Alþýðublaðið - 18.10.1977, Síða 3

Alþýðublaðið - 18.10.1977, Síða 3
Þriðjudagur 18. október 1977 3 .. 11 Kírópraktor opnar stofu — læknaði ljósmyndara Alþýðublaðsins af bakverk á blaðamannafundi. „Þaö brast eitthvaö inni mér”. „Er hnúðurinn ekki horfinn?” „Heyröiröu ekki brestinn?” „Hvernig liður þér?” „Fjandi vel”. Þessi undarlegu tjáskipti áttu sér staö á blaðamannafundi i gær. Þátttakendur i samræöun- um voru Tryggvi Jónasson, kiropraktor, og ljósmyndari Al- þýöublaðsins. Hafði sá siöar- nefndi tekiö aö sér aö vera til- raunadýr, er Tryggvi sýndi blaðamönnum, hvernig kiróp- raktor ber sig að viö lækningar sinar. Tryggvi fann vöðvaspennu- hnúö á baki ljósmyndarans. Eymsli I baki hafa lengi háö ljósmyndaranum nokkuö og gaf hann frá sér niðurbælt hljóö, er kirópraktorinn snerti hnúöinn. Nú þrýsti Tryggvi snöggt og þéttingsfast á viökomandi hryggjarliö og spennti liöinn þar meö út, hnykkti á ljósmyndar- ann, eins og sagt er á fagmáli. Sekúndubroti siðar áttu sam- ræöur þær, sem að ofan er getiö sér staö. Spennuhnúöurinn var horfinn og fylgjandi verkir einn- >g- Eini kírópraktorinn. Tryggvi Jónasson opnaði ný- lega stofu og er hann eini kiróp- raktorinn, sem starfar á ís- landi. Kirópraktor er sá, sem án hnifs eöa lyfja læknar bakveiki, kemur bakinu i eðlilegt horf aft- ur ef svo má segja. Hann notar hendurnarásamtkunnáttu sinni og bekk eöa stól til aö hnykkja i hryggjarliöi. Hnykkurinn kem- ur hreyfingu á liðamót, sem voru föst eöa hreyföust ekki nægjanlega. Viö hreyfibreyting- una linast þjáningar. Tryggvi Jónasson, klrópraktor. Kirópraktor notar einnig aör- ar aöferöir, sem stuöla aö heil- brigbri mannsins, t.d. þrýst- ingsaðferðir og ráðleggingar um vinnuhagræöingu og um- bætur á vinnubeitingu likam- ans. A kirópraktorstofu fer fram tviþætt starf, annars vegar tiltal og skoöun og svo meðhöndlun ef kirópraktorinn getur hjálpað sjúklingnum. Skobunin er að hluta til kirópraktisk, svo sem könnun á hryggnum og aö hluta til læknisleg. Oft er nauðsynlegt aö framkvæma frekari skoöun til að útiloka aöra sjúkdóma en einkennin gefa til kynna. Þarf þá gjarnan að framkvæma þvagrannsókn, blóörannsókn eöa taka röntgenmyndir. Meö- höndlunin byrjar ekki fyrr en skoðun er lokið. Þeir, sem koma til kiróprakt- ors er fólk, sem hefur verk I baki eöa verki sem stafa frá bakinu, svo sem höfuðverkur eöa mjóbaksverkur-iskias. Einnig getur kirópraktor oft aö- stoðað fólk meö tennisolnboga, iþróttamannahné og jafnvel sinaskeiöabólgu. Það er einnig oft hægt aö hjálpa fólki meö brjósklos, sé þaö ekki komiö á lokastig. Tryggvi Jónasson nam viö Angló-European College of Chiropractic i Bournemouth I Bretlandi, en það er eini kirópraktiski háskólinn i Evrópu. Þetta er fjögurra ára nám að afloknu stúdentsprófi. Kirópraktor er ekki læknir, en námiö er mjög skylt, nema hvað lyfjafræöi og skurðlækningar eru ekki kennd sem fög. Lækningastofa Tryggva Jónassonar, kirópraktors, er til húsa aö Klapparstig 25, 3 . hæö. Viðtalstimar eru frá klukkan 9- 12 og 14-18 alla virka daga nema miðvikudaga, en þá er stofan opin frá 9-13. Róbert Árni Hreiðarsson: Meiðyrdamál og opinber rannsókn —LestuMoggann, sagði Jón E. Ragnarsson Sólnes áfram í Hér hnykkir Tryggvi í háls Hjördísar Elínar. Meö hnykk þessum ■°sar Tryggvi um banakringlu, höfuö og efstu hryggjarliöi og losar Hjördisi um leið viö háisrig, hausverk og magapfnu. (AB-mynd: _ Atli Rúnar) Róbert Árni Hreiðarsson Jóns E. Ragnarssonar hrl., lögfræðingur staðfesti það um hugsanlegt samsæri við Alþýðublaðið í gær, að þeirra og Sigurðar óttars hann hyggðist höfða meið- * Hreinssonar, sem bendlað- yrðamál á hendur dagblað- ur hef ur verið við svonef nt inu Timanum, vegna að- Geirfinnsmál. Þessi að- dróttana í hans garð og dróttun kom i Tímanum, eftir að Sigurður Óttar hafði dregið fyrri játning- ar sínar til baka. Einnig ætlar Róbert Arni aö krefjast opinberrar rannsóknar á þvi, hvort þessi aödróttun sé til Framhald á bls. :8 14.000 tonn af dilkakjöti framleidd á síðasta ári: Meðalneyzlan 42 kg á mann Heildarframleiðsla kindakjöts í landinu á sið- asta verðlagsári landbún- aðarins (1. sept. 1976 — 31. ágúst 1977) var 13.985 tonn, þar af 12.349 tonn af dilka- kjöti. Á verðlagsárinu voru seld innanlands 7.620 tonn af dilkakjöti og 1.508 tonn af kjöti af fullorðnu. Heildarsala á kindakjöti verðlagsárið á undan var 9.165 tonn. Heildarneyzla af kindakjöti á mann reyndist þvi vera 42 kg á mann. Minnsta salan var I janúar, 350 tonn, en mest seldist i ágúst 951 tonn. A siöasta ári var nokkru meiri útflutningur kindakjöts en áður. Þá voru 4.772 tonn af dilkakjöti seld út landi og 353 tonn af full- orðnu. Ariö þar áöur var heildar- útflutningurinn 4.335 tonn. —ARH Enn rís land í Mývatnssveit i samtali við Jónu Guðmundsdóttur á skjálftavaktinni í Reykja- hlíð í gær, kom fram að þar fer jarðskjálftum enn fækkandi, á sama tíma og landris ieykst. Sagði Jóna að 54 skjálft- ar hefðu mælzt á svæðinu siðastliðinn laugardag og var skjálftafjöldinn svip- aður í gær. I Mývatnssveitinni er nú unniö af fullum krafti við gerö varnar- garðs við Kisiliöjuna auk þess sem veriö er aö lagfæra vegi i sveitinni. Þar var veöur þokka- legt i gærdag, en nokkur súld. —GEK fylkingarbroddi Um helgina var haldið kjördæmisþing Sjálf- stæðisf lokksins í Norður- landskjördæmi eystra og ákveðin röð efstu manna á framboðslista flokksins við næstu alþingiskosning- ar. Er skipan efstu sæt- anna óbreytt frá síðustu kosningum og skipar Jón G. Sólnes efsta sæti, Lárus Jónsson annað, Hallddr Blöndal hið þriðja og í næstu sætum eru þeir Vigfús Jónsson, Laxamýri, Stefán Stefánsson verk- fræðingur og Svavar B. Magnússon frá Ólafsfirði. Osta- og Smjörsalan: Skorar á Fram- leiðsluráð að lækka verð á smjöri Þann 1. október síðast liðinn námu birgðir af smjöri í landinu 1070 lest- um, sem er um 645 lestum meira en á sama tíma í fyrra. Af ostum voru til í landinu á sama tíma 1320 lestir, sem er um 414 lestum moira en 1. október 1976. Þessar upplýsingar komu fram í erindi sem óskar H. Gunnarsson framkvæmdastj. Osta- og smjörsölunnar hélt á fúndi forráðamanna allra mjólkursamlaga í landinu fyrir skömmu. Aö sögn öskars eru birgöir mjólkurafuröa nú meiri en þær hafa veriö mörg undanfarin ár, þrátt fyrir aö sala hafi gengiö vel á flestum afuröum aö smjöri undanteknu. Niöurgreiösla á smjörveröi er með minnsta móti um þessar mundir eöa 31%, af smásöluveröi, en hefur oftast numiö um 45-50% af smásöluveröi og komizt upp i 70%. Hefur Osta- og smjörsalan nú beint þeirri áskorun til Fram- leiösluráös aö þaö finni leiöir til aö lækka verö á smjöri án þess aö þaö bitni á framleiðendum. Hefur meðal annars veriö bent á þá leið að lækka verö á smjör- fitu, en hækka verð á próteini. Þess má að lokum geta aö fyrstu átta mánuöi þessa árs seldust 94lestir af smjöri, en sem fyrr segir námu óseldar smjörbirgöir i landinu 1070 lestum þann 1. október siöast- \ liöinn. —GEK

x

Alþýðublaðið

Beinleiðis leinki

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Alþýðublaðið
https://timarit.is/publication/2

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.