir:
kl. 10.00 Ráöstefnan sett, Siguröur Guömundsson.
kl. 10.10 Ræöa. Benedikt Gröndal.
kl. 10.30 Starfshópar vinna.
ki. 12.00 Hádegisveröur.
kl. 13.00 Framhald starfshópa.
kl. 15.00 Hlé.
kl. 15.30 Framsögumenn starfshópa gefa skýrslu.
kl. 16.30 Umræöur.
kl. 17.^0 Ráöstefnunni slitiö.
Þátttakendur ráöstefnunnar hafi samband viö flokksskrifstofuna, Hverfisgötu 8-10 og greiöi
þátttökugjald, kr. 500. Þar liggja einnig frammi drög stefnuskrámefndar, sem þátttakendur geta
fengid i hendur. AlþýOuflokksfélag Reykjavlkur,
- Kvenfélag Alþýöuflokksins, Rvk.,
Félag ungra jafnaöarmanna, Rvk.
RÁÐSTEFNA
UM
STEFNUSKRÁNA
Vo I ks wagene igendur
Höfum fyrírliggjandi: Bretti — Hurðir — Vélarlok —
Geymslulok á Woikswagen I allflestum iitum. Skiptum á
einum degi með dagsfyrirvara fyrir ákveðið verð.
Reynið viðskiptin.
Bilasprautun Garðars Sigmundssonar.
Skipholti 25 Simar 19099 og 20988.
t ■ a ■ ■ i ■*■■■■■ ri> ■ ■ 11 m
; Alþýðublaði& \
z á hvert heimiii :
f........................ í
Lesendur eru beðnir að
athuga þessar breyting-
ar, sem orðið hafa á
simaþjónustu Alþýðu-
blaðsins. Simar ein-
stakra deilda verða eft-
irleiðis þessir:
Kvöldsími
ritstjórnar
81976
Auglýsingar
14900
og einnig
14906
Áskriftir, dreifing
og kvartanir í síma
81866
Alþýðublaðið
Neytandinn í Sovétríkjunum:
BÚÐIR TÓMAR OG
LÉLEGAR VÖRUR í
VÖRUGEYMSLUM
Grænmetismarkaður I rússnesku þorpi. En i stór-
borgunum er oft hörgull á grænmeti.
Þegar Nikolai K.
Baibakov, formaður
skipulagsnefndar rikis-
ins gaf ársskýrslu sina
i byrjun desember um
útlit næsta árs, byrjaði
hann ræðu sina á tali
um vaxandi verðbólgu,
aukið atvinnuleysi og
óstöðugar aðstæður á
Vesturlöndum.
Þetta gerði hann til að draga
úr þvi, sem hann hafði að segja
Æðsta ráði Sovétrikjanna,
þingsins, sem kemur saman
tvisvar á ári, og neitar aldrei
tillögum, um erfiðleika heima
fyrir.
Þó að fögur lýsingarorð væru
notuð um dýrlegt lif virtust
horfurnar iskyggilegar árið
1976.
Þungaiðnaður vex um 4,9%,
matvælaframleiðsla og neyzlu-
varningur um aðeins 2,7%, en
það er algjört lágmark, ef tekið
er tillit til fólksfjölgunar. Aætl
unin hefur aldrei verið jafnlág
frá þvi að siðari heimsstyrjöld-
inni lauk.
Brezku stjórninni með öll sin
vandamál, finnst ef til vill, að
einhver aukning sé betri en eng-
in, en aðstæöur eru allt aðrar i
Ráðstjórnarrikjunum. Stjórn-
kerfi þeirra minnir meira á þró-
unarlöndin en fullþróunarlönd.
Þar er glfurleg nauðsyn á si-
felldum innri vexti.
Þó að Rússar gleðjist yfir erf-
iðleikum Vesturlanda, er Rúss-
land enn land tómra búða og
vöruhúsa, sem full eru af léleg-
um vörum, sem enginn vill
kaupa. Það tekur enn láglauna-
mann tvær vikur að vinna fyrir
skóm og mánuð að vinna fyrir ó-
dýrasta vetrarfrakka. Jafnvel
maður á atvinnuleysisstyrk i
Englandi gæti ekki lifað á þvi
sem margir láglaunamenn i
Rússlandi verða að láta sér
nægja.
Eina huggunin 1 ræðu Baiba-
kovs var sú, að það litla ætti að
verða betra — en gæðavörurn-
ar, sem boðað er að framleiddar
verði, lenda vafalaust á erlend-
um markaði til að afla þess
gjaldeyris, sem slik þörf er fyr-
ir, en á hinum innlenda. Baiba-
kov sagði, að næsta ár yrðu
menn að standa betur saman,
framleiða meira og einbeita sér
að þvi að ljúka verksmiðjum,
sem hafin hefur verið smiði á,
en ekki lokið einhverra hluta
vegna, fremur en að leggja i ný-
býggingar.
Slæmar horfur iðnaðarins
stafa meðal annars af upp-
skerubrestinum i ár, en hann er
vist sá versti siðan 1963, en upp-
skerubresturinn það ár varð til
afsagnar Nikita Khrushchevs
árið eftir.
Uppskerubresturinn skapar
ekki eingöngu erfiðleika fyrir
matvælaiðnaðinn, heldur kemur
hann einnig i veg fyrir, að
landsmenn geti keypt eitthvað
af vestrænum tæknivörum.
1 leynilegri ræðu viku áður
fyrir miðstjórn kommúnista-
flokksins, sagði Leonid Brezh-
nev, aðalritari flokksins, að
uppskerubresturinn væri ,,geig-
vænlegur”.
Hvort sem það var tilviljun
eða ekki, var forsætisráðherr-
ann, Alexei Kosygin, sem er á-
byrgur fyrir rikisfjárhagnum,
ekki viðstaddur á fundi Æðsta
ráðsins meðan Baibakov hélt
ræðu sina. Hann var ekki sjúk-
ur, þvi að skömmu seinna var
tekin mynd af honum og utan-
rikisráðherra Kuwait.
Það er of snemmt að segja, að
hann sé i vanda staddur, þvi að
Miðstjórnin valdi hann til að
halda aðalfjármálaræðuna á
flokksþinginu 25- febrúar, eins
og Brezhnev var valinn til að
halda aðalstjórnmálaræðuna.
Vestrænir sérfræðingar i mál-
efnum Sovétrikjanna eru ekki
sammála um það, hvort land-
búnaðarráðherrann, Dmitry
Polyansky, verði hafður að
sektarlambi frekar en einhver
annar.
Baibakov sagði ekkert um
það, hve uppskerubresturinn
hefði verið slæmur. Það lét hann
lægri settan mann um, formann
fjárhagsáætlunar Sovétrikj-
anna og áætlunardeildar þeirra,
Grigory Vaschenko.
Hin óljósa yfirlýsing hans um
að meðal ársuppskera áranna
1970—1975 verði 8% meiri en
næstu fimm ára áætlun á undan
auðvelduðu þeim blaðamönn-
um, sem áhuga hafa á hagvis-
indum að reikna út að uppskera
ársins 1975 verði rúmlega 137
milljón tonn, minus eða plús ein
eða tvær milljónir.
Það er um það bil 78 milljón-
um tonna minna en áætlað var
og mun lægra heldur en 160
milljón geigvænlegi uppskeru-
bresturinn sem landbúnaðar-
ráðuneyti Bandarikjanna spáði.
Til að bæta þetta upp og koma
i veg fyrir slátrun nautgripa i
stórum stil hafa Sovétrikin
keypt korn á heimsmarkaðinum
— ef til vill 30 milljón tonn nú
þegar fyrir um það bil 4.000
milljónir dala. Ráðstjórnarrikin
hafa ennfremur skrifað undir
samning um að kaupa næstu
fimm árin korn árlega fyrir um
1.000 milljón dali i Bandarikjun-
um miðað við núgildandi verð.
Spursmálið er, hvort Ráð-
stjórnarrikin ráði við aðstraum
korns. Nú þegar er fullt álag á
hafnir landsins, og kornflutn-
ingaskipin þurfa oft að biða i
nokkrar vikur i höfn, vegna
skorts á flutningavögnum.
Geymslustöðvar eru einnig ó-
fullnægjandi.
1973 var metuppskera og
korninnflutningur skv. samn-
ingi, en þá gera bandariskir sér-
fræðingar ráð fyrir, að
skemmdir á korni hafi verið allt
að 36 milljón tonn. Brezhnev
sjálfur sagði, að þær væru ó-
metanlegar.
Svelta Sovétmenn? Fyrsta af-
leiðing uppskerubrestsins
verður aukið framboð á kjöti,
fuglum og pylsum i vetur, ef
bændur neyðast til að slátra
kvikfénaði i stórum stil eins og
allar likur benda til. Þá ber
neyðin að dyrum þarnæsta ár,
þegar bændur reyna að fjölga
kvikfénaði sinum.
Þá verður kjötframleiðslan i
hættu og brauðframleiðslan ó-
viss, svo að Rússar verða að
snúa sér að fornum fæðutegund-
um: Kartöflum og káli.
Fimmtudagur 22. janúar 1976.