Alþýðublaðið - 23.12.1976, Blaðsíða 23
Joldbldð Alþyðublaðsins Fimmtudagur 23. desember 1976
23
GÖMLU LÖGIN
SUNGIN OG LEIKIN
Um þetta væri ekkert nema
gott aö segja, ef listamenn og
útgefendur gætu komið sér
saman um að gefa út vandaðar
og góðar hljömplötur. En á þvi
virðist i alltof mörgum tilfellum
hafa orðið misbrestur, þvi
ínegnið af , þeim islenzku
breiðskifum sem komið hafa á
markaðinn aö undanförnu, er i
einu orði sagt rusl.
Bókaþjóð —
hljómplötuþjóð
Nú er það svo, að Islendingar,
sem lengi hafa hreykt sér af þvi
að vera bókaþjóð i betra lagi,
eru að veröa einskonar hljóm-
plötuþjóð. Bókaútgefendur hafa
viðurkennt þessa þróun, a.m.k.
sumir þeirra, og hafið sjálfir út-
gáfu hljómplatna. Að flestra
mati er þetta þróun i rétta átt,
úr þvi að hljómplatan er orðin
svo stór þáttur i lifi yngri
kynslóðarinnar, sem raun ber
vitni.
Ég tel, að fagna beri þessu
framtaki bókaútgefenda ef það
verður til þess, að hljómlistin
verður vandaðri eftir en áður.
En svo að vikið sé aftur að
jólapiötunum i ár, þá eru þær
margar hverjar svo hroðalega
lélegar, að menn trúa vart eigin
eyrum, þegar þeír eru sestir inn
i stofu og ætla að fara að hlusta
á nýju plötuna sina.
Margir þeirra hljómlistar-
manna, sem hlut eiga aö máli,
hafa leitað fanga i gömlu góðu
ruslakistunni og reynt að dubba
upp gömul lög. Enn aðrir böggl-
ast við að semja eigin músik,
sem oft vill verða léleg endur-
tekning þesssem hljómað hefur
i eyrum okkar mánuð eftir mán-
uð.
Og þegar lélegt enskubull, án
allrar merkingar, bætist svo
ofan á allt annaö, þá er ekki von
að vel fari.
En það sorglegasta við þetta
alltsaman er, að margirþeirra,
sem falla i þessa gryfju sölu-
mennskunnar nú um jólin, eru
góðir listamenn, sem hafa gert
marga góöa hluti. Og þvi er það,
sem fólk kaupir plöturnar
þeirra alveg grandalaust um, að
þarna sé á ferðinni lélegasta
tegund massaframleiðslu.
Svokallaðir poppskrifarar
blaðanna eiga þarna lika
nokkra sök. Margir þeirra
gangast upp i sleikjulegum
smjaðursskrifum til þess eins,
að koma sér i mjúkinn hjá
hljómlistarmönnunum. EF þeir
þykja þess virði.
Það skal þó skýrt tekið fram,
að ofangreint á ekki við alla
gagnrýnendur pop-tónlistarinn-
ar. Sumir þeirra, t.d. Klásúlna-
ritarar hafa veriö nokkuö sann-
gjarnir i dómum sinum, en ekki
látið þau stjórnast af smjaðurs-
legri undirgefni.
Vandað til verka
Þá skal einnig tekið fram, að
ýmsir okkar ágætu listamanna
hafa sént frá sér mjög góöar og
vandaðar hljómplötur, bæöi
fyrir jól, og á öðrum árstimum.
Vil ég iþessu sambandi nefna
Spilverk þjóðanna, Diabolus in
Musica, Stuömenn og Þokkabót.
A öllum þessum plötum er að
finna virkilega góöa hljómlist,
og um fram allt, eitthvað
nýstárlegt. Auk þess hefur
maður á tilfinningunni að þess-
ar hljómplötur hafi veriö unnar
með stakri ánægju og áhuga, en
ekki vegna væntanlegrar sölu
fyrst og fremst.
Þarna er greinilega'á feröinni
fólk, sem hefur ákveðinn hljóm-
listarsmekk, sem það er óhrætt
við að tjá. Og við hin njótum
góðs af þvi þessar hljómplötur
er hægt að hlusta á skipti eftir
skipti, með óskiptri ánægju.
Séu þessar plötur bornar
saman viö „Visnaplötuna” þann
hlægilegasta afturkreisting,
sem á markaðinn hefur komið
og Fjölskylduplöturnar úr
Keflavik, svo eitthvað sé nefnt,
þá er sá samanburður hinum
siðarnefndu i mikinn óhag, sé
vægt til orða tekið.
Liklega færi bezt á þvi, að þeir
linulistamenn, sem þar eiga
hlut að máli, fari i hálfs árs orlof
og reyni að koma sköpunar-
gáfunni á réttan kjöl. Þvi þeir
geta gert miklu, miklu betur en
þetta, bara ef þeir gefa sér tima
til að skapa eitthvaö nýtt, en
láta gömlu lummurnar sigla
sinn sjó.
,,Hér virðist fólkið
elska söng”
— Þaö var nú svolitið dvænt.
Ég var að koma með kammer-
hljómsveit frá ítaliu og var þá
sagt, að komiö hefði bréf frá
Vladislav Voijita, sem þá var tón-
listarkennari á Húsavik. I bréfinu
sagðist hann vilja koma heim aft-
ur, en þyrfti aö útvega mann i
staöinn fyrir sig, þar sem samn-
ingstiminn var ekki útrunninn.
Það fór svo, að ég sló til, og á-
kvað að fara til Islands og kom
hingað 6. september 1972.
Eg vissi satt að segja litiö sem
ekkertum landið og hvergi gat ég
fengið neinar bækur um það. Þó
fór svo að lokum, að ég komstyfir
rússneska bók um Island, en hún
hafði'verið prentuð 1952.
— Hvernig geðjaðist þér svo
að?
— Fyrsta hálfa áriö var ákaf-
lega erfitt fyrir mig. Ég var ein-
mana og þekkti fáa. Fólkið var
lokað gagnvart mér vegna tungu-
málaörðugleika.
Upphaflega var ég ráðinn til að
stjórna karlakórnum Þrym og
Lúðrasveit Húsavikur, en auk
þess bættist svo Tónlistarskóli
Húsavikur við. Arið 1973 kom svo
Viktor Guðlaugsson skólastjóri til
min og bað mig aö taka að mér
stjórn nýs kórs, sem verið var aö
stofna i nokkrum hreppum austan
Vaðlaheiöar. Það var Karlakór-
inn Goðinn og ég hef stjórnaö hon-
um siöan.
— Hvernig finnst þér svo að
vinna með tslendingum?
— Það er alveg nýtt fyrir mig
aö koma til ekki fjölmennari
þjóöar, þar sem fólkið virðist
elska söng. Þaö er með óiíkindum
að heyra i mönnum sem aldrei
hafa sungiö, en hafa góðar raddir
og syngja meö hjartanu. Einnig
vakti það furöu mina hvaö menn
voru þolinmóðir á æfingum. Voru
ekki alltaf að spyrja um klukk-
una. Mér finnst þið eiga mjög
góöa músikanta, bæði i sigildri
tónlist og poppi.
— Það er mikið talaö um skort
á islenzkri óperu. Heldurðu að
slik stofnun eigi rétt á sér?
— Ég tel ekki að arövænlegt sé
að koma upp óperu i Reykjavik
vegna fólksfæðar. Ég veit hins
vegar að það vantar tenóra er-
lendis, i Þýzkalandi, á ttaliu og
fleiri stöðum og Islendingar eiga
marga mjög góða tenóra sem
ættu að ieita fyrir sér á þessum
slóðum.
— Hefur einhver beðið þig að
útsetja tónlist fyrir sig?
— Nei, enginn ennþá, en ég
myndi gera það ef ég væri beðinn.
Mér finnst bara að kórar syngi of
mikið af gamalli tónlisti frekar
einföldum útsetningum. Það væri
athugandi fyrir Landssamband
blandaðra kóra eða einhvern
svipaöan félagsskap, að gera eitt-
hvað nýtt fyrir kórana. Ég held
nefnilega aö þessi tónlist fæli
yngra fólkið sem kemur inn i
starfsemina frá. Það vill eitthvað
annað en þessi eilifu sömu gömlu
lög. Við eigum raunar við svipað
vandamál að glima I Tékkó-
slóvakiu.
— Hvernig halda Tékkar upp á
jólin?
— Jólahaldiö heima byrjar eig-
inlega á hádegi á aðfangadag. Þá
fer konan út með börnin meðan
maöurinn skreytir jólatreð. Tréð
eristofunniog hurðinni algerlega
lokað fyrir börnunum fram að
kvöldmat.
Við boröum klukkan sjö um
kvöldiö, en áður hafa allir pukr-
aztmeð gjafirnar undir jólatrénu.
Við höfum þann skemmtilega
sið heima, aö við borðum fiski-
súpu á undan kjötinu og þeir sem
ekki vilja súpuna fá auövitað ekki
kjöt heldur.
Eftir matinn fara allir að jóla-
trénu og opna pakkana sina,
drekka kaffi eöa vin og bjór. Svo
syngjum við jólalög, en förum
ekki tilmessu fyrr en á miönætti,
en þá fara lika flestir til kirkju.
Trésmiðafélag
Reykjavíkur
óskar öllum félögum sínum
og öðrum velunnurum
GLEÐILEGRA JÓLA
Verkamannafélagið
Dagsbrún
óskar öllum félögum sínum
og öðrum velunnurum
GLEÐILEGRA JÓLA
Óskum félagsmönnum og landsmönnum
öllum
gleðilegra jóla
og gæfu á komandi ári og þökkum sam-
starfið á árinu sem er að liða
Rafiðnaðarsamband íslands
og aðildarfélög
Við sendum öllum viðskiptavinum og
starfsfólki beztu óskir um
GLKÐILEG JÓL OG FARSÆLT
KOMANDI AIl
þökkum gott samstarf á liðnum árum.