Alþýðublaðið - 22.01.1976, Síða 13

Alþýðublaðið - 22.01.1976, Síða 13
Leiksigur ársins 1975: INÚK-leikflokkurinn Leiksigur ársins 1975 hlýtur að teljast árangur Inúk leikflokksins, sem segja má að hafi farið samfellda sigurför um lönd og álfur — og allt útlit er fyrir að ferðalögum þessa hóps linni ekki i bili, þvi að hópnum hafa borizt fjölmörg tilboð og er nú i ráði að sýna Inúk á leiklistarhátið i Caracas i Venuzuela i aprilmánuði næstkomandi. Sem stendur verður Inúk sýnt á Litla sviðinu i Þjóðleikhúsinu. Leikritið fjallar um eskimóa á Grænlandi og viðar. Þar er brugðið upp myndum af menningu þeirra og lifsháttum og jafnframt sýnd atriði, sem snerta upplausn samfélags vegna utanað- komandi áhrifa. Höfundar verksins eru Haraldur Ólafsson og leikararnir i hópnum en þeir eru: Kristbjörg Kjeld, Helga Jónsdóttir, Ketill Larsen, Þórhallur Sigurðsson og Brynja Benediktsdóttir, sem er leik- stjóri. Tónlistin i verkinu er græn- lenzk en Atli Heimir Sveinsson var hópnum til fulltingis við flutning hennar. Sýningarstjóri og tæknistjóri er Þorlákur Þórðarson. Hér að neðan birtum við nokkrar umsagnir úr hollenzkum blöðum eftir frumsýninguna i Amsterdam. Barnslegt, einfalt, heiðarlegt - og laust við tilbúin áhrif Umsögn leikhússtjóra Mickery-leikhússins i Amsterdam Leikhúshópur frá Islandi. Það er gaman að sjá viðbrögð fólks. Menn lyfta brúnum, horfa undrandi og verða stundum óráðnir á svipinn. Rétt svo sem tsland sé ekki til, hvað þá heldur leikhús. Þegar menn vita ekki mjög mikið um eitthvert tiltekið land — nema t.d. um fiskveiða- deiluna við Englendinga — þá kemur það svo sem heim og saman, að það sé eiginlega ekki til fyrir þá. Hvað sem þvi liður, þá verður hægt að bæta úr þvi núna. Hópurinn, sem nú verður kynntur, upprunalega hluti af Þjóðleikhúsinu i Reykjavik, vann lengi á eigin spytur að verkefni, þar sem lögð var stund á ymislegt varðandi Grænland. Það átti sér stað i hæfilegri einangrun, einangr- unarfyrirbærið hefur áhrif i tvær áttir, þegar öllu er á botn- innhvolft. Mikil utanaðkomandi áhrif i framsetningunni er þvi tæpast að finna i þessu verki. Það gerir þessa leiklist svo furðulega hreina og heiðarlega. Þetta varð næstum þvi endur- uppgötvun leiklistarinnar. Barnslegt, einfalt, heiðarlegt, laust við tilbúin áhrif (effekta- laust) og þess vegna svo sann- færandi áhrifarikt. 1 leikfélagi með öllu kald- hæðnislegri viðhorf finnst mönnum þá, að ekki sé gerandi að gefa svo höggstað á sér. Þvi þrátt fyrir það, að þeir þekki ekki aðeins táknin, sem valin hafa verið, heldur lika viti að þau eru orðin gatslitin, þá fá þessi tákn nýtt gildi i meðferð þessa hóps. Eða kannski öllu heldur gildi, sem enn hefur ekki glatazt. Það er ósvikið, hrein- skilið og engum brögðum beitt. Þannig stöndum við and- spænis sakleysi, sem við höfum löngu glatað, andspænis kunnuglegum vandamálum, sem menn eru hættir að velta fyrir sér (hvort sem um er að ræða Grænland, ísland eða eitt- hvert annað hinna fjarlægu, þöglu landa). Við fyrstu sýn mætti kannski búast við, að fiskveiðideilan gæti verið viðfangsefni fyrir hóp, sem finnur tengsl sin við land sitt og umhverfi. En svona er það betra, þetta nær miklu lengra, það liefði alveg eins getað verið verk um afrek hollenzkrar menningar.Hvers vegna höfum við eiginlega aldrei gert neitt svona lagað? Sennilega af þvi að við erum búnir að gleyma, aö hægt var að lita svona á málin, og þess vegna bara sleppt þvi. Hvað sem þvi liður þá gerir ísland þetta fyrir okkur núna. RtC Ritsart Ten Catc Eftirtektarvert leikhús i Mickery tslenzkur leikflokkur með verk um niðurrif Eskimóa- menningar. Amsterdam — I Mickery (Rozengracht) leikur i næstu vikur, Þjóðleikhúsið: nokkrir leikarar úr Þjóðleikhúsinu i Reykjavik. Flutt er verkið Inúk, sem fjallar um hvernig upprunalegt Eskimóasamfélag á Grænlandi er rifið niður með tilkomu vestrænnar (ameriskrar) menningar, sem hefur teygt krumlur sinar þangað. Þessi leikflokkur notar af mikilli tilfinningu og ábyrgð mjög tæra leikhúsferð. Sýningin hefst á að sýndir eru eskimóar við veiðar. Fimm leikarar i hvitum anórökum sýna með lágmarks notkun á leikmyndum, og með mjög músikölskum rythma, hið dag- lega lif eskimóanna. Maður sér stórhriðina , mávana, hrein- dýrin, selina, kajakkana og snjóhúsið. Maður heyrir veiði- sögur, gömul lög, undir stöðugri vinnu við hannyrðir og glaðlega, mjög erótiska samfaradansa (ástardansa), þar sem hreyf- ingarnar likjast hreyfingum selsins. Leikararnir hafa kynnt sér niður i kjölinn athafnir, breyf- ingar og mimik Eskimóanna. Þau hafa dvalist i 3 mán. á Grænlandi með mannfræðing (ethnólóg). Þessi leikflokkur hefur nýtt sér þá vitneskju, sem þar var fengin á snjallan hátt. Þvi fer fjarri, að hér sé um að ræða folklor (alþýðulist). Heldur er hér sýnd listræn lýsing á lifiEskimóa, þar sem I ljós kemur innilegt samband milli náttúru og menningar. An þess að skilja orð i islcnzku, skilur maður allt verkið. Einingin meðal eskimóanna kemur dramatiskt i ljo's, jafn- skjótt og byssuskotið truflar þessa hvitu veröld. Hegðunin gjörbreytist. Eftir fátkenndan dialóg fara Eskimóarnir til „bæjarins”. Þá er einu leik- myndinni (decor) ramma, sem á er strekkt húð, snúið við og við blasir bakhliðin, sem hangir full af slæðum, plastik-hlutum, niðursuðudósum, hermanna- jakka, fullum af sigarettum og áfengi. Á svipstundu er niður- rifið hafið. Mjög effektift leik- húsaugnablik. I sömu andrá hljómar vélaskrölt, flugvéla- dynur, raddir ferðafólks og á hollenzku má heyra rödd tala um framfarir I lifi Eskimóa. Þessi texti virkar fyrst á mann sem iróniskur, en fær fljótlega meiri þunga, þegar sagt er i gegnum ys og þys á bandinu að stórveldin hafi áhuga á Græn- landi vegna hernaðarlegrar legu þess. í lokasenunni sér maður hvernigGrænlendingargera sér grein fyrir, að þeir þurfi sjálfif að taka sin mál i eigin hendur. Ekki er mér alveg ljóst hvort leikararnir hafi gert sér grein fyrir pólitiskum afleiðingum af þessu verki. Eftir sýningunni að dæma hafa þeir ekki gert það, a.m.k. enduðu þeir ekki sýninguna á að syngja „Internationalen”. En mér finnst þetta vera gott skref i áttina að samfélagsgagnrýni. A þessu stigi málsins eru þau áhrif, sem tnúk hefur á okkur útlendinga, aðallega til orðin vegna aðgerðalausrar reiði okkar, sem myndast þegar við sjáum að eitthvað, sem er hreint og fallegt er eyðilagt. Þessi islenzki leikflokkur hefur einnig áhrif á þróun leik- húss almennt. Þjóðleikhúsið, sem er venjulegt „repertoire”- leikfélag, fæst aðallega við — alveg eins og hérna — flutning á ameriskum og enskum verkum. 1 Reykjavlk er núna verið að sýna „Sporvagninn Girnd” eftir Tennessee Williams. Ein af leikkonum Inúks hóf feril sinn fyrir c,.a. 20 árum með þvi að leika hlutverk Onnu Frank i ameriska verkinu „Bakhúsið”. Hjá okkur eru það yfirleitt eldri leikarar, sem vinna' við sömu skilyrði: hjá Globe og Centrum. Sá, sem þekkir vinnu- aðferðir svona leikhúsa, veit hversu erfitt uppdráttar leikarar eiga við að fá sam- þykktar nýjar leiðir og ný verk- efni. Sýning eins og ínúk er mjög góð fyrirmynd um nýja vinnu- aðferð, sem gefur leikurunum tækifæri á að vinna sjálfstætt og I sterku sambandi við ákveðinn áhorfendahóp.Hér i Hollandi er þetta aðeins gert hjá yngri leik- félögunum: Werkteater, Pro- loog, Nieuwe Komedie og öðrum leikflokkum, sem aðallega vinna fyrir ungt fólk. Leikflokkurinn, sem leikur lnúk var alþjóðlega uppgötv- aður á leikhúsfestivalinu i Nancy. Þá höfðu þau leikið Inúk I Danmörku m.a. fyrir græn- lenzka námsmenn. Eftir Nantes hafa þeir ferðazt um Frakkland og Þýzkaland. Eftir að þeir hafa sýnt i 3 vikur i Hollandi fara þeir i sýningarferðalög til Spánar, Póllands og ef til vill til Græn- lands. Það er ekkert undarlegt þótt Inúk sé alls staðar vel tekið, þrátt fyrir þá takmörkun, að nærri þvi enginn skuli skilja isienzku. Formið á verkinu og leikur ieikaranna vinnur glæsi- legan bug á tungumálahindrun- inni. Þetta byggist mjög greini- lega á leikurunum. Einn þeirra sagði við mig: „Mér finnst islenzkan svo fallegt mál, að ég vil að allir geti heyrt hana. Og einmitt vegna þess að við erum að leika fyrir útlendinga, legg ég áherzlu áað láta hana hljóma sem bezt”: Og þetta tekst þessum leik- flokki vegna þess að þetta eru góðir leikarar. Það geislar eitt- hvað svo frisklegt og heilbrigt út frá þessum leikflokki, að þeir hafa I öllu falli heillað mig Áhrifamikill og inni- legur harmleikur um eskimóa Amsterdam 10. sept. Yfirleitt þarf strið, árekstra á milli meginlanda eða byltingar til að fjarlæg lönd verði að fréttaefni hjá okkur. Áhugi okkar vaknar, aðeins þegar „eitthvaðer að gerast” — ef svo er ekki, þá bætum við vitneskj- unni inn i yfirborðskennda landafræðikunnáttu okkar. Tökum Island til dæmis. Helzt er minnzt á þetta lýðræði i blöðum, vegna deilu þess við England um veiðirétt, eða að Islendingar séu allt i einu komnir með fótboltalið. Að öðru leyti kviknar i bezta tilfelli á perunni hjá okkur, þegar við heyrum orðið Edda, eða þegar við rifjum upp gamlan skóla- lærdóm um brunna, sem sagðir eru sprauta úr sér heitu vatni og kallaðir Geysir eins og hita- tækin i baðherbergjum okkar. Eitthvað sams konar væri hægt að segja um Grænland, þar semEskimóar búa og kallað er stærsta eyja veraldar. Að taka þessi tvö dæmi er ekki að ástæðulausu. Samt er ekki um neinar óeirðir að ræða: ástæðan er miklu friðsamlegri. 1 Mickery (hvaða annað leikhús hefði getað gert þetta mögulegt) er kominn islenzkur leikflokkur, sem boðið var hingað á lista- hátiðinni i Nantes með verk,er fjallar um Grænland eða öllu heldur um Eskimóa-menningu, sem vestræn menning hefur smám saman verið að drepa. Fimm leikarar frá Þjóðleik- húsinu i Reykjavik hafa kynnt sér menningu Eskimóa niður i kjölinn undanfarin ár. Sú sýning, sem af þessu sprettur er aðdáunarlega einföld. Með sama og engum leik- myndum er saga og hnignun þessarar menningar sýnd á mjög áhrifamikinn og skýran hátt. Fyrst er sýnt hvernig eski- móar lifðu upphaflega, þegar þeir voru algjörlega háðir sela- veiðinni. Sýnd er baráttan við náttúruöflin og jafnframt hvernig verkaskiptingin átti sér stað i þessum einangraða fjöl- skyldubúskap. Barnið er sýnt, stúlkan sem vex upp og verður að konu — allt þetta býður upp á erótik i sinni hreinustu mynd. Þá kemur riffillinn, fyrsta táknið um afskipti umheimsins af þessu samfélagi. Þegar fyrsta undrunin hefur breytzt i forvitni, verður samfléttun við Vestrið og átroðningur vest- rænnar menningar óaftur- kræfur og augljós. Eskimóarnir hætta fljótlega að verða manneskjur með eigin tilvist, heldur likjast þeir öpum, sem annað slagið leika sjálfa sig fyrir ferðamenn. „Wunderfull” og „Exciting” eru launin, sem þeir mega eftirleiðis una við. Þó að nærri enginn skilji málið, sem leikið er á, skilst syningin algjörlega frá uppliafi til enda. Áhorfandinn þarf aðeins að setja sig inn i annað umhverfi og þá er islenzkan, sem töluð er ekki bara „hljóma- skraut” heldur er hún þekkjan- leg sem uppspretta þess, sem leikið er og gerir verkið áhrifa- meira og innilegra. Hin hljóðláta tragik, sem á mjög sterkan hátt er sýnd i lokasenunni, leiðir i ljós, að þrátt fyrir andúð á nýju menningunni, er ekki hægt að losna undan henni aftur. Hollenzki textinn hefði ekki átt að vera i sýningunni, heldur hefði verið betra að notast við eitthvert gervimál. Það hefði verið alveg jafn auðvelt að skilja það og hefði fallið betur inn i sýninguna. © Alþýðublaðið Fimmtudagur 22. janúar 1976.

x

Alþýðublaðið

Beinleiðis leinki

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Alþýðublaðið
https://timarit.is/publication/2

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.