Alþýðublaðið - 15.12.1977, Blaðsíða 7

Alþýðublaðið - 15.12.1977, Blaðsíða 7
Fimmtudagurinn 15. desember 1977 7 Leikfangajól í Danmörku Erlendis frá Jólin i ár verða dýr- ustu leikfangajól i ára- raðir. Þetta er niður- staða af lauslegri könn- un biaðamanna danska blaðsins Aktúelt i leik- fangaverzlunum i Dan- mörku. Listinn yfir þær leikfangavorur sem vin- sælastar eru hjá Dönum nú hljóðar svo: 1. Kapp- akstursbrautir; 2. Gufu- vélar; 3. Rafdrifnar járnbrautarlestir; 4 Dúkkur; 5. Rað-leik- föng. Aktúelt prófaöi þetta meö þvi að spyrja krakka um „drauma- gjöfina”. 4 krakkar á aldrinum 7- 10 ára svöruðu allir að þau vildu frekast fá kappakstursbrautir. Forstjóri stærstu leikfanga- verslunar i Arhus, Lilli Petersen, sagði að fyrrnefndur vinsældar- listi yfir leikföng kæmi heim og saman við reynslu verzlunarfólks i Danmörku nú fyrir jólin. Þó mætti bæta þar við labbrabb tal- stöðvum sem mikið væri selt af. — Það virðist vera að ótrúlega margt fólk sé reiðubúið til að verja miklum peningum i leik- fangakaup. Þegar fólk kemur inn ibúðimar er þaö of t með á hreinu hvað það vill kaupa og þá er gjarnan um mjög dýra hluti aö ræða. Það þýðir, samkvæmt könnun Aktúelt, gjafir fyrir 3.500 isl. krónur og þar yfir. Danir kaupa ekki eins marga hluti i ár og áður, en miklu dýrari ogþað þýöirað veltan i leikfanga- bissnessnum verður a.m.k. eins mikil og i fyrra ef ekki meiri, álit- ur Lilli Petersen. Hún leggur lika áherslu á, að tæknileg bygging leikfanga verð- urumfangsmeiri og flóknari með hverju ári sem liður. — Það virð- istlika greinilegtsamband á milli þesssem börnin sækjast mest eft- irog þess sem má sjá i sjónvarp- inu. Til dæmis er ég sjálf tilneydd að góna á allar barnadagskrár i sjónvarpinu til að geta annað eft- irspurn eftir þeim leikföngum sem sýnd eru hverju sinni. — Eru stríðsleikföng i tizku? — Það er alltaf drjúg sala i þeim leikföngum og það verður einnig svo fyrir þessi jól. En þessi tegunderallsekkisúsem mest er spurt eftir. Stærstu viðskiptavinir okkar i striðstækjunum eru Þjóð- verjar. Þeir koma hér á sumrin og bókstaflega tæma leikfanga- búðirnar af striðsleikföngum. Rað-leiktæki Alls kyns rað-leiktæki, svo sem púsluspil, kubbar og leikföng til að festa saman á annan hátt, eru hvað vinsælust. Eigandi einnar leikfangaverzlunar segir, að i ár veröi metsala i þessari tegund leikfanga. ösamsettir bllar, flug- Skriðdrekinn kostar um 7.000 isl. kr. I danskri leikfangaversl- un, en strákarnir vildu heldur fá kappakstursbraut. ttalskt mótor-þrihjól fyrir 35.000 isl. krónur. En Gabriel litli vildi heldur fá kappakstursbraut. Striðsleikföngin eru allt vinsæl.... en þýskir ferðamenn I Danmörku hafa enn meiri áhuga á þeim en danskir krakkar. vélar, bátar, byggingarefni úr plasti o.fl. renna út eins og heitar lummur. Þessi leikföng kosta frá nokkrum hundruðum i tugi þús- unda isl. króna. Blaöamenn Aktúelt fengu aö sjá eitt af þvi nýjasta og jafn- framt dýrasta i leikfangaiðnaðin- um. Það ermótor-þrihjól úr plasti sem Italir framleiða. Mótorinn gengur fyrir rafhlöðum og verðið fvrir gripinn er 35.000 ísl. kr. Bara i Arhus höfðu þegar selst ótalhjól af þessari gerð. (Endursagt úr Aktúelt) Lilli Petersen með eina af sölu- vörum ársins: gufuvél sem kostar um 14.000 isl. kr. Minni gerð kostar um 5.000 kr. Fyrir tveimur árum sendi bandariska al- rikislögreglan (FBI) fjölda nafnlausra bréfa til að reyna að koma af stað átökum á milli mafiunnar og hins Moskvusinn- aða kommúnistaflokks Bandaríkjanna. Samkvæmt leyni- skjölum sem nýlega voru birt i Bandarikj- Uppljóstranir um bréfa- skriftir FBI-foringja unum sendu FBI-menn nafnlaus bréf til leið- toga mafiunnar, til verkalýðsfélaga, þar sem sagt var að mafian hefði náð að festa rætur og til kommúniskra blaða svo sem The Worker. Ætlun FBI var að reyna að sundra innan frá þessum hóp- um. Meðal þess sem er að finna í 53.000 siðna efni sem opinberað Ku-KLUX-KIan aö starfi: eitt afskotmörkum bandarisku teyniþjónustunnar. hefur verið úr skjalasafni FBI, er svohljóðandi bréf til þriggja háttsettra mafiuleiðtoga: —■ Sá dagur mun koma að við kommúnistar tökum völdin i kraftifélagslegra umbóta og þá munum við vera i stakk búnir tilað berjastvið ykkur með okk- areigin sprengjum og vopnum. Þá munum við koma alveg fram i dagsljósið i stað þess að mold- varpastneðan jarðar eins og þið fúlu skorkvikindi. Einnig er birt bréf til The Worker, frá manni sem kallaði sig „I. Cohen frá Brooklyn”. Þar voru mafiuleiðtogar kall- aðir „kolkrabbar” og fleiri ill- um nöfnum og kommúnisku blöðunum hrósað fyrir að hafa afhjúpað neðanjaröarstarfsemi mafiunnar. The Worker birti aldrei þetta falska bréf. ,, Föðurlands vinur ’ ’ Leiðtogar verkalýðssam- bandsins i Philadelphia fengu bréf sem undirritað var „amriskur föðurlandsvinur og félagi I verkalýðssambandinu”. Þar var varað sterklega við þvi að kommúnistar væru að gera fagfélag vörubifreiðastjóra og hafnarverkamanna aö baráttu- tækjum á ný. Þetta falsaða bréf tilkynnti lika að þekktur verkalýðsleið- togi væri útsendari FBI. Það eina sem FBI hafði upp úr öllu þessu klóri, var að lögg- an tapaði bæði dýrmætu fjár- magniog tima. Bréfin voru ekki tekin alvarlega og urðu ekki til að efla ýfingar á milli mafiunn- ar og kommúnistanna. FBI-skjölin sýna engu að siður að kommúnistaflokkurinn var aðaiskotmark aðgerða FBI. önnur skotmörk voru samtök róttækra blökkumanna, Ku Klux-Klan, nazistaflokkur Ameriku, júgóslavneskir innflytjendur, sem grunaðir voru um sprengjutilræði, þjóöernissinnar frá Puerto Rico og Castro-sinnar i hópi. innflytjenda frá Kúbu. A einu leyniskjalinu má lesa handskrifaða athugasemd frá J. Edgar Hoover, fyrrum yfir- manns FBI: „Reynslan hefur sýnt að nafn- laus bréf af þessari tegund eru oft álitin vera sundrungarbragð eða vera skrifuð af rugluðu fólki”. (Endursagtúr Aktuelt)

x

Alþýðublaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Alþýðublaðið
https://timarit.is/publication/2

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.