Alþýðublaðið - 27.07.1977, Blaðsíða 7

Alþýðublaðið - 27.07.1977, Blaðsíða 7
Þegar ég heyrði tilkynnt um lát Pálinu Þorfinnsdóttur, komu upp minningar frá fyrstu Alþýöusambandsþingum, er ég átti sæti á, um og eftir 1950. Konur á „islenzkum búningi” voru þar ekki margar, þvi meira voru þær fáu, er „búning- inn” báru áberandi og eftir- tektarverðari fyrir ungan mann, sem var i fyrsta sinn að taka þar sæti. Ég þekkti persónulega allar þessar konur, en þar gat að lita á hópi fulltrúa Verkakvenna- félagsins Framsóknar i Reykja- vik. Félagið þeirra sem heild, hafði þá um nokkurt skeiö, orðið bitbein i þvi ölduróti stjórn- mála, er þá gekk eins og rauður logi um verkalýðshreyfinguna. 1 þessum fulltrúahópi, sat svipmikil kona, sem við athug- un hafði góðlátt kimnisbros, sem breiddist fljótt yfir andlitið allt, ef henni var réttur miði, með góðri ferskeytlu, eða hvisl- að i eyra henni einhverju ámóta. — Þessi kona, svipur hennar og fas allt, hlaut að vekja athygli, — þar var Pálina Þorfinnsdóttir, en hún lézt að Landakotsspitala 19. júli s.l. eftir aðeins þriggja daga legu þar. Eins og um flest aldamóta- fólk, þá lifði Pálina það félags- lega umrót sem átti sér stað á fyrstu áratugum aldarinnar. 1 þvi efni dugði Pálinu ekki hlut- verk áhorfandans, hún var þar i raun og sannleika virkur þátt- takandi, sem siðar mun að vik- ið. Pálina var fædd að Hurðar- baki i Kjós 18. april 1890 og var þvi 87 ára er hún lézt. Arið 1917 giftist hún eftirlifandi eigin- manni sinum, Magnúsi Péturs- syni frá Miðdal i Kjós, þau höfðu kynnst i kaupavinnu að Eyri i sömu sveit. Magnús starfaði siðan hér i borg hjá Efnalaug Reykjavikur frá upphafi hennar i yfir 60 ár. Tvö börn eignuðust þau Magnús og Pálina, þ.e. Sigurodd rafvirkjameistara og Petrinu, áður hafði Pálina eign- ast tvær dætur, Ctlfhildi og Sól- veigu. Ekki söfnuðu þau Pálina og Magnús veraldarauöi, en þvi meiri gæfu i barnaláni sinu og alls hins stóra hóps barnabarna og tengdabarna, sem dyggilega og af trúmennsku hafa fylgt for- dæmi þeirra i fórnfúsu starfi fyrir hugðarefni sin og hugsjón- ir. Þess er nú oft getið með réttu, að i dag tiökist ekki leng- ur, að fólk fórni tima frá vinnu eða tómstundiöju til starfa i þágu hugsjóna, sem verða eiga öðrum til góðs, — betra og_ bjartara lifs öðrum til handa. — 011 slik störf skulu i dag — af of mörgum — greiðast i beinhörð- um peningum. Samtiöafólk Pálinu og Magnúsar leit þessi störf öpnum augum. — í þeirra augum var það lifsfylling að beita kröftum sinum launalaust i þágu ann- arra. Félagsleg afskipti Pálinu lágu viða. Aratugum saman sat hún i stjórn Kvenfélags Alþýðu- flokksins i Reykjavik, i vara- stjórn Verkakvennafélagsins Framsóknar og fulltrúi þess á fjölmörgum Alþýðusambands- þingum. Þeir sem setjast nú i þægileg sæti Frikirkjunnar við guðs- þjónustur i Reykjavik mættu gjarnan minnast Pálinu og niðja hennar, þau eru ótalin sætin, sem þar eru komin fyrir hennar tilstuðlan — i Kvenfélagi Frikirkjusafnaöarins vann hún ósleitilega og þótt mörgum kunni að finnast einkennilegt, einnig i Kvenfélagi Hallgrims- kirkju og átti meö starfi sinu þar, ómæld spor til fjársöfnunar fyrir byggingu hinnar veglegu Hallgrimskrikju. — Með starfi sinu þar taldi Pálina sig vera að greiða skuld sina viö minning- una um séra Hallgrim Péturs- son, en sálmum hans unni hún af alhug. Er þá hennar mikla starf 1 flokksins. Á því timabili og reyndar siðar kom ég oft á Urð- arstig 10. Mér þótti gaman að tala við Pálinu, ekki aöeins um félags- og flokksstörf heldur ýmislegt fleira. Hún var oft orð- heppin og gamansöm. Ljóð og snjallar visur kunni hún vel að meta, enda hagmælt sjálf. Margar islenzkar stemmur voru henni liðtækar og fór hún laglega meö þær. Að leiðarlokum færi ég frú Pálinu þakkir fyrir margar og góðar samverustundir. Ég þakka hreinskilni hennar og tryggð við þann málstað, sem við áttum báðar sameiginlegan. Soffia Ingvarsdóttir. Kveðja frá Kvenfélagi Alþýðuflokksins í Reykjavík Hinn 19. júli þ.m. lézt eftir skamma legu á Landakotsspit- ala frú Pálina Þorfinnsdóttir, Urðarstig 10 hér i borg. Pálina fæddist 18. april áriö 1890, að Huröarbaki I Kjós. For- eldrar hennar voru hjónin Þor- finnur Jónsson, bóndi þar og kona hans Sigriður Pálsdóttir. Hún giftist eftirlifandi eig- inmanni sinum, Magnúsi Pét- urssyni, iðnverkamanni áriö 1917 og bjuggu þau fyrstu bú- skaparár sin að Hverfisgötu 60, en fluttu árið 1922 aö Urðarstíg 10 og áttu þar heima siðan. Pálina og Magnús eignuðust tvö börn, Sigurodd, rafvirkja- meistara, kvæntan Fanneyju Long, kjólameistara, Brekku- geröi 10, Reykjavik og Petrinu gifta Boga Guðmundssyni, verkstjóra, Melhaga 15, Reykjavik. Aður hafði Pálina eignast tvær dætur, þær Úlfhildi og Sólveigu, 1 sambýli með Þor- finni Júliussyni, verkamanni, en hann er látinn fyrir mörgum árum. Pálina var ötul félagsmála- kona. Hún var ein af stofnend- um Kvenfélags Hallgrimskirkju og ein af „postulum kirkjunn- ar’ ’. Einnig sat hún f fjölda ára 1 Safnaöarstjórn Frikirkjusafn- aðarins i Reykjavik. 1 Kvæða- mannafélaginu Iðunn var hún virkur félagi, enda hagmælt og söngvin vel og hafði mikið yndi af kveðskap. Má í þvi sambandi geta þess, að algengt var að þau hjón, Pálina og Magnús, kvæðu rimur sérog sinum til gamans á hátfðis- og tyllidögum. 1 Verka- kvennafélaginu Framsókn starfaðihún einnig ötullega, átti sæti i varastjórn þess félags i tugi ára og var fulltrúi þess á mörgum þingum Alþýðusam- bands Islands. Hún fylkti sér einnig snemma undir merki jafnaðarstefnunnar og var ein af stofnendum Kven- félags Alþýðuflokksins i Reykjavik, þar sem leiðir okkar lágu saman. Fyrir það félag starfaði hún vel og dyggilega, átti sæti i Fulltrúaráði alþýðu- flokksfélaganna i Reykjavik ár- um saman, og sat auk þess mörg flokksþing Alþýðuflokks- ins. Pálina var sómakær kona af gamla skólanum, sem i engu mátti vamm sitt vita og fylgdi áhuga sinum eftir af festu og einurð, án þess þó að beita nokkru sinni ofriki eða yfir- gangi. Slikar konur eru lyfti- stöng hverju þvi félagi, sem þær leggja liö sitt, og er þvi skarð fyrir skildi þar sem Pálina heit- in var. Fyrir hönd Kvenfélags Al- þýöuflokksins i Reyk javi, fly t ég Pálinu hinztu kveðju og þakkir fyrir góð kynni og örugga liö- veizlu, og biö henni blessunar i nýjum heimkynnum. Eftirlif- andi ættingjum færiég innilegar samúðarkveðjur. Kristin Guömundsdóttir Miðvikudagur 27. júlí 1977. þágu Kvæðamannafélagsins Iðunn enn ótaliö, en forysta hennar þar, ekki sizt i feröalög- um félagsins, telja þeir er gerst til þekkja ómetanlega og óborg- andi. Þessi minnisatriði um lif og starf hinnar óbreyttu alþýðu- konu, sem Pálina var, seg- ir raunar allt um hennar innri mann. Réttlætiskennd hennar fékk útrás i afskiptum hennar af félagsstörfum verkafólksins og stjórnmálaafstöðu, sem hún, þrátt fyrir kröpp kjör, fór aldrei dult með. — Safnaöar- störfin fullnægðu kristinni trú- arþörf hennar og störfin i Kvæðamannafélaginu Iðunn, spegluðu ást hennar og virðingu fyrir islenzku máli og ljóðum. Pálina tók sér gjarnan góðan tima til að vega og meta allar aöstæður, áður en hún tók ákvörðun. Eftir ákvarðanatöku hennar og þegar til sjálfra framkvæmdanna kom, skyldi enginn reyna að stöðva hana, eða draga úr ferðini. Skýrt var skilið milli dægurmála og þess, sem lengi átti að standa. Nú við þessi kaflaskipti i starfi Pálinu færi ég efitriifandi eiginmanni hennar, sem nú, slitinn af kröftum, horfir ekki einungis á eftir eiginkonu, held- ur sönnum samherja yfir landa- mærin, innilegustu samúðar- kveðjur. Börnum Pálinu og öllum niðj- um hennar á ég þessum tima- mótum þá ósk bezta, aö þau megi sem dyggilegast feta i fót- spor hennar og leggjast þar á árina, sem þörfin er mest, svo nálægt réttlæti og raunverulegri þjóöerniskennd, sem i mann- legu valdi stendur. Persónulega þakka ég fyrir ómetanlega samfylgd við Pálinu og allt það sem hún kenndi mér. Eggert G. Þorsteinsson. Pálina Þorfinnsdóttir var glæsileg kona og svipmikil. Þegar hún kom á mannamót eða gekk i fundarsal, hlaut mönnum að verða starsýnt á hana. Umhverfið stækkaði. En þannig var hún ekki aðeins aö ytri sýn. Innri maður hennar var stór. Það sópaöi ekki aðeins að henni á velli. Léti hún mál- efni til sin taka, varð hið sama uppi á teningnum. Sterkur vilji stóð þá að baki þvi, sem var sagt og gert. Það var hlustaö á orð hennar. Og gjarnan vildu menn gera eins og hún vildi. Ég minnist Pálinu Þorfinns- dóttur frá þvi að ég hóf störf i Alþýðuflokknum. Mér fór eins og mörgum fleirum, að fyrst veitti ég henni athygli sökum svipmikils yfirbragðs. Hver komst hjá þvi að veita henni at- hygli i fallegum islenzkum bún- ingnum? En nánari kynni sýndu mér óvenju heilsteypta konu sem hafði skoðanir á öllu, sem máli skipti, ekki aðeins á mál- efnum, heldur einnig á mönn- um. Jafnaðarstefnan og Al- þýðuflokkurinn var henni ekki umhugsunarefniað þvi leyti, að hún velti þvi fyrir sér, hvort málstaðurinn væri réttur eða rangur. Hún var jafnaðarmaöur i eðli sinu. Henni voru markmið jafnaöarstefnunnar i blóð borin. 1 þvi sambandi komst ekkert annað aö en það, meö hvaða hætti mætti stuðla aö fram- kvæmd þeirra. Margir eiga Pálinu Þorfinns- dóttur þakkiraö gjalda, ekki að- eins samstarfsmenn hennar i Alþýðuflokknum um áratugi, heldur fjölmargir aðrir, sem hún hefur átt samskipti við og öll góð. Allir, sem kynntust henni, munu minnast hennar sem mikilhæfrar konu, hrein- lyndrar, fastrar fyrir, en jafn- framt trygglyndrar og góðvilj- aðar. Hún var og veröur góð fyrirmynd góöra jafnaöar- manna og góðs fólks. GylfiÞ.Gíslason. Frú Pálina Þorfinnsdóttir andaðist 19. þessa mánaðar. Eftiráratuga langa samvinnu okkar i Alþýðuflokknum vil ég ekki láta hjá liða að rita fáein þakkar- og kveðjuorð. FrúPálina vargreind kona og storbrotin og gleymis þvi ekki samferðamönnum sinum. Hún var alls ófeimin að láta skoðanir sinar i ljós, er henni bauð svo við að horfa. En tryggð hennar við þann málstaö sem hún hafði gert aö sinum brást aldrei. Þeg- ar á reyridi var hú eins og klett- ur er stendur af sér bárur og boðaföll. Pálina Þorfinnsdóttir var aldamótabarn og þekkti i bernsku sinni lifskjör hinna fá- tækari. Henni brást hvergi dóm- greind tilaðbera samankjöral- þýðunnar þá og aftur siðar, er áhrifa Aiþýðuflokksins fór að gæta I félags- og verkalýðsmál- um. 1 mörg ár sátum viö saman I stjórn Kvenfélags Alþýðu- MINNING PÁLÍNA F. 18. APRÍL 1890 ÞORFINNSDÓTTIR D. 19. JÚLÍ1977 _______________________y

x

Alþýðublaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Alþýðublaðið
https://timarit.is/publication/2

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.