Alþýðublaðið - 26.08.1977, Blaðsíða 1

Alþýðublaðið - 26.08.1977, Blaðsíða 1
FOSTUDACUR 26. AGLIST Ritstjórn er til húsa í Síðumúla 11 — Síminn er (91)81866 — Kvöldsfmi frétta- vaktar (91)81976 Landbúnaðarráðherra hefur tekið ákvörðun: Fiski og seiðum í Laxalóni skal eytt! Stofnræktarfiski af regnbogasilungi þyrmt — Viö sendum Skúla bréf i gær þar sem honum er tilkynnt sú ákvörðun ráðherra að eytt skuli öll- um f iski og sei ðum í lax- eldisstöðinni að Laxalóni að undanskildum stofn- ræktarfiski af regnboga- silungi/ sagði Sveinbjörn Dagfinnsson í samtali við Alþýðublaðið síðdegis i gær. A6 sögn Sveinbjarnar er ekki búið að dagsetja hvenær hafizt skuli handa við slátrun fiskjar- ins, en þeim Brynjólfi Sandholt og Arna. tsakssyni verður falið að sjá um framkvæmdina. Hvað varðar bætur vegna þessa tjóns sagði Sveinbjörn að ekki hefði verið tekin nein ákvöröun af hálfu landbúnaðar- ráðuneytisins þar aö lútandi. Hins vegar hefði þvi marg oft verið lýst yfir að ráðuneytið væri tilbúið að athuga mögu- leika á bótum, án þess að þvi fylgdu nokkrar fyrirfram skuld- bindingar. Er Alþýðublaðið hafði sam- band við Skúla Pálsson eiganda fiskeldisstöðvarinnar að Laxa- lóni þar sem hinn sýkti fiskur er talinn vera, hafði honum ekki borizt bréf ráðuneytisins og vildi þvi ekki tjá sig um málið, að svo stöddu. Sömu sögu var aö segja um lögfræðing Skúla, Svein Snorrason. -GEK Kemur varla á óvart — Segir Jakob Hafstein í Veidi- og fiskiræktarráði Ég veit sannarlega ekki hvað maður á aö segja um þessi málalok, en varla koma þau á óvart þegar höfð er hliðsjón af þvi hve langt er siðan Fisksjúk- dómanefnd komst aö þeirri niðurstöðu að um smitandi nýrnasjúkdóm væri að ræða i Laxalóni, og þeir eru jú sér- fræðingar i þessum málum, ekki satt. Þannig fórust Jakobi Hafstein i veiði- og fiskiræktar- ráði Reykjavlkurborgar orð, er Alþýðublaðið kynnti honum úr- skurð landbúnaöarráðherra varðandi fiskeldisstöðina að Laxalóni, en sem kunnugt er gekkst ráðið fyrir þvi að hingað kom kanadiskur sérfræðingur i fisksjúkdómum til að kynna sér Skúli Pálsson i laxeldisstöð sinni. — mynd -GEK ástand i fiskeldisstöðvum hér á landi. Var sá maður meðal annars fenginn hingað til lands i kjölfar þeirra deilna sem risu upp vegna Laxalónsstöðvarinnar, þótt megintilgangur feröarinn- ar hafi verið að rannsaka fisk- eldisstöð Reykjavikurborgar. Um skýrslu Kanadamannsins er þaö að segja að hennar er von einhvern næstu daga, en ekki hefur þótt ástæða til að biöa með ákvarðanatöku hennar vegna. Sagði Jakob aö það eina sem vekti furðu i sambandi við ákvöröun ráðherra væri hversu langan tima það hefði tekiö ráð- herrann að komast að niöur- stööu. -GEK Skagamenn uröu tslands- meistarar i gærkvöldi. Valsmenn sem þurftu aðsigra Vikinga i sið- asta leik tslandsmótsins náðu að- eins öðru stiginu i ótrúlega spenn- andileik. Orslit leiksins uröu þrjú mörk gcgn þremur. Mikil spenna var i leiknum strax I upphafi og létu hinir fjöldamörgu áhorfendur duglega i sér heyra. Víkingar skoruöu fyrsta mark leiksins strax á 12. mínútu. Þeirfóru nú aö leika eins og það væru þeir sem berðust um meistaratignina, drógu sig aftur og fóru aö tefja. Undarleg ráð- stöfun þar sem þeir áttu alls kost- ar við Valsmenn i sókninni. Valsmenn jafna snemma i síö- ari hálfleik en það dugði skammt. Vfkingar skoruðu aftur. Vals- menn jafna og enn skora Viking- ar. Það var siðan fimm minútum fyrir leikslok, að Valsmenn jafna Ur viti. Nú sauð upp úr, allt ætlaði af göflunum að ganga. Taugaspenna leikmanna, jafnt sem áhorfenda var mikil pg er undirritaöur t.d. enn skjálfandi, er hann skrifar þessar linur. ' Lciknum lauk sem sagt með jafntefli og þar með urðu Skaga- menn islandsmeistarar, hlutu alls 28 stig, en Valsmenn urðu i öðru sæti með 27 stig. Skagamenn eru sannarlega vel að þessum sigri komnir, hafa átt mjög góða leiki seinni hluta is- landsmótsins. Þvi verður þó ekki á móti mælt að skemmtilegra hefði verið fyrir knattspyrnuunn- endur að fá hreinan úrslitaleik. Til hamingju Skagamenn! — ATA

x

Alþýðublaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Alþýðublaðið
https://timarit.is/publication/2

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.