Alþýðublaðið - 25.06.1977, Blaðsíða 3
3
flter Laugardagur 25. júní 1977
Þýzki grafikmeistarinn Weber
Hinn heimskunni
grafikmeistari Andreas Paul
Weber sýnir nú á Kjarvalsstööum
160lithografiur, og mun það vera
ein stærsta sýning sem listamað-
urinn hefur haldið, en hann er
fæddur i Þýzkalandi 1893.
Weber er stórkostlegur teikn-
ari, með persónulegan stil sem
hentar mjög vel þeirri kald-
hæðnislegu þjóðfélagsgagnrýni,
sem hann beinir að samfélaginu.
Maðurinn I öllum slnum hé-
gómleik er aðalviðfangsefnið, en
meðferð listamannsins er þó
þannig, að engum dettur I hug að
hann sé að setja sig sem dómara
yfir fólki, heldur fær hann fólk til
aö lita á mannlegt hátterni I nýju
ljósi.
Weber er einn af þessum
mönnum sem lætur litið yfir sér.
Hann talar litiö , vandar tilsvör
sin, sem eru alltaf stutt og ákveð-
in. Hann hefur lifandi kimnigáfu
en hefur þó gát á þvi að brosa ekki
of breitt.
Andreas Paul Weber hefur
næmt auga fyrir persónulegum
einkennum manna, hvort heldur
eru likamleg einkenni eða ein-
kennandi hreyfingar eða fas.
Eitt af sérkennum i listastll
hann setur dýrshaus á persónur
sinar og nær meö þvi sérstæöum
sálrænum áhrifum, sem hitta svo
gersamlega I mark, að menn
standa uppi orðvana.
A striðsárunum starfaði Weber
i heimalandi sinu Þýzkalandi, og
sat hann meðal annars i fangelsi
um tima, enda beitti hann list
sinni óspart til þess aö fletta ofan
af yfirborðsmennskunni og hé-
gómanum sem einkenndi hegðun
og Hf þýzku nasistanna.
Þetta er stórkostleg sýning sem
menn ættu ekki að láta fram hjá
sér fara. Myndirnar eru gerðar á
45 ára timabili, en þýzka bóka-
safniö I Reykjavik og Félagiö
Islenzk grafik höfðu frumkvæði
um að sýningunni var komið upp.
Hún verður opin I nokkra daga.
—BJ
Eða þessa?
Eða þessa?
Eða þessa?
Eða þessa?