Alþýðublaðið - 08.09.1976, Page 11
AAiðvikudagur 8. september 1976.
GETRAUNASEÐ-
ILL VIKUNNAR
í dag birtum við get- verður i ensku deildar-
raunaseðil Alþýðublaðs-
ins. Er þetta spá fyrir
umferðina, sem leikin
unnu sig jafnan fljótt upp í aöra
deild.
1 bikarkeppnunum ensku hefur
ekki borið mikiö á B.-City siöan
1908-09. þegar þeir tó'puöu i úrslit-
um, fyrr en 1973-74, en þá unnu
þeir Leeds i þriöju umferð
FA-bikarins, en töpuöu fyrir Liv-
erpool i fjóröu umferöinni með
einu marki.
Leikmenn.
Þekktustu leikmenn B.City eru
fyrirliðinn Geoff Merrich og John
Ritchie, sem var markhæstur hjá
City siðastliðið keppnistimabil,
skoraöi 18 mörk.
Liöiö hefur á aö skipa hóp af
jafngóðum mönnum, þar sem
engin sker sig úr, engin
„stjarna”, en baráttugleöin er í
fyrirrúmi.
Spámenn ensku Iþróttablað-
anna spá allgóöu gengi hjá liðinu
fyrrihluta keppnistimabilsins, en
að siöari hluta timabilsins verði
hin liðin i deildinni búin að læra á
nýliöana og þeir muni enda f ein-
hverju af fimm neöstu sætunum i
fyrstu deildinni.
— ATA
Kannast menn viö þennan kjól-
klædda knattspyrnumann. Jd,
þaö er rétt, þetta er Franz Beck-
enbauer, einn þýzku heimsmeist-
aranna i knattspyrnu. Becken-
bauer var nú nýlega kjörinn
knattspyrnumaöur ársins i
heimalandi sinu V-Þýzkalandi.
Hann er fyrirliöi liös sins, FC
Bayern og einnig fyrirliöi þýzka
landsliösins.
keppninni ll. septem-
ber. Þess skal getið, að
villa er á seðlinum.
Stendur, að Norwich eigi
að leika við Man. Utd.,
en það er Newcastle,
sem leika á við United.
Spá þessi er reyndar
ekki þaulhugsuð eftir
einhverju kerfi frekar
gerð eftir brjóstviti und-
irritaðs og hefur ósk-
hyggja sjálfsagt leikið
þar nokkurt hlutverk.
Birmingham og WBA standa
nokkuð jafnt aö vigi I deildinni, en
Birmingham er jafnan erfitt heim
að sækja.
Coventry og Norwich sitja sam-
an á botninum og gætu setið þar
saman, einnig eftir þennan leik.
Einn af erfiðari leikjum seöils-
ins er sjálfsagt leikurDerby. og
LiverpooUDerby hefur ekki fund-
iö sig ennþá, en þeir hljóta aö aö
detta ofan á góöan leik hvaö úr
hverju. En geri þeir þaö ekki
núna, vinnur Liverpool auöveld-
legan sigur.
Leikur Everton og Stoke er
heldur jafnteflislegur á pappirn-
um. Leikur Ipswich og Leicester
er klára jafnteflisleikur.
Bristol City er eitt af þeim lið-
um, sem unnu sér rétt til setu I
fyrstu deildinni i fyrra. Þeim hef-
ur gengið vel það sem af er
keppnistimabilinu og spái ég þvi,
að þar tilmeiðsli fara að há þeim,
muni þeir vera ofarlega i deild-
inni.
Middlesborough ætti aö hafá Sund
erland á heimavelli, og ég geri
ráðfyrir, aðnú fari United-vélin i
gang, og eigi þá Newcastle litið
svar viö þvi.
Aston Villa, toppliö fyrstu
deildar, á nú h vern glansleikinn á
fætur öðrum. QPR hefur átt slaka
leiki hingaö til og ætti þvi ekki aö
verða hindrun I vegi Villa.
Tottenham átti stórleik á móti
United siðustuhelgiog er liðið þvi
til alls liklegt.
Arsenal, með Super-Mac i
fararbroddi er i mikilli sókn um
þessar mundir og ættu að eiga i
fullu tré við slakt lið West Ham.
Að lokum er einn leikur i ann-
arri deild. Úlfarnir eru á toppnum
i annarri deild, en Fulham um
miðja deild. Spái ég þvi, að Úlaf-
arnir endurheimti sæti sitt i 1.
deildinni þetta leiktimabil.
—ATA
LISTIRIVIENNING 11
TEXTILSÝNINGIN KEMUR
Fyrir miðjan siðasta mánuð
opnaði á Hövikodden i Noregi
fyrsta samsýning textilhönnuða
frá öllum Norðurlöndunum,
Nordisk Textiltriennale 1976-77.
Þessi sýning hefur verið undir-
búin um nokkurt skeið, og i hana
var ráðizt af frumkvæði
danskra textillistamanna. Áður
en sýningin var send til Noregs
hafði hún verið sett upp i Ala-
borg i Danmörku, en frá Noregi
fór hún um siðustu helgi til
Malmö. Eftir að Sviar hafa
skoðað þetta sýnishorn tau-
prentunar verður sýningin sett
upp i Abo i Finnlandi, en þaðan
kemur hún hingað til Islands og
verður væntanlega sett upp i
Norræna húsinu. Loks verður
hún svo send til Færeyja og
lokasýningin verður i Þórshöfn.
Það eru alls 96 listamenn, sem
aðild eiga að sýningunni, og á
henni getur að lita allar hliðar
og öll stig tauþrykks sem list-
greinar. _bs
^Sidsel C. Karlsen (t.v.) og Anneli
Kodin eru meðal þeirra norsku
listainanna, sem taka þátt i sýn-
ingunni Nordisk Textiltriennale
1976-77. Sérstök dómnefnd valdi
118 verk á sýninguna af u.þ.b. 600
. innsendum verkum.
Leikfélag Kópavogs:
WILLIAM HEINESEN 0G
MARK TWAIN A SÝN-
INGARSKRÁNNI
Leikfélag Kópavogs er
nú að leggja síðustu hönd
á undirbúning næsta leik-
árs. Að sögn Björns
Magnússonar gjaldkera
þess, verður haldið á-
fram að sýna gamanleik-
inn Toni teiknar hest eftir
Leslie Storn, en sýningar
hans hófust í vor.
Fyrsta frumsýning ársins
verður svo um miðjan október,
en þá verður sýnt verkið Glat-
aðir snillingar eftir færeyska
snillinginn William Heinesen i
þýðingu Þorgeirs Þorgeirsson-
ar. Mun þýðandi byggja þýð-
ingu sina á bókinni Slagur vind-
hörpunnar i eigin þýðingu og
leikgerð bókarinnar sem færð
hefur verið á svið i Árósum i
Danmörku.
Næsta leikrit verður svo
Stikkilberja-Finnur eftir ame-
riska háðfuglinn Mark Twain,
en nánari dagsetning á honum
er ekki ákveðin enn. Auk þessa
mun svo að likindum verða
Jólavaka, eins og verið hefur
undanfarin ár. A slikum sýning-
um, sem fram fara milli jóla og
nýárs, er blandað efni við allra
hæfi að sögn Björns, og hefur
verið gerður góður rómur að
þessum sýningum.
Að sögn Björns er sennilegt að
um 30 leikarar taki þátt i starfi
félagsins á starfsárinu, og er
þeim greitt „eitthvað litilræði
fyrir hverja sýningu”, eins og
hann orðaði það. —hm.
BURT MEÐ
ELLIHEIMILIN!
Gamalt fólk á að búa
heima hjá sér, ekki á elli-
heimilum, eftir því sem
félagsráðgjafinn, Bengt
Hedén, Málmey, segir,
Nálægt heimilinu á að
vera þjónustumiðstöð,
ekki aðeins fyrir eililíf-
eyrisþega, heldurog fyrir
alla þá, sem þarfnast fé-
lagslegrar hjálpar.
Bengt Hedén telur, að
umhyggju þjóðfélagsins
sé mjög ábótavant, hvað
aldraða snertir, Þar á
hann bæði við hinn vel-
þegna ellilífeyri og stór,
ópersónuleg elliheimili,
sem njóta rikisstyrks.
Hann heldur þvi f ram, að
nauðsynlegt sé að af-
nema elliheimili.
— Elliheimilin eru hvorki sál-
fræði- né læknisfræðileg nauð-
syn, segir Hedén, — þau eru
söguleg nauðsyn i efnahags-
kerfinu. Aður voru það börnin,
sem tryggðu foreldrunum élli-
árin, en nú eruellilifeyrisþegar
ógnun við launþegana — það er
m.a.a.s. talað um eldra fólk sem
„neikvæða þegna”.
Elliheimilið er stofnun, sem
sér fyrst og fremst um foreldra
launþeganna nú. Það má einnig
nefna það heimili hjúkrunar og
umhyggju. En elliheimilið er
alls ekki tengir efnahags- og
menningarlifi hinna starfandi
stétta.
Það sést bæði i umhugsun og
umönnun aldraðra, ef ekki er
tekið tillit til starfa þeirra áður,
þvi að þá missir starfsgleðin
marks. Það verður ekki auð-
veldara fyrir aldraða að eiga að
sinna einhvers konar vinnu utan
við starfsvið þeirra, heldur und-
irstrikar það enn meira en áður,
,.ð þeir eru annars flokks fólk og
háðir hinum.
Bengt Hedén telur, að það sé
nauðsynlegt fyrir aldraða að
hafa eigin ibúð að hugsa um, og
bætir þvi við, að með þvi sköp-
um við öldruðum öryggi, vinnu
og sameiningu. Gömul ibúð i
þekktu hverfi er umgjörð ellilif-
eyrisþega, en þar á lika að vera
þjónustumiðstöð, sem sér um
heimilishjálp og sjúkraþjón-
ustu.