Alþýðublaðið - 08.09.1976, Síða 1

Alþýðublaðið - 08.09.1976, Síða 1
MIÐVIKUDAGUR 8. SEPTEMBER Áskriftar- síminn er 14-900 I BLAÐINU I DAG Á fyrsta skóladegi A mánudaginn var voru flestir skólarnir i Reykjavik settir. Blaðamenn Alþýðu- blaðsins fóru af þvi tilefni i tvo skóla, og festu á filmu það sem fyrir augu bar og sjáum við árangurinn af þvi i blaðinu i dag. Bls. 8 og9 —'I I ;oL K : Sportveiðar á Grænlandi „Þetta var þannig, að við gátum aðeins staðið með stöng i hendi eina klukkustund eða svo á hverjum morgni. Þá höfðum við þegar veitt meiri fisk en við gátum torgað þann daginn.” Svo segist einum þeirra frá, sem heimsótt hafa Grænland þeirra erinda að renna fyrir fisk. g|s ^ 'ai—\ '□r =Oi_ Ekki hjá okkur I lesendadálki annars siðdegisblaðanna sl. mánudag birtist hörð ádeila á þau vinnubrögð sem sagt er að tiðkuð séu i rannsóknum á skattframtölum. 1 Alþýðu- blaðinu í dag er leitað álits þeirra aðila sem hlut eiga að máli á þeirri gagnrýni, sem fram kemur i umræddu bréfi. bls. 3 !C ;ac=: Uppákoma vagnstjóra Það er ósjaldan kvartað undan strætis- vögnum Reykjavikur, er það ýmist að vagnarnir halda ekki , áætlun eða þá að fólki gremst framkoma vagnstjóranna. í horninu i dag gerir einn farþegi athuga- semd við mjög svo undarlega yfirlýsingu vagnstjóra i lok ferðar =OC3 Samningar við Elkem? Nú þegar islenzk stjórnvöld eiga viðræður við fulltrúa norska stórfyrirtækisins Elkem Spiegerverket ættu þau að geta byggt á fyrri reynslu i slikum samninga- gerðum og þess þvi að vænta að þau geri góða samninga og láti ekki hlunnfara sig. Bls.2 Reynir á hvort greidd verði sömu laun fyrir sömu störf: Röngentæknar hóta að ganga út af sjúkrahúsunum! — Ef ekki verður komið til móts við okkur i þessari kjara- baráttu okkar, þá er aðeins eitt að gera: að ganga út þann 20. nóvember næstkomandi, sögðu þau Arngrimur Hermannsson trúnaðarmaður röntgentækna á Landspitalanum og Inga V. Ein- arsdóttir röntgentæknir á sama staðiviðtaliviðblaðamann igær. —■ Við erúm orðin langþreytt á þvi sinnuleysi sem málum okkar er auðsýnt af viðsemjendum okk- ar, þar sem við litum svo á, að kröfur okkar beinist aðeins að þvi að leiðrétta hróplegt misræmi i launamálum sem bitnar á okkar starfsgrein. Þetta viljum við að verði leiðrétt þegar i stað, og kröfu okkar til enn frekari stað- festingar, höfum við neyðst til að segja upp störfum okkar við spi- talana. Röitgentæknar eru ung starfs- stétt á íslandi. Siðan Röntgen- tæknaskóli Islands var stofnsett- ur árið 1972 hefur hann útskrifað 27 löggilda röntgentækna, en þeir hafa það aðalstarf, að taka röntgenmyndir á sjúkrahúsun- um. A sumum sjúkrahúsum vinna lika svo nefndar röntgenhjúkrun- arkonur.og ganga röntgentæknar i öll störf þeirra, eða að minnsta kosti miðast menntun Röntgen- tæknaskólans við það að svo geti verið. En þó svo að þessir hópar vinni hlið við hlið á sjúkrahúsun- um, nákvæmlega sömu störfin, þá hafa þeir ekki setið við sama borð hvað laun snertir. Röntgen- hjúkrunarkonur eru nú einum launaflokki ofar, samkvæmt samningi, en eru i raun tveimur flokkum ofar. Sagði Inga V. Ein- arsdóttir þetta vera mikið órétt- læti, ,,enda finnst manni það vera lágmarkskrafa allra, að þeir sem vinna sömu vinnu hljóti sömu laun”. Benti hún á i þvi sam- bandi, að það tiðkaðist hvergi á Norðurlöndunum, nema á ts- landi.að þessir tveir hópar væru i mismunandi launaflokkum. En engin leiðrétting mála hefúr fengizt, hvorki hjá Starfcmanna- félagi rikisstofnana né hjá rikinu oghafa báðir aðilar visað málinu frásér. Þvivar þaðsem Röntgen- tæknafélag tslands lagði fram sérkröfur i samningstilraunum opinberra starfsmanna við rikið i vetur, en ekkert tillit var tekið til þeirra þegar kjaradómur féll i júli. Að visu voru nokkrar starfs- stéttir i heilsugæzlu, svo nefndur „heilbrigðishópur”, hækkaðar upp um einn launaflokk, en út- borgun samkvæmt þeirri flokka- tilfærslu hefur aldrei komið til framkvæmda. Uppsagnir Þegar fyrirsjáanlegt var að enginn árangur yrði af hinni „hefðbundnu” baráttu röntgen- tækna, gripu þeir til þess ráðs að senda yfirvöldum bréf, þar sem þeir segja upp störfum sfnum við sjúkrahúsin frá og með 20. nóvember næstkomandi. A þetta við um alla starfandi röntgen- tækna við Fjórðungssjúkrahúsið á Akureyri, Landsspitalann, Borgarspitalann og Landakots- spitalann. Skilyrði Röntgentæknafélags tslands fyrir þvi að uppsagnir fé- lagsmannanna verði dregnar til baka eru nær samhljóða sérkröf- um félagsins frá þvi i vetur: 1. Að almennir röntgentæknar verði launaðir samkvæmt B-12 launaflokki starfsmanna rikisins (likt og röntgenhjúkrunarkonur og meinatæknar), en þeir eru nú i B-10. Mánaðarlaun byrjenda i þeim flokki eru um 85.000 kr. á mánuði. I 2. Að staðið verði við það samningsatriði frá þvi i sumar, að röntgentæknar hækki um einn launaflokk eftir fjögurra ára starf. 3. Að yfir- og deildarröntgen- tæknar úti á landi hækki um 2 launaflokka (þaðer að þetta verði bundið i samningi). 4. Að röntgentæknar með eins árs sérnám hækki um einn launa- flokk. 5. Að sett verði i samninga 16 daga vetrarorlof allra röntgen- tækna, en sem stendur hafa að- eins röntgentæknar Borgarspital- ans samningsbundið vetrarorlof. — Ef engar úrbætur fást, þá munum við hætta öll sem eitt, og við teljum að allir séu sáttir á aö hætta ef kaup hækkar ekki,” sögðu þau Arngrimur Hermanns- son og Inga V. Einarsdóttir að lokum. —ARH Sjómenn hljóta að mótmæla! segirjón Sigurðsson um bráðabirgðalögin „Mér finnst þessi setning bráðabirgðalaganna næsta ein- kennileg þar sem engin hótun um vinnustöðvun eða verkfaU hefur komið fram af hálfu sjómanna,” sagði Jón Sigurðsson forseti Sjó- mannasambandsins i samtali við Alþýðublaðið, Kvaðst hann fast- lega gera ráð fyrir að samtök sjó- manna myndu i heild mótmæla þessari lagasetningu, en Jón sagðistekkiverabúinnaðfá lögin i hendur. Eftir að samningar voru undir- ritaðir siðast, þann 28. júli, fór fram allsherjaratkvæðagreiðsla um þá hjá sjómannafélögunum. Þátttaka var fremur litil og voru samningarnir felldir. Jón Sig- urðsson sagði, að þegar talað var við fulltrúa útgerðarmanna eftir þessi úrslit hefðu þeir ekki verið til viðræðu um nýja samninga. Hér er raunverulega um að ræða samninga sem upphaflega voru gerðir i lok febrúar, en þeir voru samþykktir I sumum félögum en felldir I öðrum. Samt hefur verið greitt eftir þeim jafnframt þeim sem felldu og þeim er samþykktu þá Sjómenn á Austfjörðum og Vestfjöröum eiga ekki aðild að sjómannasambandinu og mun Farmanna- og fiskimannasam- bandið annast samningagerð fyr- ir þá, en fyrir mun liggja úr- skurður félagsdóms þess efnis að samningar séu lausir þótt gert hafi verið upp eftir samkomulagi sem fellt var. Tekur af tvimæli I samtali við Alþýðublaðið sagði Kristjan Ragnarsson, framkvæmdastjóri LIÚ, að nauð- synlegt heíði verið að taka af öll tvimæli um kaup og kjör. Það hefði verið langbezt að taka af allan vafa um stöðuna eftir 16. febrúar og þetta kæmi sjómönn- um ekki siður vel en viðsemjend- um þeirra. Auðvitað væri það heppilegast að aðilar kæmu sér saman og raunar hefði tvivegis verið búið að undirrita samkomu- lag. Það hefði svo endanlega ver- ið fellt i allsherjaratkvæða- greiðslu, en þar hefði þátttaka verið mjög dræm. Nú hefðu kjör sjómanna um land allt verið jöfn- uð og þar með batnaði hagur sumra, en bráðabirgöalögin yrðu ekki til að skerða kjörin. Það voru allir aðilar orðnir uppgefair á þessu stappi og ekki fyrirsjáanlegur neinn árangur af frekari viðræðum, sagði Kristján Ragnarsson að lokum. —SG Bráðabirgðalögin birt á blaðsiðu 3. eru Rltstjórn Síðumúla II - Sfmi 81866

x

Alþýðublaðið

Beinleiðis leinki

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Alþýðublaðið
https://timarit.is/publication/2

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.