Alþýðublaðið - 25.06.1977, Síða 2
2 STJÓRNMAL/ FRÉTTIR
Laugardagur 25. júní 1977 jjlaífd1
— —1
alþýðu- tifgefaiitli: Alþýðuflokkurinn. Reksiur: Reykjaprent hf. Ritstjóri og ábyrgðarmaöur: Árni Gunnarsson. Aösetur ritstjórnar er I Sföumúla 11, simi 81866. Auglýsingadeild, Alþýöuhúsinu Hverfisgötu 10 — simi 14906. Áskriftarsími 14900. Prentun: Blaðaprent h.f. Askriftarverö: 1100 krónur á mánuöi og 60 krónur i lausasölu.
rTFr.rr.M
Það gagnar ekki að
skrökva að sjálfum sér
Fyrir nokkrum dögum
sagði Alþýðublaðið, að
ekki myndi líða á löngu
þar til vinnuveitendur
og ríkisstjórn byrjuðu að
kalla nýju kjarasamn-
ingana verðbólgusamn-
ingana. Og einmitt það
gerðist í AAorgunblaðinu í
gær. Þó er verkalýðs-
hreyfingunni ekki kennt
um, enda ógjörlegt.
Stjórnvöld ráða efna-
hagsstefnunni og stjórna
um leið verðbólguþróun-
inni.
Verðbólgan er sá mein-
vættur, sem flestir hugs-
andi menn eru sammála
um að útrýma verði. Hins
vegar mun það sannleik-
anum samkvæmt að
hversu mikið sem menn
bölva henni, fer því
fjarri að nærri allir vilji
hana feiga. Þeir, sem
standa í framkvæmdum
og skulda, vilja verð-
bólgu. Fram hjá þessu
þýðir ekki að horfa.
Verðbólgukynslóðin
hirðir lítt um sparifé
gamla fólksins, sem
brennur upp, — fjár-
málaspillinguna, er verð-
bógunni fylgir og gjald-
miðilinn, sem er að verða
að engu. Verðbólgan er
það, sem hún þekkir, ann-
aðekki. Til þess að ráðast
gegn draugnum þarf
skipulag og stjórn, sem
tekur ákvarðanir, þótt
þær komi illa við nokkra
þjóðfélagshópa. Og aðal-
atriðið er, að menn
skrökvi ekki að sjálfum
sér, þegar þeir segjast
vera andvígir verðbólg-
unni og vilji berjast gegn
henni. Hér gagnar ekki að
segja „haltu mér, slepptu
mér". Það er ógerlegt að
eiga kökuna og borða
hana líka.
Ríkisstjórni'ani hefur
tekizt að bæta viðskipta-
jöfnuð þjóðarinnar, en
það á hún m.a. að þakka
hækkandi verðlagi á
fiskafurðum. Nú má hún
ekki láta undan þeim
stuðningsmönnum sínum,
sem lifa á Verðbólgunni,
og vilja bólguna enn
meiri. Hún verður að
standa gegn verðhækkun-
um, beiðnir um verð-
hækkanir streyma nú til
verðlagsstjóra. Hún verð-
ur einnig að draga úr
fjárfestingu og koma í
veg fyrir fleiri Kröflu-
ævintýri.
Það verður hins vegar
að berjast með oddi og
egg gegn þeim hugmynd-
um, sem fram hafa kom-
ið að undanf örnu, einkum
hjá ungum Sjálfstæðis-
mönnum, að skera verði
niður ríkisumsvifin upp
til hópa. Jafnvel hefur
AAorgunblaðið gert því
skóna að gengið verði á
tryggingakerf ið, m.a.
með þvi að greiða ekki
daggjöld fyrir sjúklinga,
sem eru skamman tíma í
sjúkrahúsum. Slíkar hug-
myndir eru aftan úr
grárri forneskju. Verð-
bólgan verður ekki stöðv-
uð á þann hátt.
r- inn
Hvaða stefnu túlkar Morgunblaðið?
Það er makalaust f ynd-
ið að lesa og heyra hvern-
ig þingmenn Sjálfstæðis-
flokksins reyna að sverja
af sér AAorgunblaðið. Á
f undi f yrir skömmu sagði
AAatthías Bjarnason,
sjávarútvegsráðherra, að
engin tengsl væru á milli
útgáfufélags AAorgun-
blaðsins, Arvakurs h.f. og
Sjálfstæðisf lokksins.
Hann harðneitaði þvi að
túlka mætti forystugrein-
ar AAorgunblaðsins sem
stefnu alþingismanna
Sjálfstæðisf lokksins og
flokksins sem stjórn-
málaaf Is.
Það eru ákveðin klók-
indi fólgin í þessari að-
ferð. Sjálfstæðisflokkur-
inn getur leikið tveimur
skjöldum. Þingmennirn-
ir segja það, sem þeim
kemur vel i kjördæminu,
en AAorgunblaðið túlkar
aðra stefnu, er fellur í
góðan jarðveg utan kjör-
dæmisins. Síðan geta
þingmennirnir bara
skammað AAorgunblaðið
og sagt skrif þess nei-
kvæð og klaufaleg. Þetta
er þekktur stjórnmála-
leikur.
Enginn skyldi þó láta
sér detta í hug að trúa
því, að AAorgunblaðið sé
ekki málgagn Sjálf-
stæðisf lokksins. Væri í
því sambandi rétt að
endurtaka þá spurningu,
sem a'ður hefur verið
prentuð: Er það ekki
sami maðurinn Geir
Hallgrímsson, forsætis-
ráðherra og formaður
Árvakurs. Ef svo er ekki
væri rétt að AAorgunblað-
ið kynnti Árvakurs—
manninn fyrir lesendum
sínum.
—ÁG—
Tvö fá styrk úr
minningarsjóði
Þorgerðar
Eiríksdóttur
Viö skólaslit Tónlistarskólans á
Akureyri, þ. 25. mai siöastliöinn,
fór fram fyrsta styrkveiting úr
Minningarsjóöi Þorgeröar Ei-
riksdóttur. Sjóöurinn, sem er i
vörslu og umsjá Tónlistarskólans
á Akureyri, var stofnaöur eftir
fráfall Þorgeröar Eirlksdóttur
veturinn 1972, en Þorgeröur var
gædd miklum tónlistarhæfi-
leikum, og einn af duglegustu
nemendum er stundaö hafa nám
viö skólann. Markmiö sjóösins er
aö styrkja efnilega nemendur til
framhaldsnáms i tónlist aö loknu
námi viö Tónlistarskólann á
Akureyri. Sjóöurinn er ávaxtaöur
aö verulegum hluta i visitölu-
tryggöum skuldabréfum, en
tekjur hans byggjast á sölu minn-
ingarkorta I bókaverslununum
Huld og Bókval á Akureyri,
einnig á frjálsum framlögum, og
þvi sem inn kemur á tónleikum
skólans. Aö þessu sinni bárust
sjóönum 6 umsóknir, og var sjóö-
stjórn samdóma i úthlutun
tveggja styrkja til þeirra Helgu
G. Hilmarsdóttur og Haröar As-
kelssonar. Þau stunda bæöi fram-
haldsnám i orgelleik I Þýskalandi
meö ágætum og lofsamlegum
vitnisburöi. Upphæö styrkjanna
nú eru kr. 100.000 fyrir hvorn
styrkþega. Þaö er von sjóöstjórn-
ar, aö styrkveitingar þessar megi
veröa nemendum skólans hvatn-
ing I ströngu námi, og aö hægt
veröi aö veita styrki árlega en
þaö veröur háö fjármögnun og
ávöxtun sjóösins á hverjum tima.
Sjóöstjórnin vill koma á framfæri
þakklæti til þeirra fjölmörgu aö-
ila, sem styrkt hafa sjóöinn á einn
eöa annan hátt.
16 millj. kr.
hagnaður
hjá SJÓVfl
Aöalfundur SJOVÁ var haldinn
iReykjavik sunnudaginn 16. júni.
Þar flutti Siguröur Jónsson,
framkvæmdastjóri, skýrslu um
starfsemi félagsins og skýröi
reikninga fyrir slöasta starfsár.
Heildar iögjaldatekjur félags-
ins námu 1865 milljónum króna á
árinu 1976 og höföu aukist um 576
milljónir frá árinu 1975, eöa um
45%.
Heildar tjón ársins námu 1563
milljónum króna.
Afkoman var góö I öilum frum-
tryggingagreinum en verulegt
tap var á erlendum endur-
tryggingum.
Hagnaður var á heildarrekstri
félagsins, er nam 16,2 milljónum
króna.
1 árslok 1976 nam trygginga-
sjóöur félagsins, þ.e. iögjalda-
s'jóöur, bótasjóöur og áhættu-
sjóöur, 1146 milljónum króna og
haföi aukist um 384 milljónir frá
árinu áöur. — Sjóöurinn er fyrst
og fremst til aö mæta óupp-
geröum tjónum frá árinu 1976 og
fyrri árum.
Fastráönir starfsmenn á skrif-
stofum félagsins eru 62.
Stjórn félagsins skipa nú:
Sveinn Benediktsson, formaöur,
Agúst Fjeldsted, varaformaöur,
Björn Hallgrimsson, Ingvar
Vilhjálmsson og Teitur
Finnbogason.
Ritstjórn
Alþýðublaðsins
er í
Síðumúla 11
— Sími 81866