Alþýðublaðið - 22.12.1977, Blaðsíða 11
aQwðu-
bfdia p.Fimmtudagur 22. desember 1977
Bíéln/LeUchúsin
frumsýnir í dag jólamynd-
ina í ár:
Ferðin til .jólastjörnunnar
Reisen til julestjarnen
ÍSLENZKUR TEXTI.
Afar skemmtileg, ný norsk ævin-
týramynd I litum um litlu prein-
sessuna Gullbrá sem hverfur úr
konungshöllinni á jólanótt til aö
leita aö jólastjörnunni.
Leikstjóri: Ola Solum.
Aðalhlutverk: Hanne Krogh,
Knut Risan, Bente Börsun, Ingrid
Larsen.
Mynd fyrir alla fjölskylduna.
Sýnd kl. 4, 6, 8 og 10.
Jonny Eldský
AS01S3J.VHV
anpiiiMid
Auunnr
Hörkuspennandi ný kvikmynd i
litum og með islenzkum texta.um
samskipti indiána og hvitra
manna i Nýju Mexikó nú á dög-
um.
Bönnuð börnum.
Sýnd kl. 5, 7 og 9.
LAUGARÁÉ
B I O
, „ Sími 32075
Jarðskjálftinn
Sími50249
Enn heiti ég Trinity
Bráðskemmtileg mynd með hin-
um vinsælu leikurum Bud Spenc-
er og Terence Hill.
Sýnd kl. 9.
Endursýnum i nokkra daga þessa
miklu hamfara mynd.
Aðalhlutverk: Charlton Heston,
Ava Gardner og George Kennedy.
Sýnd kl. 5 og 9.
Bönnuð börnum innan 14 ára.
Blakula
Endursýnum þessa ágætu hroll-
vekju til fimmtudags.
ífÞiÓHLEIKHÚSIfl
HNOTUBRJÓTURINN
Frumsýning 2. jóladag
2. sýn. þriðjudag 27. des.
3. sýn. miðvikud. 28. des.
4. sýn. fimmtud. 29. des.
5. sýn. föstud. 30. des.
Miðasala 13.15 — 20. Simi
1-1200.
Bönnuð börnum.
Sýnd kl. 7,10 og 11.15.
HORNIÐ
Skrifið eða
hringiöí
síma 81866
Lóðaúthlutun —
Reykjavík
Reykjavikurborg mun á næsta ári, 1978
úthluta lóðum aðallega á eftirgreindum
stöðum:
a. Fjölbýlis- og raðhús á Eiðsgranda.
b. Einbýlishús i Breiðholti III,
Hólahverfi.
c. Einbýlis- og raðhús i Breiðholti II,
Seljahverfi.
Umsóknareyðublöð og allar upplýsingar
um lóðir til ráðstöfunar svo og skipulags-
og úthlutunarskilmála verða veittar á
skrifstofu borgarverkfræðings, Skúlatúni
2, 3. hæð, alla virka daga kl. 8:20—16:15.
Umsóknarfrestur er til og með
þriðjudeginun 10. janúar 1978. Eldri um-
sóknir þarf að endurnýja.
Borgarstjórinn i Reykjavík.
SKATTE0EN
efter R0BERT L. STEVENSONS =
beremtedrengebog s
SKÆG S0R0VERFILMIFARVER
Gulleyjan
Snilldarlega gerð Japönsk
teiknimynd gerð eftir hinni
sigildu sögu eftir Robert
Louis Stevenson.
Myndin er tekin i litum og
Panavision.
Sýnd kl. 5, 7 og 9.
STARRINC
PAM GRIER
MARGARET MARKOV
Afar spennandi og viðburðarik ný
bandarisk Panavision litmynd,
um konur i ánauð, og uppreisn
þeirra gegn kvölurum sinum.
Bönnuð innan 16 ára
Sýnd kl. 3-5-7-9 og 11.
GAMLA BIO M
Tízkuljósmyndarinn
Live a Little, Love a Little
Bandarisk gamanmynd.
ISLENZKUR TEXTI
Endursýnd kl. 5, 7 og 9.
TONABÍÓ
*& 3-11-82
I leyniþjónustu hennar há-
tignar
On Her Majestys Secret
Service
Leikstjóri: Peter Hunt,
Aðalhlutverk: George Lazenby,
Telly Savalas
Bönnuð innan 14 ára.
ÍSLENSKUR TEXTI
Endursýnd kl. 5 og 9.
„Síðustu daga
Vinsældir og áhrif.
„Vinsæll” er orð, sem nú
tröllrlður tungutakinu I auglýs-
ingum og frásögnum. Furöuleg-
ustu hlutir, jafnvel óhrjálegar
gallabuxur og skóklossar, er
dæmt vinsælt I belg og biöu, og
auövitaö fer margt fleira þar á
eftir, sem næsta örðugt er að
sjá, hvernig hefur getað aflað
sér vina, að ekki sé nú talaö um
gagnkvæma vináttu!
Þessi leiðinlega klisja þrengir
sér svo fram I ótal myndbreyt-
ingum. Það hefur verið talið
einkar vinsælt, aðberjast á móti
verðbólgunni árum saman.
Arangur okkar i þeirri baráttu
verður ekki ræddur hér að sinni.
En meö hliðsjón af þvi, að
hver dagurinn færir stjórnvöld
okkar nær skuldaskilunum, er
það máske ekki óeðlilegt að
málgögn þeirra taki nú I alvöru
að velta fyrir sér þeim regin-
mun, sem á þvi getur verið,
hvort rikisstjórn sé góð, eða
bara vinsæl!
Þetta kemur ljóslega fram i
forystugrein Moggans i gær.
Það er hárrétt hjá Morgun-
blaðinu, að núverandi rikis-
stjórn tók ekki við góöu búi i
reynd.
Samt hafði siðasta vinstri
stjórn brotizt talsvert um og
gert ýmislegt „vinsælt” og sumt
gagnlegt.
En „vinsældir” þeirrar
stjórnar byggðust þó fyrst og
siðast á þvi, að áhrifin af
eyðslustefnunni voru ekki kom-
in I ljós. Samt mátti eygja úti
við sjóndeildarhring, sem engan
veginn var fjarlægur, ýmsar
alvarlegar blikur.
Þegar rikisstjórn Geirs
Hallgrimssonar var mynduð,
var það dýrasta fyrirheitiö að
stöðva skyldi margskonar sukk
og misheppnuð vinsældabrögð
fyrri stjórnar og umfram allt
tryggja fjárhag rikisins.
Vitanlega þurfti viöa að taka
höndum til að kippa i allmarga
spotta, ef vel átti að vera. Það
gat auðvitað þýtt að gera þyrfti,
það sem kallað er ýmsar „óvin-
sælar ráðstafanir”.
Hér er nú komið aö merg
málsins. Þau viðhorf stjórn-
valda, aö liða undan einhverjum
lygnum vinsældastraumi án
þess að gera sér og þjóðinni
grein fyrir eftirköstum og
afleiðingum, kunna að vera
þægileg-1 bili- og einkum þeim,
sem eru lltilla sanda og sæva!
Annað eins og það, að afla sér
vinsælda meö persónulegri
smágreiðasemi við einstakl-
inga, eða láta fjölina fljóta eins
og straumurinn kann aö liggja i
þaö og það sinnið, er þó meiri
moðhausaháttur, heldur en
stjórnvöld heils ríkis- þó smátt
sé- geta leyft sér.
Minna má á, að til þess að
stjórnarstörf fari sæmilega úr
hendi, verður aö fara eftir ein-
hverjum meginreglum, öðrum
en þeim, að lifa frá hendi tii
munns.
Vissulega geta þær megin-
reglur, sem hafðar eru að leið-
arljósi, komiö misjafnlega
þægilega viö einn og annan. En
það er ekki málið. Enginn gerir
svo öllum liki, aö þvi svo við-
bættu, að það er fyrst og fremst
landsfólkið I heild, sem njóta
á góös af verkunum.
Loks er bezt að hafa hugfast
þegar rætt er um vinsælar og
óvinsælar aögerðir stjórnvalda,
að það kann að vera nokkuð
varasamt að meta málin ein-
göngu á þá lund, að almenning-
ur sé svo algerlega bakkabund-
inn viö stundarhagsmuni, að
Oddur A. Sigurjónsson
fólk sjái ekkert annað niöur með
eigin nefi.
Margir myndu nú freistast til
að halda, að núverandi rikis-
stjórn þyrfti ekki heilt kjörtima
bil, til þess að átta sig á, að
skrumauglýsingar hennar við
valdatöku, um allskonar úrbæt-
ur á villum fyrri stjórnar,
þyrftu aö láta jafn lengi eftir sér
biða og raun hefur verið.
Svo minnzt sé þess, sem er
íifibrauð þjóðarinnar, hefur þar
flest gengiö heldur bögsulega af
völdum stjórnarinnar.
Svo dæmi sé tekið af sjávarút-
veginum, er nú svo komið- sam
kvæmt nýjustu upplýsingum —
að fiskiskipastóll okkar er
langtum stærri en svo að rekinn
verði á arðbæran hátt.
Samt er enn haldiö áfram aö
auka viö, og niöurstaöan er vit-
anlega margfaldur kostnaður
viö aö veiða þá fáu fiska sem i
boði eru. Ofan á allt þetta blasir
við, að hrun getur orðið i þorsk-
stofninum á næsta leiti, þó
visindamenn okkar i fiskifræði
hafi margvarað við þeirri vá.
Ýtt hefur veriö undir offram-
leiðslu á landbúnaöarvörum eft-
ir öllum föngum, meö afleiö-
ingum, sem nú má sjá, og einnig
hefur verið margvarað viö.
Otflutningsiðnaöur okkar
berst i bökkum, og hefur þó
verðlag á fiskafuröum aldrei
verið hagstæöara, svo nokkuö sé
nefnt. Og ekki má gleyma þeim
firnum, sem gerzt hafa I
erlendri skuldasöfnun. Búskap-
arlag Hallgerðar langbrókar úr
hennar fyrsta hjónabandi hefur
einkennt og gagnsýrt allt
ráðslagið, enda var Hallgeröur
— að sögn — „vinsæl” af hjúum
sinum!
Varla veröur komizt hjá þvi
að sjá, að Morgunblaðið hefur
verið á þeirri skoðun, aö
„Hallgeröarvinsældirnar” væru
einhver búhnykkur, svo fast
hefur það staðið i istaöinu að
verja allskonar stjórnarfirrur.
Smákukl stjórnvalda nú viö
að snúa til baka frá villu sins
vegar á nú aö njóta brautar-
gengis þess, að sögn!
Villa blaðsins liggur I tvennu.
Fyrri villan er, að erfiðar úr-
lausnir hljóti ætið að vera óvin-
sælar. Þar meö er fólkinu skip-
að niöur á moðhausastigið.
Aðalatriðið er auðvitað, að aö-
geröir af þvi tagi komi réttlát-
lega niður og hafi tilætluð áhrif.
Síðari villan byggist auðvitað
á óraunhæfri óskhyggju. Hún er
sú, að unnt sé aö sveipa núver-
andi rikisstjórn einhverri helgi-
gloriu fyrir þaö að hafa hvikaö
örlitiö frá fyrra stefnuleysi
örugglega er fráleitt, að greiö-
asta leiðin til himna sé að flýja
undan réttmætum dómi fyrir
margra ára syndir. Það tekst
ekki fyrir þessa siöustu daga
heilaga með orðagjálfri einu.
Í HREINSKILNI
«?1
RUNTAL-0FNAR
Grensásvegi 7 Birgir Þorvaldsson
Simi 82655. Sími 8-42-44
Au&^seocW I
AUGLvSINGASlMI
BLADSINS ER
14906
Svefnbekkir á
verksmiðjuverði
SVEFNBEKKJA
Höfðatúni 2 — Simi 15581
Reykjavik.
2- I
50-50
Sendi-
bíla-
stöðin h.f.