Alþýðublaðið - 09.11.1977, Side 5

Alþýðublaðið - 09.11.1977, Side 5
blaXiö^Miðvikudagur 9. nóvember 1977 5 Erindi Þorsteins Ö. Stephensens um daginn og veginn: Það er keyrt áfram án allrar fyrirhyggju A mánudag fyrir viku siðan flutti Þorsteinn Ö. Stephensen, leikari, erindi í þættinum „Um daginn og veginn" i út- varpinu. Alþýðublað- inu þykir ástæða til að birta erindi Þorsteins í heild, en vegna rúm- leysis verðum við því miður að skipta því í tvo hluta. SÍÐARI HLUTI En ekkert af þessu getur haggað þeirri sannfæringu minni, að með hinum nýju að- gerðum i landi Arnarhóls, sé freklega gengið á þann stað, sem hefur eignast sérstakt at- hvarf i hugum borgarbúa og er ekki aðeins vegsemdar verður vegna stöðu sinnar i umhverf- inu, heldur einnig fyrir minn- ingargildi sitt, jafnvel langt um- fram allar sagnfræðilegar heimildir, Fyrir þær sakir er það einnig óhagganleg sannfær- ing min, að hér sé i uppsiglingu ömurlegt slys, óskiljanlegt og óþolandi. En þegar slys ber að höndum, eða þegar menn sjá fyrir slys, þurfa menn yfirleitt engin heilabrot eða vangaveltur til að komast að þeirri niður- stöðu, sem ein er mannsæm- andi. Þvert á móti bregðast menn sjálfkrafa við, og leggja allt i sölurnar til að koma i veg fyrir meira slys og bjarga þvi, sem bjargað verður. Þorsteinn ö. Stephensen. Þetta var úr ávarpi Tómasar. — Mótmælaundirskriftir hófust á fundinum, og var þeim haldið áfram i nokkrar vikur. Söfnuð- ust, að mig minnir þvinær 8 þúsund nöfn. Þau voru svo bundin inn i þrjár rexinmöppur, og seinna afhent borgarstjóra, með bréfi (sem seinna verður e.t.v. tækifæri til að birta i ann- að sinn.) Mjög ánægjulegt var sam- starf þessara 12 menningarfél- aga sem að mótmælunum stóðu. Þessir aðilar hefðu þó orðið mun fleiri ef atvikin hefði ekki borið upp á sumardaga og margir fjarverandi. Einkum þótti okk- ur að þvi mikill skaði að sá aðil- inn sem mest áhrif hefði getað haft i þessu máli, og enginn þor- að að ganga i berhögg við, Nátt- úruverndarráð, var á við og dreif um landið. Mér tókst að ná simasambanði við formann þess, Eystein Jónsson, þar sem hann sat á þýðingamiklum flokksfundi austur á Hallorms- staö, og gat þvi ekki lagt okkur lið i það sinn. Ég ræddi þetta seinna við Eystein, og tjáði hann mér þá að þeir i ráðinu teldu vernd ýmissa merkra staða viðsvegar um land eink- um heyra undir sig, en siður staði eða mannvirki i bæjum. Ég spurði hann þá hvort hann teldi ekki að Arnarhóllinn ætti að hafa sérstöðu. Þvi svaraði hann afdráttarlaust játandi. Það er nú von okkar, min og þeirra fyrri samherja minna, sem mér hefur unnist timi til að hafa samband við, að Náttúru- verndarráð skerist nú i málið, gangi fram og segi skýrt og skorinort hvern hug það ber til þeirra framkvæmda sem þarna eru fyrirhugaðar á og við Arnarhól og á gamla Battariinu, hvort þeir vilja ekki forða þjóð sinni, eins og ástatt er fyrir henni, frá þvi að þarna verði hrúgað upp ókynstrum af járn- bentri steinsteypu með malbiki umhverfis, og þar með deydd siðustu stráin i grænu bylting- unni borgarstjórans, sem sner- ist upp i andhverfu sina. [s KOÐl 1 N Kristín Guðmundsdóttir skrifar: ara um vik að setja sig i sam- band við flokksmenn um land allt og treysta viö þá flokks- böndin. „Hátt settir flokksmenn” hafa þó ekki virt þessa viöleitni formannsins meir en svo, aö þeir hafa reynt að bregða fyrir hann fæti og gefið kost á sér II. sæti á móti honum, þó að þeir hafi fyrirfram mátt teljast or- uggir um II. eða III. sæti. Þar kemur enn einu sinni i ljós sá skortur á einingu, fórn- fýsi og samstarfsvilja sem ein- kennt hefur Alþýöuflokkinn oft á tiðum. En það er hinn almenni alþýðuflokksmaöur sem ákvörðunarvaldiö hefur og von- andi er hann á hærra menning- arstigi en „metorðaklifrararn- ir”. Aö lokum vil ég minna á, aö kosningaósigur riöur engum sönnum stjórnmálamanni aö fullu, ef hann hefur starfaö eftir samvizku sinni og betri vitund. Af klofnings- og upphlaups- mönnum hefur Alþýöuflokkur- inn þegar fengið miklu meira en nóg. Þess vegna er þaö Alþýöu- flokknum og jafnaöarstefnunni hrein og bein lifsnauösyn aö forkólfarnir brjóti odd af oflæti sinu og snúi við af einstefnu- akstursgötu persónulegrar valdafiknar og sérgæöingshátt- ar. Þáttur þeirra sem hlúa aö og kynda undir slikum hvötum forystumannanna er einnig alvarlegur - og taki þeir til sln sem eiga. Undanfarnar vikur hefur ver- iö unniö af miklum krafti og dugnaöi aö prófkjöri fyrir Borg- arstjórnar- og Alþingis- kosningar á næsta ári. Þarf ekki annaö en aö lita á stjórnmála- skrif og skoðanaskipti einstakra flokksmanna á síöum Alþýöu- bla;ösins og fleiri dagblaöa i landinu. Að vissu marki er þó ekki annað en gott eitt aö segja um slik skrif, ef þau einkennast af áhuga, óeigingirni og virð- ingu fyrir öörum sem kannski eru ekki alveg á sama máli. En ekki þarf maöur lengi að lesa né heyra á tal manna til þess aö sannfærast um aö hinar „fögru dyggðir” sitja þar ekki ávallt i fyrirrúmi. Þvi miöur hefur það settmjög mikinn svip á islenzka pólitik hin siöari ár - og er Alþýöuflokkurinn þar siö- ur en svo undanskilinn, að menn hafa látið persónulega metnað- argirnd með öllu þvi sem henni fylgir, þegar hún er rekin af ófyrirleitni og ákafa, ráöa ferö- inni I stað hugsjónamennsku og fórnarlundar á altari almenn- ings heilla og velferðar flokks sins. Upp af þessu illa sæöi hefur svo aö sjálfsögðu sprottið iligirni, rigur og rótarskapur sem bægt hefur heilbrigöu og heiöarlegu fólki frá þvi að blanda sér inn i umræðumar eða taka yfirleittþátt i pólitlsku starfi. Viö skulum hiklaust horf- ast I augu við þá staöreynd aö stjórnmálamenn og virkir fél- agar stjórnmálaflokka hafa stórum settofan hjá almenningi og tapaö viröingu sinni meö þjóöinni. Sökin erhjá stjórnmálamönn- unum sjálfum og þeim sem fjallað hafa um stjórnmál 1 ræöu og riti á siöum Dagblaösins eða annarra blaöa, ausið andstæð- inga sina og jafnvel samherja auri ogeðju iþviskyni að koma sjálfum sér eða áhangendum sinum i æöstu sæti og valda- stóla. í hita eiginhagsmuna- moldviörisins hafa þeir gjörs amlega gleymt þeim mannasiöum, sem viö skulum gera ráö fyrir að þeim hafi veriö kenndir af foreldrum sinum - þar á meðal ágætu og óeigin- gjörnu alþýöuflokksfólki af gamla skólanum, sem mat hugsjónina meira en veraldleg- an frama og eftirsókn eftir vindi og virðingarstööum. Sök þeirra manna sem standa I fararbroddi og temja sér slik- an málflutning er stór. 1 stjórn- málaflokki eins og Alþýöu- flokknum, sem fyrst og fremst byggir tilveru sina og stefnumiö á drengskap, fórnfýsi og sam- kennd allra manna hlýtur slikt innra niöurrifsstarf aö verka lamandi, rifa niöur innviöu flokksins og fá andstæöingum hans vopn i hendur, auk þess sem hinir óbreyttu flokksmenn 1 og aörir fylgismenn jafnaðar- stefnunnar vita naumast sitt rjúkandi ráð I moldviöri stór- viöranna og persónuniösins. ‘ Islenzku alþýöuflokksfólki væri sæmra aö treysta einingu sina en drepa henni á dreif, ein- beita orku sinni og áhuga að þvi aö stækka flokk sinn i stað þess aö minnka hann, opna hann i staö þess aö loka honum og leggja eitthvaö jákvætt tÚ hvers menningar- og framfaramáls I staö þess niöurrifsstarfs er menn leggja svo mjög stund á um þessar mundir. Þá vil ég minna alþýöuflokks- fólk iReykjavik áþá staöreynd, að formaður flokksins gefur nú kost á sér 11. sæti listans i fyrir- huguðum Alþingiskosningum að velathuguðu máli.Með þessu er formaðurinn aö bjóðast til þess að láta flokkinn njóta starfs- krafta sinna enn betur en áöur, þar sem höfuðstöövar hans eru hér i Reykjavik og þvi auðveld- SKOÐUN Sæmundur G. Lárusson skrifar: Alþýðuverka- mannaflokkur Margir munu þeir vera, sem hugsa til þess aö efla Alþýöu- flokkinn viö næstu kosningar, sem mætti gjarnan heita þvi nafni, sem yfirskrift greinar þessarar ber. En til þess að samstaöa megi veröa, og vöxtur flokksins megi veröa, þurfa þeir ungu og snjöllu menn aö stilia skap sitt, og ekki skammast, þótt sumir segi aö það skerpi kærleikann, þá held ég, aö þeir mættu hafa betur meö sér sam- ræöur, — og þar meö vinna flokknum mörgum sinnum meira gagn, heldur en láta skaphita verða til þess aö sundra þvi afli sem þeir ráöa yfir sameinaöir. Vil ég, sem, þessar linur rita, engan af þeim missa. Ég varö aö yfirgefa siöast liöiö ár þann flokk sem ég hafði stutt, og nú hef ég fullan hug á þvi, að þau öfl sem ég tel að ættu aö geta sameinast, yröu mjög sterk. A ég þar viö að samtökin geti sameinast Alþýöu- flokknum, allir þeir sem næstir flokknum hafa staöiö. Sú sam- staöa yrði sem ein heild og ná stórum kjósendafjölda, ef aö yröi. Mig langar i þessu sambandi aö nefna nokkur nöfn, og fara þau hér á eftir. Benedikt Gröndal, Vilmundur Gylfason, Sighvatur Björgvinsson, Karvel Pálmason, Magnús Torfi Olafs- son, og sjálfsagtmiklu fleirieru þeir menn sem gætu myndaö þaö sterka heild, aö úr yrði sterkasta pólitiska afliö eftir næstu kosningar. Einn af þessum mönnum, Magniis Torfi Ólafsson, hefur setiö i ráöherra- stóli, og munu þaö margir mæla, aö hann ætti að endur- heimta sitt sæti. Magnús hefur unniö sér gott fylgi fyrir rök- fasta og eftirtektarverða fram- göngu á alþingi. Og eins munu hinir, sem ég nefndi áöan sist bregöast þvi trausti, sem kjós- endur þeirra mundu leggja þeim á heröar. Eftir aö hafa lesiö grein Jóns H. Guömundssonar, skólastjóra i Kópavogi, sem birtist I Dag- blaðinu, fyllist maöur undrun yfir þvi aö slikt og þvilikt geti hent flokksbundinn mann, eins og Björgvin Guömundsson. Þvi aö það má' hann vita, aö Vilmundur Gylfason mun ekki einasta sópa til sln allmiklu Framhald á bls. 10

x

Alþýðublaðið

Direkte link

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Alþýðublaðið
https://timarit.is/publication/2

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.