Alþýðublaðið - 16.07.1977, Page 3

Alþýðublaðið - 16.07.1977, Page 3
biaSíö' Laugardagur 16. júli 1977 Dagvistarkönnunin á Selfossi og Fáskrúðsfirði: Hugmyndin rædd á Alþingi fyrir tveimur árum — Mig minnir að könnun um dagvistar- mál hafi fyrst borið á góma á Alþingi fyrir tveimur árum, en þá svaraði núverandi menntamálaráðherra fyrirspurn frá Benedikt Gröndai varðandi dag- vistun barna og kom fram i svari ráðherra, að menntamálaráðu- neytið myndi beita sér fyrir að skipuleg könn- un yrði gerð á ástandi dagvistarmála yfir- leitt. Þetta kom fram 1 samtali viö Svandisi Skúladóttur, fulltrúa i menntamálaráöuneytinu, um dagvistarkönnun þá á Selfossi og Fáskrúðsfiröi, sem AB sagði frá i fyrradag. Nær kónnunin alls til um 500 mæðra barna yngri en 11 ára á báðum stöðun- um, en umsjón með henni hafa lektorarnir Guðný Guðbjörns- dóttir og Þorbjörn Broddason, auk Sigurbjargar Aðalsteins- dóttur, nema i félagsvisindum. Mæðurnar hafa faigið i hendur spurningalista, sem þær siðan svara og senda aftur til mennta- málaráðuneytisins. Munu þre- menningarnir siöan vinna úr svörunum og skila niðurstöðum i haust. Svandis Skúladóttir sagði, að meiningin hafi verið að gera nokkurs konar forkönnun á tveimur stööum á landinu og hafi Selfoss og Fáskrúðsfjörður orðið fyrir valinu. Aðhenni lok- inni muni spurningalistarnir verða lagfærðir, ef tilefni gefst, ogupp úr þeim unnar spurning- ar tilað nota viðhliðstæðar dag- vistarkannanir um land allt. Menntamálaráðuneytið hefur skrifað Sambandi isl. sveitafé- laga um þetta mál, og hefur sambandiö sýnt þvi mikinn áhuga. Er forkönnunin gerð i samráði við samtök sveitar- stjórnamanna. —ARH. Ráðstefha sam vinnuskólanna í seinustu viku júni- mánaðar sótti Haukur Ingibergsson, skóla- stjóri samvinnuskólans að Bifröst, ráðstefnu samvinnskóla i Vestur- Evrópu i Vinarborg. Aðalmálið á þinginu var skipulagning stuttra námskeiða fyrir starfs- fólk samvinnuhreyf- ingarinnar en aðalverk- efni allra samvinnu- skóla i V-Evrópu að frá- töldum hinum isl. er ein- mitt framkvæmd slikra námskeiða. 1 frétt frá Samvinnu- skólanum segir, að mik- ilvægt sé fyrir hann að vera aðili að þessu sam- starfi og geta á þann hátt notið reynslu ann- arra þjóða i þessu efni, auk þess sem skólinn eigi kost á þvi að fá kennsluefni frá hinum skólunum. Þá er Samvinnuskól- inn orðinn aðili að ŒMAS stofnun, sem rekin er af alþjóðasam- vinnusamvinnusam- bandinu og sér um að dreifa námsgögnum til samvinnuskóla um viða veröld. „UPPBOÐ ALD- ARINNAR” — haldið að Kletti í A-Barðastrandrsýslu — Ástæðan fyrir þessu uppboði er auð- vitað sú að ég er kom- inn á efri ár, orðinn 76 ára gamall, og ætla að bregða búi og flytja, trúlega til Reykja- vikur. En aldrei hélt ég uppboð i hreppstjóratið minni hér, sem voru eins fjölmenn og það sem haldið var hér i gær, sagði Magnús Ingimarsson, bóndi og hreppstjóri að Kletti i Austur-Barðastranda- sýslu i samtali við AB i gær. Á miðvikudaginn fór fram heljar mikiö uppboð að Kletti á „alls konar búsmunum, utan húss og innan, vélumog áhöldum”, og annaðist það Jó- hannes Arnason sýslumaður á Patreksfirði, „einhver ákveðn- asti og röskasti uppboðshaldari sem ég hefi séö”, sagði Magnús bóndi við AB. Mikill mannfjöldi sótti upp- boðið enda ekki á hverjum degi sem menn fá tækifæri til að fylgjast með gamalgrónum sið á borö við uppboð Voru 2-300 manns að Kletti á miðviku- daginn og að sögn voru gestir þolinmóðir, þrátt fyrir að upp- boðið stæði langt fram á kvöld, og fylgdust lang flestir með frá upphafitil enda. Uppboðsnúmer voru 348 og hófst uppboð kl. 14 og lauk ekki fyrr en kl. 24 á mið- nætti. Seldist hver einasti hlutur og var verð þeirra á bilinu 100 kr. til 920 þús. krónur (dráttar- véi). Uppboðsgestir, sem voru komnir vlða að: úr Isafjarðar- sýslum, Barðastrandarsýslum, Dalasýslu, Strandasýslu og Reykjavik, nutu rausnarlegra veitinga að Kletti og þótti mönnum dagurinn i alla staði sérstök upplifun. Gaf hrepp- stjórieinn á staðnum uppboðinu nafniö „uppboð aldarinnar”. — Það er búið að selja þrjár jarðir hér i sveitinni i vor, sagði Magnús Ingimarsson að lokum, en enn sem komið er, er jörðin að Kletti enn óseld. Þú getur komið þvi áleiðis að okkur vant- ar virkilegt áhuga fólk til að kaupa þessa jörð! —ARH 9 ár frá innrás herja Varsjárbandalagsins í Tékkóslóvakíu Hafinn undirbúningur að aðgerðum 21. ágúst 1 dag, laugardag, kl. 14 verður haldinn stofnfundur „21. ágúst- nefndar” I félagssal prentara að Hverfis- götu 21 i Reykjavik. Verksvið nefndarinnar verður að skipuleggja aðgerðir 21. ágúst n.k., en þá eru liðin 9 ár frá innrás herjar Varsjár- bandalagsins i Tékkó- slóvakiu. Undanfarnar vikur hefur hópur fólks úr mörgum stjórn- málahreyfingum og ut- an þeirra starfað að undirbúningi fundarins og er stofnfundur nefndarinnar boðaður undir kjörorðunum: Herir Sovétrikjanna burt úr Tekkóslóvakiu! — Samstaða með baráttu al- þýðunnar i Tekkóslóvakiu! — Barátta gegn allri heims- valdastcfnu— gegn báðum risa- veldunum, Sovétrikjunum og Bandarikjunum! 1 frétt um stofnfundinn i dag segir, að barátta Tékka og Sló- vaka gegn innrásarliði Sovét- rikjanna og kúguninni hafi veriö hörð. „Samstaða okkar með baráttu þeirra er afar mikilvæg og ennfremur virk barátta okk- ar gegn allri heimsvaldastefnu. Barátta alþýðunnar i Tekkósló- vakiu beinist gegn báöum risum heimsvaldastefnunnar, hún berst gegn sovézku heimsvalda- stefnunni um leið og hún visar allri svo kallaöri „aöstoð” aö vestan á bug. Aðeins barátta hennar sjálfrar getur frelsaö landið. Barátta tékkneskrar al- þýðu er dæmi um það hvemig allri heimsvaldastefnu og báð baráttan gegn hernámi risa- um risaveldunum — Bandarikj veldis er i raun barátta gegn unum og Sovétrikjunum" ARl

x

Alþýðublaðið

Direct Links

If you want to link to this newspaper/magazine, please use these links:

Link to this newspaper/magazine: Alþýðublaðið
https://timarit.is/publication/2

Link to this issue:

Link to this page:

Link to this article:

Please do not link directly to images or PDFs on Timarit.is as such URLs may change without warning. Please use the URLs provided above for linking to the website.