Alþýðublaðið - 10.01.1978, Blaðsíða 4

Alþýðublaðið - 10.01.1978, Blaðsíða 4
4 Þriðjudagur 10. janúar 1078 (Jtgefandi: Alþýöuflokkurinn. ' ' L Rekstur: Reykjaprent h.f. Ritstjóri og ábyrgöarmaöur: Árni Gunnarsson. Fréttastjóri: Einar Sigurös- ! s°n. Aösetur ritstjórnar er I Siöumdla 11, simi 81866. Kvöldsimi fréttavaktar: 81976. Auslýsingadeild, ; Alþýöuhúsinu Hverfisgötu 10 — simi 14906. Askriftar- og kvartanasimi: 14900. Prentun: Blaöaprent h.f. Askriftarverö 1500 krónur á mánuöi og 80 krónur i lausasölu. ff Flokkur” flokkanna íslendingar hafa síð- ustu misseri orðið vitni að alvarlegri fjármálaspill- ingu. Reynt hefur verið að leita skýringa. Bent hefur verið á áhrif ára- langrar verðbólgu á allt verðmætamat, ranga fyrirgreiðslu peninga- stofnana og almenna upplausn á peningamark- aði. Minna hefur verið rætt um staðnað flokkakerfi, hreyf ingarleysi íslenzkra st jórnmála. Sömu f lokkarnir og sömu mennirnir hafa jafnvel um áratuga skeið farið með völd í öllum helztu peningastofnunum þjóðarinnar. Þar hafa menn ekki f undið ferskan vindblæ um langt árabil. Við slikar aðstæður þróast samtrygginga- kerfi stjórnmálaf lokk- anna. ,,Ef þú gerir þetta fyrir mig, skal ég gera þetta fyrir þig." Fari eitthvað úrskeiðis eru all- ir múlbundnir, enginn segir neitt. Allir eru sam- ábyrgir. Skipulag fyrir- greiðslunnar hef ur náð að fullkomnast. Um það hefur verið reistur varnarmúr, sem erfitt er að brjóta niður. Eitt bezta dæmið um hið óeðlilega ástand er stjórn Sjálfstæðisflokks- ins á málefnum Reykja- víkur. Ekki skal neinum getum leitt að því, að þar hafi þróast meiri spilling en gengur og gerist í þjóð- félaginu. En hver maður hlýtur að sjá í hendi sér, að hættan er mikil, þegar sami flokkur hefur farið með stjórn svo áratugum skiptir. Það væri sama hvaða flokkur ætti í hlut. Æðstu yfirmenn stofn- ana Reykjavikurborgar eru Sjálfstæðismenn. Yf- irmenn þeirra er svo meirihluti borgarráðs og borgarstjórnar, og í þeim meirihluta eru fulltrúar Sjálfstæðisf lokksins. I stjórnum borgarstofnana eru Sjálfstæðismenn í meirihluta. A milli þess- ara fulltrúa flokksins styrkjast vináttubönd og traust manns á manni verður svo mikið, að sjálfsögð gagnrýni og eftirlit verður nánast lít- ið. Auðvitað hefur helftin af þessum mönnum unnið gott starf. En hættunni er boðið heim. Það er því fyljilega tímabært að valdi Sjálfstæðisf lokks- ins í Reykjavík verði hnekkt. Það hefur sýnt sig að undanförnu, að hreyf ingarleysi og stöðn- un í embættiskerfi og stjórnmálalífi, getur haft alvarlegar afleiðingar í för með sér. Dæmið um Reykjavík- urborg getur einnig átt við um hið margfræga samtryggingarkerf i flokkanna. Þar eru það tilteknir sameiginlegir hagsmunir fyrirgreiðslu- aflanna, sem þrengja f ulltrúum allra f lokka inn í einn„flokk", — „flokk" þeirra, er gæta hagsmuna ákveðinna skjólstæðinga. Fyrirgreiðsla getur auðvitað verið réttlætan- leg. En það er hins vegar Ijóst, að það er nokkur hópur manna í þjóðfélag- inu, sem hefur meiri og betri aðgang að fyrir- greiðslunni en aðrir. Þeir hafa notið hinnar óeðli- legu fyrirgreiðslu í skjóli „flokks" flokkanna. Og það er þetta kerfi, sem þarf að brjótast inn í og lagfæra. Það er meðal annars þetta kerfi, sem á sök á þeirri spillingu, sem Is- lendingar nú verða vitni að. Það er áratuga að- staða nokkurra aðila í peningastofnunum, sem þjóðin verður að stöðva með því að koma hreyf- ingu á staðnað flokka- kerfi. —AG— Ferðaklúbburinn Ameríkuferdir: Þetta samband má ekki rofna — segir Helgi Vigfússon um sambandið við V-íslendinga — Pantanir og upp- hringingar hafa verið miklu fleiri en ég gerði mér í hugarlund, sagði Helgi Vigfússon, tals- maður Ferðaklúbbsins Ameríkuferðir i samtali við Alþýðublaðið fyrir helgi. Þessi ferðaklúbbur hefur undanfarið augiýst þrjár ferðir til Vestur- heims, Islendingabyggða, og leitaði blaðið upplýs- inga i auglýstu símanúm- eri, til að forvitnast um þessar ferðir og ferða- klúbb þennan. Helgi sagöi, aö klúbburinn heföi veriö stofnaöur fyrir stuttu. Þar væri ekki veriö aö stofna neina feröaskrifstofu eöa þviumlikt, heldur yröi samiö viö einhverja feröaskrifstofu um útgáfu farseöla. Þegar Helgi var aö þvi spurður, hverjir stæöu fyrir þessum klúbbi, sagöi hann það vera hann sjálf- an og nokkra úr fjölskyldu sinni, sem væri ættstór vestanhafs og mjög áhugasöm um tengsl milli Islendinga austan hafs og vest- an. Vantar betri samvinnu — Aö elska og minnast, sagði Helgi, — þaö tvennt liggur hvaö upp aö öðru i sál Vestur-lslend- inga. Þeir elska Island innilega og þráin til aö minnast gamla landsins er stórkostleg. Rikasta þrá þeirra er aö hafa samband viö Island og Islendingá. Hér heima hefur þvi miöur vantaö nánari og betri samvinnu um þessi samskipti. Það er miöur, þvi þetta málefni má ekki veröa deilumál milli aöila. — Margir þeirra sem hafa hringt, er fólk sem fór til Vest- urheims árið 1975 með Sunnu, en Guðni Þóröarson á einmitt miklar þakkir skiliö fyrir þaö upphaf slikra feröa. Ef hann hefði ekki lagt allt i sölurnar og fórnaö mannoröi sinu, heföi ekkert oröiö úr slikum feröum. En fyrir þetta framtak sitt hefur hann orðiö fyrir ómaklegu aö- kasti. Kirkjukór og knatt- spyrnulið Feröir feröaklúbbsins verða þrjár, eins og fyrr segir. Hin fyrsta veröur farin i lok júni og veröur i tengslum við aldaraf- mæli íslendingabyggöar i Noröur-Dakota. Sú ferö er háls- mánaöarferð. Onnur feröin er þriggja vikna og veröur þar komiö viö á Islendingadeginum i Gimli, en þriðja og siöasta feröin er fjögurra vikna og flog- iö til Seattle og meöal annars komiö til Hawai og dvalizt á hóteli þar í eigu vestur-Is- lenzkra hjóna. Helgi Vlgfúfson. Helgi sagbi að þegar heföu fjölmargir einstaklingar pantaö sæti i þessum feröum, auk þess sem félagasamtök heföu pant- aö. Meöal annarra kirkjukór og knattspyrnuliö. Þar sem hér væri ekki um feröaskrifstofu aö ræöa, gæti hann aðeins tekiö á móti pöntunum, en ekki látiö greiöa inn á væntanlegan feröa- kostnaö, sem hann sagöi að yröi aö visu I lágmarki, en hann gæti þó ekki gefið upp. Þeir sem pantaö heföu far, yröu hins vegar aö gefa það upp fyrir næstu mánaðamót, hvort þeir væru ekki alveg staöráönir i aö fara, þar sem ganga þyrfti frá pöntunum á hótelum. Tilboö heföu komið frá hótelum I Fargo og Winnipeg, og þau mál þyrftu afgreiðslu hið fyrsta. ódýr hótel og ættingjar Þegar Helgi var aö þvl spurð- ur, hvort gist yröi hjá einstak- lingum, eins og gert var á siö- asta sumri þegar hópar fóru vestur um haf, kvaö hann nei viö. Hjá einstaklingum yröi ekki gist nema þvi aöeins aö ein- hverjir ættu ættingja vestra sem þeir vildu gista hjá. Raunar væri mönnum ráðlagt aö gera þaö ef unnt væri, en annars yröi útveguö dvöl á „ódýrum en sér- staklega smekklegum hótel- um”. Ef um þaö yrði að ræöa, aö koma þyrfti einhverjum fyrir hjá fjölskyldum vestra, án þess aö þar væri um skyldleika aö ræöa, sagði hann slika dvöl al- gerlega háöa þvi, aö greitt yrði i sömu mynt þegar V-íslendingar koma hingaö til lands. — Þessar feröir klúbbsins eru alls ekki ætlaöar til höfuös ein- um eða neinum, sagöi Helgi aö lokum, — en það væri bezt fyrir alla aöila, ef unnt væri aö sam- eina feröir hinna ýmsu aöila vestur um haf. En aðalatriðið er aö halda tengslunum viö þessa frændur okkar 1 Vesturheimi sem nú munu vera yfir hálf milljón og ótrúlega margir mælandi á betri Islenzku en unglingar hérlendis. Þetta sam- band má ekki rofna meöan is- lenzkt blóð rennur i bláæöum okkar. —hm

x

Alþýðublaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Alþýðublaðið
https://timarit.is/publication/2

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.