Alþýðublaðið - 02.04.1976, Qupperneq 10
alþyóu-
Föstudagur 2. apríl 1976. blaöió
lO
Auglýsing
um skoðun bifreiða í lögsagnarumdæmi
Keflavíkur, Njarðvíkur, Grindavíkur
og Gullbringusýslu
i lögsagnarumdæmi Keflavikur, Njarð-
víkur, Grindavikur og Gullbringusýslu.
Samkvæmt umferðarlögum tilkynnist hér
með, að aðalskoðun bifreiða i lögsagnar-
umdæminu hefst mánudaginn 12. april
1976.
mánudaginn 12. aprii Ö-1 — Ö-75
þriðjudaginn 13. april Ö-76 7 Ö-150
miðvikudaginn 14. april 0-151 7 Ö-225
þriðjudaginn 20. aprfl Ö-226 — Ö-300
miðvikudaginn 21. aprfl Ö-301 — Ö-375
föstudaginn 23. aprfl Ö-376 — Ö-450
mánudaginn 26. apríl Ö-451 — Ö-525
þriðjudaginn 27. aprfl Ö-526 — Ö-600
miðvikudaginn 28. aprfl Ö-601 — Ö-675
fimmtudaginn 29. aprfl Ö-676 — Ö-750
föstudaginn 30. apríl Ö-751 — Ö-825
mánudaginn 3. maí Ö-826 — Ö-900
þriðjudaginn 4. maí Ö-901 — Ö-975
miðvikudaginn 5. maf Ö-976 — Ö-1050
Bifreiðaeigendum ber að koma með bif-
reiðar sinar að Iðavöllum 4 i Keflavik og
verður skoðun framkvæmd þar á fyrr-
greindum dögum milli kl. 9—12 og
13.00—16.30.
Við skoðun skulu ökumenn bifreiðanna
leggja fram fullgild ökuskirteini. Sýna ber
skilriki fyrir þvi að bifreiðagjöld fyrir árið
1976 sé greidd og lögboðin vátrygging fyrir
hverja bifreið sé i gildi. Hafi gjöld þessi
ekki verið greidd verður skoðun ekki
framkvæmd og bifreiðin stöðvuð, þar til
gjöldin eru greidd.
Vanræki einhver að koma bifreið sinni til
skoðunar á réttum degi, verður hann lát-
inn sæta sektum samkvæmt umferðarlög-
um og lögum um bifreiðaskatt og bifreiðin
tekin úr umferð, hvar sem til hennar næst.
Þetta tilkynnist hér með öllum sem hlut
eiga að máii.
Vakin er sérstök athygli á þvi, að auglýs-
ing þessi varðar alla eigendur Ö-bifreiða,
hvar sem þeir búa í umdæminu.
Bæjarfógetinn i Keflavik,
Njarðvik og Grindavik.
Sýslumaðurinn í Gullbringusýslu.
Aðalfundur
Kaupfélags
Hafnfirðinga
Verður haldinn mánudaginn 5. april næst-
komandi i Skiphól. Fundurinn hefst kl.
20.30.
Dagskrá:
Samkvæmt samþykktum félagsins.
Stjórn Kaupfélags Hafnfirðinga
Styrkir til að sækja
kennaranámskeið
f Sviss
Evrópuráðið býður fram styrki handa kennurum til að
sækja stutt námskeið i Sviss á tfmabilinu mai 1976 — janú-
ar 1977. Styrkirnir eru ætlaðir kennurum við menntaskóla,
kennaraskóla eða sérskóla fyrir nemendur á aldrinum 15-
19 ára og nægja fyrir ferðum og uppihaldi á námskeiðs-
tímanum, sem að jafnaði er ein vika. Umsækjendur skulu
hafa gott vald á þýsku eða frönsku.
Umsóknum skai komið til menntamálaráðuneytisins fyrir
20. april n.k. Umsóknareyðublöð og nánari upplýsingar
um námskeiðin fást i ráðuneytinu.
Mennta mála ráðuney tið,
29. mars 1976.
GETUR BARN DAID EF
MB BORÐAR TÓBAK?
Börn á vissum aldri, eru, eins
,og flestir vita, gjörn á að stinga
öllum hlutum upp i sig.
Eitt af þvi sem veldur foreldr-
um og öðrum miklum áhyggjum
er ef barn nær i sigarettur eða
aðrar tóbaksvörur og er að leika
sér með þær þegar komið er að
þvi. Enginn veit hvort það hefur
borðað eitthvað af þeim, en hitt
vita allir að tóbak er hættulegt
þegar börn eiga i hlut — en
hversu hættulegt?
Tage Egsmose sem vinnur við
Heilbrigðisstofnun Kaup-
mannahafnarháskóla segir að
það'geti reynst börnum banvænt
ef þau borða sigarettustubb, þvi
þar sé eitrið mest og nikótin-
eitrun sé alvarlegur hlutur.
Ef foreldrar hafa grun um að
barn hafi látið ofan i sig tóbak,
skal tafarlaust fara>með barnið á
spitala, segir Egsmose, þar sem
annað hvort verður að dæla
innihaldi magans upp, eða gefa
barninu mótefni.
Skýrsla frá barnadeild i
Malmö sýnir, að i þeim 93 tilfell-
um sem börn hafa orðið fyrir
eitrun af einhverjum orsökum,
eru 33 tilfelli af völdum tóbaks.
FRAMHALPSSAGAM
sannaði hreinskilni hans. Og hún,
sem vissi betur en margir aðrir,
hvilik kvöl ástin getur verið, gat
ekki annað en vorkennt honum.
— Ef það er satt, þá veiztu líka
hvernig mér liður, sagði hún
hljóðlátlega. — Farðu nú, og
reyndu ekki að heimsækja mig
aftur. Sjáðu um að enginn komist
nokkru sinni að þvf að ég . . . var
með þér í nótt. Gerirðu þér grein
fyrir þvi, hvað myndi koma fyrir,
ef Vane kæmist að þvi?
Hún þagnaði snögglega, og þau
snéru sér bæði að dyrunum þegar
þau heyrðu drepið létt á dyrnar.
Sinclair flýtti sér út að gluggan-
um, og stóð og leit út i garðinn,
þegar Beverly Harrington kom
inn.
— Sæl, Phillida, sagði hún. —
Ég hélt að þú hefðir verið i Nice i
nótt?
Hún var óvenju föl, og ef
Phillida hefði ekki sjálf verið i'
uppnámi, hefði hún tvimælalaust
tekið eftir einkennilegri fram-
komu Beverly.
— Ég ákvað að koma heim i
staðinn, sagði Philiida. — Ég kom
seint i gærkvöldi.
• — Sæl, Beverly. Sinclair hafði
snúið sér við, þegar hann heyrði
rödd frænku sinnar. — Hvernig
gengur?
— Agætlega, þakka þér fyrir . .
Hún leit snöggt á hann, og siðan
aftur á Phillidu.
— Það var gremjulegt, að ég
skyldi ekki vita. . . að þú værir
komin heim. Ég talaði við Vane i
sima i morgun, og ég varð að
segja honum að þú værir ekki
heima.
— Vane? sagði Phillida. — Var .
. . er eitthvað að?
— Nei, þvert á móti. . . alit er i
bezta lagi. . . að minnsta kosti
það, sem mestu skiptir, sagði
Beverly. — Ef þú hefðir verið
heima i gær, hefðir þú getað tekið
þátt i mikilli hrifningu yfir þvi, að
Sainte Marie Sjúkrahúsið kæmist
i mannkynssöguna sem sjúkra-
húsið, sem átti þátt i mestu upp-
götvun læknavisinda nútimans.
Þá mestu, siðan penisillinið var
fundið upp, og ekki siður mikil-
væga.
— Beverly. . . Phillida greip i
handlegg hennar. — Þú átt ekki
við, að . .. að þið hafið fundið það,
sem Vane leitaði að?
— Ég á við að hann hafi fundið
það, sagði Beverly. — Ég skipti
engu máli i þvi sambandi. Það er
sannarlega leitt, að hann skuli
hafa neyðzt til að fara einmitt i
þessu, en ég hringdi þegar i stað
til hans til að segja honum frá þvi.
Það hefur tekizt... lifsverk hans!
Og hann er enn svo ungur. ,. hann
á enn svo margt framundan.
Kinnar Beverly glóðu.ogaugu
hennar ljómuðu. — Hann er
dásamlegur.
— Ég býst við, að þetta þýði að
Cordrey verði talsvert þekktur
maður, sagði Sinclair.
— Heimsfrægur! Beverly leit
einkennilega sigri hrósandi á
hann.
— Hann mun ekki þurfa á öllu
þvi að halda, sem. .. yfirleitt fyll-
ir lif venjulegs manns. Hann
verður eitt þeirra nafna, sem
verða skráð með gullletri I sög-
una.
— Og þú ferð til hans á morgun?
— Já. Hún leit á hann einkenni-
lega, næstum fyrirlitlega. — Þú
hugsar sjálfsagt vel um Phillidu á
meðan.
*
cy4stareldur*
eftir Valerie North.