Alþýðublaðið - 06.08.1977, Blaðsíða 3

Alþýðublaðið - 06.08.1977, Blaðsíða 3
3. asr Laugardagur 6. ágúst 1977 Þóra Guðrún og Sigríður Dóra: Við vildum öll vera lengur Þær Þóra Guðrún Eylands og Sigrlður Dóra Magnúsdóttir voru meðal sex ungmenna, sem dvöldust i þrjár vikur f Kanada i skiptum fyrir sama fjölda kanadiskra jafnaldra sem bjuggu á Islandi á sama tfma. Þær bjuggu báðar á heimili Donalds og Herdisar Björnsson i Gimli, utan hvað þær eyddu fimm dögum i Calgary og tveim i Winnipeg. — Donald og Herdis eru bæði islenzk og tala islenzku, sögðu þær stöllurnar, — og i staðinn fyrir okkur fór systkinasonur þeirra heim til lslands og dvald- ist á heimili Sigriðar Dóru. Við vorum eiginlega með hálfgert samvizkubit yfir að vera tvær á heimilihans, en Herdissagði að viö þyrftum ekki að hafa áhyggjur af þvi, við borðuöum ekkert meira en hann einn. Tima sinum vestra eyddu þær Sigriður og Þóra að mestu i feröalög. — Við fórum til Lundar, Calgary i Klettaf jöllun- um, skoðuðum Heritage-gerð- inn i Banff, en hann er nokkurs konar byggöasafn, fórum til Whitefalls og með River Rouge bát um Winnipegvatn. — Hvaö gerðuð þið á lslend- ingadaginn? — tslendingadagurinn var reyndar þrir dagar, laugardag- urinn 30, jUll, sunnudagurinn og mánudagurinn. Þá gengum við um og hittum fólk, fórum á böll á kvöldin og skemmtum okkur konunglega. Annars var ferðin öll ofsalega skemmtileg, en hins vegar var veöriö ekki nógu gott, Alltaf skýjað, enda höföum viö engan littekiö, eins og þú sérö. Aö visu hefðum viö varla tekið lit hvort eð var, þvi við sátum i 40 klukkustundir í bil á 5 dögum, auk alls þess sem viö fórum um I einkabilum. En öll vildum við krakkarnir vera lengur þarna, þvi allir vildu allt fyrir mann gera og tóku vel á móti okkur hvar sem við komum. Eina sem olli erfiöleikum var að pakka niður fyrir heimferð- ina. Við keyptum svo mikið. —hm. afgreiðslufólkið heyrði okkur tala saman, þá skipti þaö yfir i islenzkuna. Og einu sinni þegar við komum á benzinstöð og vorum búin aö biðja um fullan tank á ensku, þá þurfti afgreiðslumaðurinn að sinna einhverju öðru og spurði: „Geturðu ekki bara fyllt sjálf- ur?” á hreinni islenzku.” Þau Ingibjörg og Helgi voru vestanhafs á eigin vegum, en ekki i hópferö, og sögðust sann- færð um að þessar þrjár vikur i Kanada yrði þeim ógleyman- legur. „Yndislegur timi.” ~íiin. Ingibjörg og Helgi: Vaxandi áhugi á íslenzkri tungu IngibjörgStephensen og Helgi Hjálmarsson létu mjög vel af dvöl sinnii Kanada. „Viö dvöld- umst aðallega á Heklu-eyju hjá séraBraga Friðrikssyni, sem er þar prestur I sumar. Svo vorum við if jóradaga ICalgaryog viku i Vancouver. Veðrið alveg dýr- legt, nema hvað tvo siöustu dagana var skýjað og litilshátt- ar rigning. Þaö sem vakti einna mesta athygli hjá okkur var hve mikill áhugi virðist vera að vakna aftur á islenzkri tungu þar vestra. Fyrir nokkrum árum varð töluverö lægð i þvi máli, hvað yngstu kynslóöina snerti, en nú virðist áhuginn vera að aukast aftur. Þetta er að visu þeim annmörkum háö hjá unga fólkinu, að þaö verður aö læra málið i skólum og þá á það i talsveröum erfiöleikum meö málfræðina, hún er svo gjör- ólik ogviðameiri en i enskunni. Það kom iðulega fyrir þegar við fórum i verzlanir, aö þegar Þorsteinn Matthíasson: Viðtökurnar afburðagóðar Ég þarf sannarlega ekki aö kvarta undan móttökunum, sagöi Þorsteinn Matthiasson kennari. — Viðtökurnar i Vesturheimi voru afburðagóöar og hvað mig snertir hafa þau hjónin Lára og Joe Tergesen reynzt mér afburðavel og heimili þeirra verið mitt annað heimili siðan árið 1972. — 011 fararstjórn var af- burðagóð. Þau GIsli og Nanna skipulögöu alla hluti þannig að til prýðis var og allt stóðst. Og við vorum engin snikjudýr. Þaö var gengið út frá þvi sem vlsu að við vissum hvar við værum, hvar við ættum að búa og séð fyrir öllu fyrirfram. Þaö er svona fólk sem á að sjá um ferö- ir. Það er nefnilega ekki ákaf- lega heppilegt, að hópar séu sendir vestur um haf án þess að búið sé aö tryggja þeim aðsetur, einsog komið hefur fyrir I sum- ar. tslendingar eiga nefnilega að hafa fjárráð til að búa á hótelum. Það er ekki hægt aö lcggja heilu byggðarlögin undir ferðamenn frá Islandi. Ég get nefnilega sagt þér það, að íslendingar i Kanada móðg- Framhald á bls. 10 Mynd: —ATA Verst að þurfa að koma upp og velja sér verðlaunagrip, segir nýbakaður Norðurlandameistari í skák Guðlaug Þorsteinsdóttir Guðlaug Þorsteins- dóttir heitir ung skák- kona i Kópavogi, sem nýverið kom heim frá Flnnlandi, með titilinn Norðurlandameistari kvenna i skák 1977. Hún sigraði, sem kunnugt er i kvennaflokki á Norðurlandamótinu i skák, með 81/2 vinning af 9 mögulegum. — Auðvitaö er ég ánægð meö árangurinn, sagði Guðlaug 1 viötali viö Alþýðublaöið i gær. Þaö er eiginlega engin sérstök tilfinningað vera orðin þetta, ég var nú Norðurlandameistari fyrst fyrirtveimur árum, þegar ég var 14 ára. Ef við snúum okkur fyrst að mótinu, sem þú varst að koma heim af. Hvernig var skipulagið og aðbúnaðurinn? — Eiginlega ekki nógu góður finnst mér. Helzt var þaö þegar við vorum að taka á móti verð- laununum. Þá vorum við látin koma upp og velja okkur þá gripi sem viö vildum, og búiö var að raöa á borð. Venjulega er það þannig aö manni eru afhent verðlaunin, en það var ekki þarna. Þetta var reyndar bara svona I kvennaflokknum. Fyrstu sex i karlaflokkunum fengu peningaverðlaun og ein- hvern grip, og hinir völdu sér hluti. 1 kvennaflokkunum voru engin peningaverðlaun. Finnst þér ekkert óeðlilegt að skipta þessu niður I kvenna og karlaflokka? — Ég myndi alveg eins vilja tefla við karlmennina þaö yrði góö æfing. Og maöur getur reyndar alveg fengið • þaö ef maður vill. Það er hægt að kjósa I hvaða flokki maöur teflir, en það er ekki algengt að kvenfólk- ið tefli I karlaflokkunum. Hver var erfiðasti and- stæðingurinn á mótinu? — Ætli það hafi ekki veriö Pia Cramling frá Sviþjóð. Hún tap- aði siöustu skákinni og lenti i þriöja sætinu. Hver kostaði ferðina til Finnlands núna? — Ég fékk styrk. Kópavogs- kaupstaöur styrkti mig aö ein- hverju leyti, og þaö var frekar litill kostnaður fyrir mig sjálfa i þessari ferð. Eiginlega ekkert nema gjaldeyririnn. Hvernig æfðirðu þig fyrir mótiö? — Égæföi mig mjög Utið. Las einhverjar bækur og blöð. Ég les yfirleitt ekki mjög mikiö og erekki dugieg að æfa mig, enda kann ég ósköp lltið að tefla. Er mikill skákáhugi i fjölskyldunni? — Nei, ekkert sérstaklega. Pabbi teflir og tvö systkini min, annars held ég að það sé enginn sérstakur áhugi. Hvenær byrjaðir þú fyrst að tefla? — Ég hef verið svona fimm eða sex ára þegar ég fyrst fór að hafa einhvern áhuga. Þá kenndi pabbi mér mannganginn. Hvað er nú framundan hjá þér? Það er allt óákveðið, ég sé bara til. Ég held ekki aö það fylgi Norðurlandatitlinum aö ég þurfi að keppa einhversstaöar. Kannski fer ég I 6 landa keppn- ina i haust. Annars reyni ég að halda áfram að tefla og æfa mig. Hvað með atvinnuskák- mennsku? — Ég stefni ekkert að at- vinnumennsku. Annars hugsar maður bara ekkert um svoleiöis.

x

Alþýðublaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Alþýðublaðið
https://timarit.is/publication/2

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.