Alþýðublaðið - 06.08.1977, Qupperneq 5
SStS' Laugardagur 6. ágúst 1977
UTLÚND 5
t vikunni var gert uppskátt um
ógeöfellda iðju bandarisku
leyniþjónustunnar CIA sem álit-
ið er að hafi staðiö f allt að tvo
áratugi. Hér er um að ræöa
tilraunir sem geröar voru af
mönnum ley niþjónustunnar
með eiturlyf. Tilraunadýrin
voru menn, sem ekki höfðu hug-
mynd um hvað fram fór. Til til-
raunanna voru notuö fjölmörg
lyf, þar á meðal ofskynjunarlyf-
ið LSD. Tiigangurinn er að sögn
sá að fylgjast með breyttri kyn-
hegðan fólks og öðrum breyt-
ingum mannlegrar hegðunar.
Um 80 visindastofnanir f
Bandarikjunum voru tengdar
rannsóknum þessum og þar á
meðal 44 háskóiar.
Pnðjudagínn 2. ágúst lézt I Nicosiu á Kýpur Macarios erkibiskup, einn litrikasti og jafnframt umdeild-
asti stjórnmálamaður okkar tfma. Macarios var 63ára að aldri er hann lézt, banamein hans var hjarta-
slag.
Macarios var bæði andlegur og veraldlegur höfðingi landa sinna, og þó sér i lagi griskumælandi
meirihlutans, þar eð hann var leiðtogi Grisku rétttrúnaðarkirkjunnar á eyjunni.
Ekki er gott að segja fyrir um hver veröur þróun mála eftir lát Macariosar. Astandið á eyjunni er ekki
sem tryggast og tyrkneska innrásarliðið ræður enn stórum landssvæöum.
Erlend mynd-
sjá vikunnar
.. ..-...-.
Óeiröir I blökkumannahverfum I Suöur-Afrfku magnast jafnt og þétt. Mest kveður þó að þessu f blökku-
mannaborginni Soweto. Þar hafa blakkir námsmenn mótmælt þvl aö sú menntun, senf þeim er boðin
upp á, er margfalt lakarien stj , sem námsmenn hins hörundsljósa minnihluta njóta.
Siðastliðinn þriðjudag var tilkynnt I Pakistan að þingkosningar
veröi haldnar þar hinn 18. október næstkomandi. Slðustu kosn-
ingar voru haldnar i landinu 7. marz og leiddu þær til blóðugra
óeirða þar eðstjórnarandstaðan sakaði stjórnarflokk Ali Bhuttos
um að hafa haft I frammi kosningasvik. óeiröir þessar leiddu til
þess aö herinn tók völdin I landinu og hefur nú boðað til nýrra
kosninga. A myndinni sést Ali Bhutto fyrrum forsætisráðherra
landsins.