Alþýðublaðið - 06.02.1976, Qupperneq 5
Það verður stöðugt óæskilegra og
minna spennandi að aka bii. Það
getur lika verið gott, að minnsta kosti
frá vissu sjónarmiði. Og enn er þó
miðstöðvartölvan ekki tekin i notkun
i þjónustu umferðareftirlitsins, jafn-
vel þótt þess verði ef til vill ekki svo
ýkja langt að biða.
" ■ ' ■:
VERÐUR MIÓLKURKð RÍKISKASS-
ANS - OKUMANNINUM - FÖRNAÐ
A ALTARI RAFEINDATÆKNINNAR?
Þú ekur bilnum þinum á
heimleið eftir langan og strang-
an vinnudag. Þú ert þreyttur,
það er orðið áliðið dags og
skammdegismyrkrið eins og
það er, og slyddurigning gerir
ömurlegra og lokar öllu útsýni.
Allt hefur þetta samvirk áhrif á
þig þú verður að heyja harða
baráttu við syfjuna, sem sækir á
þig úr öllum áttum.
Og nú gerist það.
Þú heyrir einhvern dumban
dyk, og eitthvað svart ber fyrir
rúðuna brot úr andrá.
Þá skynjar þú allt skyndilega
greinilega. — Guð hjálpi mér....
ég hef ekið á mann.
Þreyttur heili þinn tekur allt i
einu ákvörðun. — Aktu á brott
sem skjótast. Það er ekkert
sjónarvitni að atburðinum.
Þú hagar þér samkvæmt
þeirri óviturlegu hugdettu, og
ekur heim. Morguninn eftir
lestu um slysið i blöðunum. Og
þar stendur meðal annars að
likið hafi fundizt aðeins
nokkrum minútum eftir að slys-
ið átti sér stað.
Seinna um daginn kemur svo
lögreglan i heimsókn til þin.
Þú neitar, i trausti þess að
ekkert sjónarvitni hafi verið að
slysinu.
— Það hlýtur að vera um ein-
hvern misskilning að ræða. A
þeim tima sem þið segið að
þetta hafi gerzt, sat ég inni i
stofunni heima og horfði á
sjónvarpið.
En þér hefur gleymzt eitt
mikilvægt atriði. Miðstöðvar-
tölvan. Hún hefur stöðugt sam-
band við bilinn þinn með at-
beina senditækjanna, sem kom-
ið er fyrir i akbrautinni. úr fór-
um hennar hefur lögreglan þær
heimildir og staðreyndir, sem
þýða það að vita gagnslaust er
fyrir þgi að neita. Með rólegri
sannfæringu vekja lögreglu-
þjónarnir athygli þina á að þú
hafir nálgazt staðinn þar sem
slysið varð nokkrum minútum
áður en það gerðist, og aukið
hraðanna að mun i sömu svif-
um.
Þar með er þýðingarlaust
fyrir þig að neita lengur.
Með miðstöðvartölvunni fær
lögreglan og umferðargæzlan
möguleika til að fylgjast með
ferðum sérhvers bils, um leið og
stjórnmálamennirnir veita
samþykki sitt til þess að raf-
eindatæknin verði tekin i þágu
umferðareftirlitsins.
Fyrir atbeina litils stokks,
hann er viðlika á stærð og hálfs
kg smjörpakki, sem komið er
fyrir i bifreiðinni, fyrir atbeina
senditækja i akbrautinni og
miðstöðvartölvurnar, getur um-
ferðarlögreglan fylgzt stöðugt
með ferðum þinum i bilnum.
Tölvan hefur á hraðbergi
upplýsingar um hvar þú ekur og
á hvaða hraða, hvar þú leggur
bilnum og hve lengi.
Og svo verður skatturinn af
bilnum þinum reiknaður út að
öllu leyti samkvæmt þeim
upplýsingum sem tölvan lumar
á i fórum sinum og útgjöld þin i
sambandi við rekstur bilsins,
aukast að miklum mun og þar
er tekið með i reikninginn, ef þú
hefur fariðyfir löglegan hraða
eða lagt binum skakkt.
— Það hlýtur að vera hægur
nærri að laga kassaskrattann
smávegis til, hugsarðu ef til vill.
Þarf ekki annað en lemja dug-
lega i hann svo hann verði
óstarfhæfur.
Jú, ef til vill er það hægt, en
vafasamt hvort það borgar sig.
Þvi að ef þú snertir stokkinn
mótmælir hann þvi kröftuglega
og á þann hétt meðal annars, að
tölvan bætir hárri sekt við önnur
útgjöld þin um leið og kemur þvi
á framfæri við eftirlitið, að hún
hafi tekið bilinn þinn úr umferð.
Framtiðarsýnir? Nei, siður en
svo. Þegar i dag hafa menn náð
svo langt, að þetta er allt fram-
kvæmanlegt. Allt, sem á hefur
verið minnzt að framan, og
meira til.
Frá og með þeim degi, sem
stjórnmálamennirnir leyfa að
þetta fyrirkomulag verði tekið i
notkun, getur þú aldrei framar
litið svo á að þú sért einn og
óséður i bilnum þinum.
Það verður haft vakandi auga
á þér hverja sekúndu eftir að þú
snýrð ráslyklinum. Meira að
segja fær eftirlitið nákvæmar
upplýsingar um hvenær þú ekur
bilnum inn i þinn eigin bilskúr
og stöðvar hreyfilinn.
Aðgæzlunni verður ekki áfátt i
neinu.
Slysið sem við minntumst á i
upphafi, er að sjálfsögðu ein-
göngu hugsað sem dæmi, en litli
stokkurinn i bilnum.senditækin i
akbrautinni og tölvan geta
fylgzt með svo ótal mörgu
meiru, skrásett það og varð-
vei ;t.
Sértu einn af þeim sem aka
bilnum sinum daglega á vinnu-
staði miðbænum, getur það orð-
ið þér dýrt spaug.
Það eru sumsé uppi áætl-
anir um að það verði dýrara
að aka innan takmarka slikra
þéttbýliskjarna, heldur en i út-
hverfum, eða á vegum úti. Með
þvi að hækka þannig gjaldið,
kemur af sjálfu sér, að þar
dregur nokkuð úr umferðinni.
Erlendis að minnsta kosti
verður útkoman sú, að bilunum
verður lagt i útjörðum þéttbýl-
ustu og umferðarmestu hverf-
anna, og siðan taka menn sér
far með strætisvagni eða neðan-
jarðarlest inn i mið hverfin.
Hefurðu ánægju af að aka
hratt?
Það eykur hjá þér skattinn af
bilnum. Mikill hraði eyðir
meira slitþekju vegarins, þess
vegna verður skráð hvers hratt
þú ekur og þér gert að greiða
meira.
Og farir þú yfir löglegan
hraða, færðu refsiálag að auki.
Stöðumælar inni i borgum verða
úr sögunni, þvi að stokkurinn og
tölvan gæta þess og skrá hversu
hátt stöðugjald þér ber að
greiða.
Látir þú bilinn standa á við-
komandi stað lengur en leyfilegt
er verður stöðugjaldið miklum
mun hærra, en þó fyrst kastar
tólfunum hvað gjaldhækkunina
snertir, ef þú leggur bilnum þar
sem það er ekki leyfilegt.
Ef þú ekur vöruflutningabil,
kemur það fram á afgjaldinu
þinu hve þungum farmi þú ekur
hverju sinni. Þvi þyngri sem
farmurinn er þvi meira bitnar
það á slitlagi vegarins — og þvi
hærra verður sumsé afgjaldið.
Sé farmurinn þyngri en leyfilegt
er, kemur refsihækkun þar
fyrir.
Um alllangt skeið hefur bill-
inn verið ýmsum afbrotamönn-
um þarft tæki. Með tilkomu raf-
eindatæknilega eftirlitsins
verður loku fyrir það skotið.
Ef manni byði svo við að
horfa, mætti telja þær breyting-
ar sem það mundi valda á ótal
sviðum, yrði þvi seint lokið. Og
það skal fram tekið, að þetta er
ekki nein tæknileg imynduriar-
saga eða framtiðarsýnir, heldur
tæknilegar staðreyndir.
Meðal Englendinga hefur ver-
ið um það rætt að undanförnu að
taka upp þá tæknilegu aðgæzlu,
sem með þarf til þess að við-
komandi yfirvöld geti fylgzt
með þvi á hverri stundu hvar,
hver sérstakur bíll heldur sig.
En það finnst brezkum allt of
langt gengið á réttindi einkalifs-
ins, og i bili að minnsta kosti
hefur þessum ráðagerðum verið
frestað. f Sviþjóð hefur þetta
mál einnig verið mjög til
umræðu, þar eð talið og er, þá
telja verkfræðingar þar að raf-
eindaeftirlitið mundi ekki svara
kostnaði.
Og jafnvel þótt þess sé full
þörf að hækkað gjald verði inn-
heimt fyrir akstur i miðbæjum
og borgum, telja stjórnmála-
menn að reyna beri að fá þvi
framgengt á annan hátt. Raf-
eindaeftirlitið yrði of mikil
skerðin á einkalifi og
einstaklingsfrelsi.
En sú afstaða þeirra kann að
breytast.
Svarti kassinn — bilritinn — er enn ekki til i
fjöldaframleiðslu, en þannig mun hann lita út
þegar þar að kemur. Hann mun geyma allar
upplýsingar um bilinn og akstur hans, og það
mun ekki gagna að reyna að skjóta sér undan
umferðaróhappi eða slysi. Takmark kassans
er að draga úr slysum — og veita nánari
upplýsingar um hvernig slys hafa borið að
höndum þegar enginn er til frásagnar.
Föstudagur 6. febrúar 1976.
Alþýðublað.'ð