Alþýðublaðið - 04.05.1977, Side 3
VETTVANGUR 3
alþýdur
Maoid Miðvikudagur 4. mai 1977
Er á móti svona skæruhernaði
— segir Margrét Pétursdóttir afgreiðslukona
Hvað segir fólkið um yfirvinnubannið?
Launþegar þurfa ekki
að vænta stuðnings
ríkisvaldsins _ $egir
Magdalena Stefánsdóttir afgreiðslukona
í Leðurvöruverzlun- fram einhverjar kjara-
inni Laugaveg 58 hitt-
um við fyrir Magða-
lenu Stefánsdóttur af-
greiðslukonu. Henni
leizt vel á yfirvinnu-
bannið og taldi það eina
af fáum leiðum sem
færar væru til að knýja
bætur.
— Að minu mati ætti
Verzlunarmannafélagið að
gripa til svipaðra aðgerða, þvi
annað hvort er að standa saman
eða ekki. Hvort Verzlunar-
mannafélagið lætur til skarar
skriða skal ósagt látið, sagði
hún.
En hefur Magðalena trú á að
Magdalena Stefánsdóttir
til verkfalla komi? — Ég vona
bara i lengstu lög að ekki komi
til verkfalla, sagði hún, en ef til
Framhald á bls. 10.
Hef fulla samúð með verkalýðsfélögunum
Fylgja verður
yfirvinnubanninu
vel eftir
- segir Asta Þorleifsdóttir, afgreiðslukona
— segir Gestur Guðjónsson, kaupmaður í Dalveri
Asta Þorleifsdóttir, afgreiðslukona f Sísí
Ástu Þorleifsdóttur,
afgreiðslukona i
verzluninni Sisi,
Laugaveg 58, finnst
yfirvinnubann verka-
lýðsfélaganna góð byr j-
un, en yfirvinnubann-
inu verði að fylgja
kröftulega eftir.
— Ég held að ef Verzlunar-
mannafélagið ætlar sér að
fylgja kröfum sinum eftir sé
ekki um annað aö ræða en að
fylgja með i þessu yfirvinnu-
banni. sagði Asta. Aöspurö um
hvort hún telji aö Verzlunar-
mannafélagið muni setja á yfir-
vinnubannsagöihún. — Ég verð
aö hafa trú á minu félagi ogþess
vegna held ég að þeir hljóti að
gera það.
En hvað um stuðning frá
riiksvaldinu? — Miðað við orð
þau sem Ólafur Jóhannesson
hefur látið falla, veröum við að
hafa einhverja von um að rikis-
stjórnin komi til hjálpar i þess-
ari vinnudeilu. sagði Asta. —
Hitt er annað mál, hélt hún
áfram, að það er min skoöun að
hægt heföi verið að velja betri
tima til verkfalla en nú. Með
hliðsjón af þvi að nú eru ver-
tiðarlok og sumar framundan
með sumarleyfum starfsfólks,
tel ég að það sé ekki eins knýj-
andi fyrir atvinnurekenda að
semja við starfsfólk sitt eins og
ef valinn heföi veriö annar timi.
— Vgna þessa, er ég smeyk um!
að ef til verkfalla komi, verði
þau bæði löng og ströng.
—GEK
— Þýðir nokkuð fyrir okkur
verzlunarfólk að taka þótt I
þessu, mér finnst yfirvinnubann
ekki nógu jákvætt og er þess
vegna á móti þvf að Verzlunar-
mannafélagið lýsi yfir sliku
banni, — sagði Margrét Péturs-
dóttir, afgreiðslukona f verzlun-
inni Hagkaup, er blaðamaður
Alþýðublaðsins ræddi vð hana i
gær.
— Ég er á móti svona skæru-
hernaöi, sagði Margrét, þvi
annaðhvort er aö fara I verkföll
eða ekki, alls ekki aö vera að
fitla við svona hálfkák. Þó svo
aö þaö liggi ljóst fyrir að verzl-
unarfólk verði að fá kjarabætur
eins og aörir, verðum viö að
taka tillit til þess að taxti félags-
v_—_
ins hefur lagast mikið á undan-
förnum árum.
Við verðum ennfremur að
gæta að þvf að spenna bogann
ekki það hátt i kaupkröfum okk-
ar að allt saman hrynji.
Þegar viö erum aö fara fram
á kjarabætur veröum viö aö lita
i öll horn og meöal annars verð-
um við að hafa i huga hver kjör
atvinnurekendanna eru. Ég
sjálf efast til dæmis um það aö
kaupmenn standi betur að vigi
nú en fyrir ári siðan. Mér er
kunnugt um að sumir kaup-
menn hafa ekki getað borgaö
starfsfólki sinu kaupið og þurft
að fara i banka til aö slá vixla
fyrir þvi. Ég vil að það ríki
skilningur á sjónarmiðum at-
vinnurekendanna og mér finnst
verkalýðsfélögin æsa fólkiö of
mikið, ég kann betur við ró og
spekt. Nei, drengir minir við
getum ekki alltaf heimtað og
heimtað I svona spili dugir ekki
annað en að atvinnurekendur
komi til móts við fólkiö og fólkiö
við þá.
1 framhaldi af þessu var
Margrét spurð hvort hún sætti
sig þá við þau 4-6% almennu
kauphækkun sem atvinnurek-
endur hafa boðið i yfirstandandi
samningaviðræðum.
Nei, sliku boði á náttúrulega
ekki aö anza, þvi það er alveg út
I hött. Aö minu mati væru
20-25% nær lagi.
—GEK
Margrét Pétursdóttir, afgreiðslukona i Hagkaup. (Ab-mynd:-ATA)
— Mér finnst þetta alveg sjálf-
sagður hlutur hjá verkalýðs-
félögunum og hef ekkert við
hann að athuga, þetta er það
sem koma skal, sagði Gestur
Guðjónsson, kaupmaður i
verzluninni Dalver. er
blaðamaður Alþýðublaðs-
ins innti hann álits á yfirvinnu-
banni verkalýðsfélaganna.
Jafnframt taldi Gestur sjálf-
sagt að Verzlunarmannafélagið
gripi til sömu aðgerða og reynd-
ar hefðu þau átt að gera það
strax og sýna þannig samstöðu
og samleið sina með hinum
verkalýðsfélögunum. — Það er
ljóst að þetta verður til að
þrýsta á um samninga, en hvort
það dugir til er önnur saga. Það
hljómar ef til vill undarlega aö
ég sem kaupmaður skuli hafa
þessa afstöðu, en ég hef fulla
samúö meö kröfum verkalýðs-
félaganna. Þvi er einfaldlega
ekki hægt að neita að -kjör
launafólks eru ekki nógu góð,
sagði Gestur
Aðspurður kvaðst Gestur ekki
eiga von á löngum verkföllum,
fólki væri það almennt ljóst að
ekki ynnist mikið með of löng-
um verkföllum. Þá taldi hann
úrelt að slást of mikið um krón-
urnar, nær væri að einbeita sér
aö fá leiöréttingar á ýms-
um öðrum þáttum svo sem
skattamálum, sem þyrfti nauö-
synlega að endurskoða.
—GEK
Nei má ég þá heldur
biðja um verkfall
segir Þórður Jónsson
— Yfirvinnubannið er bara
kák, má ég þá heldur biðja um
verkfall sagði Þórður Jónsson
starfsmaöur i Hagkaup I stuttu
spjalli við blaðamann Alþýðu-
blaðsins. — Ég vona bara i
lengstu lög að ekki komi til
verkfalla, þvi ef til þeirra kem-
urannað borð, veröa þau löng, 5
vikur spái ég.
— Þess vegna held ég að
samningsaðilar ættu aö taka
ræðu Sverris Hermannssonar til
rækilegrar athugunar og reyna
nú einu sinni að semja án þess
að til vinnustöðvunar komi.
— Annars er það staðreynd
sem enginn hefur þorað að tjá
sig um hingað til að það þarf aö
skipta um stjórnir i flestum ef
ekki öllum verkalýðsfélögunum
og koma frá gömlu skörfunum.
Hvaða erindi eiga til dæmis al-
þingismenn i stjórnir einstakra
verkalýðsfélaga, mér er spum?
Nákvæmlega ekkert erindi. Á
þessu þyrfti að verða breyting
þvi i stjórnum verkalýösfélag-
anna eiga auðvitaö að sitja full-
trúar verkafólksins sjálfs.
Annað mál er þaö að verk-
smiðju- verzlunar- og verkafólk
Þórður Jónsson
almennt á aö minu mati enga
samleið meö iðnaðarmönnum
innan ASI, vegna þess hve kjör
og allar aöstæður þessara
tveggja hópa eru ólikar.
—GEK
Gestur Guöjónsson.