Alþýðublaðið - 24.11.1977, Blaðsíða 1

Alþýðublaðið - 24.11.1977, Blaðsíða 1
FIMMTUDAGUR 24. NÓVEMBER 250. TBL. — 1977 — 58. ÁRG. Ritstjórn blaðsins er til húsa í Síðumúla 11 - Sfmi (91)81866 — Kvöldsími frétta- vaktar (91)81976 HH Varamenn og auöir stólar gæti þessi mynd heifið/ en hana tók Ijósmyndari blaðs- ins GEK í Alþingi í gærr en þar sitja um þessar mundir þeir Björn Jónsson for- seti ASI og Kjartan ólafsson, ritstjóri Þjóðviljans. Árið 1977: 14,7% útflutnings- tekna í afborganir og vaxtagreiðslur! Samkvæmt áætlun framleiðslunni. I árslok ið 1973 var það aðeins Seðlabankans munu fast- 1976 námu skuldir þessar 22%. Þetta kemur fram i ar erlendar skuldir þjóð- rétt tæpum 96 milljörð- skýrslu Þjóðhagsstofnun- arbúsins i árslok/ nema um, sem var 37% af þjóð- ar um //Þjóðarbúskap- 129 milljörðum króna. arframleiðslunni. Arið inn". Nemur SÚ upphæð um 1975 var þetta hlutfall t skýrslunni er þess einnig 36% af heildarþjóðar- hvað hæst eða 39%, en ár- Framhaid á bis. ío Heildarfiskaflinn kominn í rúmlega 1.2 milljónir tonna! Heildarafli lands- manna fyrstu 10 mánuði þessa árs nam samtals 1.237.275 lestum af óslægðum fiski. Á sama tima i fyrra var aflinn 873.256 lestir. Er það um 40% aukning frá fyrra ári. Nær öll aflaaukning- in er loðna. Fyrstu 10 mánuði þessa árs veidd- ust rúmlega 764.000 tonn af loðnu en voru á sama tíma í fyrra rúm 427. þús- und tonn. Þetta kemur fram i skýrslum Fiskifé- lags islands. Botnfiskaflinn á þessu tima- bili var árið 1977 415.000 tonn, en var á sama tima i fyrra rúm 393.000 tonn. Mest af botnfiskaflanum fyrstu 10 mánuði þessa árs kom á land á svæðinu frá Vest- mannaeyjum til Stykkishólms, eða um 215.000 lestir. Samkvæmt skýrslunni hefur sildarafli minnkað heldur frá þvi i fyrra á þessu timabili eða úr rúmum 20.000 lestum i tæpl. 15.000 lestir. Rækju-, humar-, og hörpu- diskveiði hefur staðið i stað milli áranna, en kolmunnaveiði hefur aukizt úr rúmum 500 tonn- um i tæp 12.000. — ES Skýrsla Þjóðhagsstofnunarinnar um þjóðarbúskapinn: Vandi verðþensl- unnar óleystur! „Mikil hætta er á að hraði verðbólgunnar hérlendis aukist á ný á næstu mánuðum”, seg- ir i nýútkominni skýrslu Þjóðhagsstofn- unar um þjóðarbú- skapinn. í skýrslunni segir að þróunin i verð- lagsmálum á þessu ári hafi verið með þeim hætti, að bilið milli verðhækkana hérlendis og annars staðar fari nú breikkandi, en i þvi felist alvarleg hætta fyrir samkeppnisað- stöðu atvinnuvega þjóðarinnar. Siðustu misserin hafi óvenju ör hækkun útflutnings- verðlags dregið veru- lega úr þessum vanda, en vitaskuld sé ekki treystandi á hana til frambúðar. Þess er getið að um mitt ár 1977 hafi veröbólguhraðinn ver- ið kominn niður í 26% á ári, eða um helming þess, sem hann varð mestur 1974. 1 kjölfar launasamninganna f sumar hafi áttin snúizt og megi nú reikna meö því að meöalveröhækkun ársins 1977verði 31%. Þetta eru þvi sem næst sömu tölur og í fyrra og miðar þvi ekkert i þá átt að draga úr veröbólgu á ár- inu. Laun hafa hækkað afar mikið á árinu, segir i skýrslu Þjóö- hagsstofnunar, og nú þegar nemur hækkunin um 40% frá áramótum. Þegar við bætast samningar opinberra starfs- manna og launahækkanir 1. desember stefni hækkunin á ár- inu i 60%. Mun það vera eitt mesta stökk á einu ári sem menn minnast, að minnsta kosti frá árinu 1942. Höfundar skýrslunnar geta þess að launahækkanir þessar feli i sér miklar kosnaöarhækk- anir og auki hættu á verðhækk- unum á næstu mánuöum. Vegna mikillar hækkunar útflutnings- verðs sjávarafla hafi þetta ekki valdið vaxandi viðskiptahalla eða rekstrartruflunum, en um — og ýmsar hættur framundan í þeim efnum! leið og dregur úr hækkunum þessum verði vandinn erfiöari viðureignar. Það hafi þegar komiðfram i rekstrarstöðu fisk- vinnslunnar og aðrar greinar útflutningsframleiðslunnar kunni jafnvel að vera í enn erfiðari rekstrarstöðu. Mjög hæg innistæöuaukning I bönkum að undanförnu mun setja skobður við útlánamögu- leikum bankakerfisins. Hins vegar verði eflaust þrýst á úr mörgum áttum um fjármagn. Lokaorð þess kafla skýrsl- unnar sem fjallar um verölags- mál á árinu 1977 eru þau að hag þróunin á árinu hafi bæði sinar björtu og dökku hliöar. Annars- vegar hafi atvinna verið næg, viðskiptajöfnuður viö útlönd viðunandi, þjóðarframleiðsla, kaupmáttur heimilanna og við- skiptakjör hafa stefnt upp á við og liggja nærri bezta lagi að fyrri reynslu, en vandi verð- þenslunnar sé óbreyttur og ýmsar hættur framundan i þeim efnum. ES

x

Alþýðublaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Alþýðublaðið
https://timarit.is/publication/2

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.