Alþýðublaðið - 18.10.1977, Blaðsíða 1
ÞRIÐJUDAGUR 18. OKTÓBER
Kristján Thorlacius, formaður BSRB:
„Ríkisstjórn hefur ekki
dómsvald,”
í deilunni milli kjaradeilunefndar
og BSRB
„Stjórn BSRB var í
dag boðuð á fund ríkis-
stjórnarinnar, þar sem
jafnframt var staddur
formaður kjaradeilu-
nefndar. jJar var fjall-
að um bréf er stjórn
BSRB hefur borizt frá
kjaradeilunefnd, en
nefndin telur að BSRB
hafi í nokkrum tilvik-
um brotið úrskurði
hennar.
Rikisstj ór nin ræddi
bréf þetta og lýsti þvi
að lögin um valdsvið
nefndarinnar yrði að
virða og úrskurðum
hennar að hlýða.
Okkar svar var aö þaö væri
ekki hlutverk rikisstjórnar aö
kveöa upp dóma i landi hér og
bentum í þvi sambandi á aö
samkvæmt stjórnarskrá
landsins væri valdi þriskipt, i
löggjafarvald, framkvæmda-
vald og dómsvald og dómsvald-
iö væri I höndum dómstóla,
sagöi Kristján Thorlacius,
fcrmaður BSRB,á blaðamanna-
fundi i gær.
„Það er rétt, að ágreiningur
hefurkomiö upp um ýmis atriöi
aö þvi er varöar úrskuröi kjara-
deilunefndar, sagði Kristján
ennfremur, I þvi aö við teljum i
ýmsum tilvikum aö nefndin hafi
farið út fyrir lögin, jafnvel þver-
brotið þau, en þeir telja á móti,
sem rikisstjómin tekur undir,
aö BSRB hafi brotið lögin.
Eins og ég sagði lögðum viö
aöeins á þaö þunga áherzlu á
fundinum, aö þaö væri ddmstól-
anna aö skera úr ágreiningi af
þessu tagi og aö rikisstjómin
væri ekki dómsvald um þaö
hver jir heföu brotiö lög fremur
en við.
Fjármálaráðherra:
upp þar sem frá var ' s "
HorfÍð’ 9 fljótlega get ég ekki sagt L | l
að á þessu stigi, en að
þráðurinn verður
væntanlega tekinn upp
þar sem frá var horfið
og ég vona að þessari
samningalotu ljúki með
samningum. Ég tel eðli-
legt að, viðræðurnar
beinist nú að atriðum i
deilunni, sem ekki hefur
verið um fjallað að
marki enn, en hvort
vænta má hreyfingar
Mathiesen, fjármála-
ráðherra, við blaða-
menn á tröppum
Háskólans i gær, þegar
hann var að koma á
samningafund þar.
Fjármálaráöherra var i gær
spurður að þvi hvort rikið myndi i
viöræðunum taka að einhverju
leiti mið af samningum þeim er
geröir hafa veriö I Reykjavik.
Svar hans var á þennan veg:
„Ég getekki sagt til um þaö, en
auðvitað eru allar nýjar og góðar
hugmyndir velkomnar og sjálf-
sagt að athuga þær”.
BSRB stofnar
verkfallssjóð
„Þaö var samþykkt á fundi
samninganefndar BSRB i gær aö
stofna verkfallssjóð, þaö er
styrktarsjóð vegna míverandi
verkfalls BSRB, sem jafnframt
gæti oröiö visir að reglulegum
verkfallssjóöi, sagði Kristín
Tryggvadóttir, formaður sjóð-
stjórnar hins nýstofnaða sjóös á
blaðamannafundi i gær.
„Ekki hefur veriö ákveöiö
hvernig f jár veröur aflaö til sjóðs-
ins i' framtiöinni, sagði Kristín
Framhald á bls. 8.
Prófkjör Alþýðuflokksins í Rvík:
- - X .................: . * - . " '' ' ' ' * '*
1 gærmorgun mættu nemendur viö Menntaskólann I Hamrahliö á venjulegum tlma, en þeir urðu frá aö
hverfa þar sem ekkert varð af kennslu þann daginn. (AB mynd —KIE)
Engin kennsla í fram-
haldsskólunum í gær
— Þvi er fljótsvarað, aö hér
var engin kennsla i dag, sagöi
einn kennaranna i menntaskólan-
um við Hamrahliö i viötali viö
blaöiö I gær. Verkfallsverðir voru
hér á staðnum meö stifa vörzlu,
og engum var hleypt inn i skól-
ann. Sama máli gegnir um
öldungadeildina.—
Verkfallsveröir frá BSRB voru
einnig viö aöra menntaskóla i
borginni, og að sögn Birgis
Thorlaciusar ráðuneytisstjóra i
Menntamálaráöuneytinu féll
kennsla niöur I þeim öllum, svo og
Háskóla Islands og Tækniskólan-
um, að einni deild undantekinni.
-Fram til þessa hefur veriö
kennt i Menntaskólanum á Akur-
eyri og fjölbrautarskólanum á
Akranesi, sagði hann. 1 hinum
siöarnefnda er þó hluti kennar-
anna innan BSRB, og þeir hafa
lagt niöur störf. Þaö
er þvi vafamál hversu lengi hægt
er aö halda áfram að kenna þar.
Sagöi Birgir Thorlacius enn
fremur, aö ráöuneytiö hefði ekki
tök á aö knýja fram kennslu, ef
ekki væri vilji fyrir þvl. I bréfi
þvi, sem sent hefði verið til fram-
haldsskóianna heföi veriö mælzt
til þess, aö unniö yröi aö þvi aö
koma skólamálum I samtlag aft-
hátt. Skólayfirvöld heföu áreiöan-
lega reynt allt sem i þeirra valdi
stæöi til aö koma kennslu af staö
aftur en þaö heföi ekki tekizt.
-JSS
Sex f ram-
bod bárust
Siöastliðinn laugardag rann
út frestur til aö tilkynna þátt-
töku i prófkjöri Alþýöuflokksins
I Reykjavik fyrir næstu
Aiþingiskosningar.
Sex framboö bárust um þrjú
efstu sætin á lista flokksins. t
fyrsta sætið bjóöa sig fram þeir
Benedikt Gröndal, Eggert G.
Þorsteinsson, Sigurður E.
Guðmundsson og Vilmundur
Gylfason. 1 annað sætið Bragi
Jósepsson, Eggert G. Þorsteins-
son, Sigurður E. Guömundsson
og Vilmundur Gylfason, og i
þriðja sætiö bjóöa sigfram þau,
Bragi Jósepsson, Jóhanna
Siguröardóttir og Siguröur E.
Guðmundsson.
Prófkjörið i Reykjavik fer
fram dagana 12. og 13. nóv-
embern.k.ogerþaöbindandi ef
þátttaka I þvi er meiri en sem
nemur 1/5 hluta af atkvæöa-
magni flokksins i Reykjavik viö
siöustu Alþingiskosningar, en
þáfékk Alþýöuflokkurinn 4Q71
atkvæöi. —GEK
Umræður um kjaradeilu BSRB utan dag-
skrár:
Verkfallsréttur
er mannréttindi
I löngum umræðum sem fram
fóruutandagskrárá Alþingi I gær
kom fram mikill ótti meðal þing-
manna Sjálfstæðisflokksins,
vegna þeirrar staðreyndar aö
opinberir starfsmenn hafa nú not-
fært sér verkvallsrétt sinn i eina
viku. Kvað svo mjög að þessum
ótta að Albert Guðmundsson tal-
aöi um byrjunarstig
kommúniskrar byltingar þar sem
verkfallsverðir gegndu hlutverki
byltingarráða, og Ragnhildur
Helgadóttir krafðist þess ein-
dregið aö reynslan af þessu verk-
falli yröi notuö til þess að
„lagfæra lög um rétt manna til aö
efna til verkfalla”, eins og hún
orðaði þaö.
Umraeðurnar voru til komnar
vegna beiöni Alþýðuflokksins og
Alþýöubandalagsins um aö rikis-
stjórnin geröi grein fyrir viöhorfi
sinu gagnvart samningunum og
stöðunni i samningamálunum.
Rakti Geir Hallgrimsson gang
mála og kvaöst meðal annars
álita, aö ekki væri unnt að veita
opinberum starfsmönnum endur-
Framhald á bls. 8
Sáttafundur
hafinn á ný
„Ég veitekki fremur en aörir
hvaö skeöur á þessum fundi i
kvöld, en auðvitað vona ég aö
viðr . hef jist, enda held ég aö
sáttanefnd hljóti aö beita sér
fyrir þvi, þar sem hlutverk
hennar er málamiölun og þá
einkum með þvi aö koma á viö-
ræðum milli aöila. öörum kosti
veröur þessi fundur tilgangs-
laus, sagði Kristján Thorlacius,
formaður BSRB, á blaöa-
mannafundi i gær.
Samningafundur i deilu BSRB
og ríkisins hófst aö nýju i
Háskólanum I gær, um klukkan
17.00.
Vika er nú liöin siðan upp Ur
viðræöum þessara aöila slitnaði
og verkfall BSRB hófst.