Alþýðublaðið - 18.10.1977, Blaðsíða 6
6
Þriðjudagur 18. október 1977
f 20 ár frá geimför Spútniks hins sovézka:
Áætlunarferdir út í
geiminn
Fyrir 20 árum/ nánar
tiltekið 4. október 1957,
stóp heimurinn bókstaf-
lega á öndinni. Sovét-
menn skutu þá á loft 83.6
kg þungu gerf itungli, sem
síðan þaut um hinn
ókannaða geim góða
stund.
Þannig hófst
kapphlaupið um geiminn
— og síðar samvinna.
Einum mánuði síðar voru
Sovétríkin enn í heims-
fréttunum, í það skiptið
vegna þess að þeir sendu
fyrstu lífveruna út í
geiminn. Var það eski-
móatikin Laika, sem hef-
ur trúlega orðið frægast-
ur allra hunda (að frá-
skyldum nokkrum mann-
hundum sem mannkyns-
sagan greinir frá). Laika
lifði í 7 daga i geimnum.
Dýrapiningar!, var hrópaö úr
öllum heimshornum. En þrátt
fyrir allt gegndi Laika mikil-
vægu hlutverki. Hún fékk aö
visu ekki aö hvila i Kremlar-
múrnum, viö hlið annarra þjóö-
hetja Sovétrikjanna, en fullyrða
má að ferð hennar hafi orðið til
að ryðja brautina fyrir sendingu
mannaðra geimfara út i geim-
inn.
Ari eftir ferð Laiku komust
Kanarnir á blað. Frá Cape
Canaveral kvað við hvellur og
Explorer þaut á loft. Þessi at-
burður varð til þess að lækna að
nokkru minnimáttarkompiex-
ana sem hrjáði Ameríkana á
þeim tima, vegna forskots Sovét
i geimkapphlaupinu.
Bergmálið mikla
En friðurinn i Ameriku var
skyndilega rofinn á ný: 12. april
1961 sendu Sovétmenn hetju
sina Jurij Gagarin út i geiminn,
fyrstan manna. Hann sveif i
lofttóminu i 89 minútur og 34
sekúndur og sveif siðan til jarð-
ar i Siberiu. Siberiuvist hans
varð þó skemmri en margra
landa hans, hann var færður til
Moskvu og þar var hann hylltur
af lýðnum. Auk þess tók hann
við öllum þeim heiðurspening-
um og titlum sem Æðstaráðinu
tókst að finna i rikinu.
En Sovétmenn létu ekki við
þetta sitja. Þeir áttu lika fyrstu
geimkvinnuna: Vladimirovu
Teresjkovu. Hún brá sér i geim-
inn 16. júni 1963 og hafði þar
skamma viðdvöl.
En nú var röðin komin að
úrvalsliði Werner von Brauns.
Lengstu geimferð sögunnar
lauk 8. febrúar 1974. Þá hafnaði
farkostur þeirra Geralds Carr,
Williams Pouge og Edvards
Gibson, Skylab 3, i Kyrrahafi
eftir 85 daga hringsól um jörð-'
Og hápunktur háloftaleikfimi
Amerikumanna var 21. júni
1969, þegar ameriskfr fætur Neils
Armstrong og Edwins Aldrin
snertu yfirborð tunglsins. Þessi
atburður varð nærri þvi til að
varpa skugga á ferð Sputnik-
krilisins sovéska, sem skotið
var á loft 1957.
Siðan Spútnik fór i loftið hefur
ótal gerfitunglum verið skotið á
loft i margvislegum tilgangi.
Menn skjóta á loft visindatungi-
um til að taka loftmyndir, eða
kanna eitthvað i loftinu. Risa-
veldin eiga fjölda snuðurtungla
yfir jörðinni, sem hafa það hlut-
verk að njósna um náungann
o.s.frv. Nú munu alls vera um
2.000 gerfitungl hringsólandi
um jörðina og fer fjölgandi.
En hvað skyldi framtiðin bera
i skauti sér á sviði
geimrannsóknartækninnar?
Geimsérfræðingurinn Chr. R.
Rovsing svarar þeirri spurn-
ingu þannig:
Flutningakerfi
— Það sem næst gerist,
verður væntanlega stofnun
flutningakerfis út i geiminn,
ásamt byggingu hinnar banda-
risku geimferju 1980. Fram til
þess tima mun kostnaður við
þessa áætlun lækka talsvert.
1995 giska ég á að farið verði að
fljúga reglubundið út i geiminn.
Framhald á bls. 10
Rolling Stones
í bitveizlu
Breska blaðið Daily
Mirror hefur lýst þvi
yfir að enn séu Rolling
Stönes hinir einu og
sönnu rokkkóngar.
í meira en tiu ár hafa
Stones sérhæft sig i að
fá fólk til að hneykslast
yfir ósiðsamlegri
framkomu sinni og á
því virðist ekki ætla að
verða lát, þrátt fyrir
. Charlie Watts bltur Jagger I nefið.
tilkomu spýjukrakka
með nælur i nösum, svo
sem hljómsveitarinnar
Sex Pistols og Johnny
Rotten. Ævintýralegar
sögusagnir um kyn-
svall, fikniefnanotkun
og alls kyns hneyksli
meðlima Stones eru
hluti af þeirri mynd
sem snýr að almenn-
ingi.
Og Stones svikja ekki sitt fólk.
Nú bjóða þeir upp á nýja hljóm-
plötu og á umslagi hennar er
mynd eftir bandariska lista-
manninn Andy Warhol, þar sem
hann sýnir Mick Jagger bita
hraustlega i hönd einhvers.
Teikningin mun vera gerð eftir
lifandi uppstillingu. I einkar út-
flippuðum selskap í New York
tók Andy Warhol fjölda mynda
af meðlimum Rolling Stones i
þvi skyni að láta fylgja með
plötunni. Charlie Watts beit i nef
Jaggers, Ronnie Wood smakk-
aði á stóru tá eins gests i sam-
kvæminu og Keith Richard beit
einn gestinn í magann. Siðu bitu
allir alla.
— Þetta eru aldeilis ótrúlegar
myndir, sagði talsmaður Roll-
ing Stones við Daily Mirror. —
Þetta var hugmynd Warhols, en
hún þróaðist I allsherjar bit-
veislu.
Endursagt úr Aktúelt.
A forsfðu nýrrar hljómplötu Stones, „Love your live”, er mynd eftir
Andy Warhol. Hér er það Mick Jagger sem bltur.
Keith Richard gæðir sér á Ronnie Wood smakkar á tá.
magavöðva.