Alþýðublaðið - 11.10.1977, Blaðsíða 12
alþýðu-
blaðiö
(Jtgefandi Alþýöuflokkurinn ÞRIÐJUDAGUR
Ritstjórn Alþýöublaðsins er að Sfðumúla 11, simi 81866. Auglýsingadeild blaðsins er að ---------- -
Hverfisgötu 10, sími 14906 — Askriftarslmi 14900. 1 1. OKTÓBER 1977
Verkfall
Verkfall Bandalags
starfsmanna rikis og
bæja hófst á miðnætti
siðastliðna nótt, eftir að
slitnað hafði upp úr
samningaviðræðum
milli bandalagsins og
rikisins. Verkfall þetta
nær til allra starfs-
manna rikisins, sem eru
rúmlega átta þúsund og
sex hundruð að tölu, ut-
an þeirra sem sam-
kvæmt lögum eiga ekki
verkfallsrétt, svo og
þeirra sem kjaradeilu-
nefnd hefur úrskurðað
að skuli sinna störfum
sinum áfram. Hafa nöfn
þeirra, sem kjaradeilu-
nefnd ákvað að yrðu að
starfa til öryggis og
heilsugæzlu væri gætt,
verið birt i Lögbirting-
arblaðinu.
Þar sem samningar
náðust i gærkvöld milli
starfsmanna Reykja-
vikurborgar og Reykja-
vikur, nær verkfallið
ekki til þeirra. Enn
fremur hafa starfs-
mannafélög nokkurra
annarra sveitarfélaga
náð samningum við sina
viðsemjendur, en þegar
blaðið fór i prentun i
gærkveldi höfðu félags-
fundir ekki alls staðar
fjallað um samningana,
þannig að ekki reyndist
unnt að skýra nákvæm-
lega frá þvi hverjir eru i
verkfalli i dag og hverjir
ekki.
Ljóst er þó að hópur-
inn er all nokkru minni
en ætlað var fyrir fáein-
um dögum að yrði.
Gátum ekki gef-
ið meir eftir
— segir Kristján Thorlacius, form. BSRB
— Það er ljóst, að til
verkfalls er nú að draga
og það hefst á miðnætti i
nótt, sagði Kristján
Thorlacius, formaður
Bandalags starfsmanna
rikis og bæja, i viðtali
við Alþýðublaðið i gær-
kvöldi, þegar hann var
staddur á fundi samn-
inganefndar bandalags-
ins i hátiðarsal Háskóla
Islands.
— Það slitnaði upp úr
samningaviðræðunum i
nótt er leið, sagði Krist-
ján ennfremur, þegar
fram kom lokatilboð frá
rikinu, en það lokatilboð
felur aðeins i sér 2—3%
hækkun á ársgrundvelli,
frá þvi sáttatilboði sem
fellt var með áttatiu af
hundraði atkvæða i alls-
herjaratkvæðagreiðslu
BSRB fyrir skömmu.
Við höfum gert okkar ýtrasta til
aö ná samkomulagi og höfum
fært okkur niður um allt að
10—12% á meðan rikið þokar sér
aðeins upp um 2—3%.
Það vantar þarna á að gengið
sé nóg til móts við kröfur okkar
um hækkun lægstu launanna og
nægilega samræmingu I mið-
flokkunum. Einnig vantar á að
okkur sé veittur endurskoðunar-
réttur, ef visitalan verður tekin
úrsambandi, eða kaupmáttur
rýrist verulega.
Loks hefur þvi algerlega verið
hafnað að ræða um önnur efnisat-
riði, sem fólust í sáttatilboði þvi
sem báðir aðilar höfðu þó sam-
þykkt sem vinnugrundvöll.
Það sem boöiðer teljum við alis
ekki fullnægjandi og höfum ekki
getað teygt okkur lengra í átt að
samkomulagi, en nú þegar er orð-
ið.
Við teljum að þátttakan I alls-
herjaratkvæðagreiðslunni um
sáttatillöguna og úrslit hennar
feli i sér skýr fyrirmælí til samn-
inganefndar bandalagsins, um að
ná beri allnokkuö fram fyrir til-
boðið .
Varðandi samninga þá sem i
kvöld voru undirritaðir milli
Reykjavikurborgar og starfs-
manna hennar, vil ég segja, að ég
harma það mjög. Ég harma mjög
þau vinnubrögð formanns eins
aðildarfélaga okkar, að taka þátt
i þvi að fella lokatilboð rlkisins til
BSRB slðastliðna nótt, en ganga
siðan til samkomulags fáeinum
klukkustundum siðar.
Svo vil ég aðeins segja að lok-
um, sagði Kristján, að vonandi
verður þetta verkfall, sem nú er
skolliðá, sem stytzt. Það riður á
að samstaöa haldist meðal okkar
og þeim mun meiri eining sem
rikir, þeim mun styttra verður
verkfallið.
Ekkert gerðist á BSRB-fundnum I gær. Fjármálaráöherra haföi
þvi nægan tima til að spjalla við samþingmann sinn Gylfa Þ. Gisla-
son, þegar þeir hitt'ust á háskólagöngum.
Fella borgar-
starfsmenn
samninginn?
Á samningafundi með
fulltrúum Reykjavíkur-
borgar og starfsmanna
borgarinnar í gær tókst
samkomulag, sem í gær-
kvöld var lagt f yrir félags-
fund í Starfsmannafélagi
Reykjavíkur.
Samkomulag þetta var,
eftir því sem næst varð
komizt í gærkvöldi, byggt
að mestu á sáttatillögu
þeirri er fulltrúar ríkisins
lögðu fram á fundi með
fulltrúum Bandalags
starfsmanna ríkis og bæja
aðfaranótt mánudags.
Sem kunnugt er höfnuðu
samningamenn BSRB
þessari tillögu sem óhæfri,
þar á meðal fulltrúar
Starfsmannafélags
Reykjavíkur.
Samkomulag SR við
Reykjavíkurborg mun ná
nokkru lengra í ýmsum
atriðum en lokatillaga rík-
isins gerði.
í gærkvöld var haldinn
félagsfundur í SR í Súlnasal
Hótel Sögu. Var þar margt
manna samankomið, enda
er um að ræða fjölmenn-
asta félagið innan BSRB.
Allnokkur hiti var á
fundinum og voru margir
sem tóku til máls, er mæltu
eindregið gegn samþykkt
samkomulags samninga-
nefndanna.
Helztu rök fyrir fellingu
samkomulagsins voru þau
að það næði alls ekki nógu
langt til móts við kröfur
þær er gerðar voru af
BSRB og svo hitt að ekki
væri rétt að kljúfa SR frá
heildinni innan BSRB, þeg-
ar verkfall væri að skella
á. Væri samstaðan meir
áríðandi en það sem næðist
með þessum samningi.
Þegar Alþýðublaðið fór í
prentun i gær, stóð f undur-
inn enn, en kjósa átti um
samninginn samkvæmt
kjörskrá, svo ekki liggur
fyrir fyrr en í dag hvort
hann var felldur eða sam-
þykktur.
Uppi i hátiðarsal sátu þeir þreyttir af strangri baráttu. Kristján
Thorlacius, formaður BSRB, og Haraldur Steinþórsson,
framkvæmdastjóri þess.