Alþýðublaðið - 25.06.1977, Qupperneq 12

Alþýðublaðið - 25.06.1977, Qupperneq 12
MÁL OG MENNING 40 Efnir til ritgerðarsamkeppni um skáldsögur í tilefni afmælisins Fjörutiu ár eru nil liðin siðan Bókmenntafélagið Mál og menn- ing var stofnað, en þaö var 17. júni 1937. Félagiö var stofnað að tilhlutan Félags byltingarsinn- aöra rithöfunda og Bókaútgáf- unnar Heimskringlu, með þvi markmiði að gera almenningi kleift að eignast góðar bækur á viöráðanlegu verði, stuðla að nánari tengslum milli rithöfunda og alþýöu og efla frjálsa þjóö- menningu og alþýöumenntun. Mál og menningu var strax i upphafi vel tekið, og strax fyrsta árið voru félagsmenn orðnir hátt á þriðja þúsund. t lok strlösins var féiagatalan komin i 6000. Aðaláherzla var lögð á útgáfu innlendra og erlendra fagurbók- mennta, en einnig var á fyrstu ár- unum gefin út rit um islenzka náttúrufræði, myndlist, raunvis- indi, húsageröarlist og fleira, svo eitthvað sé nefnt. Fyrstu tiu árin gaf Mál og menning út alls 30 bækur, meöal annars eftir Gorki, Stephan G. Stephansson, Sigurð Nordal, Steinbeck, Hemingway og fleiri. Náin tengsl voru á milli Máls og menningar og Heimskringlu. og tók félagiö siöar við útgáfu Heimskringlubókmennta. 1961 var tekiö I notkun húsnæöi þaö sem Mál og menning hefur aðset- ur i nú, að Laugavegi 18, þar sem einnig er ein stærsta bókaverzlun landsins. Margir helztu rithöfundar og fræðimenn siðustu fjörutiu ára hafa gefiö út bækur á vegum Máls og menningar og Heimskringlu. Má þar nefna Jóhannes úr Kötl- um, Halldór Laxness, Þórberg Þórðarson, Snorra Hjartarson, ólaf Jóhann Sigurösson, Jón Helgason, Jakobinu Sigurðar- dóttur og fleiri og fleiri, einnig hafa verið gefin út erlend úrvals- skáldverk, svo sem verk Shake- speares i þýðingu Helga Hálf- dánarsonar, svo og margar skáldsögur úrvalshöfunda viða að. Siðan 1940 hefur komiö út Timarit Máls og menningar, fyrst undir ritstjórn Kristins E. Andréssonar, en hann lét af störf- um 1971. Félagsmenn Máls og menningar, sem nú eru um 2500, fá timaritið sent, fjögur hefti á ári, um 550 blaðsiöur og auk þess 15% afslátt af öllún útgáfubókum MM og Heims- kringlu. Engin skyidukaup fylgja þvi að vera i félaginu, en heldur meiri afsláttur er veittur af félagsbókum hvers árs, en öörum útgáfubókum, félagsbækur siðastliöins árs voru fimm. Sfðastliðið ár var einnig gefin út hljómplata, á vegum dótturfyrir- tækis MM, Strengleika, Fráfærur með hljómsveitinni Þokkabót, og fá félagsmenn 15% afslátt af hljómplötum Strengleika. Ein bók hefur komið út á þessu ári hjá MM.ljóðabókin Min vegna og þin, eftir Ninu Björk Árnadótt- ur, en á afmælisárinu er ráðgert að gefa út meöal annars siöustu bindin af heildarútgáfu á verkum Þórbergs Þórðarsonar, lista- söguna Heimslist-Heimalist, i þýðingu Björns Th. Björnssonar, endurútgáfu á Vopnin kvödd eftir Ernest Hemingway I þýöingu Halidórs Laxness svo og nýja skáldsögu eftir William Heinesen i þýðingu Þorgeirs Þorgeirsson- ar. I tilefni fertugsafmælisins, efnir Mál og menning til verö- launasamkeppni um skáldsögur. Ein verölaun verða veitt fyrir beztu skáldsöguna að upphæð 500.000 krónur, svo og ritlaun sem nema 18% af útsöluveröi án sölu- skatts. Skilafrestur er til 15. mai 1978, og veröa nánari skilmálar tilgreindir i afmælishefti Máls og menningar sem væntanlegt er I júlilok. —AB Háskólahátíðin er í dag: 1 dag klukkan 13:30 verður há- skólahátið f Háskólabfói. Þar veröa kandidötum afhent próf- skírteini og lýst verður kjöri heiðursdoktora. Guðlaugur Þor- valdsson, rektor, flytur ræðu. Siðan verður lýst kjöri heiðursdoktora og afhent doktorsbréf. Forseti guöfræði- deildar, Jón Sveinbjörnsson, prófessor, lýsir kjöri Björns Magnússonar, prófessors, séra Sigurðar Pálssonar, vigslubisk- ups og dr. Valdimars J. Eylands. Forseti heimspekideildar, dr. Bjarni Guönason, prófessor, lýsir kjöri dr. Jakobs Benediktssonar, og forseti verkfræöi- og raun- vfsindadeildar, dr. Guðmundur Eggertsson, prófessor, lýsir kjöri Ingimars Oskarssonar, grasa- fræðings. Háskólakórinn syngur nokkur lög undir stjórn Jónasar Ingi- mundarsonar. Myndin er frá siðustu háskóla- hátíð. Mynd: GTK 4 þús. t. minni afli í Eyjum Heildarafli á vetrarvertiðinni i Vestmannaeyjum varð 18.318 tonn, en það er 4.115 tonnum minna en i fyrra. Skipting, aflans varð þannig, að i net fengust 10.485 tonn og i botnvörpu 6.024 tonn. A hand- færum öfluðust 114 tonn, 84 tonn á linu, togarar lönduðu 1.506 tonnum og i spærlingsvörpu fengust 105 tonn. Var allur afli af bátunum óslægður fiskur, en slægður af togurunum. Aflahæstu netabátarnir voru Þórunn Sveinsdóttir VE 401 með 684 tonn i 36 löndunum og Berg- ur VE 44 með 518 tonn i 32 lönd- unum. Dagsbrún skorar á ríkisstjórnina: Ströngustu höml- ur á verðhækkanir A fundi, sem haldinn var i Verkamannafélaginu Dagsbrún sl. fimmtudag voru nýgeröir kjarasamningar samþykktir með öllum atkvæöum gegn 14. A fundinum var einnig borin ,upp eftirfarandi ályktun sem samþykkt var einróma: „Fundur i Verkamannafélag- inu Dagsbrún, haldinn 23. júni 1977, telur að með nýgerðum kjarasamningum hafi verkalýðs- hreyfingunni tekist að snúa vörn i sókn og bæta verulega fyrir kjaraskerðingu undanfarinna ára og fagnar þvi að meginstefna samninganna felur i sér launa- jöfnuö. Fundurinn mótmælir hins vegar harðlega þeim fullyrðing- um talsmanna atvinnurekenda, að samningar þessir leiði til stór aukinnar verðbólgu. t þessu sam- bandi bendir fundurinn á, að næstu 6 mánuði verður algeng- astakaupverkafólks93til97 þús- und kr. á mánuði (3. taxti) og verður komiö 1 107 til 111 þúsund kr. I september á næsta ári þegar allar áfangahækkanir eru fram komnar. Geti efnahagskerfi þjóðarinnar ekki boriö þetta kaupgjald verkafólks, án veru- legrar verðbólgu, veröur aö taka kerfið til uppskurðar, en verka- fólkiöveröur að halda sinu. Þvi skorar fundurinn á rikisstjórn að hafa hinar ströngustu hömlur á öllum veröhækkunum og telur aö þviaöeins geti vinnufriður haldist út samningstimabilið að verð- bólgunni verði haldið I skefjum og að ekki veröi hróflaö við visitölu- ákvæðum samninganna.”_{;j;K Samið í álverínu í Straumsvík A hádegi á fimmtudag tókust samningar á milli Islenzka álfélagsins h.f. og samninga- nefndar hlutaðeigandi verkalýðsfélaga og var samningur þessi undirritaður i gær, með venjulegum fyrirvara um samþykki félags- funda. Samningur þessi er i öllum meginatriðum gerður á sama grundvelli og hinn almenni kjarasamningur og var meðal annars samið um sömu krónutöluhækkun og áfangahækkanir á lægstu laun og einnig er verðbótakerfið það sama. Samingaumleitanir hófust hinn 20. april og hafa samningafundir verið haldnir reglulega siðan, en fyrri samningur aðila gekk úr gildi þann 1. júni siðastliðinn. EK LAUGADAGUR 25. JÚNÍ 1977 u alþýðu blaðió Tekiö eftir: Að sótt er um einkaleyfi á öllum fjáran- um. Fyrirtæki i Frakklandi hefur sótt um einkaleyfi hér á landi á „aðferð og tæki til að jafna upp hin segulmögnuöu svið á sam- liggjandi röðum af þvers- um liggjandi glæði raf- greiningarkerum”. Fyrir- tæki I Bandarikjunum hef- ur sótt um einkaleyfi á „varatengingu þrýsti- stjórnstangar við vogaröx- ul”. Fyrirtæki i Englandi hefur sótt um einkaleyfi á „ætum varningi”, eins og það er orðaö. Þá hefur fyrirtæki i Bandarikjunum sótt um einkaleyfi hér á landi á regnhlifum fyrir glugga. Séö: 1 fundargerö borgar- ráðs Reykjavikur, aö eftir- taldir borgarfulltrúar skipi sendinefnd Reykjavikur til Þórshafnar i Færeyjum dagana 26.-30. júni n.k.: Birgir ísleifur Gunnarsson, Magnús L. Sveinsson, Elln Pálmadóttir, Kristján Benediktssonn og Sigurjón Pétursson. Ekki kemur fram af hvaða tilefni ferðin er farin. Tekiö eftir: Að fyrir skömmu kom upp mál vegna læknis, sem talið er, að hafi látið greiða sér hærri fjárhæðir en honum bar fyrir aðgerðir. Hafi hann framvlsað reikning- um fyrir aögeröir, sem aldrei fóru fram. Ekkert hefur heyrzt meira um þetta mál. Þótt læknastétt- in meti heiöur sinn mikils, sem fram kemur I þögn þeirra um hvers konar hluti, væri rétt að fá þetta mál á hreint. Það er ástæöulaust að margir læknar liggi undir þessu. Sama er um rannsókn á máli tannlæknis, sem nú er i rannsókn, þar eð taliö er að hann hafi skammtaö sér riflega, einum of, fyrir tannviögeröir á börnum. * Lesiö: I leiðara Hlyns, blaðs samvinnumanna: „Jafnframt ætti ekkert samvinnufélag að skipa sér i raöir samtaka atvinnu- rekenda, eins og dæmi eru um. Úrsagnir þessara félaga úr Vinnuveitenda- sambandi Islands gætu leitt til þess, að betri tengsl skapist milli samvinnu- félaganna og verkalýðs- félaganna en verið hafa um skeiö”.

x

Alþýðublaðið

Direct Links

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Alþýðublaðið
https://timarit.is/publication/2

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.