Alþýðublaðið - 26.08.1977, Blaðsíða 2

Alþýðublaðið - 26.08.1977, Blaðsíða 2
Föstudagur 26. ágúst 1977 blaAió 2 Alfreð Flóki með myndlistarsýningu í Bogasalnum: rrMilt og notalegt verðlag á íslandi!” Alfreð Fólki opnar mynd- listarsýningu i Bogasal Þjóð- minjasafns á morgun, laugar- dag, og er hún opin daglega kl. 14-22, til 4. september. A sýning- unni er alls 31 teikning, flestar unnar á yfirstandandi ári og i fyrra. Sýning Flóka mun vera sú 9. í röðinni i Reykjavik, en auk þess hefur hann sýnt 5 sinn- um i Kaupmannahöfn og einu sinni i New York. Sýningin er sölusýning og verð teikninganna 190-200 þús. fyrir hverja þeirra. „Þetta er i samræmi við hið milda og notalega verðlag á ís- landi”, sagði Flóki, þegar hann stillti sér upp til myndatöku fyr- ir ljósmyndarann. „Blessaður leyfðu mér að sjá eitthvaö af myndunum, sem þú hefur tekið hérna. Ég er nefnilega svo udd- tekin af sjálfum mér, að ég sko ða helzt ekki færri en 15 ljós- myndiraf sjálfum mér á hverju kvöldi áður en ég sofna! Ödrep- andi sjálfsálit? Já, kannski en svo getur það lika verið tilraun til að grafa niður á minnimátt- arkenndina”. Listamaðurinn hefur valið eftirfarandi tilvitnun úr „Aurél- ia” ef tir Gérard de Nerval til að vera einskonar einkunnarorð sýningarinnar og er hana að finna i sýningarskrá: „Draumar okkar eru annað lif. Það vekurmér ætið hrollaö fara innum þessi filabeins eða hornlögðu jilið, sem skilja okkur og hina ósynilegu veröld. Fyrstu andartök svefnsins eru imynd dauðans: dámóða iykur um hugsanir okkar og við getum alls ekki ákvarðað augnablikið þegar sjálfið heldur i nýju formi áfram ætlunarverki tilverunn- ar. Smámsaman birtir i óskýr- um neðanjarðarhellum og hinar bleiku, þungbúnu og hræringar- lausu verur,sem I undirheimum búa, greina sig frá skugganum og nóttinni. Þá fær myndin lög- un, ný birta lýsirupp þessa svipi oggæðir þá hreyfingu. Hin and- lega veröld opnast okkur.” f ' ' Fyrsta hjónavígsla allsherjargoða ásatrúarmanna: Las úr Eddukvaedum yfir brúðhjónunum Um siðustu helgi fram- kvæmdi Sveinbjörn Beinteins- son.allsherjargoðiá Draghálsi i Borgarfiröi, sina fyrstu hjóna- vigslu, er hann vigði tvenn hjónaefni i Reykjavfk. Báðir brúðgumarnir eru safnaðar- meölimir Asatrúarsafnaöarins, enskilyrðifyrirvigslunni er það að a.m.k. annað hjónaefna til- heyri honum. Áður hefur alls- herjargoðinn skirt nokkur börn, en hjónavigslu hefur hann ekki annast fyrr en nú. Við athöfnina á laugardaginn las allsherjargoðinn úr Eddu- kvæðum, en annars kvaðst hann haga „seremonium” i samræmi við óskir viðkomandiaðila. Asa- trúarsöfnuðurinn fékk löggild- ingu sem trúarsöfnuur fyrir nokkrum árum og þar með fékk Sveinbjörn fuilgilda heimild yf- irvalda til slikra embættis- verka, sem forstöðumaður Asa- trúarsafnaðarins. Ekki kvað Sveinbjörn það enn hafa komið til sinna kasta aö annast jarðarför, en ekkert væri þvi til fyrirstöðu að þaö væri hans verk sem yfirmanns safnaðar ásatrúarmanna. Sveinbjörn var að lokum innt- ureftirþví, hvort fjölgaði i söfn- uði hans og svaraði hann þvi á þessa leið: — Já, það hefur eitthvað fjölgað hjá okkur, en satt að segja veit ég ekki hve margir við erum. Ég gæti þó tnlað aö meðlimatalan væri nálægt 80. Hvernig hægt er að ganga i söfnuðinn? Það þarf að segja sig Ur þjóð- kirkjunni og skrá sig I söfnuðinn hjá Hagstofunni. Þar með er það komið. Annars höfum viö látiö litiö yfir okkur upp á sið- kastiö og við höfum engar sam- komur haldið nú um nokkurt skeið. —ARH Sveinbjörn Beinteinsson alls- herjargoöi á Draghálsi. n ... < Sökk á skammri stundu Orsakir hins mikla leka sem kom að Stapa SH 42 frá Ólafsvík, sem sökk um 10 sjómílur út af Öndverðarnesi eru enn ókunnar. Báturinn var á útleið um klukkan 10,30 í fyrradag þegar skipverj- ar urðu varir við að mikill leki var kominn að skip- inu. Dælur skipsins höfðu engan vegin undan og urðu skipverjar því að bjarga sér í gúmbjörg- unarbát. En allt skeði þetta svo hratt að ekki mun hafa gefizt tími til að senda út nema eitt neyðarkall og ekki tókst skipverjunum að bjarga með sér neyðartalstöð. Þeir voru í gúmbjörg- unarbátnum í um það bil klukkutíma, en var þá bjargað um borð í Gunnar Bjarnason. Skipverjará Stapa voru 3, Ólafur Tryggvason skipstjóri og eigandi bátsins, Árni Eðvaldsson, vélstjóri, og Kristinn Pét- ursson, matsveinn. Stapi var 76 tonna eikarbátur, smíðaður í Svíþjóð. —ES Auglýsingósími blaðsins er 14906

x

Alþýðublaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Alþýðublaðið
https://timarit.is/publication/2

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.