Alþýðublaðið - 08.09.1976, Síða 16
HÉR ERU ATJÁN ÞÚSUND
NEYTENDUR, SEM VILJA
VERZLA VIÐ YKKUR
Undirskriftalistarnir gegn lokun mjólkurbúða afhentir í gær
Lilja Kristjánsdóttir, afhendir forstjóra Mjólkursamsölunnar
undirskriftarlistana.
1 gær gengu fjórir
félagar i „Starfshóp
um lokun mjólkur-
búða” á fund Stefáns
Björnssonar forstjóra
Mjólkursamsölunnar
og afhentu honum
undirskriftarlista gegn
lokun mjólkurbúða i
Reykjavik og nágrenni.
Jafnframt var Stefáni
afhent bréf frá starfs-
hópnum, þar sem farið
er fram á að stjórn
Samsölunnar breyti
afstöðu sinni til
málsins og verði við
kröfum starfsstúlkna i
mjólkurbúðum og
neytenda. Er vonast
til, að stjórnin sjái sér
fært, að svara bréfinu
fyrir 14. september n.k.
Alls höfðu 17.173 ritað nöfn sin
á listana, en undirskriftum var
safnað i Reykjavik og Njarð-
vikum.
Sögðu stúlkurnar sem afhentu
listana, að allt starfsfólk i
mjölkurbúðum hefði ritað nöfn
sin á listana auk ijölmargra
neytenda. Þá hefði komið í ljós,
að ellilifeyrisþegar hefðu sýnt
þessu máli mikinn áhuga og
talið lokun búðanna mjög baga-
lega.
Eins og fram hefur komið i
Alþýðublaðinu, munu nú vera
um 170 stúlkur fastráðnar hjá
Mjólkursamsölunni. Var fyrir-
hugað að koma upp vinnu-
miðlun fyrir þessar stúlkur, og
átti hún að auðvelda þeim að fá
sér aðra vinnu, þegar búðunum
yrði lokað.
1 gær sögðu stúlkurnar hins
vegar að slik vinnumiðlun væri
ekki til nema að orðinu til.
Kaupmenn hefðu litið sem
ekkert notað hana, heldur
fengju þeir sér vinnukraft með
þvi að auglýsa eftir honum.
Stjórn Samsölunnar
ræðir málið
,,Ég veiti þessum undir-
skriftarlistum viðtöku, án þess
að hafa nokkurn persónulegan
rétt til að tjá mig um málið,
sagði Stefán Björnsson, þegar
hann tök við listunum. Ég mun
siðan afhenda þá stjórn
Mjólkursamsölunnar og þar
verður málið rætt.
Þá sagði Stefán að nokkurs
misskilnings virtist gæta
varðandi rekstur samsölunnar,
þvi þar væri hvorki um gróða né
tap að ræða. Samsalan væri
rekin samkvæmt sérstökum
lögum og það værisvokölluðsex
manna nefnd sem ákvarðaði
verð á mjólkurvörum. hverju
sinni.
Búðirnar væru reknará eins
hagkvæman hátt og unnt væri,
og ef yrði einhver söluhagnaður,
þá skilaðist hann til bændanna.
Hins vegar væri ekki alltaf
um slikan hagnað að ræða og
siðast liðið ár hefði t.d. vantað
talsvert þar á. —JSS
Tlmaáætlun hins nýja fjölbýlishúss hefur staðið nákvæmlega. SIÖ-
ari sex ibúðirnar verða afhentar innan tveggja mánaða. Ljósmynd:
Stefán Pedersen, Sauðárkróki.
Flutt í átta nýj-
ar leiguíbúðir
á Sauðárkróki
A Sauðarkróki voru i s.l. mán-
uði teknar i notkun 8 ibúðir i 14
ibúða fjölbýlishúsi.
Er hús þetta byggt samkv. lög-
um um leiguibúðir i sveitarfélög-
um, en þau voru samþykkt á al-
þingi á árinu 1973.
Þessar 8 ibúðir eru tveggja og
þriggja herbergja, og afhendast
fullbúnar, dúklagðar og búnar
öllum venjulegum heimilistækj-
um.
Smiði hússins hófst voriö 1974
og var samið við Byggingafélagið
Hlyn h.f. sem aðalverktaka, en
yfirsmiður er Bragi Haraldsson.
Hefur timaáætlun byggingarinn-
ar staöist nákvæmlega meö af-
hendingu þeirra 8 ibúða sem fyrr
er getið, en þær 6 sem enn er ólok-
ið, á að afhenda 1. desember n.k.
Þeir sem taka við ibúðunum
tryggja sér leigurétt i næstu 5 ár
— og forkaupsrétt að þeim tima
ioknum — verði þær seldar, með
þvi að kaupa skuldabréf af bæjar-
sjóði fyrir upphæð sem svarar
20% af byggingarkostnaði. End-
anlegur byggingakostnaður ligg-
ur hins vegar ekki fyrir.
Af þessum 8 ibúðum heldur
Sauðárkróksbær 3, en 5 var ráð-
stafað til einstaklinga.
Auk þessa eru á annað hundraö
ibúða i smiðum á Sauðárkróki.
Gjaldheimtustjóri:
Ákveðnar reglur um
innheimtu og lítið
svigrúm lil breytinga
Skattar og skattheimta hefur
verið umræðuefni fólks siðan
skattskrá kom út. Sumir hafa
borið sig illa undan háum skött-
um og fullyrt, að þeir fái tómt
launaumsiag á útborgunardegi
og sjái ekki fram á að hægt
verði að skrimta næstu mánuði.
Er þá Gjaldheimtunni gjarnan
úthúðað fyrir harkalegar inn-
heimtuaðgerðir.
„Vfst kemur það stundum
fyrir, að allt kaup manna er tek-
ið upp i opinber gjöld”, sagði
Guðmundur Vignir Jósefsson,
gjaldheimtustjóri, er Alþýðu-
blaðið ræddi þessi mál við hann.
„En það er ekki þar með sagt að
viðkomandi hafi ekkert til að
lifa á. Ef um er að ræða kvænt-
an mann og eiginkonan vinnur
einnig úti má benda á, að yfir-
leitt er ekki snert við hennar
kaupi. 1 öðrum tilfellum er það
svo að gjaldandi hefur önnur
störf með höndum og fær óskert
laun fyrir þau.”
Þá sagði gjaldheimtustjóri,
að stundum vaknaði sú spurning
hvort þjóðfélagið ætti nánastað
hugsa fyrir fólk i þessum efn-
um. Við gætum tekið sem dæmi
hjónsem hefðu haft rifandi tekj-
ur i fyrra, en eytt þeim jafnóð-
um i fjárfestingu eða annað. Nú
þyrftu þau að borga skatta af
þessum tekjum þegar álagning
hefur farið fram, en tekjur
kannski ekki jafn miklar nú. Ef
ekkert hefði verið lagt til hliðar
til greiðslu opinberra gjalda
kæmu auðvitað upp erfiðleikar.
En hér væri einfaldlega búið að
taka lán hjá hinu opinbera sem
falliðværii gjalddaga ogstanda
bæri skil á.
Heyrir til
undantekninga
Gjaldheimtustjóri var spurð-
ur hvort fólk ætti í meiri erfið-
leikum nú að standa skil á opin-
berum gjöldum en áður. Hann
kvaðst ekki hafa orðið þess var.
1 sumum tilfellum ætti fólk i
erfiðleikum vegna þess að það
hefði af einhverjum orsökum
verr launaða vinnu en i fyrra.
Þegar leitað er til gjaldheimt-
unnar vegna mikillar skatta-
byrða er sú málaleitan tekin til
athugunar. Ef til vill væri hægt
að dreifa greiðslum á fleiri
mánuði og gjaldendur greiddu
þá dráttarvexti. En um inn-
heimtu gjaldanna giltu ákveðn-
ar reglur sem farið væri eftir og
litið svigrúm til að breyta þeim.
Einnig yrði að gera greinarmun
á þeim sem ættu i raunveruleg-
um erfiðleikum og þeim sem
neyttu allra bragða til að kom-
ast hjá að standa skil á lögboðn-
um gjöldum. En það heyrði
frekar til undantekninga að allt
kaup manna væritekið af þeim.
—SG
MIÐVIKUD AGUR
8. SEPTEMBER 1976
alþýðu
blaðið
Frétt: Að Matthias Bjarna-
son, sjávarútvegsráðherra,
hafi ekki verið fyrr búinn
að undirrita bráðabirgða-
lög um sjómannasamn-
inga, en hann hvarf úr
landi til vikudvalar erlend-
is.
o
Heyrt: Að Ragnar Arnalds,
formaður Alþýðubanda-
lagsins, sé nú á ítaliu.
Ýmsir gera þvi skóna, að
hann vilji læra af itölskum
kommúnistum hvernig
hraða megi valdatöku
kommúnista á fslandi.
o
Tekið eftir: Að i Morgun-
blaðinu i gær er birt yfir-
lýsing frá vestur-þýzka
lögreglumanninum Karl
Schutz, þar sem hann harð-
neitar þvi að hafa nokkru
sinni verið i tygjum við
Gestapo, en Sigmund hafði
teiknað mynd af honum i
slikum búningi. Hins vegar
getur Morgunblaðið þess
ekki, að Karl Schutz hafi
kært blaðið fyrir myndbirt-
inguna.
o
Tekið eftir: Ráðherrar
rikisstjórnarinnar hafa að
undanförnu mikið talað um
nauðsyn þess, að taka upp
. viðræður allra stjórnmála-
flokka um almenna sam-
stöðu gegn þeim vanda,
sem við blasir.Slikur mál-
flutningur hefur löngum
verið fyrirboði þess, aö
rikisstjórnir hafi verið
komnar i ógöngur.
o
Frétt: Að þingmenn og
ráðherrar Sjálfstæðis-
flokks og Framsóknar-
flokks séu nú ákveðnir i þvi
að núverandi rikisstjórn
harki af sér út kjörtimabil-
ið. Ráðherrar vonast til að
úr efnahagsmálum rætist,
ef verð á islenzkum fiskaf-
urðum heldur áfram að
hækka á erlendum mark-
aði, eins og nú er.
Heyrt: Að ekki sé fráleitt
að innan skamms verði
stofnað til óháðs framboðs i
Reykjavik fyrir næstu.Al-
þingiskosningar. A stefnu-
skrá þess lista yrði fyrst og
fremst krafan um leigu
fyrir afnot varnarliðsins af
landinu, og fleiri slik mál,
sem likleg eru til vinsælda,
þegar að kreppir i fjármál-
um.
o
Lesið: 1 Hagtiðindum, að
fyrstu sjö mánuði ársins
voru flutt til útlanda 80,3
tonn af islenzkum hrossum
fyrir 37,2 milljónir króna.
Er ekki dálitið kaldrana-
legt að telja „þarfasta
þjóninn” i tonnum?
I