Alþýðublaðið - 04.05.1977, Page 2

Alþýðublaðið - 04.05.1977, Page 2
■2 STJÚRNMÁL/FRÉTTIR Miðvikudagur 4. maí 1977 iSSSr blaöid ’Otgefa.idi: Alþýöuflokkurinn. Reksiur: Reykjaprent hf. Ritstjóri og ábyrgöarmaður: Árni Gunnarsson. Aösetur ritstjórnar er i Síðumúla 11, simi 81866. Auglýsingadeild, Alþýöuhúsinu Hverfisgötu 10 — simi 14906. Askriftðrsimi 14900. Prentun: Blaöaprent h.f. Askriftarverö: 1100 krónur á mánuöi og 60 krónur i lausasölu. ER RÍKISSTJÓRNIN KLOFIN í AFSTÖÐUNNITIL KJARAMALANNA? Það er athyglisvert að bera saman leiðara Tím- ans og Morgunblaðsins í gærmorgun, sem báðir fjalla um yfirvinnubann Alþýðusambandsins. Tónninn í þeim er eins ólíkur og f ramast er unnt. Tíminn tekur f remur vel í þessa aðferð verka- lýðshreyf ingarinnar, en Morgunblaðið finnur á henni ýmsa annmarka. Þannig segir Tíminn til dæmis, að hátíðahöldin fyrsta maí hafi yf irleitt farið vel fram og vafa- laust styrkt aðalkröfurn- ar, sem séu hækkun lægstu launa og öruggari dýrtíðarbætur. Tilraunir til að beina athygli að öðrum málum hafi ekki tekizt. Athygli hafi vakið að verkalýðshreyf ingin haf i fyrst um sinn gripið til eftirvinnubanns í stað verkfalla. Segir Tíminn, að með þessu sé kröfun- um f ylgt eftir, en þó gef- inn aukinn tími til samn- inga, án þess að verk- fallsréttinum sé beitt. Morgunblaðið segir á hinn bóginn, að yfir- vinnubannið hafi tekið ómakið af atvinnurek- endum, sem hafi gert itrekaðar tilraunir til að lækka kostnað við yfir- vinnu. Vinnuveitendur, sem þannig sé háttað hjá, séu ekki óánægðir með þetta yf irvinnubann, sem muni spara þeim mikla fjármuni. Morgunblaðið segir, að þegar á heildina sé litið sé ekki ólíklegt, að yfirvinnubann sé vopn í hendi verkaIýðs- hreyf ingarinnar, sem að sumu leyti hitti þá með- limi hennar verst, sem sízt skyldi. Þannig virðast blöðin tvö endurspegla ummæli foringja sinna, en Al- þýðublaðið hefur bent á það, að Ölafur Jóhannes- son, viðskiptaráðherra, hefur eindregið tekið undir kröfur verkalýðs- hreyfingarinnar um 100 þúsund króna lágmarks- laun með verðlagsupp- bótum frá því í haust. Hins vegar hefur Geir Hallgrímsson, forsætis- ráðherra, talað um 4 til 6% hækkun. f þessu máli virðast forystumenn stjórnar- flokkanna ekki vera sam- mála. Alþýðublaðið vill þóekki gera þvi skóna, að Geir Hallgrimsson hafi ekki fullan hug á því að kjaradeilan verði leyst. Hann hefur hins vegar forðast að segja hug sinn allan, aðeins að það væri nauðsynlegt að hækka laun hinna lægstlaunuðu. En forsætisráðherra get- ur ekki vikið sér undan því að taka afstöðu til kröfu verkalýðs- hreyf ingarinnar um kjarabætur. Viðskipta- ráðherra hef ur raunveru- lega tekið af skarið með afstöðu sinni til kjara- málanna, a.m.k. í orði, og verður það að teljast æði óvenjulegt. Hvort sem ríkisstjórn- inni líkar það betur eða verr verður hún að móta pólitíska afstöðu til margra þeirra þátta sem nú eru til umræðu í kjara- málunum. Það myndi skapa mjög alvarlegt ástand, ef í Ijós kæmi að rikisstjórnin væri klofin í afstöðu sinni til kjara- deilunnar. Ráðherra Framsóknar hefur lýst ákveðinni afstöðu, sem mjög er í anda kröf ugerð- ar ASf. Það hafa ráðherr- ar Sjálfstæðisf lokksins hins vegar ekki gert, og það mál þarfnast skýr- inga. —AG— Leynilega atkvæða- greiðslu um járnblendj- verksmiðjuna — segja íbúar sunnan Skarðsheiðar i Almennur fundur sem haldinn var með ibúum i sveitunum sunnan Skarðsheiðar, 1. mai skorar á rikisstjórnina að hlutast til um, að fram fari almenn leyni- leg atkvæðagreiðsla meðal fólks i nágranna- sveitum fyrirhugaðrar járnblendiverksmiðju á Grundartanga, til að kanna afstöðu þess til ver ksmið junnar. Skorar fundurinn jafnframt á rikisstjórnina aö fresta afgreiöslu málsins á Alþingi þar til slik at- kvæðagreiösla hefur farið fram. Fundurinn visar i þvi efni til um- mæla iönaðarráöherra, á Alþingi 10. febrúar sl. þess efnis, að ekki verði byggöar hliðstæöar verk- smiðjur „gegn vilja heima- manna” Fundurinn telur ástæöu til aö endurskoða og endurmeta afstööu til reksturs og byggingar verk- smiöjunnar og bendir i þvi sam- bandi á eftirfarandi: Arðsemisreikninga Þjóðhags- stofnunar sem nýlega voru birtar almenningi. Breyttarog auknar kröfur Heil- brigðiseftirlits rikisins um meng- unarvarnir og umhverfisvernd. Skýrslu Heilbrigöiseftirlits rikisins um mengun frá Álverinu i Straumsvik. Þá átelur fundurinn þau vinnu- brögö aö samningar skuli hafa verið gerðir, verk boðin út og framkvæmdir hafnar viö verk- smiöjuna, áöur en Alþingi hefur tekið ákvöröun um máliö. Slik vinnubrögð eru ólýöræöisleg og ekki tii að auka viröingu Alþingis meöal kjósenda. -AB Auújí'jsenciar I AUGLÝSINGASIMI BLAÐSINS ER 14906 Höfðingleg bókagjöf til Borgarbókasafnsins — frá Sambandslýðveldinu Vestur-þýzkalandi Um þaö bil helmingur bókanna eru skáldrit, en einnig eru þarna■ bækur um bókmenntir, listir og sagnfræði, svo og ævisögur og feröabækur. Meöal höfunda má nefna Thom- as Mann, Bertholt Brecht, Max Hinn 20.aprils.l. afhenti sendi- herra Sambandslýösveldisins Þýzkalands, herra Raimund Herzt, Borgarbókasafni Reykjavikur bókagjöf frá Sam- bandslýðveldinu Þýzkalandi. Hér er um höföinglega gjöf aö ræða, eða alls 250 bækur. Frisch, Gunter Grass og Her- mann Hasse. Bækurnar veröa til útláns i aðalsafni Borgarbókasafns' Reykjavikur, Þingholtsstræti 29 A.

x

Alþýðublaðið

Direct Links

If you want to link to this newspaper/magazine, please use these links:

Link to this newspaper/magazine: Alþýðublaðið
https://timarit.is/publication/2

Link to this issue:

Link to this page:

Link to this article:

Please do not link directly to images or PDFs on Timarit.is as such URLs may change without warning. Please use the URLs provided above for linking to the website.