Alþýðublaðið - 09.11.1977, Side 1
MIÐVIKUDAGUR 9. NÓVEMBER
237 TBL. — 1977 — 58. ÁRG.
Ritstjórn
Alþýðublaðsins
er f Síðumúla 11 —
Sfmi (91)81866
Fjárlagarædan
flutt f gær:
Utflutnings-
uppbætur
hækka um 64,4%
Matthías Mathiesen
fjármálaráöherra flutti
fjárlagaræðu sína á Al-
þingi í gær. Sagði ráð-
herrann í ræðu sinni að
mikill bati hefði orðið í
efnahagslífi þjóðarinnar
á siðasta ári og fyrri
hluta þessa árs. þjóðar-
framleiðsla hefði aukizt,
viðskiptakjör farið batn-
andi og verulega hefði
dregið úr verðbólgu, auk
þess sem viðskiptahalli
áranna 1974—'75 hefði að
mestu horfið.
Nú væru horfur hins vegar allt
aðrar og verri, sagði ráðherr-
ann og kenndi um launasamn-
ingum sem farið hefðu yfir þau
mörk sem efnahagsbatinn hefði
gefið tilefni til. Einnig virtust
verðhækkanir á útflutningsvör-
um nú vera búnar að ná sinu há-
marki og verulegur vandi steðj-
aði að undirstöðuatvinnugrein-
um þjóðarinnar.
Ráðherra sagði að vexti
einkaneyzlu yrði að stilla mjög i
hóf á árinu 1978, en gerði þó ráð
fyrir að hún yxi um 5—6% á
móti 8% aukningu á þessu ári.
Hvað einstaka þætti fjárlaga-
frumvarpsins snertir skal þess
getið, að ráðherra gerði ráð fyr-
ir að niðurgreiðslur innarilands
væru áætlaðar 6.531 milljónir
króna, sem er 28% hækkun frá
fjárlögum þessa árs. Hins vegar
er hækkun útflutningsuppbóta
áætluð 64.6% frá þvi sem er i ár,
i 2.963 milljónir króna.
Almannatryggingar hækka
Framhald á bls. 10
Vöruskipti óhag
stæd um 9 millj
arða á 9 mán.
Vöruskiptajöfnuður
islendinga fyrstu niu
mánuði þessa árs var ó-
hagstæður um liðlega 9
milljarða króna. Á sama
timabili i fyrra var
vöruskiptajöfnuðurinn
óhagstæður um 5.2 mill-
jarða króna.
1 siðasta mánuði, september,
var vöruskiptajöfnuðurinn óhag-
stæðurum 2.7 milljarða króna, en
i sama mánuði í fyrra var hann
hagstæður um tæplega 900 mill-
jónir. Það sem af er þessu ári
hafa tslendingar flutt út vörur
fyrir74.2 milljarða króna, en flutt
inn fyrir 83.3 milljarða.
Hluti áls og álmelmis af út-
flutningi landsmanna nemur 11.4
milljörðum króna, en til tslenzka
álfélagsins hefur verið flutt inn
fyrir 5.3 milljarða. Innflutningur
vegna Kröfluvirkjunar nemur 416
milljónum og vegna Landsvirkj-
unar (að mestu vegna Sigöldu-
virkjunar) 559 milljónum króna.
Suðurlands-
sfldin sem
þegar hefur
verið sölfuð:
Andvirðið
nemur 2,6
- 2,8 millj-
örðum kr.
Áætlað er að útflutn-
ingsverðmæti þeirrar
Suðurlandssildar sem
þegar hefur verið söltuð
nemi 2,tr-2.8 milljörð-
um króna, en þess má
geta að umbúðakostnað-
ur vegna þessa útflutn-
ings, það er að segja
innkaupsverð tunnanna,
er um 10% af útflutn-
ingsverðmætinu, eða á
milli 260—280 millj.
króna.
Laust fyrir siðustu helgi
nam heildar síldarsöltun Suð-
urlandssildar á vertiðinni
104.955 tunnum. Mest hafði þá
verið saltað á Hornafirði eða
32.282 tunnur, en næst komu
Grindavfk með 14.757 tunnur
og Vestmannaeyjar með
14.189 tunnur. Ofangreindar
þrjár söltunarstöðvar skera
sig úr hvað magn varðar, en
næst þeim kemur borlákshöfn
með 7007 tunnur,alls hefur sild
verið söltuð á 17 stöðvum á
svæðinu milli Seyðisfjarðar og
Stykkishólms.
Sildin er söltuð á mismun-
andi hátt i samræmi við óskir
kaupenda i hinum ýmsu
markaðslöndum, en auk þess
er hún flokkuð i þrjá stærðar-
flokka við söltun. Samkvæmt
tilkynningum söltunarstöðva
til Sildarútvegsnefndar hafa
um 67% þeirrar sildar sem
söltuð hefur verið til þessa
farið i 1. stærðarflokk, 24% i 2.
stærðarflokk og 9% i 3. stærð-
arflokk.
Þær 104.955 tunnur sem salt-
aðar höfðu verið þann 5. nóv-
ember siðast liðinn skiptust
þannig milli hringnótar og
rekneta, 57.420 tunnur voru
veiddar i hringnót en 47.532
tunnur i Reknet. gek
Það ieynir sér ekki, Vetur konungur hefur náð völdum rétt einu sinni enn, likast til með byltingu. Sú er
raunar orðin meir en sextug. Þessar ungu stúlkur voru að leika sér á skautum á Tjörninni I gær, þegar
við fórum fram hjá, enda svelliðorðið vel helt. (AB-mynd HV)
Síldveiðar
í reknet
stöðvaðar
Sjávarútvegsráðu-
neytið hefur ákveðið að
stöðva allar síldveiðar i
reknet frá og með næst
komandi föstudegi 11.
nóvember.
Sildveiðar i reknet hófust
samkvæmt leyfi sjávarút-
vegsráðuneytisins þann 20.
ágúst og átti leyfið að standa
til 20. nóvember svo fremi sem
ekki hefði þá þegar verið búið
aö. fylla 10. þúsund lesta kvót-
ann sem settur var i upphafi
sildveiðanna.
Svo sem fram kemur á öðr-
um stað i blaðinu i dag, hafði
verið saltað i 104.952 tunnur
þann 5. nóvember siðast lið-
inn, þar af höföu 47.532 tunnur
fengist i reknet.
—GEK
V
Sambandsstjórn IVIálm- og skipasmiðasambandsins:
Þátttaka í sameiginlegum
samningum sé endurskoðuð
T,Launajöfnunarstefna ASÍ hefur ekki dregid úr launamisrétti”
„Sambandsstjórn Málm- irbúa beina kjarasamningagerð skipasmiði um launakjör málm- Islands gerði á sambandsstjórnar-
oq skÍDasmíðasambands Málm- ogiskipasmiðasambands Is- iðnaðarmanna og skipasmiða”. fundi.sem haldinn varum siðustu
icl . /l|llr •• lands og sambandsfélaganna við Þannig endar ályktun sem helgi á Akureyri. í ályktuninni
isianas Teiur pvi ao niour- atvinnurekendur i málmiðnaði og Málm- og skipasmiðasamband Framhald á bls. 10
stoður þriggia siðustu
kjarasamninga og reynsl-
an af samningagerðinni
leiði óhjákvæmilega til
endurskoðunar á þátttöku
málmiðnaðarmanna og
skipasmiða í sameiginlegri
samningagerð verkalýðs-
félaganna.
Af þessum ástæðum beinir-
sambandsstjórnarfundur Málm-
og skipasmiðasambands íslands
þvi til sambandsfélaganna og fé-
lagsstjórna að efla enn frekar
samstarf og samstöðu innan
Málm- og skipasmiðasambands
Islands og gera ráð fyrir og und-
Samtökin minnka enn:
Steinunn hætt störfum
fyrir flokkinn
Dauðastríð Samtaka
frjálslyndra og vinstri
manna heldur enn áfram.
Hver liðsmaðurinn á fæt-
ur öðrum hefur yfirgefið
flokkinn og ýmist haslað
sér völl annars staðar í
í nefndum
pólitikinni eða stendur ut-
an flokka um sinn.
Siðustu fréttirnar af erfiðleik-
um flokksins eru þær aö Stein-
unn Finnbogadóttir sem verið
hefur ein styrkasta stoð Sam-
takanna um langt skeið og ef til
vill sá aðilinn innan þeirra sem
hvað virtastur hefur verið, hef-
ur nú skrifað flokksforystunni
bréf þar sem hún lýsir þvi yfir
að framvegis muni hún ekki
taka þátt i störfum fyrir flokk-
inn. Þetta gildir um þær nefndir
sem hún hefur verið kosin i af
hálfu flokksin og önnur störf
sem hún hefur innt af hendi.
—hm