Alþýðublaðið - 19.02.1977, Side 2

Alþýðublaðið - 19.02.1977, Side 2
2 STJÓRNMÁL Laugardagur 19. febrúar 1977 btoSó*' alþýóu- blaðið t)tgefa;idi: Alþýöuflokkurinn. Rckstur: Reykjaprent hf. Ritstjóri og ábyrg&armaður: Arni Gunnarsson. Fréttastjóri: Bjarni Sigtryggsson. Aösetur ritstjórnar er i Sföumúla 11, simi 81866. Auglýsingadeiid, Alþýðuhúsinu Hverfisgötu 10 — simi 14906. Askriftarsimi 14900. Prentun: Blaöaprent h.f. Askriftarverð: 1100 krónur á mánuöi og 60 krónur i laúsasölu. Ef breyta þyrfti verk- smiðju í skóla Þingmenn Alþýðu- flokksins hafa á nýjan leik f lutt á Alþingi tillögu þess efnis, að sett verði hér á landi fullkomin, nú- tíma löggjöf um vinnu- vernd og starf sumhverf i. Að þessu sinni birta þeir með tillögu sinni ítarlega ályktun um þetta mál, sem síðasta Alþýðusam- bandsþing lét frá sér fara. I tillögunni segir, að Alþingi feli ríkisstjórn- inni að láta gera drög að slikri löggjöf í samstarfi við samtök launafólks og atvinnurekenda. Mun án efa reynast farsælt, að þessi samtök hafi frá upphafi veg og vanda af nýrri löggjöf, því að enga snertir hún meir. Þá er rétt að njóta við undir- búning málsins aðstoðar sérfróðra manna, sem nú stýra Hei I brigðísef tirl iti ríkisins og öryggismála- stofnuninni, sem þegar hefur um aldarfjórðung starfað að öryggismálum vinnustaða. Tilgangur málsins er að tryggja öllu landsfólki starfsumhverfi, þar sem ekki er hætta á líkamlegu eða andlegu heilsutjóni, en vinnuskilyrði eru í samræmi við lífskjör þjóðarinnar og tæknilega qetu, og stuðli að virðingu vinnunnar og starfsgleði. Það er f urðulegt, að þjóð- in skuli sætta sig við, að allur þorri vinnustaða, þar sem starfandi fólk dvelst þriðjung af bezta hluta ævinnar, skuli ein- kennast af óhreinindum, slysa- og sjúkdómshætt- um, hávaða og hverskon- ar óhollustu. Olof Palme, leiðtogi sænskra jafnaðarmanna, ræddi þetta atriði eitt sinn og varpaði fram þeirri spurningu, hvað gera þyrfti, ef breyta ætti verksmiðjuhúsi í skóla. Við umhugsun kemur í Ijós, að verksmiðjuhús- næði verður nálega að endurbyggja frá grunni til þess, að það teljist not- hæft sem skóli. Hvers- vegna gerum við svona miklu minni kröfur til at- vinnuhúsnæðis okkar en til heimila, skóla og ann- arra bygginga, sem menn dveljast í? í framsöguræðu fyrir tillögu þessari benti Benedikt Gröndal á, að einmitt þessa daga væri fjallað um málefni nýrrar málmblendiverk- smiðju í ráðuneytum og á Alþingi. Ef innri mengun verður í slíkri verksmiðju og starfsumhverfi fólks- ins þar ekki fullkomið, verður þar alvarleg sjúk- dómshætta, sagði Benedikt, og sannar reynsla frá eldri verk- smiðjum á Norðurlönd- um, að svo er. Þess vegna verður að búa vel um þau mál, svo að allt fari vel, og verður að koma í veg fyrir innri mengun í verksmiðjunni og gera aðbúnað og vinnuskilyrði hin f ullkomnustu. I þessu sambandi minnti Bene- dikt á, að okkur hefði brugðizt bogalistin á þessu sviði fyrir rúmum áratug, þegar smíði ál- versins í Straumsvík var leyfð. Þar er hvorki kom- ið í veg fyrir ytri eða innri mengun, og starf sskilyrði mörg hundruð manna eru þar verri en við má una. Þótt nef nd væru tvö dæmi um stóriðju, kvað Bene- dikt Gröndal margvís- legar hættur vera á hundruðum lítilla vinnu- staða um allt land. Þess vegna væri gott starfs- umhverfi nú eitt af stór- málum verkalýðshreyf- ingarinnar hér sem í ná- grannalöndum okkar. Þó er ætlunin, að hin nýja löggjöf geri ráð fyrir eðlilegum íhlutun- arrétti vinnandi fólks á starfsumhverf i sitt, en stefna ber að því, að verkefni og vandamál á þessu sviði verði sem mest leyst í samstarfi verkafólks og atvinnu- rekenda innan ramma laga. Með því að veita hverjum einstaklingi rétt til nokkurra áhrifa á það umhverfi, þar sem hann dvelst og starfar áratug- um saman, er lýðræði í landinu aukið á veiga- mikinn hátt. Það mundi reynast skref í átt til þess, að sem flest fólk verði virkir og lifandi samborgarar, en ekki óvirkir og áhrifalausir. Þessi þáttur málsins er skyldur öðru stórmáíi, sem þingmenn Alþýðu- flokksins hafa nýlega flutt á Alþingi og fjallar um rétt starfsmanna við öll fyrirtæki og stofnanir, er hafa 40 starfsmenn eða fleiri, til að kjósa a.m.k. tvo menn í stjórn. Hvorttveggja eru liðir í atvinnulýðræði, sem er nú á dögum talið allt að því jafn veigamikill þátt- ur lýðræðis eins og kosn- ingaréttur. Á þessu sviði eru íslendingar langt á eftir grannþjóðum sínum og er kominn tími til að breyta því. Hér sem í öðrum félags- og hags- munamálum vinnandi fólks hefur Alþýðu- flokkurinn forystu í mál- efnalegri og ábyrgri um- bótabaráttu. Loks er í tillögunni um starfsumhverfi ákvæði á þá lund, að væntanleg löggjöf skuli fjalla um starfsaðstöðu fyrir fólk, sem hefur skerta vinnu- getu og stuðla að þvi, að það fái sem f lest tækifæri til að vinna með heil- brigðum á venjulegum vinnustöðum. Það þarf víða ekki miklar breyt- ingar á starfsumhverf i til þess að f atlaðir, t.d. þeir, sem nota hjólastóla, geti komizt til vinnusala og um þá. Hér er bæði um mannúðarmál að ræða og hagkvæmni, því að þetta fólk er og getur verið ágætur vinnukraftur í fjölmörgum starfsgrein- um. Oflug starfsemi unglinga um reyk- ingavarnir háð til einskis, án stuðnings frá heimilum Ot er komið 1. tölublaö 4. árgangs af blaöinu Fellahellir. sem erdagskrárblaö samnefndrar félagsmiöstöövar Æskulýösráös Reykjavikur í Breiöholti. Blaöiö er aö þessu sinni helgaö baráttu gegn reykingum og i því er m.a. aö finna fróölegar greinar um -áhrif tóbaksreykinga, skaöleg efni I tóbaksreyk og fram- kvæmdaráætlanir til aö hætta reykingum. Loks er í blaöinu grein, sem ber heitiö „Til for- eldra” og þar er m.a. þeim til- mælum beint til fulloröinna aö þeir taki höndum saman og hætti aö valda þeim, sem ekki reykja heilsutjóni eöa vanliöan. I formála blaösins segir m .a. aö hið umfangsmikla fræöslustarf Krabbameinsfélagsins um skaö- semi reykinga hafi borið umtals- veröan árangur og hafi Fellahell- ir oröiö vettvangur vakningar- öldu, meöal unglinga. 1 nóvember sl. hafi hópur ungl- inga gengizt fyrir dagskrá um skaösemi reykinga og þar hafi gestir\200 talsins, samþykkt ein- róma aö reykingar skyldu bann- aöar I Fellahelli, nema í anddyri. Þetta sama kvöld hafi 16 ungl- ingar myndaö starfshóp meö þaö fyrir augum aö hætta aö reykja, en slöar heföi verið ákveöiö aö setja markiö enn hærra. Undir- búningur aö fræöslusýningu um skaösemi reykinga hafi hafizt, jafnframt þvi sem haldiö hafi veriö uppi stööugum áróöri gegn reykingum. Segir enn fremur I formála, aö árangur þessa starfs megi nú marka af tvennu. Annars vegar af þeirri sýningu sem nú hafi ver- iö sett upp I kaffiteríu Fellahellis, og hins vegar af þeim sístækkandi! hópi unglinga sem minnkaö hafi reykingar eöa hætt þeim alveg. Þá er minnt á, aö þessi barátta sé til einskis háö ef ekki komi til stuðningur frá heimilunum. Reyklaus Fellahellir sé ekki allt, heldur sé reyklaus heimili og reyklaust land aöalmarkmiöiö. Starfshópurinn hefi tekiö saman efni blaösins í trausti þess, aö þaö opni augu einhvers og hvetji þá til umhugsunar um þessi mál —JSS Auglýsið í Alþýðublaðinu EIN- Bollur, salt- kjöt og sveltandi börn Nú eru framundan bolludagur og sprengidagur. Allir þekkja þær heföir sem þessa daga einkenna. Á bolludag boröa menn rjóma- bollur, eins og þeir geta I sig látiö, og á sprengidag saltkjöt og baun- ir, einnig eins og þeir geta troðið i sinn maga. Þessar hefðir eiga sér nokkra sögu, en hafa auðvitað tekiö breytingum i timanna rás. Gott er að menn geti fengiö magafylli af bollum og saltkjöti. En ekki sak- aði að hugleiða hve margir Ibúar heimsbyggöarinnar geta leyft sér slikan munaö. Aösjáll söfnunar- maður kirkju eöa llknarfélag hefði átt aö nota annan hvorn eöa báöa þessara daga til aö safna fé til kaupa á matvælum fyrir þá þegna jaröarinnar sem hvorki fá bollur eða saltkjöt. A sama tima og eitt helzta böl mannkynsins er fæðuskortur er ofát ein alvarlegasta ógnun við heilsu Vesturlandabúa. Fleiri og fleiri látast úr hjartakvillum og eiga viö meltingarsjúkdóma aö strlöa, annaö hvort vegna rangs mataræðis eöa hreinlega vegna ofáts. Hópur manna hefur af þvi atvinnu aö reyna aö ná fitu af hundruöum og þúsundum manna. Annar hópur berst vonlltilli bar- áttu viöaö fá heiminn tilaö skilja, aö meirihluti mannkyns sveltur. Þetta eru furöulegar andstæöur i Ufi okkar jaröarbúa. Viö vitum aö með sameiginlegu átaki væri hægt að ráöa bót á matvælaskor- tinum. En eins og venjulega skilj- um við ekki vandann, þegar hann er langt I burtu frá okkur. Viö vitum aö á Vesturlöndum eru kornhlööur fullar, smjörfjöll hlaöast upp, kjötframleiðsla er meiri en neyzla. í Afrlku, Asiu og Suður-Ameriku stendur hungur- vofan viö dyr hundruöa milljóna manna. Viöa deyja 90 börn af hverjum 100, sem fæöast en viö getum státaö af þvl aö nær öll börn sem fæöast, lifa. Þó hlýtur lifiö og barniö aö vera jafnmikils viröi I Afriku og á Islandi. Þegar viö byrjum aö hugsa á þennan hátt spyrjum viö mátt- vana, að þvl er virðist hvaö stjórnar þessu misrétti? Þvl get- um við ekki meö öll okkar mat- væli reyntaö halda llfinu I a.m.k. 220 þúsund afriskum börnum. Eftir aö hafa velt spurningunni fyrir okkur smástund, gefumst viö upp og lokum fyrir þetta hugs- anastreymi. Þetta eru ekki okkar börn, eöa hvaö? Værum viö kannski aö kaupa okkur sálarfriö og róa samvizk- una, ef viö legöum til hliö* arandviröieinnarrjómabollu eöa kjötmáltiðar og reyndum aö gera þessa peninga aö mat I munni deyjandi barna.. Eða væri þaö fjarstæðukennt aö við gæfum verömuninn á of stórri máltiö og hæfilegri máltiö, þeim sem enga máltiðfá. Þaö gæti um leiö komiö Iveg fyrirnokkrar kransæöastffl- ur. Hvort sem viö hámum I okkur rjómabollur, saltkjöt eöa aörar Eæöutegundir, væri rétt aö hafa hugfast, aö framlag okkar Islend- inga til sveltandi heims er svo ágt, aö þaö er vel feitri þjóö til skammar.

x

Alþýðublaðið

Direkte link

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Alþýðublaðið
https://timarit.is/publication/2

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.