Alþýðublaðið - 24.11.1977, Blaðsíða 7

Alþýðublaðið - 24.11.1977, Blaðsíða 7
tsssr Fimmtudagur 24. nóvember 1977 7 Rádstefna Sambands ungra jafnaðarmanna á Norðurlöndum um auðæfi hafsins haldin í Reykjavík Á vegum Sambands ungra jafnaöarmanna á Norðurlöndum er nú haldin alþjóðleg ráðstefna i Reykjavík/ þar sem fjallað er um auðæfi hafsins, hafréttarmál og málaflokka þeim tengdum. Ráð- stefnuna sitja 28 þátttakendur, þar af 23 erlendir. Þeir koma frá Portúgal, Noregi, Svíþjóð, Finn- landi, Danmörku, Belgiu, Bretlandi og Vestur- Þýzkalandi. Þaðvar Einar Ágústsson, utanrikisráðherra, sem setti ráðstefnuna á mánudag og síðan f jalla.ði Ivan Kristoffersen frá Noregi um hafréttarmál. Á þriðjudag ræddi Benedikt Gröndal, formaður Al- þýðuflokksins um efnahagslögsögu, verndun eða yfirráðastefnu strandríkja. I gær, miðvikudag, f jallaði norski vísindamaðurinn, Kim Traavik, um baráttu rikja til að öðlast yfirráðarétt yfir verð- mætum í hafi og á hafsbotni. Ráðstefnunni lýkur á föstudagskvöld, en meðal annarra ræðumanna þar er brezki þingmaðurinn Mark Huges og Gunnar Sætersdal, forstjóri norsku hafrannsóknastofnun- arinnar. Á ráðstefnunni er mikið starfað í hópum, og munu niðurstöður hennar síðan verða gefnar út í skýrslu. Atvinnulaus sjómaður frá Hull. Þessi ráðstefna er liður i þvi starfi ungra jafnaðarnaianna á Norðurlöndum, að fjalla um einstaka mikilvæga málaflokka i þeim tilgangi meðal annars, að kynnast mismunandi sjónar- miðum og reyna að samræma stefnu jafnaðarmannaflokk- anna til þeirra málefna, sem fjallað er um. Á þessari ráðstefnu hefur ver- ið valin sú leið, að fá til skrafs og ráðagerða fulltrúa strand- rikja i Norður og Suöur-Evrópu, rikja, sem nærfellt eru landlukt og rikja, sem eiga takmarkaðan aðgang að sjó. Þannig situr t.d. ráðstefnuna fulltrúi frá Hull, ungur sjómaður úr brezka verkamannaflokknum, sem nú er atvinnulaus, m.a. vegna þess, að íslendingar færðu út landhelgi sina i 200 mllur. Þá stuðning viða um heim, og þá ekki sizt á Norðurlöndunum. Lökken sagði, að Samband ungra jafnaðarmanna á Norð- urlöndum reyndi á hverjum tima að fjalla um mál, sem væru ofarlega á baugi. Þannig vildi sambandið auka þekkingu fé- laga sinna og gera þá hæfari til að mynda sér skoðanir, byggðar á beztu fáanlegu upplýsingum. Það væri einnig mjög mikilvægt fyrir ungt fólk i þessari hreyf- ingu að skiptast einarðlega á skoðunum, og reyna sfðan að móta sameiginlega stefnu til þeirra mála, sem fjallað væri um. Hann gat þess, að Sambandið myndi efna til fimm ráðstefna og funda á þessu ári. Á næstunni yrði haldin fjölmenn ráðstefna i Noregi, þar sem rætt yrði um slökun spennu i heiminum, hernaðarmál og fleira. Hann lét mjög vel af þessari ráðstefnu, Benedikt Gröndal, formaður Alþýðuflokksins, flytur erindi á ráðstefnunni. Einn fulltruinn vard atvinnulaus vegna útfærslu íslenzku landhelginnar Antonio Ribeiro, formaður nefndar portúgöisku rlkisstjdrnar- innar, er fjallar um endurnýjun sjávarútvegs og fisklðnaðar. — Landheigin útaf ströndum Portúgals er aðeins litill hluti þeirra hafsvæða, sem Portúgal- ir fá yfirráð yfir við útfærsluna. Stærstu svæðin verða i kringum eyjarnar Madeira og Azoreyjar. Til þessa hafa portúgalskir sjómenn einkum sótt mið út,af Kanada, Suður- og Norður- Afriku. Þeir vita litið um eigin fiskstofna, og hafa nú fengið norska visindamenn og haf- rannsóknaskip frá Noregi til að- stoðar við könnun fiskstofna innan þeirra eigin landhelgi, eins og hún verður eftir 1. júli næst komandi. Þeir félagar kváðust hafa mikinn áhuga á þvi, að koma á svipaðri sam- vinnu við lslendinga. Þeir sögðu, að Itússar, Spán- ver jar og Japanir hefðu stundað veiðar á miðunum útaf Portú- gal, við Madeira og Azoreyjar. Viö þessar þjóöir væri nú reynt að semja vegna útfærslu land- helginnar. Búast má við, að veruleg aukning verði i framleiðslu sjávarafurða eftir útfærsluna. Nú starfa um 15 þúsund sjó- menn i Portúgal og um 10 þús- und vinna i fiskiðjuverum. Þessi tala mun hækka verulega, þeg- ar landhelgin stækkar. — Þeir félagar sögðu, að rikisstjórn Soaresar hefði mikinn áhuga á þvi að efla sjávarútveginn, þvi að hann gæti tekiö við verulegu vinnuafli. Þeir sögðu, að vegna óhag- stæðs viðskiptajafnaðar Portú- gala við útlönd, virtist erfitt fyr- ir þjóðina að kaupa mikið af fiski erlendis frá. Þetta ætti meðal • annars við um Islend- inga. Hins vtgar stæðu vonir til að lslendingar gætu keypt meira af Portúgölum, og þá gætu fiskkaupin aukizt. Þeir félagar sögðu, að þeir væntu sér mikils af ferðinni hingað. Þeir gætu margt lært af tslendingum, sérstaklega i sambandi við tæknivæðingu sjávarútvegs, en á þvi sviði væru Portúgalar skammt komnir. Hins vegar væri nú haf- inn undirbúningur að miklum breytingum og endurnýjun fiskiskipastóls landsins, svo og fiskvinnslustöðva. Jan Lökken. Alþýðublaðið ræddi við nokkra fulltrúa á ráðstefnunni, og verða viðtöl við þá i blaðinu I dag og á morgun. — Jan Lökken frá Osló er ritari Sambands ungra jafnaðarmanna á Norð- urlöndum, sem greiðir kostnaö- inn af ráðstefnuhaldinu. Hann sagði, að Samband ungra jafnaðarmanna á Islandi hefði átt hugmyndina að ráð- stefnunni og unnið mikið undir- búningsstarf. Hann sagði, að ts- land hefði orðið fyrir valinu til ráðstefnuhaldsins vegna þess, að Islendingar hefðu staðið I fararbroddi þeirra þjóða, sem barizt hefðu fyrir 200 milna landhelgi. Stefna tslendinga i þessum málum nyti mikils Eurico Monteiro, blaðnmaöur frá Portúgal. Portúgölsku fulltrúarnir. Frá Portúgal komu tveir full- trúar: Antonio Ribeiro, formað- ur þeirrar nefndar rikisstjórnar Portúgals, er fjallar um fiskiðn- að og sjávarútveg, og Eurico Monteiro, blaðamaður, en báðir eru þeir i Sambandi ungra jafn- aðarmanna i landi sinu. Portúgalir færa út landhelgi sina i 200 milur 1. júli næst kom- andi. Til að geta nýtt þau veiði- svæði, sem þjóðin fær þá til eig- in afnota, þurfi að smiða og kaupa ný og fullkomnari skip og að beita nýjum veiðiaðferðum. Jan Lökken, ritari Sambands ungra jaínaðarmanna á Norður- löndum. eru þar fulltrúar Portúgala, sem á næsta ári ætla að færa út landhelgi sina i 200 milur og fuiltrúi frá Belgiu, þar sem sjávarútvegur er sáralitill. taldi hana i réttu umhverfi og kvaðst vænta þess, að árangur yrði góður.

x

Alþýðublaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Alþýðublaðið
https://timarit.is/publication/2

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.