Alþýðublaðið - 09.12.1976, Side 15
Fimmtudagur 9. desember 1976
SJðNAWyWÍi5
Bíóin / Leikhúsin
3* 3-20-75
Vertu sæl Norma Jean
Ný bandarísk kvikmynd sem seg-
ir frá yngri árum Marilyn Monroe
á opinskáan hátt.
Aöalhlutverk: Misty Rowe, Terr-
ence Locke o.il.
Framleiðandi og leikstjóri: Larry
Buchanan.
ISLENZKUR TEXTI.
Bönnuð börnum innan 14 ára.
Sýnd kl. 5, 7, 9 og 11.
3* 2-21-40
Aðventumyndin i ár:
JONVOIGHT
is
Bráðskemmtileg ný bandarisk
litmynd gerð eftir endurminning-
um kennarans Pat Conroy.
Aðalhlutverk: John Voight.
Leikstjóri: Martin Ritt.
Sýnd kl. 5, 7 og 9.
lonabíó
*& 3-11-82
Bugsy Malone
Ein frumlegasta og skemmtileg-
asta mynd, sem gerð hefur verið.
Gagnrýnendur eiga varla nógu
sterk orð til þess að hæla henni.
Myndin var frumsýnd i sumar i
Bretlandi og hefur farið sigurför
um allan heim siðan. Myndin er i
litum gerð af Rank.
Leikstjóri: Allen Parker.
Myndin er eingönguleikin af
börnum. Meðalaldur um 12 ár.
Blaðaummæli eru á einn veg:
Skemmtilegasta mynd, sem gerð
hefur verið.
Mynd fyrir alla fjölskylduna.
Sýnd kl. 5, 7 og 9.
Góða skemmtun.
leikfélag 3(2 22
REYKJAVlKUR
STÓRLAXAR
i kvöld kl. 20.30.
SKJALDHAMRAR
föstudag kl. 20.30.
ÆSKUVINIR
laugardag kl. 20.30.
SAUMASTOFAN
sunnudag kl. 20.30
Siðustu sýningar fyrir jól.
Miðasalan i Iðnó kl. 14-20.30. Simi
1-66-20.
Helkeyrslan
Death Race
Hrottaleg og spennandi ný amer-
isk mynd sem hlaut 1. verðlaun á
Science Fiction kvikmyndahátið-
inni i Paris árið 1976.
Leikstjóri: Roger Corman
Aðalhlutverk: David Carradine,
Sylvester Stalione
Bönnuð börnum innan 16 ára
Sýnd kl. 5, 7, og 9,
Hjálp i viðlögum
Hin djarfa og bráðfyndna sænska
gamanmynd með
tSLENZKUM TEXTA.
Bönnuð innan 16 ára.
Endursýnd kl. 5, 7 og 9.
Volkswageneigendur
Höfum fyrirliggjandi: Bretti — Hurðir —Vélarlok —
Geymslulok á Wolkswagen f allflestum litum. Skiptum á
einum degi með dagsfyrirvara fyrir ákvCðið verð. Reyniö
viðskiptin.
Bilasprautun Garðars Sigmundssonar.
Skipholti 25 Simar 19099 og 20988.
Simi50249
Árásin á
f iknief nasalana
Hit
Spennandi, hnitmiðuð og timabær
litmynd frá Paramouth um erfið-
leika þá, sem við er að etja i
baráttunni við fikniefnahringana
— gerð að verulegu leyti i Mar-
seille, fikniefnamiðstöð Evrópu.
Leikstjóri: Sidney Furie.
ISLENZKUR TEXTI
Aðalhlutverk Billy Dee Williams,
Richard Pryor.
.Sýnd kl. 9.
Vl 1-89-36
Maðurinn frá Hong Kong
ISLENZKUR TEXTI
Æsispennandi og viðburðarrik ný
ensk-amerisk sakamálamynd i
litum og cinema svope með hin-
um frábæra Jimmy Wang Yu i
hlutverki Fang Sing-Leng lög-
reglustjóra.
Leikstjóri: Brian Trechard
Smith.
Aðalhlutverk: Jimmy Wang Yu,
George Lazenby.
Bönnuð innan 16 ára.
Sýnd kl. 6, 8 og 10.
Irafnorbíó
3*16-444
Drápssveitin
Hörkuspennandi or viðburðahröð
ný bandarisk Panavision litmynd
um ófyrirleitin rán og ósigrandi
hörkukarla
Mike Lane, Richard X. Slattery.
ISLENZKUR TEXTI.
Bönnuð innan 16 ára.
Sýnd kl. 3, 5, 7, 9 og 11.
Nauðsynleg
kerfisbreyting
Augun opnast?
Þess tekur nú að gæta i vax-
andi mæli að fólk sjái i hvaða
ógöngur er stefnt i menntakerfi
okkar. Að visu getur verið, að
þetta stafi fyrst og fremst af
þvi, að menn séu fúsari til en áð-
ur að tjá sig þar um i ræðu og
riti.
En hver sem ástæðan er,
verður ekki framhjá þvi farið,
að umræður geti lagt nokkurt
lóð á vogarskálina, til þess að
freista að sniða argvitugustu
hornin af þessum óskapnaði.
Hér mun raunar um gilda, að
ekki fellur tré við fyrsta högg og
litlar likur til að ekki þurfi
harða árekstra, til að koma
glórunni inn i kolla hinna háu
ráðamanna. Hitt er svo næsta
liklegt, að þeirra verði ekki
langt að biða, og má þá segja að
fátt sé svo með öllu illt, að ekki
boði nokkuð gott.
Þvi miður hefur kennarastétt-
in fremur litið látið til sin heyra,
hvað sem veldur. Innan þeirrar
stéttar eru þó nægilega margir
sjáandi menn, til' þess að vel
mætti búast við meiri rök-
studdri gagnrýni en raun hefur
á orðið.
Veikur grundvöllur.
Grundvöllur menntakerfisins
litur svo sem nógu vel út á
pappirnum, að stefnt sé að þvi
að mennta allan landslýð —
nærri þvi að segja með illu eða
góðu, sem hin silengda skóla-
skylda er ljósasti votturinn um.
Það er bara svo margt, sem hef-
ur gleymzt i „anbefalingunni”
— hlutir, sem sizt af öllu mátti
þó án vera. Hér hefur margoft
verið á það bent, og góð visa
verður vist aldrei of oft kveðin,
að það er eitt, að skylda fólk til
ákveðinna verka og annað, að fá
þau unnin svo viðhlitandi sé.
Þar kemur auðvitað fyrst og
fremst til greina, að það er vilj-
inn sem dregur hálft hlass i hug-
um og viðbrögðum nemenda,
auk þess sem það eru hreint
ekki allir, sem eru þess um-
komnir, ýmissa hluta vegna, að
skila sómasamlegu dagsverki i
náminu.
Það er máske ofrausn að bú-
ast við að ráðherrar og aðrir
pótentátar skilji hvaö hér er á
ferðinni. Satt er það, að þá mun
ekki skorta viljann, til að
hengslast i stólunum. En ef þeir
væru margir hverjir ofurlitið
raunsærri á afraksturinn af
verkum sinum, gæti skeð að
þeir sæju, að það er ekki alltaf
nóg að látast vilja vel, ef ekki
fylgja sómasamlegar aðgerðir i
kjölfarið.
En nú mættu jafnvel ráðherr-
ar láta sig ráma i, aö börn og
unglingar hafa einnig sinn vilja.
Og þvi meira sem slaknað hefur
á heimilisaga, þvi meiri likur
eru á, að þau geti gert þann vilja
— eða óvilja — gildandi i reynd.
Það er vitanlega sama um nám
og annað, sem reynt er að troða
upp á fólk, að árangur getur
jOddur A. Sigurjónssor
varla orðið langt fyrir ofan
frostmark. Þegar svo við það
bætist, að námsbólunum —
skólunum — eru ekki fengin i
hendur viðunandi starfsskilyröi,
er ekki á góðu von.
Það er eðlislægt sérhverjum
heilbrigðum einstaklingi, hvort
hann er yngri eða eldri, að vilja
sjá einhvern árangur erfiðis
sins. En hugsum okkur hvert
hlýtur að vera hugarfar þess,
sem þrátt fyrir óvilja og getu-
leysi hefur verið þrúgaður til
þess að vinna algera Sysifosar-
iðju i niu ár, eins og skólalög-
gjöfin krefur menn um.
Þetta mættu ráðamenn reyna
að láta sér skiljast og ekki sizt
þeir, sem i störfum sinum eru
önnum kafnir við að bera sand-
inn i Kleppstrektina frægu!
En hvað er þá til ráða? munu
eflaust ýmsir spyrja. Og það
væri að vonum.
Mér kemur það svo fyrir, að
gera þurfi tvennt i upphafi. I
fyrsta lagi, að felia niður skóla-
skyldu, t.d. við hið forna barna-
próf. Þaö þýöir ekki, að leggja
skuli skólana niður — siður en
svo, en þangað myndu þá leita
þeir, sem getu og hæfileika hafa
til að skila viðhlitandi árangri.
Enda þótt fleiri slæddust með,
af einum eða öðrum orsökum,
yrði að leggja skólunum þær
skyldur á herðar, að gefa nem-
endum raunhæft mat á, hvers
hver og einn er megnugur. Sið-
ari tima sálfræðigutl um van-
metakennd er og hefur alltaf
verið að engu hafandi.
I öðru lagi verður að stytta
skólatimann ár hvert i stað þess
að lengja hann, eins og nú er
gert. Timann, sem við það ynn-
ist á að nota til að kenna upp-
vaxandi fólki — eða gefa þvi
kost á — að læra hagnýt vinnu-
brögð, sem þjóðfélagið þarfnast
öðru fremur.
Þeir timar koma i lifi flestra,
að þeir finna sjálfa sig og þá
þarf að hafa fræösluskyldu, sem
gefur mönnum kost á að taka
námsþráð upp að nýju. Meö
þessu ynnist auðvitað, að i skól-
ana kæmu ekki aðrir en þeir,
sem fyndu þörf og hvöt þar til og
myndu þá skila viðhlitandi
dagsverki. Það er sannfæring
min og reist á nokkurri reynslu,
að þegar menn fyndu þörfina á
aukinni kunnáttu, leituðu menn
hennar fúsir.
Þetta gæti verið fyrsta vers.
Siðar kunna fleiri að koma.
U HREINSKILNI SAGT
Ritstjórn Alþýðublaðsins er í |
Síðumúla 11 - Sími
H.ixí.oshr
Grensásvegi 7
Sími <<2655.
InolúnMiiðNkipli leiJ
, lil láiiNii(>Nki|)la
'BriNADARBANKI
\£\J iSL.WDS
AusTurstræti 5
Simi 21-200
Hafnartjaröar Apotek
Af greiðslutimi:
Virka daga kl. 9-18.30
'Laugardaga kl. 10 12.30.
Helgidaga kl. 11-12
Eftir lokun:
Upplýsing^simi 51600.
SENtHBIl ASfÖOtN Hf