Alþýðublaðið - 12.01.1977, Síða 11
Ma&M*' Miðvikudagur 12. janúar 1977
ÚTLðNDll
Carrillo er fylgjandi veru
herstöðva á Spáni og
veru landsins í EBE
— Við munum vera
fylgjandi því að Banda-
rikin haldi í herstöðvar
sinar á Spáni/ svo lengi
sem engar viðræður fara
fram um niðurlagningu
bandarískra og sovézkra
herstöðva i öðrum lönd-
um. Núverandi valda-
jafnvægi má ekki raska.
Þannig hljóðaði boðskap-
ur Santiago Carrilio
meints kommúnistaleið-
toga í viðtali við UPI-
fréttastofuna.
— Viö erum Evrópubúar. Viö
erum fylgjandi aöild Spánar aö
Efnahagsbandalaginu. Viö
fylgjum eflingu Evrópu án
iblutunar Sovétrikjanna og
Bandarikjanna, en aö okkar
áliti á Spánn aö halda sér utan
NATO. En ef meirihluti Spán-
verja kýs aö landiö sé i NATO,
þá munum viö aö sjálfsögöu
hlita þvi, sagöi Carrillo.
Carrillolagöi þunga áherzlu á
aö foröast beri umfangsmiklar
þjóönýtingar á Spáni til þess aö
foröast efnahagslegt öngþveiti.
An þess aö segja þaö beinum
oröum, átti hann viö þróunina i
Portúgal eftir valdatökuna 1974.
— Viö óskum eftir þróun i átt til
sósialisma, en ekki sósialsima
meö skertu athafnafrelsi, sagöi
hann. Flokkur Carrillos er þvi
fylgjandi aö erlendu auömagni
séauövelduö leiö inn i landiö, en
Carrillo varaöi fjölþjóöafyrir-
tæki viö þvi aö reyna aö blanda
sér inn i innanlandsmál Spánar.
Carrillo, sem er 61 árs aö
aldri, slapp úr fangelsi á dögun- '
um, eftir aö hafa setiö inni um
skeiö. Hann kom til Spánar meö
leynd snemma á siöasta ári, en
landflótta haföi hann þá veriö i
37 ár.
Hann sagði i viötalinu viö
UPI-fréttastofuna, aö hann
væri trúabur á friðsamlega þró-
un til lýðræðis á Spáni, „aö þvi
skilyrði uppfylltu að verkalýðs-
stéttinni veröi ekki haldiö utan
við”. Flokkur Carrillos er enn
ólöglegur á Spáni, en Carrillo
reiknar með þvi að hann veröi
lögleyfður, ef til vill fyrir kosn-
ingarnar til þjóöþingsins aö
vori.
— Ef stjórnin óskar eftir
stjórnmálalegri kyrrö á Spáni
er algerlega nauösynlegt fyrir
hana að lögleiða flokkinn, sagöi
Carrillo. Hann bætti þvi við aö
kjósendur skyldu skrifa nöfn
frambjóðenda flokksins á at-
kvæöaseðlana, ef hann yröi ekki
lögleyfður fyrir kosningar.
Alitib er aö flokkur Carrillos
njóti fylgis á milli 10 og 15%
kjósenda á Spáni. Mikilvægast
er þó, aö verkalýösfélögin á
mestu iðnsvæðum landsins eru
á valdi hans.
Carrillo neitaði að leggja mat
sitt á stjórn Juan Carlosar
kóngs. Við erum fylgjandi lýö-
veldi og viljum almennar kosn-
ingar um stjórn landsins, sagöi
hann.
Hins vegar lét hann fremur
vinsamleg orö falla um hinn
nýja forsætisráðherra Spánar,
Adolfo Suarez. Hann lagöi sér-
staklega áherzlu á það, aö Suar-
ez hefði þróað stjórnaraðferð
sem bryti i bága viö hefðina frá
dögum Frankós, og aö hann
heföi vikið mörgum embltis-
mönnum og lögreglustjórum frá
Frankó-timanum úr starfi.
Hann hefur einnig lagt af
pólitiska dómstóla — að sögn
Carillos.
Að lokum var Carrillo spuröur
um afstöðu sina til Sovétrikj-
Santiago Carrillo
anna. — Viö erum hvorki póli-
'tiskt eöa efnahagslega háöir
Moskvu. Ef viö værum það,
myndum við ekki haga pólitik
okkar á þennan hátt. Viö virðum
rússnesku byltinguna 1917, en
við höfum sovézka stjórnkerfið
ekki að fyrirmynd okkar. Viö
litum þaö sömu gagnrýnu aug-
unum og stjórnkerfi annarra
landa, sagöi Carrillo.
—ARH
Norskt risafyrirtæki í samningum
við sovézk stjórnvöld
Hinar þekktu útvarps-
cerksmiðjur TAND-
BERG i Noregi hafa lagt
fram itarlega áætlun um
uppbyggingu risa-
stórrar verksmiðju til
framleiðslu segulbands-
tækja i Sovétrikjunum.
Þegar samningsgerð um
verksmiðjuna er lokið,
mun þetta verðastærsti
iðnaðarsamningur sem
undirritaður hefur verið
á milli Noregs og Sovét-
rikjanna.
Ljóst er aö samningsþóf kann
að taka nokkurn tima, þvi aö
samkeppni iönjöfra um sovézka
markaöinn er hörð og margir
hafa lagt svipuö tilbob fyrir
stjórnvöld i Sovétrikjunum. Til
dæmis hefur talsmaöur
TANDBERG sagt aö vestur-þýzkt
fyrirtæki hafi sótzt eftir svipuöum
samningum og fyrirtæki hans i
Sovétrikjunum. Sendinefnd frá
Moskvu er væntanleg til Osló
innan skamms tima og vona for-
ráðamenn TANDBERG aö þaö
muni verða til þess aö náiö sam-
band takist með fulltrúum,
beggja aðila.
Sovézk yfirvöld hafa áhuga á
þvi aö fá aöstoö til uppbyggingar
fyrirtækis er framleiddi um
400.000 segulbandstæki á ári. Þau
hafa einnig áhuga á þvi að fá
framleiðslu- og dreifingarrétt
fyrirTANDBERG-segulbönd. Þvi
gefur auga leið að samningar þeir
sem fyrir dyrum standa eru
miklir aö umfangi.
— Þegar við ræddum fyrst við
Rússana, var rætt um það að
halda sig vib upphæb sem næmi
100 milljónum norskra króna,
sagði talsmaöur TANDBERG.
Siöan hafa mál þróazt á þá leiö aö
tilboö okkar er nú mun hærra en
þaö sem viö byrjuðum meö.
Forráöamenn TANDBERG
vænta þess aö varanlegt tækni-
samstarf veröi með fyrirtækinu
og sovézkum yfirvöldum, og að
TANDBERG geti oröiö aö-
njótandi tækniþekkingar sovét-
manna sem hæfi framleiöslu
fyrirtækisins. Nú sem stendur
bfður TANDBERG eftir svari viö
tilboði sem nýlega var lagt fyrir
Sovétmenn.
Undanfarin ár hefur gifurlegt
auömagn frá Vesturlöndum
streymt inn i Sovétrikin og hafa
þýzk, frönsk, itölsk og sænsk
fyrirtæki byggt verksmiöjur i
landinu, auk bandariskra og
japanskra auöhringa. Þá hafa
margir af stærstu bönkum i
Bandarikjunum leitaö eftir þvi aö
setja upp útibú i Moskvu og eru
þegar komin upp nokkur slik þar i
borg.
—ARH.
Vextirnir eru að sliga
dönsku iðnfyrirtækin
Hinir háu vext.ir. sem eru af-
leiðing gjaldeyrisstöðunnar
ógna nú þeim iðnfyrirtækjum i
Danmörku, sem byggja á erlendu
rekstrarfé.
Tölur sem nýlega voru lagöar
lram, i þessu sambandi, hafa
komið illa við kaunin á iðn-
rekendum, sem nu eru farnir að
óttast um afkomu fyrirtækja
sinna. Þrátt fyrir, að þau hafi
verið rekin með hagnaði, og stað-
ið vel fjárhagslega, hafa af og til
komið upp dæmi sem sýna fram á
minnkandi arðsemi.
En það er íleira en vaxtabyrðin
sem sýnist ætla að veröa iðnaðin-
um skeinuhætt. Til dæmis hafa
vextir reikningslána, veðlána
o.fl. verið hækkaðir mjög til að
beina lánaviðskiptum atvinnu-
rekenda út fyrir landsteinana.
Þetta hefur heppnast mjög vel.
Iðnrekendurnir sækja lán sin til
annarra landa, og gjaldeyririnn
streymir inn i landið til uppbótar
fyrir þá milljarða, sem fóru i af-
borganir á erlendum lánum,
meðan kreppan réð rikjum i Dan-
mörku.
En þessar aðgerðir eiga sér
tvær hliðar, og sú siðari er engan
vegin jafn æskileg og sú fyrri.
Vextir af lánum, sem voru miklir
fyrir, hafa nú hækkað svo, að
rekstrargrundvöllur iönfyrir-
tækjanna er vægast sagt nokkuð
valtur. Mörg hinna nýrri og
stærri fyrirtækja hafa fengið
stærstan hluta rekstrarfjárins aö
láni. Þau fara ekki að gefa af sér
gróða fyrr en 15-16% vextir hafa
verið greiddir til bankanna sem
hafa samþykkt lánin.
Ef hæsta verðlag lætur svo biða
eftir sér, til viðbótar við þetta, þá
heldur framleiðslugetan áfram
aö vera i lágmarki. Þetta gerir
sitt til að auka þær hömlum, sem
þegar hafa skapast vegna vaxta-
byrgðanna.
Segja þeir sem fróðir eru um
þessiefni,að vaxtabyrðar iðnfyr-
irtækjanna haldi mun meir aftur
af þessu iðnaðarins heldur en all-
ar launagreiðslur.
—J S'S
K0STAB0Ð
á kjarapöllum
KJÖT & FISKUR
Breiðholti
Simi 7 13(10 — 7 1301
»»»* ©
P0STSENDUM
rRULOFUNARHRINGA
3lol|.omcs TLmsson
il.mQ.mrQi 30
é'imi 10 200
* 1" —1
Dúnn
Síðumúla 23
/ími 64200
Heimiliseldavélar,
6 litir - 5 gerðir
Vfir 40 ára reynsla
Rafha við Óömstorg
Simar 25322 og 10322
Birgir Thorberg
málarameistari
simi 11463
OnnumsT alla
málningarvinnu
— úti og inni —
gerum upp gömul husgögn