Alþýðublaðið - 21.04.1976, Qupperneq 18
alþýúu-
Miðvikudagur 21. apríl 1976 blaðið
IKil
„Telur sér ávinning í að
boðun orðsins”
hlýða á
„Allir, sem ég hefi talað við
hafa verið ánægðir með
kirkjusókn núna um
páskana”, sagöi sr. óskar J.
Þorláksson, dómprófastur I
samtaii við biaðið. „Það er
siður hjá okkur i dómkirkj-
unni, að hafa sérstaklega
mikið við á páskadags-
morgni”, hélt sr. Óskar
áfram. „Því er raunar ekki að
neita, að verulega hefur
fækkað i dómkirkju-
söfnuðinum á siðari timum,
vegna þess að fólkið hefur
flutzt i stórum stil út í út-
hverfin. En það hefur ekki
breytt neinu um mjög góða
kirkjusókn i heimakirkjum
þess.”
„Nú eru páskarnir orðnir
mikil ferðahelgi. Virðist þér
það hafa nokkur veruleg áhrif
hér á?” „Nei, ekki það séð
verður. Þrátt fyrir það eru
aliar kirkjur yfirléitt, hér á
Reykjavikursvæðinu, fullar.
Jafnvel núna, þegar veður var
sérlega óhagstætt, virtist það
ekki gera neina breytingu.”
„Er kirkjusókn á páskum ef
til vill ekki minni en á sjálfum
jólunum?” „Nei. Ég hygg hún
- segir sera
*
Oskar J. Þorláksson,
dómprófastur, um
góða kirkjusókn
um páskana
sé álika., hreint ekki minai.”
„Svo þú ert þá ánægður með
hlut kirkjunnar i þessu hátiða-
haldi?” „Að þessu leyti, já, og
við prestarnir litum svo á, að
þegar fólk kemur til guðs-
þjónustu, telji það sér
ávinning i að hlýða á boðun
orðsins”, lauk séra Óskar J.
Þorláksson, dómprófastur
máli sinu.
ALMENNINGI KYNNTAR NYJUNG-
AR í ÍSLENZKRIHÚSGAGNAGERÐ
Húsgagnavikan í Laugardalshöllinni 23. apríl-2. maí
Fjórða „Húsgagnavikan”,
sem haldin er á vegum Félags
húsgagna-og innréttingafram-
leiðenda og Meistarafélags
húsgagnabólstrara, verður
opnuð formlega i Laugardags-
höllinni, fimmtudaginn 22. april
kl. 17.00.
Á „Húsgagnavikunni”
verður, i Laugardalshöllinni,
haidin sérsýning á islenzkum
húsgögnum sem um 30 fram-
leiðendur taka þátt i.
Markmiðið er að kynna
húsgagnakaupmönnum það
nýjasta i innlendri framleiðslu
og á þann hátt að kanna undir-
tektir við nýjum húsgagna-
gerðum sem framleiðendur
hafa hug á að koma á markað.
Húsgagnavikan verður eins
og fyrr segir formlega opnuð 22.
april, en verður siðan opin
almenningi frá 23. april til 2.
mai.
í tilefni af opnun „Húsgagna-
vikunnar” kölluðu aðstandendur
hennar blaðamenn á sinn fund
og gerðu nokkra grein fyrir
þróun og stöðu islenzks
húsgagnaiðnaðar.
RVIIII9IIHSI
Erfitt upp að sækja
Það kom fram að húsgagna-
iðnaðurinn á nú við ramman
reip að draga þar sem er inn-
flutningur á lágt tolluðum
húsgögnum erlendis frá. Við
inngönguna i EFTA voru
fors varsmönnum iðnaðarins
gefin ýmis loforð um vernd og
fyrirgreiðslu þar sem ljóst var
að innlendur iðnaður var ekki
vel i stakk búin að mæta sam-
keppni háþróaðs iðnaðar
EFTA-rikjanna.
Fæst af þessum loforðum hafa
verið efnd. Tollur á fullunnum
erlendum iðnvarningi hefir
hrfðlækkað (á húsgögnum úr
86% niður i 43%), en ennþá
liggur ekkert fyrir um, hvenær
stjómvöld hyggjast fella niður
tolla á ýmsum mikilvægum
aðföngum, hráefnum og vélum,
sem falla utan tollsrrárnúmera,
sem eingöngu eða aðallega hafa
að geyma aðföng til iðnaðar.
Reikul stefnumörkun hins
opinbera i skattamálum hefir
mikil áhrif á atvinnurekstur
eins og iðnað. Arið 1971 voru
■ !!■■■■■■■■■»
staðfest ný skattalög þar sem
skattakerfi okkar var samræmt
þvi skattakerfi sem gilti i helztu
samkeppnislöndum. En þau
skattalög tóku aldrei gildi, þvi
árið 1972 var lögunum breytt af
nýrri stjórn sem þá hafði tekið
við völdum.
í fjármálum hafa land-
búnaður og sjávarútvegur allan
forgang umfram iðnað. Auk
þess að eiga kost á hærra láns-
fjárhlutfalli eru lán til land-
búnaðar og sjávarútvegs á mun
hagstæðari kjörum, t.d. eru
vextir af rekstrarlánsfé i iðnaði
um 36% hærri en i landbúnaði og
um 32% hærri en i sjávarútvegi.
Allt þetta er næsta hlálegt
þegar á sama tima er litið til
iðnaðar sem þess atvinnuvegar
sem taka muni að mestu við
mannaflaaukningu næstu ára.
Staða húsgagnaiðnaðar
Samkvæmt upplýsingum
Þjóðhagsstofnunar hefir
afkoma fyrirtækja i
húsgagna-og innréttingaiðnaði
versnað verulega frá árinu 1973.
SUMARBINGÓ
Multiple Sclerosis félag íslands heldur bingó i Sigtúni á
sumardaginn fyrsta (á morgun) kl. 20.30. Húsið opnað
kl. 19.30.
Meðal fjölda glæsilegra vinninga eru ferðir til sólar-
landa, fjölbreyttar innanlandsferðir, ferðabúnaður, raf-
magnstæki, myndavélar, vatnslitamynd, sjónvarpsborð
og margt, margt fleira.
Allur ágóði rennur til tækjakaupa i endurhæfingarstöð
Sjálfsbjargar að Hátúni 12 i Reykjavik.
Multiple Sclerosis félag islands.
Skattlagður hagnaður hefur
minnkað úr 5,7% i 0%.
A árabilinu 1969-1973 jókst
fjöldi starfsmanna i hús-
gagnaiðnaði hröðum skrefum.
Frá 1973-1974 varð aukning svo
til engin og liklegt er að starfs-
mannafjöldi hafi haldizt
óbreyttur eða jafnvel dregizt
saman siðan.
Sömu sögu er að segja af
framleiðsluaukningu,. Eftir
inngöngu okkar i EFTA hefir
hún dregizt saman svo miklu
nemur.
Loforðin verði efnd
Forsvarsmenn húsgagna-
iðnaðarinstelja aðnú sé kominn
timi til að EFTA loforðin verði
efnd. Að iðnaðinum sem hingað
til hefir verið homreka hvað
snertir alla fyrirgreiðslu verði
nú veitt sú aðstaða sem honum
ber. Að stjórn islenzka hag-
kerfisins verði miðuð við fram-
tiðina en ekki einungis hugsað
fyrir skammtimavandamálum.
ES
Ef hagfræðileg styrk-
leikahlutföll raskast
„Breytingaí- á hagfræðilegum
sty rkleikahlutföllum i
heiminum” heitir fyrirlestur
sem Jan-Otto Andersen
háskólakennari flytur i
Norræna húsinu i kvöld kl 20.30.
Anderson er háskólakennari i
hagfræði og millirikja-
samsk iptum og starfar við hag-
fræðistofnun sænska háskólans i
Turku (Abo) i Finnlandi.
Reykjavikurdeild Norræna
sumarháskólans gengst fyrir
málþingi (seminar) með þátt-
töku Andersons um efnið „Riki,
auðmagn og kreppa”.
Málþingið fer fram i Lögbergi,
stofu 308, laugardaginn 24. april
og hefst kl 13.30. Málþingið er
opið öllum þátttakendum i
námshópum sumarháskólans
og öðrum sem áhuga hafa.
Anderson er kominn til
landsins á vegum Norræna
sumarháskólans og Norræna
hússins.
EB
Rithöfundar
gerast bóksalar
selja áritaðar sumargjafabækur
Rithöfundar ætla að afla fjár i
dag, siðasta vertrardag, kl.
10-17 með bóksölu á Bernhöfts-
torfu. -Rithöfundasamband
Islands gengst fyrir þessari
sölu. - Seldar verða áritaðar og
innpakkaðar bækur, og er verð
hverrar bókar 1500 krónur.
Enginn veit hvaða bók hann
fær og getur þessi bókamark-
aður þvi orðið æði spennandi. —
Bókatitlar eru 603 skáldsögur,
ljóðabækur, leikrit, þjóðlegur
fróðleikur, viðtalsbækur og bók-
menntasaga. Allt eru þetta is-
lenzk verk, hvert áritað með
sumarkveðju frá höfundi.
—AG
K0STAB0Ð
á kjarapöllum
KJÖT & FISKUR
Breiðholti
Simi 7 4200 — 742(H
Duna
Síðumúla 23
/íffli 04900
V
Heimiliseldavélar,
6 litir - 5 gerðir
Yfir 40 ára reynsla
Rafha við Óðinstorg
Sfrnar 25322 og 10322
Birgir Thorberg
málarameistari simi 11463
Onnumst alla
málningarvinnu
— úti og inni —
gerum upp gömul húsgögn