Alþýðublaðið - 08.09.1976, Síða 5
lc
Miðvikudagur 8. september 1976.
5
Upplýsinga-
skylda stjórn-
valda
Embættismenn bankanna viröast
telja það skyldu sina að hylma
yfir hverskonar fjármála-
spillingu ogsiðleysi. Ekki má tala
um embættisafglöp, meíríháttar
slys i opinberum framkvæmdum,
pólitisk hrossakaup, valdniðslu,
né heldur neinskonar spillingu i
kerfinu.
Frumvarpið frá 1974
Sú spurning hlýtur að vakna
hvort ekki sé ástæða til að setja
fastar reglur og lög um þessi mál
hér á landi. Slik lög yrðu mörgum
kærkomin, og gætu stuölað að þvi,
að hreinsa kerfið af ýmsum þeim
ósóma, sem þar virðist
viðgangast. Einnig gætu lög um
þetta efni dregið úr þeirri tor-
tryggni sem almenningur ber
nú orðið til embættismanna
stjórnkerfisins.
Að visu hefur þetta mál ekki
þess kost að geta fengið sem
áreiðanlegastar upplýsingar um
starfsemi þeirra og ákvarðanir.
Mjög skortir nú á að svo sé. Allt of
mikil leynd hvilir yfir starfsemi
þessara aðila, og reikningum
þeirra og skjölum er oftast haldið
lokuðum þannig, að almenningur
fær ekki aðgang að þeim. Þessi
leynd dregur mjög úr þvi aöhaldi,
sem þegnarnir gætu ella veitt, og
gerir erfitt fyrir þá að dæma um
athafnir stjórnvalda og rikis-
stofnana.”
Þessi tillaga var siðan sam-
þykkt einróma á Alþingi með
smávægilegum orða-
lagsbreytingum.
Samstarf
embættismanna
og þingmanna
Frumvarpið um upplýsinga-
skyldú stjórnvalda var siðan
samið og lagt fyrir Alþingi. Þar
kom svo i ljós, að frumvarpið var
Lítið að marka þá
Furðulegt er hve litið er
stundum að marka valdamenn
í þessu þjóðfélagi. Blaðamenn
Dagblaðsins hafa á þessu sumri
hvað eftir annað rekið sig á, að
varasamt er að treysta orðum
þessara manna. Þeir segja það,
sem þeim dettur í hug án tillits til
sannleiksgildis þess.
Stundum virðist hrein hentistefna ráða þess-
ari ósannsögli. Valdamennirnir vilja víkja sér
undan því að svara alvarlegum spurningum og
leita fremur á náðir ímyndunaraflsins. Virðist
svo sem þeim sé nokkuð sama um, þótt síðar
komi í ljós, að þeir hafi gefið rangar upp-
lýsingar til almennings í f jölmiðlum.
í leiðara Dagblaðsins á föstudaginn voru rakin
tvö dæmi um ósannsögli ráðherra í blaðaviðtöl-
um í ágúst. Frjálslyndi ráðherra í meðferð
sannleikans á opinberum vettvangi er sérstak-
lega alvarlegt, því að það sýnir megna fyrirlitn-
ingu kjörinna fulltrúa þjóðarinnar á umbjóð-
endum sínum.
Svo virðist þó, eftir úrklippusafni Dag-
blaðsins að dæma, að æðstu embættismenn
þjóðarinnar gefi stjórnmálamönnunum síður
en svo nokkuð eftir á þessu sviði. Verða hér
rakin lauslega þrjú slík dæmi af ótal mörgum
frá liðnu sumri.
algerlega legið i láginni og þing-
menn virðast gera sér nokkra
grein fyrir þvi alvarlega ástandi,
sem hér hefur skapazt.
Frumvarp til laga um upp-
lýsingaskyldu stjórnvalda var
siðast flutt á Alþingi árið 1974 og
hafði þá verið flutt tvisvar
sinnum áður. Frumvarp þetta
var flutt sem stjórnarfrumvarp
og samið að tilhlutan dómsmála-
ráðuneytisins.
Þingsályktunar-
tillagan frá 1972
Nokkru áður, eða I mai 1972,
var svohljóðandi þingsályktunar-
tillaga samþykkt á Alþingi:
„Alþingi ályktar að fela rikis-
stjórninni að láta undirbúa og
leggja fyrir næsta þing frumvarp
tillagaum, hver sé skylda stjórn-
valda og rikisstofnana til að
skýra opinberlega frá störfum
sinum og ákvörðunum og hvenær
beri að veita þeim, sem þess
óska, aðgang að reikningum og
skjölum, sem almenning varða.”
Flutningsmenn þessarar tillögu
voru Þórarinn Þórarinsson og
Ingvar Gislason.
1 greinargerð fyrir þings-
ályktunartillögunni segir m.a.
svo:
„Eigi almenningur að geta
dæmt um gerðir stjórnvalda og
rikisstofnana, þarf hann að eiga
stórgallað. Samþykkt frum-
varpsins hefði tvimælalaust verið
spor aftur á bak. Það verður þvi
að segja alþingismönnum til
hróss, að þeir létu ekki embættis-
mennina hlunnfara sig að þessu
sinni. En þvi miður hefur alloft
borið á þvi, að alþingismenn hafa
afgreitt, að þvi er virðist
hugsunarlaust, frumvörp sem
embættismenn og ráðuneyti hafa
fleygt I þá. Svo dæmi sé nefnt ma
benda á Sálfræðingafrumvarpið,
en þar er um að ræða einhverja
þá stórfurðulegustu hugsmið,
sem Alþingi íslendinga hefur
látið sér sæma að afgreiða, að
visu fyrir mikinn þrýsting og
bægslagang.
Það er orðið timabært, að sett
verði lög á Islandi um
upplýsingaskyldu stjórnvalda,
lög sem miða að þvi að eðlileg
upplýsingamiðlun verði upp tekin
milli stjórnvalda og almennings.
Þá er einnig nauðsynlegt að þvi
oki verði lyft af opinberum starfs-
mönnum, að þeir séu neyddir til
að hylma yfir hverskonar
siðleysi, spillingu og óreiðu. Það
er fyrst og fremst hlutverk þing-
manna að taka þetta mál til
meðferðar og sennilega mun
mörgum þeirra finnast tilefnin
orðin ærin.
Bragi Jósepsson
llú mú sleppa honum lausum út í frumskúg umferdnrinnur.
Nú sleppum við Allegro lausum - kraftmiklu ”dýri” af þeirri tegund, sem fer iipurlega
um frumskóg umferðarinnar.
Með þjálu framhjóiadrifi smýgur hann í beygjurnar og hefur gotí tak á veginum, jafn-
vel á hálum vetrarbrautum. Undir vélarhiífinni leynist kraftmikil þverliggjandi vél. Auk
þess er fimm stiga gírkassi (1500-gerðin) og fádæma góð vökvafjöðrun,'
Hydragas, sem tryggir að "dýrið” þitt er ávallt tryggilega með öll hjóiin
á veginum. Sérstaklega styrktir diskahemlar á framhjól-
um veita þér einnig aukið öryggi og tryggingu; þú getur
snarhemlaó ef nauðsyn krefur. Og í þessum nýja Allegro
Combi er farangursrými, sem gæti rúmað
1320 lítra af vatni.
En það sem kannski vekur hvað mesta
athygli við Aliegro er hve
neyzlugrannt "dýr” hann er.
Hann eyöir litlu benzíni, hóf-
legt verð er á varahlutum.
Það er ótrúlega ódýrt að
eignast þetta "hlaupadýr”.
@ R STEFANSSON HF.
HVERFISGÖTU103 REYKJAVÍK SÍMI 26911 PÓSTHOLF 5092
Hótel Akureyri
Bíður gestum upp á eins, tveggja
og þriggja manna herbergi, ásamt
morgunverði. Kaffi, brauð og kökur
allan daginn.
Hótel Akureyri verður opið allt árið.
Hótel Akureyri
Hafnarstræti 98 - Sími 96-2525
Kaupið bílmerki
Landverndar
/erndum
líf
Ferndum
yotlendi
Til sölu hjá ESSO og SHELL
bensinafgreiðslum og skrifstofu
Landverndar Skólavöróustig 25
Tónlistarskóli
Árnessýslu
tekur til starfa i byrjun október. Getum
enn bætt við nokkrum nemendum. Sendið
umsóknir hið fyrsta i pósthólf 228, Selfossi.
Umsóknareyðublöð fást i verzl. K.Á., Sel-
fossi og útibúum þess og einnig i skrifstofu
skólans á Selfossi. Viðtalstimi skólastjóra
þar er á þriðjudögum kl. 15-19 (kl. 3 til 7
siðdegis). Simi 1717 , .
Skolastjon.