Alþýðublaðið - 16.11.1976, Qupperneq 6

Alþýðublaðið - 16.11.1976, Qupperneq 6
6 SJÚNARMIÐ Þriðjudagur 16. nóvember 1976 Eftir að hafa gengið um sali Þjóðminja- safnsins, eða skoðað gömul hús og bygg- ingar, viðs vegar um landið, dettur manni ósjálfrátt i hug, hversu mikil verðmæti eru ekki fólgin i þessum gömlu verðmætum. Úti um allt land, er verið að endurbyggja og lagfæra og bæta gömul hús og kirkju- byggingar, sem farin eru að láta á sjá, eftir að hafa gegnt hlutverki sinu, kannski i eina til tvær aldir. Hús- byggingar þessar eru á öllum aldri, og sumar hverjar fjörgamlar. Flestum sem skoöa vel þessar gömlu byggingar, dylst ekki hversu dýrmætt það er fyrir okkur að eiga þær, þó ekki sé til annars en að minna okkur a hvernig forfeður okkar börðust áfram i óveðrum sem bliðviðri, alltaf i sömu kofunum, litlum og óásjálegum. Mjög vinsælt er aö ferðahópar taki sig saman, og skoði byggingar þessar, og greinilegt er, að þær þykja bæði fallegar og athyglisverðar. Svo oft heyrir maður fólk segja setningar eins og „það er sál i þessum gömlu húsum”, og annað þvi um likt. Sem fyrr segir er miklum tima varið á hverju sumri, til viðhalds og endurbyggingar þessara gömlu húsa. Er það vel, að fólk skuli vilja halda manneskjulegu útliti húsanna á Islandi sem lengst. Hús með sál. I Reykjavik hefur þó ekki mjög mikið verið gert til við- halds gömlum húsum. Eitthvað hefur efaiaust verið gert við þau, en ég held það sé mjög af skornum skammti. öllum mun vafalaust i fersku minni striðið sem brauzt út þegar friða átti algerlega „Torfuna” margum- töluðu. Þó held ég alla vera sammála þvi nú, að húsin i Bankastrætinu liti mun betur út eftir að þau voru máluð en áður. Þá er bara að halda þeim i horfinu, og gleyma ekki að gömul húsþarf sifellt að vera að lagfæra og bæta. 1 miðbænum i Reykjavik, Vesturbænum og sums staðar i Austurbænum lika, er að finna mörg hús með „sál”. Hvað er gert til að viðhalda þeim i sinu gamla lagi, leyfa þeim að halda byggingarstil sinum, og forða þeim frá niðurniðslu. Mest litið hygg ég. Er gert mjög mikið til að minna á gömlu Reykjavik eins og hún var fyrr á dögum. Vafalitið eru margir sem vilja helzt gleyma gömlu Reykjavik, eins og hún var á sinum tima, gleyma baslinu, eymdinni og volæðinu sem fylgdi i kjölfar fátæktar og annars. Þessir sömu vilja sjálfsagt helzt af öUu, byggja upp stóra gráa steinkassa, með ferköntuðum gluggum, þar sem hægt er að hafa skemmtilegt útsýni i næsta steinkassa, sem einnig er grár með ferköntuðum gluggum. Fjölbreytnin fram úr hófi.' Kubbar í regnboga litunum. Hvar sem litið er i Reykjavik, og skiptir þar litlu máli hvar i borginni maður er staddur, þó nýju hverfin séu kannski einna verst, getur að lita þessa skemmtiiegu gráu steinkassa! Jú, mikil ósköp, kassarnir eru málaðir i öllum regnbogans litum til að prýða! En hversu miklu skemmtilegra er ekki að sjá gömlu húsin, jafnvel ómáluð heldur en þessa kubba, alla eins. Það eru misjafnar skoðanir á þessum málum sem öllum öðr- um. Sumir vilja gömul hús, aðrir vilja nýrri og nýtizkulegri. Hvor hópurinn á meiri rétt á sér, eða hefur réttara fyrir sér, getur enginn dæmt um. Þar ræður persónuleg skoðun á hiut- unum öllu. Stór hluti gömlu húsanna i Reykjavik, mest megnis i gamla bænum, eru timburhús. Af þvi leiðir að þau eru mjög eldfim. Húsin eru mörg hver orðin svo gömul að þau nötra og skjálfa i einhverjum blæstri. Mörg eru orðin svo léleg, mest i kringum glugga og hurðar, aö þau halda hvorki vatni né vindi. Það hriktir og nötrar i öllum endum ef verulega blæs, eins og oft vill gera i Reykjavik. Okostirnir við gömlu húsin eru auösjáanlega margir. Fyrir utan fúkkalyktina sem kemur eftir margra ára búsetu i leku timburhúsi. Friðun góð auglýsing. Hvað á að gera við svo ónýt hús. Hvernig væri nú að einhver skörungur tæki sig saman i and- litinu og riði á vaðið i friðun gamalla húsa, sem ekki eru löngu ónýt vegna ills viðhalds. Ef gamli bærinn i Reykja- vik,yrði tekinn i gegn, friðaður, og lagt út i viðgerðir og lagfær- ingar húsanna þar, yrði það til mikillar prýði fyrir Reykjavik, og góð auglýsing út á við. Stór hluti húsanna i gamla miðbæn- um, og Vestur- og Austurbænum lika, mega alls ekki missa sig. Ef þau yrðu rifin og fjarlægð, missti bærinn allan svip, og um- hverfið yrði allt annaö. Aðalheiður Birgisdóttir Þar sem eigendur nenna að halda gömlum húsum sinum eitthvað við, og mála þau og fegra, er mjög skemmtilegt að sjá. Þau hús bera af öðrum i allri Reykjavik. Hvort skyldi vera manneskju- legra, gamalt hús með báru járnsþaki, kvistum og kvist- gluggumogbyggt úrtimbri, eða steinkumbaldinn með fer- köntuðu gluggunum sinum tveimur á öllum hliðum, alls staðar eins að sjá, alls staðar steinsteypa. Þið, sem öllu ráðið! Flestir hljóta að vera sam- mála um svarið. Er ekki mun skemmtilegra að aka gegnum gamla miðbæinn á fallegu haustkvöldi og virða fyrir sér gömlu byggingarnar, heldur en þó það væri fallegt haustkvöld, að keyra i eitthvert nýju hverf- anna og sjá ekkert nema stein- steypta kassa.með mismunandi lagi að visu, frumlegheitin!! en steinkassar eru það samt. Þið þarna háu herrar, þið sem öllu ráðið. Getið þið ekki séð af eilitlu fjármagni til viðhalds gamla bænum. Þó ekki væri nema til þess að viöhalda manneskjulegri svip. Það er orðið alveg sama hvert litið er. Alls staðar risa stein- steyptir skýjakljúfar upp Ur gömlu húsförunum. Það væri nær að finna hverfi, þar sem reisa mætti þessa steinkumbalda, án eyðilegg- ingar á umhverfinu, þvi þar væru samskonar kumbaldar fyrir. Takið þið sérstakt hverfi, 3g reisið þar eins mikið og ykkur lystir. Friðið gamla bæinn og gerið aann með þvi svolitið manneskjulegri. Flokksstarfló Kópavogsbúar ’S ' Alþýðuflokksfélögin í Kópavogi opna félagsaðstöðu sina að Hamraborg 1, 4. hæð, laugardaginn 20. nóvember klukkan átta að kvöldi (kl. 20). Kaffiveitingar. — Allir velkomnir. Stjórnir Alþýðuflokksfélaganna i Kópavogi

x

Alþýðublaðið

Direct Links

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Alþýðublaðið
https://timarit.is/publication/2

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.