Alþýðublaðið - 24.11.1977, Page 9
Fimmtudagur 24. nóvember 1977
-Framhaldssagan-
mnmm
Wh&mmgiunnam
=0^—eftir Erik Nerlöe l
var einstakt tækifæri til að kom-
ast að þvi, sem var að gerast.
— Þakka yður fyrir, gjarna,
sagði hún með geislandi brosi.
— Skynsöm stúlka, sagði hann
og klappaði henni laust á kinnina.
— Mjög skynsöm stúlka.
Ég verð að ná i Jules, hugsaði
Erna, um leið og hún var orðin
ein. Þeim hafði komið saman um
það, að hún hefði samband við
hann ef hún kæmist að einhverju
meiru. En Wester gat komið til
baka hvenær sem var, og hún
varð að flýta sér. Án þess að
hugsa sig um hringdi hún á litla
hötelið, þar sem Jules bjó. Það
leið heil eilifð áður en hún fékk
samband.
— Get ég fengið að tala við
Jules Duval, takk...franska
manninn á númer tólf, flýtti hún
sér að segja, þegar hún heyrði
þvoglumælta rödd dyravarðar-
ins.
Hún fékk óskiljanlegt svar, en
Ernu skildist, að hann hefði farið
að sækja Jules. Hún beið spennt, '
og augu hennar voru limd við
dyrnar.
— Halló — ert þetta þú, Erna?
— Já, það hefur nokkuð komið
fyrir. Það getur verið, að ég verði
að leggja á, svo það er best að við
ákveðum hvar við eigum að hitt-
ast i kvöld...Ég kem eins fljótt og
ég get, en það verður ekki fyrr en
klukkan átta...
— Svo seint? En það er laugar-
dagur.
— Ég verð að vinna yfirvínnu!
— Ein?
— Nei, Wester fulltrúi er hér
lika...
1 sama mund heyrði hún fóta-
tak fyrir utan. Erna lagði á, og
Utvarp
Fimmtudagur
24. nóvember
7.00 Morgunútvarp Veðurfregn-
ir kl. 7.00, 8.15 og 10.10 Morgun-
leikfimi kl.7.15og 9.05. Fréttir
kl. 7.30, 8.15 (og forustugr. dag-
bl.), 9.00 og 10.00. Morgunbæn
kl. 7.50. Morgunstund barn-
anna kl. 8.00: Rögnvaldur
Finnbogason les „Ævintýri frá
Narniu” eftir C. S. Lewis (10)
Tilkynningar kl. 9.30. Þing-
fréttir kl. 9.45. Létt lög milli
atriða. Tannlæknaþáttur kl.
10.25: Sigurjón Arnlaugsson
talar um tannholdssjúkdóma.
Alþýðulögkl. 10.40. Morguntón-
leikarkl. 11.00: Julian Bream
og John Wiliamsleika Serenöðui
A-dúr fyrir tvo gitara op. % eft-
ir Ferdinando Carulli og
Spænskan dans nr. 6 eftir
Enrique Granados / Kari Fris-
ell syngur Rómönsur eftir
Agathe Backer Gröndahl, Liv
Glaser leikurmeð á pianó. Wil-
helm Kempff leikur á pianó
Sinfóniskar etýður op. 13 eftir
Robert Schumann.
12.00 Dagskráin. Tónleikar. Til-
kynningar.
12.25 Veðurfregnir og fréttir. Til-
kynningar. AfrivaktinniSigrún
Sigurðardóttir kynnir óskalög
sjómanna.
14.30 Miðdegissagan: „Skakkt
númer — rétt númer” eftir
Þórunni Elfu Magnúsd. Höf-
undur les (14).
15.00 Miðdegistónleikar: Til-
brigði eftir fjögur tónskáldTil-
brigði i G-dúr fyrir pianó, fiðlu
og selló op. 121a eftir Beethov-
en um sönglagið „Ich bin der
Schneider Kakadu”
Santoliquido-trióið leikur. Til-
brigði i d-moll eftir Paganini
um stef eftir Rossini. Paul
Tortelier sellóleikari og Shuku
Iwasaki pianóleikari leika. Til-
1
TRULOF-V UNAR-
HRINGAR
Fljót afgreiðsla
Sendum gegn póstkröfu
Guðmundur Þorsteinsson
gullsmiður
Bankastræti 12, Reykjavik. j
brigði op. 42 eftir
Rakhmaninoff um stef eftir
Corelli. Vladimir Ashkenazý
leikur á pianó. Tilbrigði op. 35a
eftir Antony Arenski um stef
eftir Tsjaikovský. Sinfóniu-
hljómsveit Lundúna leikur: Sir
John Barbirolli stj.
16.00 Fréttir. Tilkynningar.
(16.15 Veðurfregnir).
16.20 Lestur úr nýjum barnabók-
um Umsjón: Gunnvör Braga
Sigurðardóttir. Kynnir: Sigrún
Sigurðardóttir.
17.30 Lagið mitt Helga Þ.
Stephensen kynnir óskalög
barna innan tólf ára aldurs.
18.00 Tónleikar. Tilkynningar.
18.45 Veðurfregnir. Dagskrá
kvöldsins.
19.00 Fréttir. Fréttaauki. Til-
kynningar
19.35 Daglegt mál GIsli Jónsson
flytur þáttinn.
19.40 fslenzk sönglög
20.10 Leikrit: „Fjallalækurinn”
eftir Björn-Erik Höijer Þýð-
andi: Asthildur Egilsson. Leik-
stjóri: Gfsli Halldórsson. Per-
sónurog leikendur: Per-Mikael
Fjallström ... Róbert Arnfinns-
son Susanna Fjallström ...
Helga Bachmann
21.00 Samleikur i útvarpssalSig-
riður Vilhjálmsdóttirog Hrefna
Eggertsdóttir leika saman á
óbó og pianó. a. Sónötu eftir
Giuseppe Sammartini, b.
Rómönsu eftir Carl Nielsen, —
og c. Sónötu eftir Francis
Poulenc.
21.25 „Sláttumaðurinn”, smá-
saga eftir H.E. Bates Pálmi
Ingólfsson islenzkaði. Baldvin
Halldórsson leikari les.
21.55 Frá hollenzka útvarpinu
Kór og hljómsveit útvarpsins
flytja lög eftir Rodgers, Black,
Rota, Rosza og Newman, Ein-
leikari á trompet: Jan
Marinus. Stjórnandi: Stanley
Black.
22.30 Veöurfregnir og fréttir.
22.45 Spurt i þaula Kári Jónasson
stjórnar þætti, sem stendur allt
að klukkustund. Fréttir. Dag-
skrárlok.
byrjaði að blaða i bréfamöppu af
miklu kappi.
En þetta var ekki Bjarni West-
er. Þetta var sendiboði með sim-
skeyti.
— Hraðskeyti til Wester full-
trúa frá Paris, sagði hann.
Hraðskeyti frá Paris! Var það
frá föður hennar? Hafði honum
versnað? Skeytið brann i lófa
hennar, en hún þorði ekki að opna
það.
Nú var stóra vöruhúsið byrjað að
tæmast. Starfsfólkinu lá mikið á
að komast út i fallegt vorveðrið. 1
skrifstofu forstjórans stóð ung
stúlka og horfði út um gluggann,
að þvi er virtist djúpt hugsi. Þeir
koma eftir fáeinar minútur hugs-
aði hún. Og þá verð ég að komast
að þvi, sem er á seyði. Hún var
svo óstyrk, að hún titraði. Ef
Jules hefði bara verið hjá henni.
Þá hefði hún verið örugg...eins og
alltaf, þegar hann var hjá henni.
Hún trúði ekki sinum eigin aug-
um, þegar hún snéri sér við. Hún
hafði ekki heyrt hann koma.
Dreymdi hana?
— Jules! hrópaði hún glöð. —
Jules...en ég skil ekki...
— Ertu ekki glöð yfir að sjá
mig, shérie? sagði hann ertnis-
lega og kom nokkrum skrefum
nær henni.
— Auðvitað, en...
— En hvað? —
Ró hans var óbifanleg.
— Wester fulltrúi gæti komið á
hverri stundu, sagði Erna hratt.
— Þeir ætla að halda fund...hérna
á skrifstofu forstjórans. Og ef
þeir sjá þig hér...
— En fyrst verð ég að fá
koss...annars fer ég ekki, sagði
Jules brosandi.
Hann faðmaði hana að sér, og
kyssti hana hlýtt og innilega.
— Elskar þú mig, Erna?
Hún kinkaði bara kolli.
— Segðu mér, hvað hefur
gerst....
— Ekkert... nema hvað Wester
fulltrúi bað mig að vera eftir og
hraðrita...og svo kom hraðskeyti
frá Paris. Hugsaðu þér ef pabba
"heíur nú versnað... kannski er
hann alvarlega veikur.
— Erna — getur þú útvegað
mér afrit af þessum bréfum...eða
hvað það nú er, sem þú átt að
skrifa?
— Þvi miður, það er útilokað.
Wester fulltrúi sagði svo fyrir, aö
það yrðu ekki tekin nein afrit.
— Þá...
Jules strauk dökkt hárið frá enn-
inu og hnyklaði brýrnar. — Við
verðum að hafa sönnunargögn,
skilurðu...Oruggar sannanir. Það
er ekki nóg að hafa bara
grun...ekki gagnvart lögunum.
Siminn á borðinu hringdi, og
það kviknaði á rauða lampanum.
Andartaki siðar heyrði hún rödd
Bjarna Wester:
— Er ungfrú Davidson þarna?
Erna snéri sér að Jules.
— Ég verð að fara inn til þeirra
núna...fundurinn verður i ráð-
stefnuherberginu i staðinn. Ég
Kl. 20.10 Leikrit vikunnar
„Fjallalækurinn”
Fimmtudaginn 24. nóvember kl. 20.10 verður f lutt
leikritið //Fjallalækurinn" eftir Björn-Erik Höijer.
Þýðandi er Ásthildur Egilson, en leikstjóri Gisíi
Halldórsson. I hlutverkum eru Róbert Arnfinnsson
og Helga Bachmann. Flutningstími leiksins er um
50 mínútur.
Gamall Lappi eða Sami, eins og þeir eru nú al-
mennt kallaðir, rif jar upp ævi sína og konu sinnar.
Brugðið er upp myndum af því hvernig þau kynnt-
ust og frá lífi þeirra og sambúð allt fram á elliár.
Oft hef ur lífsbaráttan verið erf ið, og glöggt kemur
fram, að litið er á Samana sem eins konar utan-
garðsfólk, sem hægt sé að ráðskast með eins og
hver vill.
Þetta er Ijóðrænt verk í eðli sínu, þrátt fyrir
raunsæisyfirbragð. Fjallalækurinn er táknmynd,
bæði fyrir ævina, sem líður áf ram að einum ósi, og
einnig fyrir hið frjálsa líf fjallabúans, sem hlýtur
fyrst og fremst að treysta á sjálfan sig.
Höf undurinn,, Björn-Erik Höijer, þekkir vel
sögusvið leiksins, því að hann er fæddur í Malm-
berget í Lapplandi árið 1907. Fyrsta bók hans, smá-
sagnasaf nið ,,Gratt berg" kom út 1940. Á næstu ár-
um komu fleiri bækur, bæði smásögur og skáldsög-
ur, og skömmu fyrir 1950 fór Höijer einnig að skrifa
leikrit, sem fljótt vöktu athygli. AAörg þeirra hafa
verið flutt í sænska útvarpinu, þ.á m. ,,Fjállback-
en", Fjallalækurinn. Seinni árin hefur Höijer sent
frá sér efnismiklar skáldsögur og frásagnir og
reifar þar hin margvíslegustu vandamál í þjóðlíf-
inu.
Útvarpið he.furáður flutt eitt leikrit eftir Björn-
Erik Höijer, „Víst ertu skáld, Kristófer" 1961.
Skák dagsins
Hvítur mátar í 4. leik
Einföld leikþröng. 1. Kfl, Kd2, 2. Kf2, Kdl 3. Ke3 og
Hcl mát.
Umsjón Baldur Fjölnisson
Tækni/Vísindi
Fjarskiptabyltingin I heiminum
hófst þegar Bandarikjamenn
sýndu fram á að stór álúmini-
umhúöaöur belgur, sem nefnd-
istECHO (Bergmál) gat endur-
varpað radiógeislum.
Loks árið 1964 var gervihnettin-
um Syncom skotiö á braut um
jörðu. Hann er I 35800 km. hæð
og fylgir hringhreyfingu jarðar
og er þvi ávallt yfir sama punkti
á jörðu.
Næsta ár var Intelsat I. skotiö á
braut yfir Atlantshafinu og er
hann notaður sem fjarskipta-
hnöttur milli Evrópu og
Ameriku.
Næsta þrepiö var gervihnöttur-
inn Telestar sem skotið var á
I loft árið 1962. Hnöttur þessi
endurvarpaði radióboðum á
! hringferð sinni um jörðina.
i82B-3