Alþýðublaðið - 12.01.1978, Qupperneq 6

Alþýðublaðið - 12.01.1978, Qupperneq 6
6 Fimmtudagur 12. janúar 1978 ££&* Þannig kemst Oluf Lauth umsjónarmaður þáttarins „Einhver til að tala við" i danska ríkisút- varpinu að orði, en í hverri viku berast þættinum fjöldamörg bréf frá út- varpshlustendum. Fjalla þau einkum um félagsleg vandamál, einmanaleika, og hjúskaparvandamál. Þau mannlegu vanda- mál, sem þannig líta dags- ins Ijós eru stjórnanda þáttarins mörg hver einkar skiljanleg. Hann er nefni- lega sjálfur bundinn hjóla- stól. — Þau vandamál, sem skapast við langtima-at- vinnuleysi, fylgja oft fötl- uðu fólki um aldur og ævi, segir Lauth. Hann bætir við, að það sé útbreiddur misskilningur, að fatlað fólk eigi margt til að lifa fyrir og sé hamingjusamt og ánægt með tilveruna. Þessi rómantik, sem oft vilji einkenna umræður um afbrigðilegt fólk, sé tómt hjóm. Það hafi lifsreynsl- an sannað fyrir löngu. Áttræð á elliheimili. Flestir þeirra sem senda bréf til þáttarins, eru af eldri kynslóð- inni, en þó berast einnig bréf frá hinum yngri. / Þessi samsetning gerir þaö aö verkum, að það eru einkum vandamál eldra fólksins sem tek- in eru til meðferðar. Til dæmis hefur hlustendum nýlega gefist tækifæri til að fylgjast með deil- um um elliheimili og hlutverk þeirra. Hófust þær þannig að áttræð kona sendi bréf til þáttarins, þar sem hún lýsti hvernig hún hefði orðið að yfirgefa allar persónu- legar eigur sinar og flytjast á dvalarheimili. 1 þau fáu skipti, sem börn og barnabörn kæmu i heimsókn, sagði hún, væri ekkert pláss til að taka á móti þeim. Konan sagði enn fremur, að oft hvarflaði að henni hvað yrði eig- inlega af eigum hennar. Börnin vildu ekki sjá þessa muni og á elliheimilinu væri ekkert rúm fyrir þá. Þetta bréf vakti talsverða at- hygli, og skömmu siðar barst annað slikt til þáttarins frá áheyranda, sem kvaðst vera mjög trúaður. Áminnti hann m.a. konuna um, að jarðnesk auðævi væru ekki ætluð til eignar heldur væru þau „aöeins lánuö” viðkom- andi, þar til yfir lyki. Eins mörg og stjörnur himins. Annars eru efni þeirra bréfa, sem berast i þáttinn eins mörg og margvisleg og stjörnur himins- ins. Oft bera þau með sér, að bréfritarar eru svolitið sérlunda og hafa óbifanlegar skoðanir á hlutunum. En þau eiga það lika sameiginlegt, að þau eru send vegna þess að fólk þarf að tala við einhvern, fá útrás fyrir vanda- mál, sem ef til vill hafa hrannast upp á skömmum tima. Oluf Lauth segist vera mjög ánægður vegna þeirrar athygli sem þátturinn vekur. Ekki vegna vin- sældanna sjálfra heldúr vegna þess, að nú sé hægt að koma til móts við fólk og veita tjáningar- þörf þess útrás. Þegar þættinum var fyrst út- varpað i Danmörku fyrir tæpum þrem árum, sýndi bréfaflaumur- inn, að nauðsynlegt yrði að hafa hann vikulega, i stað hálfsmánað- arlega, eins og fyrirhugað hafði verið. Og þaö er ekki siður þýðingar- mikið fyrir stjórnandann að hafa vinnu við útvarpið, en hlustendur að koma skoðunum sinum á framfæri. — 1 þvi samfélagi sem viö lif- um i, er það fyrir öllu, að hafa ör- ugga atvinnu. Þaö er hið einasta sem gefur þér tækifæri til að standa jafnfætis öðrum i lifsbar- áttunni, segir hann. Ctilokun frá vinnumarkaftinum er þaft aem fer verat meft fólk. Þd fyrst fer þaft að finna til einmanaleika, seglr Oluf Lauth, stjórnandi þáttarins „Einhver til að tala viö”. Fólk sem f lytur — eða er f lutt — á elliheimili á oft erf itt með að laga sig að breyttum aðstæðum. Það finnur ósjaldan til einmanakenndar og á einnig við ýmisleg önnur vandamál að etja. Börn og tengdabörn koma sjaldan auga á vandamál þau er skapast á elli- heimilum, og það er algengt að heyra setningar eins og þessa: „Tengda- mamma hef ur það reglulega gott á elliheimilinu. Nú hef ur hún einhvern til að hugsa um sig, og er alltaf þokkalega til fara." Erlendis frá Skammvinnur valdatími Dubceks í Tékkóslóvakíu Eftir Dag Halvorsen; Fyrir röskum 10 árum, eða nánar þann 5. janúar 1968 uppgötvuðu 14 milljónir Tékka og Slóvaka, að þeir höfðu allt i einu fengið nýjan flokks- formann. Gamlinginn, Antonin Novotny, sem stjórnað hafði með harðri hendi í fimmtán ár, vék nú sæti fyrir lítt þekktum Slóvaka, Alexander Dubcek. Novotny hélt raunar forseta- tigninni og aðalhugmynda- fræðingur hans, Jiri Hendrych, lét svo um mælt við blaðamenn, að stjórnarskiptin i flokknum boðuðu engar nýjungar. Hér væri aðeins verið að styrkja stjórnina með þvi að færa æðstu völdin á fleiri herðar!. Að visu hafði gengið orðrómur um sundurþykkni i innri málum flokksins, en hinn litt ræmdi Novotny var þó enn forseti og i augum ibúa Prag var hinn „óþekktí Slóvaki” auðvitað óskrifað blað. Það voru aðeins menn i innsta hring, sem vissu að Dubcek hafði um nokkra hrið haldið uppi sterkri gagnrýni á stjórn Novotnys. Hann hafði ekki ein- ungis krafizt jafnrétti* Slóvaka, heldur og pólitiskra og efnahags- legra umbóta. Hér var um að ræða valdabar- áttu- harða baráttu, sem lauk með ósigri Novotnys bakvið Iok- aðar dyr „spánska salarins” i hinni fornu keisarahöll, Hradscin, i Prag. breytti gangi mála innan kommúnistahreyfingarinnar, sem enn býr að þar í sveit! Allt fram að áramótum 1967/1968 leit svo út, sem Novotny myndi bera sigur úr býtum. Það var nánast ekki fyrr en á elleftu stund, sem meirihluti flokksráðs- ins sneri baki við honum. Meira að segja tækifærissinninn, Hendrych slóst i þann hóp i Situr í hjólastól og vonlausri baráttu viö að varðveita völd sin og áhrif! Novotny hafði i desember 1967 kallað Brjesnev sér til aðstoðar. Gesturinn hlýddi á deilumál hinna striðandi aðila og kvað svo upp þann dóm, að þetta væri mál, sem flokkurinn yrði að ráða fram úr á eigin hönd! Grunur leikur á, að Brjesnev hafi siðar iðrast sárlega eftir að hafa þannig gert valdaskiptin 5. janúar möguleg! Novotny freistaði þess að á siðustu stundu að gera herinn' handgenginn sér. En tök hans á hernum höfðu slaknað nægilega á undangengnum 15 árum, til þess að þar var ekki skjóls að leita. Það bætti heldur ekki úr skák, að hljóðbært varð um skrá yfir minnst 2000 manns, sem ætti að fangelsa og flokksdeildinni i hernum var stjórnað af fylgis- manni umbótanna, Prichlik hers- höfðingja. Það virðist vera þverstæðu- kennt, að það var einmitt No- votny, sem stakk upp á að Dubcek yrði eftirmaðurinn! Hann mun hafa álitið, að „Slóvakinn’ væri nægilega óreyndur til þess að hann hefði i öllum höndum um stjórnina! Trúlegt væri að Tékkarnir i Prag litu þetta aðskotadýr óhýrum augum og á þeim grund- velli taldi Novotny sér færi að nota Dubcek einmitt til að hrekja umbótamennina i varnarstöðu, ef ekki reka þá á flótta! Þetta reyndist hinsvegar einber og óraunhæf óskhyggja og það kom brátt i ljós, aö hér var ekki aðeins um að ræða mannaskipti við stjórnvölinn, heldur og rót- tæka stefnubreytingu. Eflaust átti ánægja fólksins ekki hvað sizt rætur að rekja til þess, að Tékkóslóvakia var eina landið i Austurblökkinni, sem hafði búið við og þekkti frá fornu fari lýðræðisiegt stjórnarfar. Varla var liðinn mánuður frá stjórnarskiptum þegar sýnt var, að alvarleg stefnubreyting var á komin. Rýmkað var stórlega um tján- ingarfrelsi blaðanna i Prag og Bratislava og blaðamenn streymdu til landsins eMendis frá, til að vera vitni að þessum kapitulaskiptum. Þegar sumarið 1967 höfðu kom- ið upp harðvitugar deilur á rithöf- undaþingi i Prag og þar komu fram óvægnar ádeilur á rikjandi stjórnarfar. Það hellti svo oliu á eidinn, að i september 1967 voru margir rithöfundanna reknir úr flokknum og timarit hinna frjáls- lyndu, Litterarny Noviny, var sett undir opinbert eftirlit menntamálaráðherrans! Ýmsir erlendir fréttamenn litu svo á, að þessar deilur milli tékkneskra rithöfunda boðuðu ekki annað en að nú þætti timi — að áliti stjórnvalda — til að herða tökin á þeim óþægu og þeir myndu bogna. Miklu færri vissu, að allt árið 1967 hafði verið unnið að þróun i frelsisátt, sem siðar kom á dag- inn og átti eftir að skekja ofurvald kommúnismans i Evrópu harka- lega. Framhald á bls. 10 ræðir vandamál annarra

x

Alþýðublaðið

Direct Links

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Alþýðublaðið
https://timarit.is/publication/2

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.