Alþýðublaðið - 21.04.1976, Síða 2

Alþýðublaðið - 21.04.1976, Síða 2
2 STJORNMÁL AAiðvikudagur 21. apríl 1976 bSaSið'' Ctgefandi: Alþýöuflokkurinn. Rekstur: Reykjaprent hf. Ritstjóri og ábyrgðarmaður: Árni Gunnars- son,. Ritstjóri: Sighvatur Björgvins- son. Fréttastjóri: Bjarni Sigtryggs- son. Aðsetur ritstjórnar er í Siðu- múla 11, simi 81866. Auglýsingar: simi 28660 og 14906. Prent- un: Blaðaprent h.f. Áskriftarverð:1000 krónur á mánuði og 50 krónur i lausasölu. alþýóu- blaöið Við vetrarlok Sá vetur, sem nú er brátt á enda, hef ur verið um- hleypingasamur með afbrigðum a.m.k. á Suður- og Vesturlandi. Veður hafa oft verið válynd og óvana- lega mikið um hvassviðri. Fólk er óvanalega þreytt á vetrarrosanum og bíður með meiri óþreyju en oft áður eftir sumri. I stjórnmálaheiminum hafa veður einnig verið mjög válynd á þessum vetri. Fley i íkisstjórnar Geirs Hallgrímssonar sökk að vísu ekki í vetrarstormum pólitíkurinnar, en ekki er ástandið beysið. Ríkis- stjórnarfarið er vart eða ekki sjófært lengur, heldur marar stjórnlaust í hálfu kafi, brynjað klaka með brotinn reiða og öll stjórntæki ónýt.’ Og ekki er ástandið betra meðal áhafnarinnar. I lúkarnum ræður grémjan og óánægjan ríkjum. Þar harma hásetar Géirs Hallgrimssonar rýran hlut, kasta á milli sin kerskniyrðum um kafteininn og aðra yfirmenn á st jórnarf leyinu, gefa dauð- ann og djöf ulinn í hvort siglt er eða hvernig.en horfa til þess með tilhlökkun þegar þeim gefst tækifæri til þess að forða sér í land af þessum manndrápsbolla. Og uppi í brú standa yf irmennirnir — ráðherrarnir átta — gefa hver öðrum hornauga og talast ekki við nema í brýnustu nauðsyn. Kafteinninn horfir alvar- legum augum út í sortann í von um að eitthvað rof i til svo hann sjái, hvar hann sé staddur. Fyrsti stýri- maður, sem sviptur var skipstjórninni fyrir þremur árum vegna þess, hve hann aflaði iila, hefur blendnar tilfinningar. Hann er ekki frekar en aðrir ánægður með úthaldið — og þó. Það er út af f yrir sig ánægjulegt, að nýi skipstjórinn skuli vera enn meiri fiskifæla og minni stjórnandi, en hann var sjálfur. Kannski verður þetta mjög svo misheppnaða úthald til þess, að fyrsti stýrimaður fær skipstjórnina aftur — ef þá tekst að koma skipinu í höfn. Þannig er nú hugsað í brúnni á þjóðarskútunni. Það getur vel verið, að sumarið, sem nú er fram- undan, haf i í för með sér veðurfarsbreytingu til hins betra — að framundan sé bjartari tíð með blóm í haga. En jafnvel þótt svo verði mun það ekki fá bjargað stjórnendum þjóðarskútunnar. Ríkisstjórn Geirs Hallgrímssonar á sér ekki viðreisnar von, þótt hún kunni að geta treint í sér lífið í sex eða kannski tólf mánuði til viðbótar. örlög þeirrar ríkisstjórnar eru þegar ráðin. Þau réðust í vetur. Hvernig þau réðust er á ailra vitorði. Hvenaér er aðeins tíma- spursmál. Efling BUR Nýlega ritaði Sjómannafélag Reykjavíkur borgar- stjórn bréf og skoraði á borgaryf irvöld að kaupa tvo skuttogara af minni gerðinni fyrir Bæjarútgerð Reykjavíkur til þess að ef la skipastól fyrirtækisins. Taldi Sjómannafélagið þetta skjótvirkustu leiðina til þess að efla atvinnu í borginni, en hætta væri á atvinnuleysi. Borgarf ulltrúi Alþýðuflokksins, Björg- vin Guðmundsson, tók undir þessa áskorun Sjómannafélagsins í borgarstjórn og flutti síðan tillögu i borgarráði um kaup á einum notuðum skut- togara innanlands fyrir BÚR. Tillagan var sam- þykkt. Skömmu síðar varð að ráði, að BÚR keypti skuttogarann Freyju, sem smíðaður var í Frakklandi 1972. Var kaupverð skipsins 350 milljónir króna. Frumkvæði Sjómannafélags Reykjavíkur og borgarf ulltrúa Alþýðuf lokksins að ef lingu skipastóls BÚR bar þannig skjótan árangur og vill Alþýðublaðið fagna því. Hitt mun rétt vera, sem fram hefur komið, að verð skipsins haf i verið í hærra lagi og lét fulltrúi Alþýðuflokksins í útgerðarráði, Björgvin Guðmundsson, bóka athugasemd þess ef nis. En ekki mun hafa verið kostur á því að kaupa ódýrara sam- bærilegt skip hér innan lands. Um innflutning skips er ekki að ræða, þar eð ríkisstjórnin hef ur sett nýjar reglur um hann. Væntanlega eru skipakaup þessi aðeins byrjunin á frekari uppbyggingu BÚR. Enn um matvælakönnun Neytendasamtakanna 60% gölluð segja Neytendasamtökin - 37% gölluð segir Heilbrigðiseftirlitið I Alþýðublaðinu s.l. laugar- dag var getið um rannsókn sem Gerla rannsóknardeild Rannsóknarstofnunar fisk- iðnaðarins gerði á matvæla- sýnishornum fyrir Neytenda- samtökin. Eins og fram kom i greininni voru niðurstöður þessarar rannsóknar heldur ömurlegar, um 61% sýnanna voru ýmist dæmd gölluð, slæm eða hreinlega ósöluhæf vegna fjölda starfandi gerla, svo sem saurgerla og stafylokokka. Matvælaeftirlit rikisins 1. marz sl. tók til starfa Matvælaeftirlit rikisins. Hlutverk þess er að vera þjónustuaðili fyrir Heilbrigðis- eftirlitið og aðrar stofnanir og einstaklinga, og framkvæma fyrir þá þá gæðarannsóknir á matvælum sem eru á markaðinum. Alþýðublaðið hafði samband við Guðlaug Hannesson og bar undir hann niðurstöður þeirrar rannsóknar sem gerð var á vegum Neytendasamtakanna. Guðlaugur kvaðst ekki vilja gefa út neina yfirlýsingu vegna skýrslu Neytendasamtakanna. Þó taldi hann að dómur sinn um einstakar vörutegundir sem teknar voru til rannsóknar hefði orðið svipaður á grundvelli þeirra upplýsinga um þann gerlafjölda, sem i sýnunum var. Guðlaugur gat þess, að enginn viðurkenndur staðall væri til sem gæti skorið úr um hvenær vara væri ósöluhæf eða ekki, en viða um heim væri unnið að gerð sliks staðals t.d. á vegum FAO, matvælastofnunar Sam- einuðu þjóðanna. Það er hægt að framleiða og selja góðar vörur Eins og fram kom i skýrslu Ney tendasamtakanna var mikill munur á gerlamagni hinna einstöku sýna. Annað hvort var gerlafjöldinn tiltölulega litill eða fjöldinn hljóp á milljónum i hverju einstöku grammi. Þetta kvað Guðlaugur benda til þess að vel væri hægt að framleiða góða og gallalausar vörur ef hreinlætis væri gætt í hvivetna. Heilbrigðiseftirlitið Það er Heilbrigðiseftirlitið sem á að veita þeim sem fram- leiða og höndla með matvörur nauðsynlegt aðhald hvað snertir hreinlæti og hollustuhætti. Alþýðublaðið hafði samband við Þórhall Halldórsson hjá Heilbrigðiseftirlitinu og spuröist fyrir um hvernig þessu starfi væri háttað. Þórhallur sagði, að á vegum Heilbrigbiseftirlitsins væri sifellt I gangi könnun á hollustu- háttum og hreinlæti i matvöru- verzlunum. A vegum eftirlitsins eru starfandi svonefndir heilbrigðisfulltrúar, sem hver um sig hefir i sinni umsjá ákveðinn fjölda fyrirtækja, og tækju þar stöðugt sýni til ranns- óknar. Hvað um skýrslu N ey tendasamtakanna Við spurðum Þórhall álits á skýrslu Neytendasamtakanna. Hann sagði að vissulega væru niðurstöðurnar ekki fagrar, en lita bæri á það að tekin hefðu verið tiltölulega fá sýni og gæfu þvi rannsóknir ef til vill ekki alveg marktækar heildar niður- stöður. Hann gat þess jafnframt að i siðustu ársskýrslu Heilbrigðis- eftirlitsins kæmi þá fram að af u.þ.b. 620 sýnum sem tekin hefðu verið af matvælum svipaðrar tegundar, á vegum þeirrar stofnunar hefðu um 230 reynst vera „gölluð” vara, þ.e. um 37% sýnanna. Eins og áður er um getið voru um 60% þeirra sýna, sem Neytendasamtökin tóku, dæmd ”gölluð”. Að lokum sagði Þórhallur að með tilkomu Matvælaeftirlits rikisins yrði eftirlit með hrein- læti allt miklu auðveldara og öruggara. —ES— Starfsemi Menningarsjóðs hefur dregizt saman - kemur einkum niður á bókaútgáfunni Árið 1928 var komið á fót tveim merkum meningarstofnunum, sem voru Menntamálaráð og Menning arsj óður. Samhengi var milli beggja þessara stofnana og er svo enn. Þannig er Menntamálaráði ætlað, að stjórna Menningarsjóði og bókaútgáfu hans. Hlutverk Menningarsjóös eru, auk bókaút- gáfunnar, að veita fé til lista-og menningarstarfsemi i landinu, m.a. með þvi að veita utanfarar-og dvalarstyrki og annast listkynningu. Fyrst i stað beindust styrkveitingar einkum að þjóð- legum fræðum, og gera verulega enn, en á síðari árum hafa aðrar greinar bætzt i hópinn, s.s. tón- verkaútgáfa og styrkur til kvik- myndagerðar. Dvalarstyrkur listamanna hefur og fjölgað. Fjárhagur Menningarsjóðs hefur jafnan verið i þrengsta lagi, og hefur þess gætt verulega á siðustu verðbólgutimum, að minna er fyrir hendi en skyidi, til þess að halda raungildi styrkveitinga. Af þessum orsökum hefur starfsemi Menningarsjóðs dregizt mjög saman, virðist það einkum korna niður á bókaútgáfunni. Aðaltekjustofn sjóðsins, er svo- kallað miðagjald, samkvæmt lögum um skemmtanaskatt. Hefur þetta miðagjald, sem ákveðið er i lögum að krónutali, verið óbreytt frá 1970. Þarf ekki að sökum að spyrja um núverandi raungildi á þessum timum. Að auki hefur svo til komið nokkurt, beint framlag úr rikis- sjóði, sem nam á siðasta ári 3,3 milljónum. Bókaútgáfan. Stefna Menningarsjóðs i bóka- útgáfu hefur ætið verið, að binda sig við útgáfu fræðilegra rita og bókmenntaverka, en ekki etja kappi við aðra bókaútgefendur um útg. afþreyingarbóka. Þar á meðal má nefna Islenzka orðabók, Alfræði Menningarsjóðs og ýmsar ritraðir i samvinnu við stofnanir Háskóla Islands. Samvinna hefur verið við hið islenzka þjóðvinafélag um útgáfu ársrita félagsins, Almanakið og Andvara, sem bæði eiga langa og merka sögu, sem ekki er þörf upp að rifja. Af likum ræður við vaxandi fjárþröng til bókaútgáfunnar og um leið vaxandi þörf fyrir fjölbreytta útgáfustarfsemi, að Menntamálaráð hefur orðið að marka sér skýra stefnu. Þvi hefur þó jafnan verið fylgt, að ljúka útgáfu bókaflokka, sem hafin hefur verið, enda þótt nýjar ákvarðanir um breytta útgáfu- hætti kæmu til. Verður i þvi efni að aka seglum eftir vindi. Þannig má skipta, samkvæmt stefnu ráðsins, útgáfunni i sex flokka aðallega og þar að auki nokkra undirflokka. Starfsemin beinist einkum að útgáfu visinda- og fræðirita, bókmenntaverka inn- lendra og þýddra, bóka um listir, útgáfu tónverka, timarita og/eða félagsrita og loks s.n. smábóka i kiljubúningi, þýdd bókmennta- verk erlendra höfunda. Fullyrða má, eftir nær þvi hálfrar aldar starfsemi Menningarsjóðs við bókaútgáfu, að þar hafi verið unnið hið merkasta starf. Er nú þess að vænta, að yfirstjórn fjármála landsins sjái sóma sinn i að auka möguleika sjóðsins með rikari fjárframlögum en áður. Það væri verðug afmælisgjöf eftir hálfrar aldar heilladrjúgt starf. —OS—

x

Alþýðublaðið

Beinleiðis leinki

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Alþýðublaðið
https://timarit.is/publication/2

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.