Alþýðublaðið - 06.08.1977, Síða 7

Alþýðublaðið - 06.08.1977, Síða 7
jjjw1" Laugardagur 6. ágúst 1977 7 heldur en einn af nánustu sam- starfsmönnum yðar I „bombu- málinu” drekkur „normalt” á einu kvöldi. Og svo mikiö er vist, að yfirmaður templara lýsti þvi yfir nýlega á prenti hér i bænum að engin landsstjórn hefði gert eins mikið til aö halda áfengisbölinu i skefjum eins og sú stjórn, er nú situr. Og þar sem áfengismálin heyra aðal- lega til dómsmálaráðuneytinu, viröast ummæli Mbl.-manna um mig i sambandi við áfengi fremur bera vott um vöntun röksemda, svo að ekki sé fast- ara að kveðið. Þriðja herferðin var gerð i sambandi við eitur. Ihaldsmenn höfðu heyrt að til væru eiturteg- undir, sem gerðu menn mjög skarpa og afkastamikla um stund, en eftir nokkur ár væri heilsan farin. Að þvi er viröist þótti hinum treggreindu og verkasmáu Ihaldsleiötogum, sem ég skildi meira en þeir og starfaði meira en þeir. Þeim datt ekki i hug aö áhugi, og vinnuþekking gerði nokkurn verulegan mun. Þeir héldu, að éggeröi mig gáfaðan og dugleg- an á þessu merkilega eitri og fengi um stund með þeim hætti lánaða orku frá ókomnum ár- um. Ólafur Thors og Valtýr Stefánsson gengu i flokki sinum fram fyrir skjöldu með þennan skemmilega rógburð um eitur- nautnmina, annará landsmála- fundi i Vik, hinn i blaði sinu. Báðir vissu, að þeir fóru með visvitandi ósannindi. Báðir skrökvuðu i sama tilgangi og þér, Helgi Tómasson. Þeir gátu ekki unnið mál sin með rökum. Heldur en tapa leik i byrjun, vildu þeir freista að vinna með slikum meðulum. Seinna mun það ef til vill þykja merkilegt, þegar frá verður sagt, að menn sem engan dag ársins eru lausir við eituráhrif vinanda og tóbaks hafi reynt að rógbera fyrir eit- urnautn mann, sem ekki notaöi æsandi meðul fyrr eða siðar á ævinni. En jafnhliöa þvi og ég rek þennan þátt i bardagaaðferð andstæöinga minna vil ég þakka það hól óvinanna, er þeim finnst mitt hversdagslega starfsþrek óskiljanlegt út frá ööru sjónar- miöi en þvi, að höfuöstól fram- tíðarinnar sé eytt fyr en vera ber. Þá kem ég að fjóöra og sið- asta kaflanum, þeim kaflanum, sem verður tengdur við nafn yð- ar á sama hátt og lygasagan um „fermingarbarnið” við Valtý, og sagan um eitrið, sem átti að gera menn gáfaða og duglega verður kennd við Ólaf Thors og Mbl. Þér, Helgi Tómasson, hafiö fundið upp og borið út þá sögu, að ég værigeðveikur, og að þess vegna yrði að taka af mér með valdi, þau opinberu störf er ég gegni nú, ef ég sleppi þeim ekki án þess fyrir vinsamlegar bend- ingar yðar. Þetta er „stóra bomban”, sem þér og nokkrir félagar yöar hafa veriö aö leika ykkur að undanfarnar vikur i þeirri von, að þið ættuð hægari leik með að kúga sveitir lands- ins undir óvinsæla, afdankaða lækna, og bjarga fjárglæfra- mönnunum I Reykjavik yfir á bak hinna fátæku vinnandi stétta I landinu, ef ég væri út sögunni I þjóðmálum landsins. Siðan um nýár hafið þér, Helgi Tómasson, hvislað i eyru kunningja yðar, sem oft hafa þá um leiö verið andstæðingar minir, þeirri sögu að ég væri geöveikur. Þér hafiö leitaö fyrir yður hvernig jarðvegurinn væri í þinginu. Uppúr dylgjum yöar og „vina” yðar hafa svo spunn- ist nýjar útgáfur. Ég átti að hafa verið undir yðar hendi um alllanga stund, sökum geöveiki. Ég átti að hafa verið um tima sem sjúklingur á Kleppi o.s.frv. Frá „vinum” yðar barst svo út orusturáðageröin. Þið Þórður á Kleppi áttuð að undirskrifa vottorð um mittandlega heilsu- far og ef til vill tveir aörir af „vinunum”. Þetta vottorð átti að senda forsætisráðherra og forseta sameinaðs þings. Af Tryggva Þórhallssyni forsætis- ráöherra mun hafa verið ætlast til þess, að hann bæði um lausn fyrirsinn „sjúka” starfsfélaga, en af forseta þingsins, að hann léti konunginn vita um verðug- an eftirmann. Um sama leyti og „bomban” ykkar var að biða eftir að springa varö ég lasinn af kvefi og hálsbólgu, fékk snert af hita og hefiekki getað farið Ut siðust 10 daga. Einn af hálslæknum bæjarins, Friðrik Björnsson, hefir komið flesta dagana og „penslað” hálsinn. Þettaallteruisjálfu sér ofboð hversdagslegir hlutir og varla til að færa i frásögur ef f orgöngu yðar i þessari einkennilegu veikindasmiði, hefði ekki komið til greina. Þegar ég haföi legið 4 eöa 5 daga, með lágan hita, en þó ekki fær um að fara út, er hringt um kl. 8 að kveldi. Kona min varð fyrir svörum. Aðeins kunningj- armi'nirkomu til min á daginn og einstöku aðrir menn, sem áttu brýnt erindi við fyrstu skrifstofu. Konan min segir mér þá, að þér, Helgi Tómasson, biðjið um leyfi til að koma. Henni datt I hug, að þér kæmuö til að karpa um læknamálið, en ég taldi það óhugsandi. Yöur sem lækni gæti ekki komið til hugað að fara tilefnislaust, að gera manni, sem væri lasinn og með hita, ónæði rétt fyrir hátta- tima til þess eins að þrátta um pólitískt deilumál. Þér komið litlu siðar og yður er boðið sæti hjá rúmi minu. Ekki eruð þér fyr seztur, en þér segið að þér komið frá forsætis- ráðherra og hafið verið að reyna að hindra að framkvæmt yrði eitthvert regin hneyksli. Þér bætið við, að ýmsar sögur gangi um mig i bænum, sem séu kenndar yður, en þér segizt treysta mér til að trúa ekki slik- um áburði. Þér sátuð dálitla stund, undarlega „nervous” og flöktandi. Erindi kom aldrei neitt, en eitt sinn létuð þér i ljósi, að yður fyndist ýmislegt „abnormalt” við framkomu mina. Ég spurði spaugandi, hvort þér kæmuð til að bjóða mér á Klepp. Þér svöruðuð þvi ekki, en af óljósu fálmi yðar þóttist ég vita um „bombuna” ogsegiað d þér sendið eitthvert skjal af þvi tægi þá myndi það verða „historiskt plagg”. Þér þögðuð við þvi, en virtust vera að tæpa á þvi, að ég léti undan læknunum um veitingar em- bætta. Ég benti yður á, að ekki væri læknislegt aðkoma I slika heimsókn á þeim tima dags. Um læknana væri ekkert nýtt að segja.Nokkrir þeirra hefðu gert uppreisn móti lögum landsins. Stjórnin hefði gert sinar ráð- stafanir. Þar væru engar milli- leiðir. Sá sterkari myndi sigra að lokum. Eftir 5 ár skildum við lita yfir vigvöllinn, ef við lifðum þá báðir. Þá rétti ég yður hend- ina og gaf yður til kynna að samtalinu væri lokið. Kona min fylgdi yður til dyra. A ganginum var ljóst, og fólk á ferli. Skrif- stofa min er næsta herbergi við stofuþá er ég lá i og þunnt skil- rúm á milli. Þar var dimmt. Þér genguð þar inn og kona min á eftir inn fyrir þrepskjöldinn. Þér kveiktuð ekki á rafljósinu, þótt þér hlytuð að vita að kveikja mátti viö dymar, en þær voru opnar fram á ganginn. Þegar konan min er komin inn fyrir þrepskjöldinn, gripið þér þétt með báðum höndum um handlegg hennar og segið i dauðaþungum, alvarlegum róm : Viðið þér að maðurinn yð- ar er geðveikur. Stutt samtal spannst milli ykkar, þar sem þér bættuð þvi við, að hún mætti ekki segja mér, hvað þér hefðuð um mig sagt. Þér voruð rólegur ofan á, en undir niðri svo æstur, að þér virtust eiga bágt meö að ganga niður stigann. Framkoma yðar gagnvart konu minni er þvi undarlegri, þar sem hún hafði gengfð til yö- ar til að fá bættan höfuöverk og of mikinn blóðþrýsting. Þér höfðuð jafnan komið fram eins og heiðursmaður gagnvart henni, þar til i þetta sinn, og lækningar yðar i þvi efni borið nokkurn árangur. Þvi óvæntari kom henni þessi voðaaöferö yð- ar. Sjálfur höföuð þér jafnan sagt henni, að heilsunnar vegna yrði hún að forðast geðshrær- ingar. Þér breyttuð ekki alveg eftir þvi, sem læknir i þetta sinn. Alveg eins og þér vilduð ekki að kona min segði mér frá hinni „fræöilegu” niðurstöðu yðar, nefnilega að ég væri brjálaður, höfðuð þér beöiö forsætisráð- herra að segja ekki að svo stöddu frá samtali ykkar, sem mun þó hafa frá yðar hálfu gengið mjög i sömu átt. En litlu siðar játuðuð þér annarsstaðar, að þér hefðuð verið hjá forsætis- ráðherra hálfan fjórða tima, og aö þér hefðuð tilkynnt honum, að annaðhvort yröi ég að fara úr stjórninni eða þér mynduð fara frá Kleppi. Sömuleiðis hafið þér játað, að forsætisráöherra hafi ekki tekið máli yðar lfklega, og talið allt framferði yðar þáttúr baráttu embættaklikunnar. Af ýmsum heimildum er helzt að sjá, sem þér hafið hangt á for- sætisráðherra með álappalegri frekju, orðið meir og meir undir ideilunni, og farið þaðan burtu i einu æstur og lamaöur. „Stóra bomban” féll ekki þennan dag. Þér virðist hafa látið yður nægja hótanir. Eftir þvisem þér segið frá, hefir yður komið sú fáránlega meinloka i hug, að stjórnir á Islandi færu frá, eða ráðuneytum væri ger- breytt, ef einn litill læknir kæmi til forsætisráðherrans og segðist fára, ef ráðuneytið segði ekki af sér eða væri ekki ummyndað. Að hve miklu leyti þér hafið þar haft i frammi frekari hótanir, kemur væntanlega I ljós siðar. Koma yðar til min er ekkert nema mjög ókurteis hótunar- ferð. Þér vitið að ég er rúmfast- ur og með hita. Þér máttuð vita, að ég tæki ekki á móti yður á þfeim tima dags, nema af þvi ég hélt, að þér hefðuð nauðsynlegt mál með höndum fyrir spital- ann. Aðfara að tala um magnaö deilumál var i einu ósamboðið lækni og manni, sem nokkrar kröfur voru gerðar til. Þér kom- iðtil að hræða. Þér laumist inn i heimilið undir yfirskyni trúnað- ar. Þegar til kom eruð þér of þreklaus til að segja erindið nema undir rós. Og þegar ég bendi yður á að deilurnar milli uppreistarmannanna og rikis- valdsins verði að útkljá, sterk- ari málstaðurinn að sigra, þá er yður öllum lokið og þér hörfið undan. *> En það má ekki gleyma að þér byrjið á öðru. Þér biðjið mig að trúa ekki sögum um mig, sem þérséuðborinn fyrir. Þér, sem i nokkra mánuði höfðuð verið pottur og panna i að búa til sög- urnar um geðveiki mina, dreifa þeim út, og reyna að fá fólk til að trúa að þér segðuð satt. Þér voruð rétt skilinn við forsætis- ráðherra, þar sem þér virtust ekki hafa haft annað erindi en að freista að sannfæra hann um „fræði” yðar mér viðvikjandi. Og fáum mánuðum eftir að þér fram berið þessa mjög ósönnu afsökun við mig, komið þér að sömu drengskapariðkuninni við konu mina. Kjarkur yðar sýnist þennan dag hafa verið á borð við drengskapinn og sannleiks- ástina, hvernig sem yöur kann að vera farið endranær. Framkoma yðar gagnvart konu minni, sem ætlar af kurt- eisi að fylgja yður til dyra, er þó hámark „bombustarfsins” þennan dag. Það er ómögulegt að skilja framkomu yðar öðru- visi en svo, að þér hafið ætlað að lama konu mina. Þér vitið að hún á heilsu sinnar vegna að forðast geðshræringar. En þér komið þannig fram, aö þaö var ekki yðar dyggð að þakka, held- ur þreki hennar og hinna öruggu vissu um að þér væruð aö segja ósatt, sem bjargaði henni úr þessari heifta’rlegu árás. Sé ferill yðar rakinn þennan dag, þá er helst að sjá, að um morguninn hafið þér sótt I yður kjark hjá „collegunum”. Þér vitið að ég er lasinn, aldrei þessu vant. Yöur og „vinunum” finnst tækifærið gott. Þér gerið stórt áhlaup á formann stjórn- arinnar, en hann virðist taka visindaskýringum yðar með kulda og fyrirlitningu. Þér finn- ið, að þar hefir ekkert unnist á. Þér hyggist að reyna þá að lina sjálft fórnarlambið, dómsmála- ráðherrann, sem ekki vill veita embætti,eftir vild yðar, og, ekki ganga i miljónaábyrgð fyrir bandamenn yðar, braskarana i Reykjavik. En þér biðið þar enn ósigur. Þá er siðasta úrræðiö að búa svo að konu minni, að hún verði fýsandi að ég kaupi mér frið hjá hinum volduga „geð- veikisfabrikant” á Kleppi. En þar varð ósigur yðar mestur, ef til vill svo mikill, að þér náið ekki með yðar vanköntuðu greind út yfir afleiðingarnar einsog þær hljóta að verða fyrir yður, að reka þvfllka lækninga- starfsemi. Vinnubrögð yðar i þessu máli eru býsna undarleg. Ef landið þarf að vita um ástand manna, sem lögreglan hefir grunaðan um geðveiki, þá takið þér þá menn á sjúkrahús yðar, og getið venjulega ekkert sagt um ástand þeirra fyr en eftir langan tima, oft marga mánuði. Um leið þarf landsjóður að greiða yður fyrir hinar „visindalegu athuganir” yðar frá 250 upp i 500 kr. fyrir hvert höfuð. En þegar uppreisnarlæknunum finst sér liggja á að losna við mig úr póli- tikinni dálitla stund, þá þarf enga rannsókn. Enginn þarf að kveðja yður til. Þér farið að eins og lögreglustjóri, sem tekur menn fasta, dæmir þá og hegnir rannsóknarlaust, aðeins af þvi, að einhverjir „vinir” telji sér koma vel að vera lausir við ein- hvern samborgara. Þér hafið efnt til þessarar sóknar út af tilbúinni geöveiki minni, eingöngu eins og hér sé að ræða um pólitiskt mál. Þér hafið verið, eins og allir aðrir, svo fullviss um, að þér segðuð allt i þessum efnum ósatt, að yð- ur hefir ekki dottið i hug nein lækningastarfsemi, heidur ein- göngu stjórnarskipti, og ,-,syst- em”-skipti I landsmálunum. En úr þvi, að þér hafið kosið að hefja hér pólitiskt mál, i þvi skyni aö valda straumhvörfum i hugum manna i landinu, þá verðið þér að enda leikinn fyrir opnum tjöldum. Þér hafið tvo vegi um að velja: Að taka aftpr allar dylgjur yðar og rógmæli um mig, játa opinberlega, að þér hafið verið ginningarfifl annara, að sumu leyti lélegra manna, og sjálfur æstur og van- kunnandi i yðar grein, svo sem mest mátti veröa. Slik ofaniát eru algeng i þeim pólitisku her- búðum, þar sem vinir yðar „bombume'nnirnir” hafast viö. Það eru ekki nema nokkrar vik- ur siðan að allir þrir höfuðrit- stjórar Mbl. og Isafoldar fram- kvæmdu slikt ofaniát uppi i hegningarhúsi og siðan frammi fyrir allri þjóðinni. Hin leiðin er sú, að leggja fram fyrir þjóðina glögg rök fyrir þvi, sem þér kallið geð- veiki mina. An þess að ég áliti mérskyltað kenna yður eitt eða neitt, gæti komið til mála, að þér reynduð að sanna á mig andlega vanheilsu út frá afskift- um minum af heilbrigðismálum landsins. Þetta ætti að vera helzt hugsanlegt, með þvi, að það mun vera eina hliðin á stjórnmálastarfsemi minni, sem þér kunnið að bera eitt- hvert skynbragð á. Þér gætuð tekið þátttöku mina i þvi að koma upp Kristneshæli, hversu mér tókst að bjarga landsspit- alamálinu úr strandi þvi, er G.H. hafði valdið. Þér gætuð máske talið veiklunarmerki að hafa gert menntaskólann að hreinlegri stofnun i stað þess, að það var áður ein hin hættuleg- asta berklastia I landinu. Að sömu niðurstöðu kynnuð þér að komast i sambandi við þá breyt- ingu, sem hefir orðið á liðan sjúklinga á Vifilstöðum. Þeir una nú vel hag sinum, en fóru oft áður með hatursorð og böl- bænir á vörunum I gröfina eöa heim i átthagana um vissar starfsmanneskjur á hælinu, sem embættaklikan hélt verndar- hendi yfir. 1 augum yðar er það sennilega sjúkleikamerki i heil- brigðismálum, að hafa komið sundhallarmáli Reykjavikur með 8 ára erfiði i þaö horf, sem nú er. En sú barátta hefir aftur yttundir hinfe>öru fjölgun sund- lauga út um land, sem aldrei hefir verið unnið jafnmikiðc^ið og i tið núverandi stjórnar. Tvö mál vil ég að siðustu nefna, sem eru meðal hinna þýðingarmestu átaka i heilbrigðisstarfsemi þjóðarinnar. Fyrst kaupin á hverajörðunum i Olfusinu, þar sem unnt er að koma upp hinum heppilegustu sjúkra- og vinnu- heimilum fyrir berklaveika menn, létta miklum kostnaði af landsjóði og- hjálpa mörgum hinna Sjúku til sjálfsbjargar. 1 öðru lagi byggingar og land- námssjóðurinn, sem er ab skapa alveg nyjan grundvöll fyrir heilsusamlegu lifi sveitafólksins á tslandi. Ef til vill skilst yður, að það verði nokkrum erfiðleikum bundið að sanna fyrir almenn- ingi, að þessi og önnur vinnu- brögð i þágu betra og heilbrigð- ara lifs i landinu, séu vottur um sjúkleika. En i hverju er þá heil- brigði stjórnmálamanna fólgið? Er heilsa og hreysti slikra manna að yðar áliti bezt sönnuð með augljósum dæmum um heimsku, þekkingarleysí, vönt- un á skapandi krafti, og kjarki til framkvæmda? Sennilega finnst yður svo vera. Ég tek að siðust eitt dæmi til skýringar á þessu fyrirbrigði, sjúkleiki og heilsuhreysti stjórnmálamanna. Þér vitið, að i 70 ár hefir staðið steinhús á lóð menntaskólans. Þetta hus var fullt af bókum. En fyrir þvf var þung járnhurð og hún var nærri alltaf lokuð. Sárfáir af hinum mikla fjölda nemenda kom nokkurntima inn i þetta hús. Hvorki húsið eða bækurnar höfðu nokkra lifræna þýðingu fyrir skólann. Skólann vantaði tilfinnanlega meira húsrúm, og nemendur vantaði bókasafn. Hvortveggja vartil. En hvorki bókasafnshús- ið né bækurnar voru notaðar. Við skólann starfaði áratug eftir áratug mikill fjöldi lærðra manna, sem ekkert gerði alla æfina nema sýsla við bækur. Og i skólanum voru tugir og hundr- uð af ungu fólki, sem var verið að ala upp til að lega bækur. En hvorki þeir ungu eða gömlu fundu þetta hús. Það var sama sem týnt inni I miðjum Reykja- vikurbæ I 70 ár. Þetta hús fannst, og sá sem fann þennan dýrmæta hlut, var einmitt ég, þessi hættulegi „sjúklingur”, sem þér berið mjög fyrir brjósti. Ég hefi látið opna húsið, setja i það ofna og ljós, mála veggina, prýða sal- inn, koma bókunum svo fyrir, að þær verði nothæfar daglega fyrir nemendur menntaskólans, eftir þvi, sem þeir vilja og hafa tima til að vinna. Viðgerð húss- ins er að verða lokið. Skóiafólkið hlakkar til að koma i nýjg bóka- safnið, sem lá falið fyrir augum þeirra heilbrigðu I 70 ár, en fannst og var opnað aftur af manni, sem þér álitið og segið að sé hættulega andlega sjúkur. Auðvitað dettur mér ekki i hug að það sé neitt kraftaverk að finna íþökuhúsið og láta gera það nothæft. Mér finnst það of- boðsjálfsagt, einmitt þannig, að hver heilbrigður maður hefði átt að sjá, að það sem ég hefi látið gera þar hefði átt að vera búið að framkvæma fyrir tveimur mannsöldrum. Það er engin ástæða að þakka mér fyrir bókasafnið. Mitt hrós, ef eitthvert er, byggist á saman- burði við marga farisea og skriftlærða, sem gengu blind- andi framhjá, en sáu hvorki húsið né bækurnar, áratug eftir áratug. Auðvitað eruð þér einn af þessum blindingjum. Aldrei hefði yður dottið i hug að eyða einum þúsundasta parti af þeirri orku, sem þér hafið notað i geðveikisbombuna fyrir ihald- ið, til að leysa úr jafnaugljósu máli og bókasafnstýnslunni við menntaskólann. Nú liggur einmitt þetta dæmi fyrir til skýringar. A sömu mán- uðunum, sem þér og „vinir” yð- ar eruð að búa ykkur undir að heimta mig úr landstjórninni sökum andlegra? vanheilsu, þá leysi ég þetta litla mál, þannig að hver maður segir nú: Auðvit- að vaí'sjálfsagt að gera við hús- ið og hleypa æskunni úr skólan- um inn i það. Nú spyr ég yður Framhald á bls. 10 ^^.^^mmmmmmm^mmmmm*

x

Alþýðublaðið

Beinleiðis leinki

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Alþýðublaðið
https://timarit.is/publication/2

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.