Alþýðublaðið - 19.02.1977, Side 4

Alþýðublaðið - 19.02.1977, Side 4
4 VIDHORF Laugardagur 19. febrúar 1977 jra? SAMBAND ISLENZKRA SAMVINNUFÉLAGA 75 ARA Benedikt Jónsson á Auönum (1846—1939) var nánasti aöstoöarmaö- ur Jakobs Hálfdánarsonar viö stofnun Kaupfélags Þingeyinga og stjórnarmaöur þess i 40 ár. Hann ritstýröi frá upphafi kaupfélags- biaöinu Ófeigi. Benedikt var öörum fremur hugmyndafræöingur samvinnustefnunnar. Sambandshúsiö f Reykjavik, f forgrunni bærinn Sölvhóll. Sambandshúsiö var byggt 1919—20, lóö fengin af Arnarhólstuni og staöarvalið viö þaö miöaö aö Sambandið heföi aösetur sem næst fyrirhugaöri járn- brautarstöö. Einnig var fengin lóö fyrir vöruskemmur, en skilað aftur þegar horfiö var frá járnbrautar- lagningu. Sambandshúsiö var sniöið vel viö vöxt og talsveröur hluti þess leigöur út fyrstu árin: þó voru þar bæöi kennslustofur og skólastjórafbúö Samvinnuskólans. SAGA MIKILLA HUGSJÓNA 0G STÓRRA ATHAFNA 20. febrúar 1902 markar timamót i menningar- sögu okkar ísiendinga. Þann dag, fyrir réttum 75 árum, var lagður grundvöllur að stofnun Sambands islenzkra samvinnufélaga. Að visu nefndist félagsskapurinn ekki SÍS i þá daga, held- ur Sambandskaupfélag Þingeyinga. Þessi félagsskapur var stofnaður að Yztafelii i Suður-Þingeyjarsýslu, og voru stofnaðilar þrír, Kaupfélag Þingeyinga, Kaupfélag Norður- Þingeyinga og Kaupfélag Svalbarðseyrar. Fyrsti formaður og fram- kvæmdastjóri Sambandsins var Pétur Jónsson á Gautlöndum, en hann hafði verið stjórnarfor- maður og kaupfélagsstjóri Kaupfélags Þingeyinga frá 1889 og allt til 1919. Kaupfélag Þing- eyinga var hins vegar stofnað 20. febrúar 1882, og má þvi, af stofndegi þessa fyrsta kaup- félags á íslandi og Sambands- ins, strax greina þau tengsl, sem haldizt hafa æ siöan milli kaupfélaganna og Sambands- ins. Deildirnar fengu ábyrgð og sjálfstæði 1 mjög ftarlegri samantekt Helga Skúla Kjartanssonar um sögu Sambandsins og kaup- félaganna, sem birtist i siöasta hefti Samvinnunnar, segir svo um Kaupfélag Þingeyinga og fyrstu starfsár þess. „Kaupfélag Þingeyinga þró- aöist ört, bæði að verkefnum og skipulagi. Það hóf sjálft aö senda afurðir til útlanda I umboössölu fyrir félagsmenn. Þaö kom upp vörubirgðum til sölu að vetrinum og hóf að verzla með ópantaöar vörur i söludeild svo aö félagsmenn mættu vera með öllu óháöir við- skiptum viö kaupmannsverzl- anir. Deildir félagsins fengu rika ábyrgð og sjálfstæði hver um sig, en jafnframt var traustlega búiö um stjórn félagsins sjálfs. Hafin var útgáfa handskrifaðs félagsmannabiaðs, ófeigs. Nokkur byrjun varð á myndun sjóða til tryggingar starfsem- inni. en meginreglan var þó sú, eins og I öðrum fslenzkum kaup- félögum, aö leggja aöeins á vör- una fyrir beinum kostnaði og hafa aö miklu leyti lánsfé i velt- unni.” Þróunin hefur tengzt stjórnmála- og efna- hagslegri þróun Slðan segir að Kaupfélag Vilhjálmur Þór (1899—1972) stjórnaði umsvifamesta kaup- félagi landsíns, KEA, 1923—38, hvarf þá að margvislegum opin- berum störfum, en var sfðar forstjóri Sambandsins f niu ár, 1946—54. Það féll i hlut Vil- hjálms að hafa forustu fyrir hin- um miklu breytingum á starfi Sambandsins að striðsiokum þegar þaö jók umsvif sin stór- kostlega og haslaöi sér völl á nýjum starfssviðum. Þingeyinga hafi orðið leiöandi félag islenzku samvinnuhreyf- ingarinnar, og það ekki sizt vegna þess, aö þar komu fram á sjénarsviðið úrvalsmenn, sem hófu samvinnustefnuna til önd- vegis með þjóðinni. Voru þar aö sjálfstöðu fremstir I flokki feðg- arnir á Gautlöndum og auk þeirra, þeir Benedikt á Auðn- um, Sigurður á Yztafelli og Jakob Hálfdánarson á Gims- stöðum. Þróun Islenzkra kaupfélaga og Sambandsins allt fram á þennan dag hefur mjög tengst átökum á sviði stjórnmála, efnahagsmála og félagsmála. A upphafsárum kaupfélaganna gekk einnig yfir landiö alda nýrrar vakningar, sjálfstæöis- baráttan, ungmennafélögin, aö ógleymdum stjórnmálaflokkun- um og þeirri baráttu sem háð var á þeim vettvangi, bæöi inn- an þings og utan. Þessa sögu þekkja allir íslendingar sem nú eru komnir til vits og ára, enda er hún grunntónninn I mörgu af þvi bezta,sem Islenzka þjóðin hefur tekið I arf frá þessum braut- -•yöjendum nútima menningar- hátta. Samband íslenzkra kaupfélaga Ariö 1895 voru á Alþingi nlu þingmenn, sem allir höföu tekiö mikinn og virkan þátt i störfum kaupfélaganna. Þessir þing- menn beittu sér fyrir stofnun Sambands islenzkra kaup- félaga. Megin tilgangur þess var aö auka tengsl kaupfélag- anna innbyröis og vinna aö fræðslustarfi um samvinnu- hreyfinguna og hugmyndafræði hennar. Kaupfélögin, sem stóðu að þessum samtökum voru: Kaupfélag Þingeyinga, Kaup- félag Skagfirðinga, Kaupfélag ísfirðinga, Kaupfélag Stokks- eyrar og Pöntunarfélag Fljóts- dalshéraðs. Samband þetta gaf út Timarit kaupfélaganna, Og flutti það margvislegan fróöleik um útlenda og innlenda sam- vinnuverzlun, ritgerðir og greinar um hreyfinguna og verzlunarumsvif á hennar veg- M /SO | Jlutabrjcf kaupfjclags Þingcyinga. •^jcrŒðUrcrð lilutabrjcfs þcssa T I ÍO l 51 t> i U í\ ui ^JL y>|\>V: ^>\Á «í ixjm\A«l ixj«^X Viicv imr: IU í «xj> \\0 ^j<lu(j\i\>\, iox. \j«UaV ^j«luij\whu'uX', oijl tiiax' " uiLjiX jS UMt' ijUXX 0(jJ Xj«Ul\u\|l»(, Xo»iWlt»it lo(jUUU»(J. „Hlutabréf” I Kaupfélagi Þingeyinga frá um 1890. „HlutaféO” var raunar aðeins inntökugjald i félagiö, notaö til aö koma upp verzlunarhúsi þess. Af þvf var enginn aröur greiddur, og atkvæöis- rétt höföu ailir félagsmenn jafnan, hvort sem þeir lögöu fram einn hlut eöa fleiri. um. Erlendur Einarsson hefur veriö forstjóri Sambandsins frá þvl f árs- byrjun 1955. Hann hefur starfaö fyrir samvinnuhreyfinguna nær óslitið frá fimmtán ára aldri. Fyrst var hann starfsmaður hjá Kaupfélagi Skaftfeliinga f Vik i Mýrdal, þar sem hann er fæddur og uppalinn. Ariö 1941 geröist hann starfsmaöur Landsbanka Islands, en þegar Samvinnutryggingar voru stofnaðar 1946 varð hann fram- kvæmdastjóri þeirra og gegndi þvf starfi þar til hann varö forstjóri Sambandsins.

x

Alþýðublaðið

Direkte link

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Alþýðublaðið
https://timarit.is/publication/2

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.