Alþýðublaðið - 07.10.1977, Side 1
FÖSTUDAGUR 7. OKTOBER
209. TBL. -1977-58. ÁRG.
Ef bladið berst ekki
kvartið til
Alþýðublaðsins í
síma (91) 14900
Margar erlendar heimsóknir tii Landhelgis-
gæzlunnar; m.a. frá Hollandi og Nýja Sjálandi
„Eru undrandi yfir mann-
fæð um borð í varðskipum”
— segir Þröstur Sigtryggsson, skipherra
Á þriðjudaginn var
komu yfirmenn flughers
og flota Hollands í aðal-
stöðvar Landhelgisgæzl-
unnar í Reykjavík og
kynntu sér þar rekstur
Gæzlunnar og tengd atr-
iði. Dagana þar á undan
dvaldist Denis McLean
frá Nýja Sjálandi hjá
Gæzlunni í sömu erinda-
gjörðum. Kom hann hing-
að til lands í þeim tilgangi
einum að kynna sér land-
helgisgæzlu við island, en
hann mun í næsta mánuði
taka við ráðherraembætti
i rikisstjórn Nýja Sjá-
lands og fara meðal ann-
ars með landhelgismál.
Nýja Sjáland hefur enga
sjálfstæða landhelgis-
gæzlu og mun i fyrstu
treysta á herskipaflota
sinn, meðan landhelgis-
gæzlan verður byggð upp.
Eru Nýsjálendingar ugg-
andi yfir aukinni sókn
Japana og Kóreumanna í
fiskimið sín, sem hafa
verið lítt nytjuð til þessa,
Þrttstur Slgtryggison skipherra
en landhelgina hyggjast
þeir færa brátt út í 200
sjómílur.
Denis McLean ræddi hér við
yfirmenn Landhelgisgæzlunnar,
að Ólafi Jóhannessyni dóms-
málaráðherra meðtöldum, kom
um borð i varðskip og flugvélar
Gæzlunnar o.fl. Einnig átti hann
viðræður við starfsmenn sjáv-
arútvegs- og utanrikisráðuneyt-
is.
Þröstur Sigtryggson skip-
herra, sem gegnir störfum Pét-
urs Sigurðssonar hjá Gæzlunni i
veikindafjarveru hans, tjáði
blaðinu i gær, að talsvert væri
um að yfirmenn landvarna er-
lendra rikja kæmu hingað til að
kynna sér störf Landhelgisgæzl-
unnar. Hér var meðal annarra
yfirmaður irsku Gæzlunnar og
einnig yfirmaður þeirrar fær-
eysku. Kynntu þeir sér heildar-
rekstur Landhelgisgæzlunnar,
skoðuðu skipa- og flugvélakost-
inn og ræddu við yfirmenn
hennar.
Þröstur sagði að flestir er-
lendu gestirnir hafi látið i ljós
undrun á þvi, að hægt skuli vera
að reka skip af þeim stærðum,
sem Gæzluskipin eru, með eins
fáum mönnum og raun ber
vitni. Þá hafa sumir spurt um
reynslu Landhelgisgæzlunnar af
Fokker Friendship gæzluvélum
og ennfremur hafa komið fram
óskir aðila um að fá aö byggja
skip eftir sömu teikningu og Týr
er smiðaður.
trarnir töldu sig ekki geta
haldið úti skipum i samfellt 15-
18 daga, með þriggja-fimm
daga stoppi i landi i hvert sinn.
Sögðu það illframkvæmanlegt
vegna þess að fólkið kærði sig
ekki um það.
Margt fleira kom fram i
samtölum við útlendingana, en
þetta var það helsta, að sögn
Þrastar Sigtryggssonar.
— ARH
SVR FÆRIR ÚT
KVÍARNAR f
MIÐBÆNUM
— Stjórn Strætis-
vagna Reykjavikur hef-
ur sett fram ákveðnar
óskir, eða öllu heldur
bent á þarfir um ákveðið
húsrými á neðstu hæð
þessarar fyrirhuguðu
byggingar, og er það
atriði nú i athugun hjá
húsbyggjendum, sagði
Eirikur Ásgeirsson i við-
talivið Alþýðublaðið. En
SVR hefur að undan-
förnu átt i samningavið-
ræðum við eigendur
Hafnarstrætis 22 um
makaskipti á lóðarspild-
um úr Hafnarstræti 20
og aðstöðu i væntanlegri
nýbyggingu á fyrr-
greindu lóðinni.
Sagði Eirikur, að málið væri til-
tölulega nýkomið tii stjórnar SVR
og það væri því litið hægt um það
að segja á þessu stigi. Fyrirhugað
væri, að þarna yrði komið upp
hlýju og notalegu biðskýli fyrir
farþega,auk þess sem þar yrði til
staðar að hluta stjórnun á leiða-
kerfi. Þá yrðu einnig upplýsinga-
þjónusta ogfarmiðasala i húsnæð-
inu, ef samningar tækjust.
— Mér skilst að það sé hug-
myndin að hefja framkvæmdir
núna einhvern næstu daga. Þær
ættu þó ekki að hafa i för með sér
neinar breytingar á starfsemi
SVR þarna, þvi þetta skýli sem
stendur við Hafnarstræti er byggt
með það fyrir augum, að hægt sé
að flytja það milli staða.
Þvi verður einfaldlega kippt inn
á Lækjartorg þar til annað kemur
i staðinn, sagði Eirikur Asgeirs-
son. — JSS
LÓÐ SÆNSKA
líklegri UNDIR
SEÐLABANKAHÚS
— nidurstödur ad vænta í máiinu fljótiega
„Málið er að vissu leyti
í gangi núna, því það er í
gagngerri athugun og
verið að reyna að komast
að niðurstöðu um hvernig
það verður afgreitt.
Meiningin er að reyna að
horfa svolítið á þær at-
hugasemdir sem hafa
komið fram vegna fyrir-
hugaðrar byoigingar við
Arnarhólinn, og finna
lausn, sem allir geti við
unað. Hver niðurstaðan
verður, er ekki hægt að
segja um i dag, en líklegt
þykir mér að byggt verði
á þessu svæði, þó f rekar á
lóð Sænska frystihússins,
heldur en í grunninum
umdeilda, sagði Sigurður
Örn Einarsson, skrif-
stofustjóri hjá Seðla-
bankanum, í viðtali við
Alþýðublaðið i gær.
„Það er f athugun með
breytta tilhögun á byggingunni,
sagði Sigurður ennfremur, þvf
arkitektarnir hafa verið að
vinna I þessu og hafa komiö
fram með ákveðnar tillögur,
sem við vonumst til að geta sýnt
áður en langt um liður. Aðalatr-
iðið er að byggingarmál Seðla-
bankans veröi leyst, þannig að
sem flestir geti vel við unað.”
%