Alþýðublaðið - 06.02.1976, Blaðsíða 4

Alþýðublaðið - 06.02.1976, Blaðsíða 4
Það nýjasta um Robert Fischer i heimsblöðunum er að hann hafi þegið boð um að tefla einvigi við Mecking frá Brasiliu og skuli ein- vigið fara fram á Filipseyjum, ef þeir sem sjá um það, geti reitt af höndum fram tveggja milljón dala virði i gullstöngum Fischer til handa. Nú er bara að biða og sjá hvort eitthvað skeður. Svæðismótinu i Reykjavik er að visu löngu lokið, það var á tima- bilinu 19. okt. — 11. nóv. 1975, en núna eru viða um heim að birtast i skáktimaritum umsagnir um mótið og skákir að birtast frá þvi. Allir eru sammála um, að mótið hafi farið vel fram og orðið þeim til sóma er að stóðu. Skemmtileg grein er i danska skáktimaritinu „Skakbladet”, sem er málgagn danska skák- sambandsins, danska skáksam- bandið hefur sitt eigið málgagn! Ég mun birta nokkrar glefsur úr greininni, sem erskrifuð af Svend Hamman, þetta ætti að vera mjög lærdómsrikt fyrir okkur, þarsem hann telur upp það er hann telur helzt ábótavant og i þeirri röð, sem hann telur mikilvægið. Sem sagt, helztu vandamálin á Islandi i dag. „1. Það er ekki selt öl. 2. Á miðvikudögum er ekki af- greitt vin. 3. A fimmtudögum er ekki sjónvarp. 4. Það eru engir næturklúbbar. 5. Hundahald er bannað. 6. Hnefaleikar eru bannaðir. 7. Vin er ekki veitt við gestamóttöku i menntamálaráðu- neytinu.” Svo kemur rúsinan i pylsu- endanum: „Það eru lika minni háttar vandamál eins og 50% verðbólga og 200 sjómilna fisk- veiðilinan.” Eins fannst honum einkennilegt að Ólafsson skyldi ekki heita Ólafsson á islenzku heldur bara Friðrik. Skák V «*J*-**;2 Bent Larsen sigraði Danmerkur meistarann Gert Iskov I einvigi með fimm og hálfum vinningi gegn hálfum vinningi. Hann sagði eftir einvigið að munurinn hefði ekki átt að vera svona mikill og það hefði verið undravert hvað sér hefði tekizt einbeitingin vel þrátt fyrir afleitt kvef. Hér kemur önnur skákin i einviginu: Sikileyjarleikur með skiptum litum. Hvitt: Bent Larsen. Svart: Gert Iskov. 1. C4, Rf6, 2. Rc3, e5. 3. Rf3, Rc6, 4. d3 g6. 5. g3, Bg7. 6. Bg2, 0-0. 7. 0-0, d6. 8. Hbl, a5. 9. a3, h6. 10. b4, axb4. 11. axb4, Be6. 12. b5, Re7. 13. Dc2 Rd7. 14. Rd2, Rc5. 15. Rb3, Ha7?? 16. Rxc5, dxc5. 17. b6, cxb6. 18. Db3, Rc8. 19. Ra4, e4. 20. Bxe4, Rd6. 21. Bg2, b5. 22. Rc5, bxc4. 23. Rxe6, cxb3. 24. Rxd8, Hxd8. 25. Hxb3, Ha2. 26. Hel, Hc8. 27. Bf4, Rf5. 28. Hxb7, Rd4. 29. Kfl, Rc2. 30. Bd5, Hb2. 31. Hxb2, Bxb2. 32. Hbl og svartur gaf. Þar sem undanfarið hafa birzt fréttir mjög itarlegar af „skákþingi Reykjavikur” er ekki úr vegi að birta stöðu efstu manna i Vetrarmóti Reykja- vikurfélagsins Mjölnis. 1 A-riðli eru efstir og jafnir eftir fimm umferðir Ingvar Asmundsson og Björgvin Viglundsson með f jóran og hálfan vinning eftir fimm umferðir. 1 B-riðli er efstur Haf- steinn Blandon með fimm vinn- inga, i öðru sæti er Hrafn Arnar- son með fjóra og i þriðja sæti er Guðlaug Þorsteinsdóttir með tvo og hálfan og tvær biðskákir. Þrettán tefla i A- og tólf i B-riðli. Hvitt: Ingvar Ásmundsson Svart Bragi Björnsson. Caro- Kann vörn. 1. e4, c6, 2. d4, d5. 3. Rc3, dxe4. 4. Rxe4, Rf6. 5. Rxf6, gxf6. 6. Bf4, h5. 7. Bc4, Bf5. 8. Dd2, e6. 9. 0-0-0, Rbd7.10. Re2, Rb6. 11. Bd3, Bxd3. 12. Dxd3, Rd5. 13. Bd2, Dc7. 14. Kbl, 0-0-0. 15. c4, Rb6. 16. Ba5, c5. 17. d5, Kb8. 18. Rc3, Hd7. 19. Rb5, Df4. 20. Bxb6, axb6. 21. Da3, exd5. 22. cxd5, Bd6. 23. Da7, Kc8. 24. Da8, skák, Bb8. 25. d6 og svartur gaf. Hér gefur að lita loka- stöðuna, svartur má sig hvergi hræra. Volkswageneigendur Höfum fyrirliggjandi: Bretti — Huröir — Véiarlok — Geymsluloká Wolkswagen i allflestum litum. Skiptum á einum degi með dagsfyrjrvara fyrir ákveðið verð. Reyniö viðskiptin. Bilasprautun Garðars Sigmundssonar. Skipholti 25 Simar 19099 og 20988. Ritstjórn Alþýðubláísm7erT1 Síðumúla 11 - Sími 81866 1 Svavar Guðni Svavarsson ff §§ H B §j§ §f§ i §§§ i §§§ i H Jji m I j§f & H Ho H i ■ lUI H íllH H H B A H H ii Al B §§§ H ■ ■ s Af Öláfi Geirstaðaálfi (brot) ...Nú er þar til at taka, er þrjóta tók föng at Geirsstöðum. Er ok forn háttr markamanna, at sinna þeirri sauðagæzlu einni, at byrgja sauði it innra með sjálfum sér, heldr en halda þeim at högum, ok afla þeim forða. En er þrengjask tök um vistir á Geirbæ, höfðu þeir óiáfr allt eitt atriðit, at krefja bændr um föng. Var Kristþórr ok hans kumpánar fjölþreyfinn um eig- ur bænda, ok hafði þat allt, er hánum likaði, ok galt ekki verð fyrir. Varð hann einn öllu at ráða i þeira viðrskiptum, ok þótt mönnum hart undir at búa. Tóku bændr upp þat ráö, at hverr fal sinar eigur, er betr gat, ok sneiddisk enn um föng nærhendis. Jókst kurr bænda, en hverrfreistaðiat bera harm i hljóði. Litt undu þeir Óláfr sinum hlut betr. Ferr þá, sem oftarr, at úti er vinskapr þá ölit þrýtr. llljópusk nú ýmsir brottu, ok dreifðusk viða, nokkrir i fen, en aörir I tröllahendr. Þar kom, at þeir Kristþórr hlutu lengri leiðangra at gera til atdrátta, ok váru sem oftask viku I hvörju úthlaupi. Nú er at geta kvinnu er het Máfiá. Hon var et mesta tröll ok foraö, ok seiöskratti. Hon hafði uppfóstrat áa Geirsstaða- búanda ok kennt I heimaskóla mart sinna klækja. Var hon af þeim lengi blótut, ok höfðu þeir á henni haft traust mikit. Hon var hnigin at aldri, ok nakkvat ellimóð, er hér var komit. Tennr hennar váru á brottu, ok nærðisk hon á blóði einkum, ok mest manna, er hon seiddi I helli sinn. Sá hellir var vendi- lega dulinn manna sjónum, þeira, er ekki munnu skil á galdri. Geirsstaðabúandi hafði, er hann komstór hundahljóðum ór herhlaupi þeirra Óláfs, hvarflað á vit ennar öldnu seiðkonu. Baðst hann ásjár, er hlut hans var svár illa komit. Kerling tók þvi máli liklega, ok sagði, at vel mætti enn duga hennar ráð, ,,en þó þykkir mér á, at þá hafir litt rækt forna vináttu þinna áa viö mik nú of hrið. Mun ek þat ekki misviröa, en verða at því gagni, sem ek má. „Geirsstaðabúandi mælti: „Satt er it fornkveöna, at langvinirnir rjúfask sizt, ok heit ek þér, at fleira skal milli okkar verða, en verit hefr of hrið, ef ek komusk ór þeim vanda, er nU að steðjar. Vild ek þitt brautar- gengihafa ateknæða aftr minni föörleifð, ok hefnt minna harma. Skal ek þá ekki spara neina virkð.” Kerling varð léttbryn, meðan bUandi lét ganga töluna, ok mælti. „Ráð mun finnask, ok sjám til of hrið, en heimul er þér, svá ok þinum sveinum, vist meö mér. Skulu vit djUpt leggjask.” Leyndisk nú búandi ok sveinar hans I helli kerlingar, ok hafði rik varðhöld á of þá Óláf, en varð eigi sénn sjálfr. A einum morni stumraði kerl- ing upp árla, ok tók á fótum Geirsstaöabúanda, ok mælti: „Þat er nú mitt ráð, fóstri, at þér risit af skyndingu, ok snúit leið á Geirsstaði. Man nú óláfr fámennr heima, er húskarlar hans eru i fangaleit.” Búandi spratt upp ok bjósk sem skjótast, ok þeir kumpánar. tók þeir hús á óláfi óvörum, ok varð hann áhendr, ok i bönd færðr, harðliga. Geirsstaðabúandi mæiti: „Komit er nú svá, at vér eigum vit þik alls kostí, værir þú maklegastr, at vera drepinn, en gefa man ek þér kost, at þú gerist minn undirmaðr, ok vinn- ir eið at svá skuli ætið verða héðan I frá, ella mant þú deyja skulu.” Óláfr mælt: Þat er fornkveðit, at frekr er hverr til fjörsins, ok man ekþessu játa, þó nú sé verr komit várum hag en vér vænt- um fyrir stundu.” Var óláfr látinn upp standa, ok ór böndum leystr. Bjósk nú Geirsstaöabúandi um, at hús- karlar Óláfs skyldu ekki þurfa heitara at baka, er þeir kæmu aftr. Var hans fyrsta verk, at sækja kerlinguna Máfiá, ok setja I öndvegi it óæðra. Heldr var kerling ófrýn, er hon leit Óláf augum, ok ýfðisk við hánum. Skorti þar ekki augnagotr á báða vegu, en mörgum þótti sem óláfr væri eigi með öllu óskelkaðr, en helt sér I nánd vit búanda. Gesta- höfðingi búanda kom at máli vit hann, ok mælti. „Vér hafim unnit ágætan sigr, ok þat er mitt ráð, at vér hafim uppi nakkvara skemmtan. Nú er her snautt af mungátt, en þat þótti um sinn vel hliða at taka glimur. Þat er mitt ráð, að Óláfr eigi fang vit kerlinguna Máfiá, er hvárt- tveggi unir illa annars nærveru. „Þetta þótti búanda vel mælt,” ok má vel hlýða, að treyni á fræknleik óláfs, mun ok fóstra vár ekki spara hann I fang- brögöum.” Var nú uppi lostit þessari ráð- görð, ok gerðu menn róm at. Þat fannsk þó á, at óláfr væri eigi með öllu ósklfdr, en lét þó eigi á sannask. Batt hann blökuna fyrir vit sér, en bjósk eigi frek- ar. Kerling stumraði fram á gólfit, ok hófst nú leikrinn. Gengusk þau at sem harðask, ok mátti ekki milli sjá...... I Alþvðublaðið Föstudagur 6. febrúar 1$76.

x

Alþýðublaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Alþýðublaðið
https://timarit.is/publication/2

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.