Alþýðublaðið - 30.07.1977, Page 3

Alþýðublaðið - 30.07.1977, Page 3
bia&ið1' Lau9arda9ur 30. júlí 1977. 3 TAKA ÞÁTT í UÓÐASÖNGKEPPNI í BRETLANDI í SEPTEIHBER — halda tónleika í Norræna húsinu á þriðjudag Simon Vaughan Næsta þriðjudag klukkan 9, halda Sigriður E. Magnús- dóttir, Simon Vaughan og Jónas Ingimundarson tónleika i Norræna húsinu. Á efnisskrá eru söngljóð eftir Schubert, Brahms og Hugo Wolf. Þau Sigriður og Simon eru fljótlega á förum til Englands þar sem þau munu taka þátt í ljóðasöngskeppni í september. Voru þau valin ásamt fjörutiu öörum, til þátttöku i keppninni, en mikill fjöldi fólks sótti um alls staðar að úr heiminum. Jónas Ingimundarson og Sig- riður Ella stunduðu nám i Vinarborg, en hafa undanfarin ár ferðast um og haldið tón- leika, og eru tónleikarnir á þriðjudaginn 35. tónleikar þeirra. Sigriður Ella Simon Vaughan starfar i London og hefur hann á þessu ári hlotið mikið lof blaðagagn- rýnenda i Bretlandi fyrir túlkun sina á þremur aðalhlutverkum i óperum, þar á meðal, Papegeno i Töfraflautunni og Adolfo i Alfon og Estrellu. Simon vann fyrir nokkrum árum minn- inga r verðla un Richards Tauber. —AB 5% skyldusparnaður Skírteini fyrir 1975 innleys- anleg í febrúar Arið 1975 voru sett lög um skyldusparnað hér á landi, sem kváöu á um að af tekjum manna yfir ákveðnu hámarki skyldi rikiö taka i sina vörzlu 5%. "'Þessir peningar áttu svo að veröa innleysanlegirhinn 1. febrúar árið 1978. Þau tekju- mörk sem miðað var við voru Í275 þúsund hjá einstakling- um, en krónur 1595 hjá sam- býlisfólki eða hjónum. Þaö sem fór yfir þessi tekjumörk féll undir lögin um 5% spari- skylduna. Þá var I lögunum ákvæði þess efnis aö fyrir hvert barn á framfæri fram- teljandi skyldi tekjumarkið hækka um 96 þúsund krónur. Skyldusparnaður þessi var verðtryggður. Það sem inn kom i skyldu- sparnað þennan fyrir árið 1975 voru um þaö bil 238 milljónir króna.ímeö leiöréttingum vegna skattabreytingaj. Ariö 1976 voru lög þessi endurnýjuö og þá komu i kass- ann samtals rúmlega 337 mill- jónir króna (með leiðréttingu vegna skattabreytinga) 1 viötali sem blaðið átti við Arna Kolbeinsson hjá fjár- málaráðuneytinu kom fram að i fyrra heföu verið gefin út skirteini fyrir það, sem tekið var i umræddan skyldu- sparnaö 1975. Arni sagði að stór hluti þessara skirteina lægju enn inni. Fólk hefði ekki hirt um að nálgast þau þrátt fyrir itrekaðar auglýsingar. Það kæmi hins vegar ekki aö sök og breytti litlu fyrir við- komandi. Nú er um þaö bil að ljúka frágangi á skirteinum fyriráriö 1976 og að sögn Arna er von á þeim til afgreiðslu i endaöan ágústmánuö. Sem fyrr segir eru skirteinin fyrir árið 1975 innleysanleg 1. febrúar næstkomandi og er þar sem fyrr segir um að ræöa fjárhæð aö upphæö rúmlega 238 milljónir króna sem nú er Framhald á bls. io. Nýtt lágmarksverð á fiskbeinum og slógi Yfirnefnd Verðlags- ráðs sjávarútvegsins hefur ákveðið eftir- farandi lágmarksverð á fiskbeinum, fiskslógi og heilum fiski til mjöl- vinnslufrá 1. júli til 31. desember 1977. a) Þegar selt er frá fiskvinnslu- stöðvum til fiskimjölsverk- smiðja: Fiskbein og heill fiskur, sem ekki er sérstaklega verðlagður, hvertkg.............. kr. 7.30 Steinbitsbein og heill steinbiturhvertkg....... 4.75 Karfabein og heill karfi, hvertkg.......... 10.1 Fiskslóg.hvertkg........ 3.30 b) Þegar heill fiskur er seldur beint frá fiskiskipum til fiski- mjölsverksmiðja: Fiskur, sem ekki er sérstaklega verölagður, hvertkg. .. kr.6.65 Karfi,hvertkg ............ 9.20 Steinbftur, hvertkg....... 4.30 Verðið er miðað við, að selj- endur skili framangreindu hrá- efni i verksmiðjuþró. Karfabeinum skal haldið aðskildum. Verðiö er uppsegjanlegt frá og með 15. ágúst og siðan með viku fyrirvara. Veröið var ákveðið af odda- manni og fulltrúum seljenda gegn atkvæðum fulltrúa kaupenda i nefndinni. 1 nefndinni áttu sæti: Ólafur Daviðsson, sem var oddamaöur nefndarinnar, Helgi Þórarins- son og Ingimar Einarsson af hálfu seljenda og Jónas Jónsson og Jón Reynir Magnússon af hálfu kaupenda. Esso-nesti — Borgarnesi Feréamenn! Kaupfélag Borgfirðinga rekur Esso-nesti i Borg- arnesi: Heitir smáréttir, mjólk, brauð, álegg, gosdrykk- ir, sælgæti o.fl. Ennfremur hjólbarðaþjónusta og smurstöð. Veitingahús að Vegamótum Snæfellsnesi: Heimabakað brauð, kökur, gosdrykkir, sælgæti. Bensin, oliur og gasáfyllingar. Veiðileyfi i Hraunsfjarðarvatni, Selvallavatni og Baulárvalla vatni. Verzlanir: Hellissandi, Ólafsvík og Akranesi kaupfélag Borgfirðinga B0RGARNESI

x

Alþýðublaðið

Direct Links

If you want to link to this newspaper/magazine, please use these links:

Link to this newspaper/magazine: Alþýðublaðið
https://timarit.is/publication/2

Link to this issue:

Link to this page:

Link to this article:

Please do not link directly to images or PDFs on Timarit.is as such URLs may change without warning. Please use the URLs provided above for linking to the website.