Alþýðublaðið - 06.02.1976, Blaðsíða 7
í B. riðli voru einnig tefldar
11 umferðir, og sigraði Hilmar
Karlsson með yfirburðum, hlaut
8 og 1/2 vinning. Annar var
gamla kempanBjörn Jóhannes-
son með 7 vinninga.
1 C. riðli sigraði Kári Kárason
með 7 og 1/2 vinning en Oli
Valdimarsson varð annar með 7
vinninga. Tiu umferðir voru
tefldar i þessum riðli.
D. riðlarnir voru þrir og var
þeim raðað niður af handahófi
þar sem keppendur i þessum
riðli eru álika að skákstyrk-
leika.
f 1. sigruðu Þorsteinn Þor-
steinsson og Jón Baldursson,
báðir með 6 og 1/2 vinning, en 8
umferðir voru tefldar i honum.
1 D. 2. vann Árni Sigur-
björnsson, fékk 9 vinninga af 9
mögulegum. Annar varð Arni
Sigurðsson með7 og 1/2 vinning.
1 D. 3 varð Sólmundur
Kristjánsson efstur með 8og 1/2
vinning af 10 möguiegum.
Annar varð Einar Valdimars-
son með 8 vinninga.
1 unglingaflokki voru 45
keppendur og voru tefldar 9 um-
ferðir eftir Monrad kerfi.
Keppendur voru 14 ára og yngri.
Sigurvegari varð Jóhann H.
Uagnarsson, en hann er aðeins
10 ára gamall með 9 vinninga,
hann vann allar sinar skákir.
Annar varð Snorri Þór
Sigurðsson með 7 vinninga.
Keppni i A. og B. riðli kvenna
er enn ekki lokið, en kvenfólkið
teflir tvöfalda umferð.
snerpa, er meir en flestra leik-
manna varnarliösins. Furðulegt
var að ekki skyldi hafa verið
ieikinn maður á mann vörn
gegn þeim, en með þeirri leik-
aðferð hefðum við efiaust
kafsiglt NATO. Það getur
kannski veriö að landsliðs-
þjálfarinn hafi verið aðeins að
æfa svæðisvörn i þessum leik,
þvi henni verður liklega beitt að
mestu gegn hinu sterka brezka
Olympíuliði sem leikur um
helgina tvo landsleiki við is-
land.
Lið Reykjavikurúrvalsins er
nokkuð jafnt að getu, en þó má
búast við að okkur vanti betri
„centera” þegar við leikum við
sterkari lið. Körfuknattleikur-
inn er i örri framför i landinu og
það vandamál getur lagazt
fljótlega þegar leikmenneins og
Jón Jörundsson og Jónas
Johannsson hafa náðbetra valdi
á likömum sinum og fengið
meiri hörku. Einnig eigum við
tvo góða og hávaxna leikmenn
sem dveljast i Bandarikjunum
um þessar m undir, sem geta þvi
miður ekki verið með gegn
Bretum á laugardaginn. Bak-
verðirnir eru greiniiega okkar
beztu menn og gætu þeir allir
sómað sér vel hvar sem er.
Menn eins og Kristinn Jörunds-
son, með sina seiglu og leik-
gleði, Jón Sigurðsson með sina
tækni og sitt jafnvægi, og Kári
Mariusson sem hefur vaxið að
getu með hverjum leiknum i
vetur, og stendur hinum
tveimurekkertað baki, eru allir
mjög góðir leikmenn. Kolbeinn
Kristinsson og Guðsteinn Ingi-
marsson eru einnig góðir. Kol-
beinn Pálsson meiddist fljótlega
i þessum leik og lék þvi lítið
samt mátti merkja að hann er
ekki eins afgerandi lcikmaður
og hann hefur verið.
Bræðurnir Kristinn og Jón
Jörundssynir voru stigahæstir
okkar manna í leiknum, báðir
með rúm 20 stig.
Föstudagur 6. febrúar 1976.
OLD TRAFFORD STRÁK-
ARNIR GERA ÞAÐ GOTT
//O L D TRAFFORD
KRAKKARNIR" eins og
hið gamalfræga lið Man-
chester United hefur
lengi verið kallað— er nú
á toppnum í 1. deild ensku
dei Idarkeppni nna r í
knattspyrnu og árangur
þessa liðs hefur í vetur
verið með eindæmum.
Jafnvel hörðustu aðdáendur
félagsins, þar með talinn
Tommy Docherty, Skotinn eitil-
harði, sem þjálfar þá, bjóst ekki
við þvi að þeir stæðu sig svo vel
sem raun ber vitni. Hann sagði
áður en keppnistimabilið hófst
að hann myndi gera sig ánægð-
an með ef liðið yrði fyrir ofan
miðju, en árið svo á eftir myndu
þeir berjast á toppnum. En
annað hefur komið á daginn.
Þeir hafa leikið mjög vel i vetur,
og er það álit flestra að þeir eigi
skilið að vera i efsta sæti. ,,Nú
hef ég lokið við að draga að mér
mannskap” sagði Docherty eft-
ir að hann keypti Gordon Hill
frá Millvall, og meinti a þar
með teldi hann að hann hefði
þann mannskap sem til þyrfti til
að vinna meistaratitilinn. Og
hver veit nema honum takist
það ári fyrr en áætlað var?
Liverpool verður samt ekki
auðveldlega stungið af, og svo
má einnig segja um Leeds og
Derby. öll þessi lið hafa það til
að bera sem þarf til þess að
vinna Englandsmeistaratitil-
inn, getu, reynslu, og vilja. En
snúum okkur að 23. getrauna-
seðlinum.
Birmingham City —
Middlesbrough x.
Ekki er gott að segja hvort
liðið vinnur þennan leik. Middl-
esbrough er sterkara lið, en
Birmingham er á heimavelli, og
gæti aðstöðumunurinn þvi nægt
þar til sigurs.
Jafntefli er ekki heldur svo
ólikleg úrslit, einkum þegar það
er lika haft i huga að Middles-
brough er með sterka vörn.
Burnley — Ipswich Town
x.
Leikir þessara félaga hafa
verið mjög rokkandi i vetur, svo
ekki sé meira sagt. Þau tapa oft
á heimavelli, þegar búist er við
sigri, en ná jafntefli eða vinn-
ing, á útivelli þegar sizt er von.
Það getur þvi auðveldlega átt
sér stað að annað liðið sigri, en
meiri likur hljóta þó að vera hjá
Burnley. Jafntefli er líka ekki
fjarri lagi.
Coventry City —
Manchester United x.
Coventry gæti gert Manchest-
erliðinu skráveifu, með þvi að
sigra i þessum leik, en ekki ætti
þó að vera svo fjarri lagi að
United krækti sér i jafntefli.
Ekki er nokkur vafi að ef Old
Trafford félagið fær 50% út úr
þeim útileikjum sem þeir eiga
eftir að leika i deildinni, þá
verða þeir meistarar. Þessi
leikur gæti þvi gefið nokkuð
góða hugmynd um það hvort
þeir ná þeim árangri, eða ekki.
Þeir eiga eftir að leika við flest
toppliðin á heimavelli og standa
þvi vel að vigi.
Liverpooi— Leeds United
1.
Með fullri virðingu fyrir öðr-
um leikjum, þá er þetta stór-
leikur umferðarinnar, og lik-
lega sá leikur sem rikisútvarpið
brezka BBC mun lýsa. Liver-
pool er að sjálfsögðu mun sigur-
Nú styttist éðum I lok keppnistimabilsins á Englandi, og spádómar um það hverjir verða meistarar
verða enn háværari en áður. Það lið sem vinnur kemst í Evrópukeppni meistaraliöa, og á þá möguleika
a að vinna þennan bikar sem Bayern Munchen leikmennirnir halda hér á.
stranglegra og þykja líkurnar á
að það vinni 70-30. Leeds fékk
slæma útreið gegn Norwich á
heimavelli siðasta laugardagog
hafa hrakfarirnar gegn Crystal
Palace i bikarkeppninni helgina
þar á undan vafalaust haft mikil
áhrif á leikmenn liðsins. Liver-
pool aftur á móti sýndi stór-
góðan leik gegn West Ham i
Lundúnum á laugardaginn og
má þvi búast við þvi að það
haldi striki að minnsta kosti á
laugardaginn.
Manchester City — Aston
Villa 1.
City hlýtur að vinna þennan
leik, ef að likum lætur. Þeir eru
mjög erfiðir heim að sækja, og
hefur leikvangur þeirra Maine
Road, verið aftökupallur fyrir
mörg liðin i vetur. Aston Villa
hefur ekki leikið á Maine Road i
mörg ár, og mun þvi frami stað-
arins i augum leikmannaanna,
hjálpa til við ósigurinn.
Newcastle — Derby
County 1.
Já, þessi leikur verður mjög
erfiður fyrir meistarana, þvi
Newcastle hefur verið i miklu
stuði á St. James Park i siðustu
leikjum, og unnið stórt. Ekki
þykir liklegt að Derby nái sér i
stig, út úr þessari viðureign, og
verður að vorkenna þeim að
þurfa endilega að mæta New-
castle einmitt þegar það er i
formi, en eins og flestir vita þá
er það mjög rokkandi i leikjum
sinum.
Norwlch City — Arsenal
1.
Ekki búast vist margir við að
Arsenal fái stig i þessum leik.
Félagið hefur verið afar slakt i
veturAog hefur ekki staðið sig
'eins illa i nokkra áratugi. Nor-
wich er heldur ekkert sérstakt
lið, en þó svona rétt aðeins um
meðallag. Þeir ættu að verða of-
jarlar Arsenal á Carrow Road i
Norwich á laugardaginn.
Q. P. R. — Wolverhampton
Wanererers 1.
Q.P.R. virðist eitthvað vera
að ná sér, eftir slakt timabil
kringum jólin og i byrjun árs-
ins. Wolves hafa lika tekið sig
verulega á eftir áramótin og
hafa ekki tapað leik i nokkurn
tima. Q.P.R. ætti þó að hafa það
af að sigra þá á Loftus Road á
laugardagin, ef að likum lætur.
Sheffield United— Ever-
ton x.
Eitthvað virðist Sheffield
vera að skána, ef miðað er við
leiki liðsins að undanförnu. Þeir
eru samt of djúpt sokknir i
deildinni til þess að eiga ein-
hverja möguleika á að bjarga
sérfrá falli. Jafntefli ætti það þó
að vera nokkuð öruggt með á
laugardaginn á Bramall Lane,
þó auðvitað allt geti átt sér stað.
Stoke — Leicester 1.
Stoke er að flestra mati örlit-
ið betra lið en Leicester og má
þvi fastlega búast við sigri þess
i þessum leik. Alan Hudson hjá
Stoke er einn bezti miðjuleik-
maður á Bretlandseyjum i dag,
og enginn leikmaður i Leicester
jafnast á við hann að getu. Hann
mun þvi stýra Stoke til sigurs á
laugardaginn.
Tottenham Hotspur —
West Ham United 1.
Tottenham hefur sannað það i
siðustu leikjum að félagið er
ágætis lið, og að margra mati
betra heldur en taflan segir til
um. Það hefur leikið þrjá leiki i
vetur við West Ham, gert eitt
jafntefli tapað einum leik 0:1 en
unnið einn 2:0 og var sá leikur
einmitt á heimavelli West Ham.
Það hefur þvi mikla mögul. á
að vinna óhamingjusamt West
Ham liðið um þessar mundir, á
White Hart Lane i Norður-
Lundúnum.
Fulham— Sunderland x.
Fulham hefur ekki staðið við
þær vonir sem bundnar voru við
félagið i upphafi keppnistima-
bilsins. Flestir bjuggust við þvi
að það myndi rjúka beint upp i
1. deild eftir hinn góða árangur
liðsins i bikarkeppninni i fyrra.
En það hefur brugðist. Sund-
erl. hlýtur nú að komast i 1.
deild að nýju, eftir að hafa misst
naumlega af lestinni siðustu
þrjú ár. Það ætti þvi að verða
verðugt að minnsta kosti jafn-
teflis.
P,
rö (/)
f-i cn
C) QJ (/)
U 0 U 'V U O
Síðústu Síðustu b íeikir 1 sömu liöa o u u i—1 0) r- X Czl t: •H f-4 r—1 o, o 0) cn 0
ö heiraa útileikir 8 síðustu árin. X cn cn cn ÍH
VJTV'W/'T HIliMIKGHAM—KII/DL JSÍ3RCU2H JTVTTVJT 1 '1 x 2 Y - - 2 X Y 2 X i
rVTTJVTT EURNL2Y — IPSVICIS VJTJ'JJVJ - 1 2 X -. - 2 1 X 2 2 X X X
TJJWTJV COVEN Tl?Y —MAN . UNIT3D V TTTJVJJ 1 1 2 1 2 X 1 - X 2 x X 2 2
J VJTj VVj LIVBRPOCL —LCEDS U. VJTJV'TVJ 1 X X X 2 1 1 1 X x 1 V Á X 1
JJVVJVTV MAN.CITY -ASTON VILLA JTTTJ' l’TJ 1 1 1 1 I 1
JWTVJ'JV NSWCASTLE -DERBY C. JJVJTJTV - - 2 1 2 1 2 2 X V .'Y 1 1 X 1
J VTTVjJV NORWICH —ARSSNAL t rrrjTTr I 2 - 1 I 1 1 I X
WJVVJVV Q.P.R. —WOLVES TTTVTTJV . - 2 - - X 1 ' 1 1 1 1 1 1
TTJTTTJJ SHSFF. U. -3VERT0N VTTTJVJT 2 - - X 2 X X ! 2 2 x X X X
TJVVJVJV STCKS C. -L3ICSSTER JJJVJTTJ 1 1 - - 1 1 1 1 1 i 1 1 1 1
J VJVJTTJ TýTTENHAM -WEST HAM VTVTTTTT 1 1 2 X 2 1 1 1 X i X x X 1
JJJVTTVJ FULKAM -SUNDERLAND jTvvrrrj 1 - - - x 2 2 2 n CL 2 V 2 2 2
<
Alþýðublaðið