Alþýðublaðið - 15.06.1976, Blaðsíða 1

Alþýðublaðið - 15.06.1976, Blaðsíða 1
ÞRIÐJUDAGUR 15. JUNÍ Áskriftar- síminn er 14-900 I BLAÐINU I DAG Sömu laun fyrir sömu störf Það hefur löngum viljað vera misbrestur á, að greidd séu sömu laun fyrir sömu vinnu. Um þetta atriði, og ýmis fleiri er fjallað i blaðinu i dag. Sjá opnu í ÚTLÖND Mun verða mikilmenni Það verður varla sagt um Knud Fryden- lund utanrikisráðherra Noregs að hann hafi verið umsvifamikill, en hann hefur verið farsæll og sloppið við skyssur sem gætu hafa orðið afdrifarikar. bls.4 n o OQD' JCJ t CZ3C Fyrsta starfsári Fjölbrautarskólans lokið Fyrsta starfsári Fjölbrautarskólans i Breiðholti er nú nýlokið. Á þessu fyrsta starfsári skólans voru samtals 228 nem- endur við skólann. Sagt er frá skólaslitum i blaðinu i dag. ... . S|a bls. 6 D1 C3ÍÉ uc □ CZ3! 3 ’OI ?Q iocjcc Qag Af hverju nafnnúmer? Hvers vegna eru kvittanir gegn greiðslu á opinberum gjöldum aðeins merktar með nafnnúmeri, i stað þess að nota fullt nafn þess sem i hlut á» bls. 13 piE íOt H3L 3^ Þrifnaður í borg og bæ Flestir tslendingar gera sér æ ljósari grein fyrir þeim verðmætum sem felast i fögru og óspilltu landi. Það ber tvimæla- laust að setja hörð viðurlög við illri um- gengni. bls. 2 □c aa Nv lög um fiskveiðar: ÉFTIRLITSMENN BORÐ í ÍSLENZKUM FISKISKIPUM Nú er þess ekki langt að biða að sérstakir eftirlitsmenn verði um borð i islenzkum fiski- skipum og fylgist með aflasamsetningu og stærð aflans. Ráðherra getur veitt þeim vald til að loka veiðisvæðum i allt að þrjá daga telji þeir ástæðu til vegna smæðar afla. í samtali við Alþýðublaðið i gær sagði Þórður Ásgeirsson skrif- stofustjóri sjávarútvegsráðu- neytisins, að nú yrði auglýst eftir mönnum til starfa við þetta eftir- lit. Þetta væri samkvæmt lögum um fiskveiðar i landhelgi sem taka eiga gildi þann 1. júli. Lögin gera ráð fyrir að eftirlitsmenn farii róðra meðfiskiskipum til að fylgjast með aflasamsetningu og stærðog hafi þeir tillögurétt til að banna veiðar á afmörkuðum svæðum ef um verulegt magn smáfisks er að ræða i afla. Ennfremur eiga þeir að fylgjast með að settar reglur um fiskveið- ar séu haldnar og reglur um bún- að veiðarfæra. Mjög hreyfanlegir Þórður Ásgeirsson sagði, að ekki væri búið að ákveða hve margir menn yrðu ráðnir til eftir- litsstarfa. Færi það nokkuð eftir þvi hverjir byðu sig fram til starfa. Ekki væri heldur ákveðið á hvaða stöðum þeir hefðu aðset- ur, en lögð yrði áherzla á að þeir yrðu mjög hreyfanlegir og færu á sjó með skipum frá sem flestum stöðum. Gert er ráð fyrir að minnsta kosti sumir eftirlits- mannanna hafi vald til lokunar svæða i þrjá daga. Tekur þá lok- unin gildi strax með tilkynningu um talstöð og ákvörðunin jafn- framt tilkynnt ráðuneytinu sem rannsakar málið. Það er ráð- herra sem veitir eftirlitsmönnum vald til lokunar. Ekki sizt togarar. Vonazt er til að eftirlitsmenn hefji störf um leið og lögin taka gildi um næstu mánaðamót. Þeir munu fylgjast með öllum hugsan- legum brotum á fiskveiðum is- lenzkra skipa i landhelgi og láta sjávarútvegsráðuneytið vita tafarlaust. Ekki sizt mun eftirliti verða haldið uppi um borð i tog- urunum, en að sjálfsögðu einnig i öðrum veiðiskipum. —SG VIÐRÆÐURNAR VIÐ ELKEM LOFA GÓÐU — Þessar viðræður eru ekki til lykta leiddar, en lofa góðu. Þeim verður væntanlega haldið áfram mjög fljótlega og er vonazt til að niðurstöður liggi fyrir áður en langt um llður, sagöi Árni Þ. Árnason i iðnaðarráðuneytinu i samtali við Alþýðublaðið i gær. Viðræður við fulltrúa Elkem málmblendihringsins norska fóru fram iOsló i siðustu viku. Af hálfu tslendinga tóku þátt i þeim Jóhannes Nordal, dr. Gunnar Sigurðsson, Árni Þ. Arnason, Hjörtur Torfason og alþingis- mennirnir Ingólfur Jónsson og Steingrimur Hermannsson. Að svo stöddu vildi Arni ekki gefa frekari upplýsingar um þessar viðræður en taldi sam- komulagshorfur góðar. Verður Gunnari Thoroddsen iðnaðarráð- herra gcfin skýrsla um fundina i Osló nú á næstunni. Eins ogáður hefurkomiðfram i fréttum hefur Union Carbide dregið sig til baka og hætt þátt- töku i byggingu járnblendiverk- smiðjunnar á Grundartanga. Af þeim sökum var leitað til norska fyrirtækisins um þátttöku i stað bandariska hringsins. Fram- kvæmdir á Grundartanga iiggja niðri þar tii ljóst verður hvort Elkcm gerist hluthafi. —SG Ritstjórn Sfðuntúla II - Sfml 81866

x

Alþýðublaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Alþýðublaðið
https://timarit.is/publication/2

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.