Alþýðublaðið - 15.06.1976, Side 16
Neptúnus
seldur til
Spánar?
Togaramir Júpiter
og Neptúnus hafa legið
i Reykjavikurhöfn um
nokkurra ára skeið.
Þeir tilheyra
nýsköpunartogurunum
svokölluðu sem á sin-
um tima ollu gjörbv lt-
ingu i togaraútgerð
hérlendis. En nú eru
það skuttogararnir
sem hafa tekið við og
gömlu siðutogararnir
óðum að týna tölunni.
Margir þeirra hafa
verið seldir úr tandi i
brotajárn, en aðrir
liggja bundnir við
bryggju þar sem ekki
hefur reynzt mögulegt
að fá áhöfn á þá.
Alþýðublaðið hafur fregnað
að Neptúnús hafi verið seldur til
Spánar til niðurrifs. A skrifstofu
útgerðarinnar reyndist ekki
Júpiter og Neptúnus eru meðal siðustu
nýsköpunartogaranna sem enn sjást við
bryggju hérlendis.
Sveinbjörn Helgason talar hlýlega um siðutog-
arann Neptúnus og er stoltur af skipinu.
unnt að fá neinar upplýsingar
þar að lútandi og vildu menn
þar hvorki játa fréttinni né
neita.
En hvað um það, á góð-
viðrisgöngu um höfnina hittum
við Sveinbjörn Helgason um
borð i Neptúnusi og taldi hann
fullráðið að togarinn legði innan
skamms i sina siðustu ferð.
Sveinbjörn hefur lengi starfað
hjá útgerðinnioglét vel af skip-
inu. Nú vildu bara allir fara á
skuttogara og þvi væri ekki
hægt aö gera siðutogarana út
lengur. En það hefði alltaf verið
dyttað að Neptúnusi og honum
haldið við. Var auðheyrt að
Sveinbirni var annt um skipiö
og sagði með nokkru stolti, að
ekki þyrfti að draga Neptúnus
eins og einhvern kálf á aftöku-
staðinn. Hann færi fyrir eigin
vélarafli. —SG
i
Yfir 100 Vestfirðingar voru
í menntaskólanum á ísafirði
- og 59 búsettir
utan Vestfjarða
Menntaskólanum á Isafirði
var slitið laugardaginn 5. júni
s.l. við mikið fjölmenni, og
komu sumir langt að.
Að þessu sinni voru 35
stúdentar útskrifaðir, en alls
hefur skólinn útskrifaö 94 stú-
denta á 3 s.l. árum.
Hæstu einkunn við stúdents-
próf hlaut að þessu sinni, Jónas
Guðmundsson frá Siglufirði
með fullnaðar einkunn 8,0.
Jónas stundaði nám á eðlis-
fræðikjörsviði.
Nokkur nýmæli hafa verið
upp tekin á þessu námsári, þar
á meðal að kennsluvikan var nú
5 dagar. Mun svo verða fram-
vegis. Tekin var upp kennsla í
stjörnufræði og nokkrar nýjar
valgreinar, s.s. heimspeki,
sálarfræði og mannfræði,
spænska, viðbótarnám i stærð-
fræði og námskeið fyrir leiö-
beinendur i iþrótta og æskulýös-
starfsemi.
IJr bókasafni skólans.
Tuttugu valgreinar voru i
boði, en aöeins 15 hlutu næga
þátttöku. bá hafði Menntaskól-
inn náið samstarf við aðra skóla
á staðnum og stunduðu sumir
nemendur M.l. sumar valgrein-
ar sinar viö þá skóla. Námsefni
hefur verið aukiö og kennslu-
timum fjölgað i efna- og eðlis-
fræði á raungreinakjörsviöi.
Skólinn var settur 15. septem-
ber og prófum lauk 31. mai.
Nemendur voru i upphafi 161,
en 11 heltust úr lestinni og þar
að auki náðu 17 manns ekki til-
skilinni lágmarkseinkunn til
framhaldandi náms, eöa 17,3%.
Kennarar viö skólann voru
alis 17, þar af 5 stundakennarar.
Þar af munu 5láta af störfum og
hafa 3kennarastöður verið aug-
lýstar við skólann til umsóknar.
I yfirliti um búsetu nemenda
er þess getið, að þar hafi numið
s.l. skólaár 70 Isfirðingar, 32
annarsstaðar af Vestfjörðum og
59 búsettir utan Vestfjarða.
í 1.-3. bekk stunduðu flestir
nám á félagsfræðisviði eða 57,
en 54 á raungreinakjörsviöi.
Piltar I skólanum voru 82 en
stúlkur 79 við skólaupphaf.
Dúx skólans varð að þessu
sinni Rúnar Helgi Vignisson frá
Isafirði meö fúllnaðareinkunn
9,3. Er það hæsta einkunn, sem
gefin hefur verið viö skólann.
Félagslif var með blómleg-
asta móti og voru gefin út 5 tbl.
af skólablaðinu, „Emmi Jóns”,
auk þess sem nemendur áttu að-
ild að útgáfu vestfirzks timarits,
,,Hljóðabungu”.Við skólaslit
hlaut Jónas Guðmundsson
nýstúdent verðlaun úr aldaraf-
mælissjóði Isafjaröarkaupstað-
ar, að upphæð kr. 40 þús.
Hann flutti og ræðu af hálfu
nýstúdenta við skólaslit. Fjór-
tán aðrir nemendur hlutu sér-
staka viðurkenningu fyrir
námsafrek á liðnum vetri.
ÞRIÐJUDAGUR
15. JÚNÍ 1976
alþýðu
blaðiö
Heyrt: Að gárungar i hópi
þeirra manna, sem ánægð-
ir voru með samninga
Breta og Islendinga i land-
helgisdeilunni, hafi i gamni
gefið Geir Hallgrimssyni,
forsætisráðherra, nýtt nafn
og kalli hann nú Sigurgeir.
Hlerað: Að ýmis nöfn hafi
verið nefnd i bandarisku ut
utanrikisþjónustunni, þeg-
ar talið hefur borizt að nýj-
um sendiherra Bandarikj-
anna á íslandi. Ekkert
hefur þó enn verið ákveðið i
þeim efnum, en allt hendir
til þess að fyrir valinu verði
reyndur starfsmaður utan-
rikisþjónustunnar, eins og
siðasti sendiherra var.
Lesið: Að norskir sjómenn
krefjist þess, að fá að hafa
meiri áhrif en nú er við alla
ákvarðanatöku i sambandi
við væntanlega útfærslu
norsku landhelginnar i 200
sjómilur. Þeir telja, að þeir
hafi litt fengið að fylgjast
með málum og viti litið
hvaða áætlanir norska
stjórnin hafi uppi um hugs-
anlega samninga og fleira.
Lesið: t Islendingi á Akur-
eyri, að von sé á seinni
vélasamstæðunni i Kröflu-
virkjun til landsins eftir
nokkrar vikur, en fyrri
vélasamstæðan sé þegar
komin að stöðvarhúsinu og .
verði byrjað að setja hana
upp innan skamms. Haft
eftir Jóni G. Sólnes: „Jón
sagði ennfremur, að ráð-
gert væri að sá hluti
stöðvarhússins, sem ætlað-
ur væri fyrir fyrri véla-
samstæðuna væri að verða
tilbúinn, en hin vélasam-
stæðan yrði ekki sett upp
fyrr en á næsta ári."
Heyrt: Að stöðugt hækki
verð dollarans á svörtum
markaöi, og nú sé algengt
að hann sé seldur á 250
krónur stykkið.